Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 14. september 2006.
Mál nr. S-145/2006:
D Ó M U R
nr. S-145/2006:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Líkamsárás. Miskabætur. Skilorð. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot og líkamsárás. Jafnframt var hann dæmdur til greiðslu skaðabóta.
X
Mál þetta, sem dómtekið var þann 1. september sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með tveimur ákæruskjölum lögreglustjórans á Akureyri á hendur X, kt. 000000-0000, [...], Akureyri.
Með ákæruskjali útgefnu þann 15. maí sl. er ákærða gefið að sök „umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 28. febrúar 2005 ekið bifreiðinni [...], austur Höfðahlíð á Akureyri, með allt að 71 kílómetra hraða miðað við klukkustund eftir vegarkafla við Glerárskóla, en þar er leyfilegur hámarkshraði 30 kílómetrar og nota ekki öryggisbelti við akstur bifreiðarinnar.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 4. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 71. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. nefndra umferðarlaga sbr. lög nr. 44, 1993.“
Með ákæruskjali útgefnu 1. júní sl. er ákærða gefin að sök „líkamsárás, með því að hafa aðfararnótt þriðjudagsins 27. desember 2005, slegið A, kt. 000000-0000 í andlitið, með þeim afleiðingum að hún féll í gólfið og hlaut glóðarauga.
Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20, 1981.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í málinu gerir Gunnar Sólnes hrl. fyrir hönd A, kt. 000000-0000, [...], Akureyri, bótakröfu á hendur ákærða að fjárhæð kr. 50.000-, með dráttarvöxtum frá 27. janúar 2006 til greiðsludags og þóknun að mati dómsins til lögmanns bótakrefjanda fyrir aðstoð við tjónþola og gerð bótakröfu.“
I.
Ákærði mætti fyrir dóminn þann 1. september sl. og kvaðst hann viðurkenna sök samkvæmt ákæruskjali útgefnu þann 15. maí 2006. Með vísan til játningar ákærða og gagna málsins þykir sök ákærða nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.
Fyrir dóminum kvaðst ákærði einnig viðurkenna brot sitt samkvæmt ákæruskjali útgefnu þann 1. júní sl., eins og því er þar lýst, en kvað brotaþola þó hafa átt upptök átakanna. Hann hafnaði framkominni bótakröfu sem of hárri. Með vísan til játningar ákærða fyrir dómi og gagna málsins þykir sök ákærða nægjanlega sönnuð og varðar brot hans við tilgreind lagaákvæði.
II.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði einu sinni verið dæmdur til refsingar en þann 13. febrúar 2004 var hann dæmdur til greiðslu sektar fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökurétti í eitt ár. Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Með vísan til sakaferils ákærða og skýlausrar játningar hans skal fresta fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
III.
Í málinu gerir A, kt. 000000-0000 bótakröfu á hendur ákærða að fjárhæð kr. 50.000-, með dráttarvöxtum frá 27. janúar 2006 til greiðsludags. Þá er krafist þóknunar að mati dómsins til lögmanns bótakrefjanda fyrir aðstoð við tjónþola og gerð bótakröfu. Er krafa um miskabætur byggð á því að brotaþoli hafi hlotið ljótan áverka af völdum ákærða þó að ekki hafi verið um varanlegan skaða að ræða og styðst hún við 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Krafa um dráttarvexti styðst við 9. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 og krafa um þóknun lögmanns við 44. gr. i. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Með vísan til ofangreindrar niðurstöðu um sök ákærða verður ákærði talinn bera ábyrgð á tjóni brotaþola. Með vísan til framlagðs áverkavottorðs og myndar af áverkum brotaþola er krafa brotaþola um kr. 50.000 í miskabætur tekin til greina, ásamt vöxtum eins og nánar greinir í dómsorði. Lögmaður brotaþola hefur ekki verið skipaður réttargæslumaður í máli þessu og er kröfu hans um þóknun því hafnað.
Enginn sakarkostnaður hlaust af rekstri málsins.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði X sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði A kr. 50.000 með dráttarvöxtum frá 11. júní 2006.
Freyr Ófeigsson.