Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 18. júlí 2006.
Mál nr. S-182/2006:
D Ó M U R
máli
nr. S-182/2006:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X og
Z.
Mál
þetta, sem dómtekið var 7. júlí 2006, hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað
hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru útgefinni 1. júní 2006 á
hendur X og Z,
„fyrir
fíkniefnalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 11. janúar 2006, verið með í
vörslum sínum 0,33 grömm af tóbaksblönduðu hassi í íbúð ákærða [X] að [...] á
Akureyri.
Telst
þetta varða við 2. gr. sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni, nr. 65,
1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og
2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233,
2001.
Þess
er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 0,33
grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í
efnaskrá nr. 8.536, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14.
gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
I.
Ákærði
X kom fyrir dóminn þann 7. júlí og viðurkenndi að hafa haft umrædd efni í
vörslu sinni en kvað þau vera eign meðákærða, Z. Er játning ákærða X í samræmi við gögn málsins
og þykir brot hans því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreind lagaákvæði
í ákæruskjali. Að framangreindu virtu
þykja vera efni til að leggja dóm á þátt ákærða X á grundvelli 125. gr. laga
nr. 19/1991.
Fyrirkall
sótti ákærði, Z, ekki þing og ekki heldur við síðari fyrirtöku þess og var
málið dómtekið hvað hann varðar að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126.
gr. laga nr. 19/1991. Þykir mega jafna
framangreindri útivist ákærða til játningar hans með vísan til áðurgreindrar
lagagreinar, enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Telst brot hans því nægjanlega sannað og
varðar það við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.
II.
Samkvæmt vottorðum sakaskrár ríkisins
hefur ákærði X ekki áður sætt refsingu.
Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin kr. 30.000,- í sekt til
ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd
innan 4 vikna.
Ákærði Z á langan brotaferil að baki
samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins. Frá
árinu 1981 hefur hann alls 23 sinnum undirgengist sáttir, viðurlagaákvarðanir
eða hlotið dóma fyrir brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum
um ávana- og fíkniefni. Þykir refsing ákærða
nú hæfilega ákveðin kr. 70.000,- í sekt til ríkissjóðs og komi 5 daga fangelsi
í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Dæma ber ákærðu til að sæta upptöku á
0,33 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, svo sem nánar greinir í dómsorði.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson
dómstjóri.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði
X, greiði kr. 30.000- í sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað
sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ákærði
Lykilorð
Útdráttur
Tveir piltar dæmdir í sektir og til að sæta upptöku fíkniefna fyrir vörslur fíkniefna
Mál þetta, sem dómtekið var 7. júlí 2006, hefur lögreglustjórinn á Akureyri höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru útgefinni 1. júní 2006 á hendur X og Z, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 11. janúar 2006, verið með í vörslum sínum 0,33 grömm af tóbaksblönduðu hassi í íbúð ákærða [X] að [...] á Akureyri.
Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 0,33 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 8.536, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
I.
Ákærði X kom fyrir dóminn þann 7. júlí og viðurkenndi að hafa haft umrædd efni í vörslu sinni en kvað þau vera eign meðákærða, Z. Er játning ákærða X í samræmi við gögn málsins og þykir brot hans því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali. Að framangreindu virtu þykja vera efni til að leggja dóm á þátt ákærða X á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991.
Fyrirkall í málinu gagnvart ákærða, Z, var gefið út 6. júní 2006 og birt ákærða 8. s.m. Við þingfestingu málsins þann 12 júní s.l. sótti ákærði, Z, ekki þing og ekki heldur við síðari fyrirtöku þess og var málið dómtekið hvað hann varðar að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991. Þykir mega jafna framangreindri útivist ákærða til játningar hans með vísan til áðurgreindrar lagagreinar, enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins. Telst brot hans því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.
II.
Samkvæmt vottorðum sakaskrár ríkisins hefur ákærði X ekki áður sætt refsingu. Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin kr. 30.000,- í sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ákærði Z á langan brotaferil að baki samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins. Frá árinu 1981 hefur hann alls 23 sinnum undirgengist sáttir, viðurlagaákvarðanir eða hlotið dóma fyrir brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin kr. 70.000,- í sekt til ríkissjóðs og komi 5 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Dæma ber ákærðu til að sæta upptöku á 0,33 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, svo sem nánar greinir í dómsorði.
Enginn sakarkostnaður er í málinu.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði X, greiði kr. 30.000í sekt til ríkissjóðs og komi 2 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ákærði Z, greiði kr. 70.000í sekt til ríkissjóðs og komi 5 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ákærðu sæti upptöku á 0,33 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem tilgreint er í efnaskrá lögreglu nr. 8.536.