Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 19. júní 2006.
Mál nr. S-131/2006:
D Ó M U R
máli
nr. S-131/2006:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Z
Mál
þetta, sem dómtekið var þann 6. júní sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi
Norðurlands eystra með ákæruskjölum lögreglustjórans á Akureyri útgefnum þann 2.
og 16. maí sl. á hendur X, kt. 000000-0000, [...], Akureyri, og Z, kt. 000000-0000,
[...], Akureyri.
Með ákæruskjali
dagsettu 2. maí 2006 er höfðað mál á hendur ákærðu báðum;
„fyrir
eftirtalin fíkniefnalagabrot:
A.
Gegn ákærða Z, fyrir að hafa frá byrjun
septembermánaðar 2005, þar til hann var handtekinn 1. desember 2005, selt á Akureyri
25 til 30 grömm af hassi.
B.
Gegn ákærða X, fyrir að hafa í nóvembermánuði
2005, þar til hann var handtekinn 1. desember 2005, selt á Akureyri 40 til 50
grömm af hassi.
C.
Gegn
ákærðu báðum fyrir að hafa fimmtudaginn 1. desember 2005, verið með í vörslum
sínum í íbúð sem þeir leigðu að Smárahlíð 8 B á Akureyri, 25,45 grömm af
amfetamíni, 32 E-pillur (ecstasy), 281,19 grömm af hassi, 100,60 grömm af
marihúana og 3 kannabisfræ, en efni þessi hugðust þeir selja á Akureyri og nágrenni.
Telst
þetta varða við 2. gr., sbr. 4. gr., 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og
fíkniefni, nr. 65,1974, sbr. lög nr. 13,1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr.
sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233,2001.
Þess
er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 25,45
grömmum af amfetamíni, 32 E-pillum, 281,19 grömmum af hassi, 100,60 grömmum af
marihúana og þremur kannabisfræum, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í
efnaskrám nr. 8.156, 8.159 og 8.160, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65,1974
og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233,2001.
Þess
er einnig krafist að ákærðu sæti upptöku á 94.000- krónum sem lögreglan lagði
hald á við rannsókn málsins, samkvæmt 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974, sbr.
lög nr. 10, 1997, sú upphæð er talin svara til ávinnings af brotum þeirra.“
Með
ákæruskjali dagsettu 16. maí 2006 er höfðað mál á hendur ákærðu báðum,
„fyrir
að hafa fimmtudaginn 8. desember 2005, verið með saman í vörslum sínum 131
E-pillu (ecstacy) og 98,80 grömm af hassi, en efni þessi höfðu þeir falið undir
trjágróðri í skógarþyrpingu vestan við bæinn Skúta á Akureyri, en efni þessi
hugðust þeir selja á Akureyri og nágrenni.
Telst
þetta varða við 2. gr. sbr. 4. gr., 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og
fíkniefni, nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr.
lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og
fíkniefna nr. 233,2001.
Þess
er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 131
E-pillum og 98,80 grömmum af hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er
í efnaskrám nr. 8.334, 8.159 og 8.218, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65,1974
og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233,2001.“
Þann
22. maí sl. kom ákærði Z fyrir dóm og viðurkenndi brot sín eins og þeim er lýst
(Sigmundur Guðmundsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Tveir piltar dæmdir til fangelsisrefsingar fyrir vörslu og sölu fíkniefna. Fíkniefni og ágóði sölu fíkniefna gerð upptæk.
Mál þetta, sem dómtekið var þann 6. júní sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæruskjölum lögreglustjórans á Akureyri útgefnum þann 2. og 16. maí sl. á hendur X, kt. 000000-0000, [...], Akureyri, og Z, kt. 000000- 0000, [...], Akureyri.
Með ákæruskjali dagsettu 2. maí 2006 er höfðað mál á hendur ákærðu báðum; „fyrir eftirtalin fíkniefnalagabrot:
A.
Gegn ákærða Z, fyrir að hafa frá byrjun septembermánaðar 2005, þar til hann var handtekinn 1. desember 2005, selt á Akureyri 25 til 30 grömm af hassi.
B.
Gegn ákærða X, fyrir að hafa í nóvembermánuði 2005, þar til hann var handtekinn 1. desember 2005, selt á Akureyri 40 til 50 grömm af hassi.
C.
Gegn ákærðu báðum fyrir að hafa fimmtudaginn 1. desember 2005, verið með í vörslum sínum í íbúð sem þeir leigðu að Smárahlíð 8 B á Akureyri, 25,45 grömm af amfetamíni, 32 E-pillur (ecstasy), 281,19 grömm af hassi, 100,60 grömm af marihúana og 3 kannabisfræ, en efni þessi hugðust þeir selja á Akureyri og nágrenni.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 4. gr., 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65,1974, sbr. lög nr. 13,1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233,2001.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 25,45 grömmum af amfetamíni, 32 E-pillum, 281,19 grömmum af hassi, 100,60 grömmum af marihúana og þremur kannabisfræum, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 8.156, 8.159 og 8.160, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65,1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233,2001.
Þess er einnig krafist að ákærðu sæti upptöku á 94.000krónum sem lögreglan lagði hald á við rannsókn málsins, samkvæmt 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 10, 1997, sú upphæð er talin svara til ávinnings af brotum þeirra.“
Með ákæruskjali dagsettu 16. maí 2006 er höfðað mál á hendur ákærðu báðum, „fyrir að hafa fimmtudaginn 8. desember 2005, verið með saman í vörslum sínum 131 E-pillu (ecstacy) og 98,80 grömm af hassi, en efni þessi höfðu þeir falið undir trjágróðri í skógarþyrpingu vestan við bæinn Skúta á Akureyri, en efni þessi hugðust þeir selja á Akureyri og nágrenni.
Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 4. gr., 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233,2001.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á 131 E- pillum og 98,80 grömmum af hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 8.334, 8.159 og 8.218, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65,1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233,2001.“
Þann 22. maí sl. kom ákærði Z fyrir dóm og viðurkenndi brot sín eins og þeim er lýst í ákæru. Er játning ákærða í samræmi við gögn málsins og teljast brot hans því nægjanlega sönnuð og varða þau við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.
Verjandi ákærða X krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að málskostnaður verði greiddur úr ríkissjóði, þ.á.m. hæfileg málsvarnarlaun sér til handa.
Þann 22. maí sl. kom ákærði X fyrir dóm og viðurkenndi brot sitt samkvæmt b-lið ákæru dags. 2. maí 2006 en neitaði að hafa átt önnur efni en amfetamín skv. C- lið ákærunnar.
Þann 30. maí kom ákærði X aftur fyrir dóminn og viðurkenndi vörslur á hassi samkv. ákæru dags. 16. maí 2006 en neitaði að hafa ætlað að selja það. Hann neitaði hinsvegar vörslum á E-pillunum samkvæmt sömu ákæru.
Í dómþingi 6. júní 2006 lýsti fulltrúi ákæruvaldsins því yfir að fallið væri frá þeim ákæruliðum á hendur ákærða X, sem hann neitaði sök. Er játning ákærða á öðrum ákæruatriðum í samræmi við gögn málsins og teljast þau brot hans því nægjanlega sönnuð og varða þau við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali og verður ákærði einungis dæmdur fyrir þau brot.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði X fimm sinnum hlotið refsing fyrir brot á fíkniefnalögum og umferðarlögum. Þann 27. október 2005 var hann dæmdur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára. Með brotinu sem hér er til umfjöllunar hefur ákærði rofið skilorð þessa dóms og ber því að taka dóminn upp, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ákveða refsingu hans í einu lagi eftir reglum 77. gr. laganna. Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að ákærði hefur viðurkennt vörslur á umtalsverðu magni fíkniefna, auk sölu á hassi. Þá ber að líta til sakaferils ákærða, en einnig til ungs aldurs hans og þeirrar staðreyndar að ákærði hefur játað brot sín. Þykir refsing hans nú hæfilega ákveðin 6 mánaða fangelsi. Eigi þykja lengur efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði Z fjórum sinnum hlotið refsingu fyrir brot á fíkniefnalögum og almennum hegningarlögum. Þann 14. maí 2004 var ákærði dæmdur fyrir brot gegn 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga auk brots gegn lögum um ávana- og fíkniefni í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Með brotum sem hér eru til umfjöllunar hefur ákærði rofið skilorð þessa dóms og ber því að taka hann upp, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ákveða refsingu hans í einu lagi eftir reglum 77. gr. laganna. Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að ákærði hefur viðurkennt vörslur á umtalsverðu magni hættulegra fíkniefna, auk sölu á hassi yfir alllangan tíma. Þá ber að líta til sakaferils ákærða, en einnig til ungs aldurs hans og þeirrar staðreyndar að ákærði hefur játað brot sín greiðlega. Þykir refsing hans nú hæfilega ákveðin eins árs fangelsi. Ekki þykja lengur efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Dæma ber ákærðu til að sæta upptöku á peningum og fíkniefnum eins og greinir í dómsorði.
Enginn útlagður kostnaður er í málinu, en dæma ber ákærða X til greiðslu málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Sigmundar Guðmundssonar hdl., sem ákvarðast kr. 90.000- og er virðisaukaskattur innifalinn.
Dóm þennan kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, X, sæti fangelsi í 6 mánuði.
Ákærði, Z, sæti fangelsi í eitt ár.
Ákærðu sæti upptöku á 25,45 grömmum af amfetamíni, 32 E-pillum, 281,19 grömmum af hassi, 100,60 grömmum af marihúana og þremur kannabisfræum samkvæmt efnaskrám lögreglu nr. 8.156, 8.159 og 8.160.
Ákærðu sæti upptöku á 131 E-pillum og 98,80 grömmum af hassi, sem samkvæmt efnaskrám lögreglu nr. 8.334, 8.159 og 8.218.
Þá sæti ákærðu upptöku á 94.000krónum.
Ákærði X greiði kr. 90.000í málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sigmundar Guðmundssonar hdl., og er virðisaukaskattur innifalinn.