Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 18. september 2006.
Mál nr. S-250/2006:
D Ó M U R
nr. S-250/2006:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörsluru fíkniefna og til að sæta upptöku efnanna
X.
Mál þetta, sem dómtekið var 11. september sl., hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru útgefinni 17. ágúst 2006 á hendur X, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfararnótt laugardagsins 3. júní 2006, verið með í vörslum sínum 0,88 grömm af hassi og 0,55 grömm af amfetamíni, þegar lögreglan hafði afskipti af honum á bílastæði við skemmtistaðinn Sjallann, Geislagötu 14 á Akureyri.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 0,88 grömmum af hassi og 0,55 grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 9.388 og 9.389, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Fyrirkall í máli þessu var gefið út 24. ágúst sl. og birt ákærða 30. s.m. Við þingfestingu málsins þann 11. september sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið, að kröfu sækjanda, með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991. Þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans í máli, sbr. téða lagagrein, enda fer sú niðurstaða eigi í bága við gögn málsins. Telst brot hans því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreind lagaákvæði.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði einu sinni verið dæmdur til greiðslu sektar vegna fíkniefnalagabrots. Þykir refsing hans nú hæfilega ákveðin kr. 65.000í sekt til ríkissjóðs og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæruskjali, ber að gera upptæk fíkniefni, svo sem í dómsorði greinir.
Ekki liggja fyrir gögn um sakarkostnað í málinu.
Dóm þennan kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði X greiði kr. 65.000í sekt til ríkissjóðs og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ákærði sæti upptöku á 0,88 grömmum af hassi og 0,55 grömmum af amfetamíni, samkvæmt efnaskrám lögreglu nr. 9.388 og 9.389.