Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Austurlands

Mál nr. S-5/2008:

Ákæruvaldið

(Lárus Bjarnason sýslumaður)

gegn

Pawel Janas

I.

(Eva Dís Pálmadóttir hdl)

Gripdeild.

Karlmaður sýknaður af ákæru um gripdeild.

I.

Mál þetta, sem dómtekið var þriðjudaginn 26. febrúar sl. að aflokinni aðalmeðferð, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Seyðisfirði, útgefinni 8. janúar 2008, á hendur Pawel Janas, fæddum 6. nóvember 1960, pólskum ríkisborgara, nú til heimilis að Fitjum Reykjanesbæ, sem kallar sig Henryk Stanislaw Szelag, kt. 000000-0000, “fyrir gripdeild, með því að hafa, laugardaginn 18. ágúst 2007, kl. 13:14, í Shellskálanum að Fagradalsbraut 13, Egilsstöðum, dælt sjálfur 46,9 lítrum af bensíni á bensíndælu nr. 2, á bifreiðina MY-384, sem hann var ökumaður á að andvirði 5.929.- og ekið á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.

Telst þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Þá krefst rekstraraði (svo) Shellskálans, Kollur ehf. kt. 000000-0000, skaðabóta að fjárhæð kr. 18.486.- vegna þjófnaðarbrots þessa.”

Í þinghaldi 8. janúar sl. benti sækjandi á að í stað orðsins “þjófnaðarbrots” í lok ákæru ætti að standa “auðgunarbrots”.

Af hálfu ákærða er aðallega krafist sýknu, til vara að ákærða verði ekki gerð sérstök refsing vegna brotsins og til þrautavara að ákærði verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá er þess krafist að sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, greiðist úr ríkissjóði. Að því er bótakröfu varðar er þess aðallega krafist að henni verði vísað frá dómi en til vara að hún verði lækkuð.

II.

Málavextir Í frumskýrslu lögreglu, dagsettri 19. ágúst 2007, segir að tilkynning hafi komið frá Fjarskiptamiðstöð lögreglu um að starfsmaður hjá Skeljungi á Egilsstöðum hafi óskað eftir aðstoð vegna þess að ökumaður bifreiðar með skrásetningarnúmerinu MY-384 hefði stungið af frá ógreiddum bensínreikningi. Lögregla hafi farið á vettvang og rætt við Ísak forsvarsmann rekstraraðilans, Kolls ehf. Ísak hafi tjáð lögreglu að bifreiðin MY-384 væri rauð að lit og af gerðinni Passat. Hafi hann sagst ætla að koma með mynddisk á lögreglustöðina og leggja fram bóta- og refsikröfu á hendur eiganda bifreiðarinnar.

Í skýrslunni segir að haft hafi verið samband við lögregluna á Fáskrúðsfirði því eigandi bifreiðarinnar væri búsettur þar og hafi lögreglan þar ætlað að grennslast fyrir um það hvort ökumaður bifreiðarinnar væri á ferðinni á Suðurfjörðum.

Í málinu liggur frammi skrifleg kæra fyrirsvarsmanns Kolls ehf., dags. 20. ágúst 2007, vegna stuldar á bensíni af bensíndælu hjá Shellstöðinni á Egilsstöðum. Í kærunni segir að laugardaginn 18. ágúst 2007 kl. 13.14.29 hafi ökumaður bifreiðarinnar MY 384 dælt 46,9 lítrum af bensíni af bensíndælu nr. 2 hjá Shellstöðinni á Egilsstöðum á bensíntank bifreiðarinnar og síðan ekið á brott án þess að greiða fyrir bensínið. Verðmæti bensínsins nemi 5.929 krónum. Atvikið komi fram á öryggismyndavél stöðvarinnar og fylgi geisladiskur með upptöku af atvikinu með kærunni. Þar komi fram að ökumaðurinn dæli bensíni á bifreiðina og aki síðan á brott.

Í kærunni er ennfremur sett fram bótakrafa vegna atviksins að fjárhæð 18.486 krónur, sem sundurliðast þannig:

Andvirði 46,9 lítra af bensíni                                                       5.929 krónur Aukavinna starfsmanns við eftirgrennslan, samskipti við lögreglu, afritun upptöku úr eftirlitsmyndavél o.fl. – andvirði eins klukkutíma útseldrar vinnu ófaglærðra                 3.900 krónur Lögmannsaðstoð við gerð skaðabótakröfu                                  7.657 krónur Vottorð hlutafélagaskrár                                                             1.000 krónur Samtals                                                                                    18.486 krónur Meðal gagna málsins er bensínnóta merkt Skeljungi hf., Egilsstöðum, vegna MY- 384, dagsett 18. ágúst 2007, kl. 13.14.29. Er hún vegna 46,9 lítra af bensíni af dælu 2, að fjárhæð 5.929 krónur.

Í upplýsingaskýrslu lögreglu, dagsettri 3. janúar 2008, segir að hinn 18. ágúst 2007 hafi karlmaður komið inn í Shellskálann á Egilsstöðum og framvísað greiðslukorti í viðskiptum sínum við verslunina. Hann hafi komið sér hjá því að greiða fyrir bensín, sem hann hefði dælt á bifreið sína. Greiðslukortið, sem karlmaðurinn hafi framvísað, tilheyri manni að nafni Henryk Stanislaw Szelag, kt. 000000-0000, til heimilis að Heiðmörk, Stöðvarfirði.

Rannsókn lögreglunnar hafi leitt í ljós að pólskur karlmaður, sem búið hafi að Heiðmörk 17 á Stöðvarfirði og kynnt sig sem Henryk Stanislaw Szelag heiti í raun Pawel Janas og sé fæddur 6. nóvember 1960. Héraðsdómur Austurlands hafi sakfellt umræddan mann fyrir skjalafals með því að afla sér íslenskra skilríkja á nafni Henryks Stanislaws Szelag með því að framvísa vegabréfi umrædds manns.

Í málinu hefur verið lagður fram mynddiskur með upptöku úr eftirlitsmyndavél Shellskálans á Egilsstöðum umræddan dag.

Verður nú rakinn framburður ákærða og vitna fyrir dóminum.

Ákærði, sem kvaðst heita Henryk Stanislaw Szelag, neitaði sakargiftum. Hann sagðist ekki muna eftir umræddu atviki þar sem um hálft ár væri liðið frá því að það átti sér stað, en tók fram að ef hann hefði tekið bensín í umrætt sinn hefði hann örugglega greitt fyrir það. Sagðist hann hafa verið í launaðri vinnu á þessum tíma og því ekki haft neina ástæðu til að stela bensíninu. Hann sagðist ekki geta sagt til um það hvort hann hefði verið á Egilsstöðum umræddan dag og tekið þar bensín. Hann sagði þó að ef myndbandsupptakan sýndi að hann hefði verið á Egilsstöðum umræddan dag hlyti svo að vera. Ákærði var spurður hver skýring hans væri á því að á myndbandsupptökunum kæmi fram að hann hefði lagt bifreiðinni upp við bensíndælu og gengið síðan aftur fyrir bifreiðina. Sagði ákærði að vel gæti verið að hann hefði verið að athuga eitthvað í farangursgeymslu bifreiðarinnar.

Margrét Irma Jónsdóttir sagðist hafa starfað í Shellskálanum á Egilsstöðum síðastliðið sumar. Hún sagðist ekki geta staðfest hvort hún hefði verið við vinnu hinn 18. ágúst sl. Hún sagðist ekki muna sérstaklega eftir þessu atviki en sagðist þó ráma í það að hafa afgreitt mann, sem hefði ekki sagt henni að hann hefði tekið bensín. Hún sagði að hægt hefði verið að greiða fyrir bensín á öllum afgreiðslukössum stöðvarinnar.

Jens Hilmarsson lögreglumaður sagði að oft væri mismunur á tímasetningum í eftirlitsmyndavélum og greiðslukerfi viðkomandi verslana. Hann sagðist ekki hafa athugað hver mismunurinn hefði verið þegar atvikið átti sér stað. Hann sagðist hins vegar hafa kannað þetta fyrir stuttu síðan og þá hefði eftirlitsmyndakerfið verið á undan tímasetningum bensíndælunnar. Hann sagði að ákærði sæist nota greiðslukort á myndbandsupptökunni og sagðist hann hafa fengið upplýsingar um það hjá greiðslukortafyrirtækinu Visa Ísland að kort Henryks Stanislaw Szelag hefði verið notað í Shellskálanum á Egilsstöðum kl. 13.24 umræddan dag, sbr. upplýsingar í ljósmyndamöppu á skjali merktu II-1, bls. 3. Samkvæmt þessum upplýsingum væri samræmi á milli tímasetninga í eftirlitsmyndavél og í greiðslukerfinu.

Ísak Jóhann Ólafsson fyrirsvarsmaður Kolls ehf., rekstraraðila Shellskálans á Egilsstöðum, sagði að þegar eldsneyti væri dælt af bensíndælu kæmu upplýsingar um það fram á tölvuskjá inni í versluninni. Hann sagði að ekki hefði langur tími liðið þar til þau hefðu áttað sig á því að enginn væri til að greiða fyrir bensín, sem dælt hefði verið af dælu nr. 2 umræddan dag. Þegar svona atvik ættu sér stað væri byrjað á því að skoða upptökur úr eftirlitsmyndakerfinu til að reyna að átta sig á því hver hefði farið frá ógreiddum reikningi. Þegar þau væru búin að kanna skrásetningarnúmer viðkomandi bifreiðar hringdu þau yfirleitt í lögreglu til að fá upplýsingar um eiganda hennar. Hann sagði að það gerðist nokkuð oft að fólk gleymdi að greiða fyrir eldsneyti og þá væri hringt í viðkomandi. Hann sagði að í greint sinn hefði lögregla tjáð sér að þetta væri líklega ekki í fyrsta sinn sem viðkomandi aðili hefði farið án þess að greiða fyrir eldsneyti. Í framhaldi af þessu hefði hann leitað til lögmanns og beðið hann um að leggja fram kæru í málinu.

Aðspurður mismun á tímasetningum í dælukerfinu og eftirlitsmyndakerfinu sagði hann að um tvö aðskilin kerfi væri að ræða. Annars vegar væri um að ræða kassakerfi, sem væri miðstýrt frá netþjóni hjá Skeljungi í Reykjavík og uppfært nokkrum sinnum á sólarhring. Hins vegar væri um að ræða eftirlitsmyndakerfi, sem væri stillt af þeim sjálfum öðru hverju. Alltaf væri einhver mismunur á tímasetningum þessara tveggja kerfa og væru þau meðvituð um það.

Hann sagði að hægt væri að greiða fyrir eldsneyti á öllum þremur afgreiðslukössunum í versluninni. Meiri hluti fólks greiddi hins vegar fyrir eldsneyti á sérstökum kassa, sem væri ætlaður til afgreiðslu á eldsneyti. Aðspurður um tímasetningu á bensínnótu sagði hann að um væri að ræða tímann þegar eldsneytinu hefði verið dælt á bifreiðina. Þær upplýsingar kæmu úr baktölvu, þ.e. dælustýringu og kæmu fram á tölvuskjá inni í versluninni. Hann sagði að allar þessar upplýsingar væru varðveittar í móðurtölvu Skeljungs. Fyrirtækið héldi vel utan um þessar upplýsingar því þeir ættu eldsneytið í jarðtönkunum en um leið og búið væri að dæla því úr byssunni skuldaði viðkomandi rekstraraðili þeim andvirði þess.

III.

Niðurstaða.

Á upptöku úr eftirlitsmyndakerfi Shellskálans á Egilsstöðum, sem lögð hefur verið fram í málinu, má sjá ákærða koma akandi að Shellskálanum á bifreiðinni MY-384 um kl. 13.19 umræddan dag. Sjónarhorn eftirlitsmyndavélarinnar er með þeim hætti að á upptökunni sést ákærði ekki dæla bensíni á bifreiðina. Framlögð bensínnóta er dagsett 18. ágúst 2007 kl. 13.14.29 og hefur Ísak Jóhann Ólafsson fyrirsvarsmaður Kolls ehf., rekstraraðila Shellskálans, borið um það hér fyrir dómi að það sé tíminn, sem bensíninu var dælt af dælu nr. 2. Samkvæmt tímasetningu á upptöku úr eftirlitsmyndavélinni virðist ákærði hins vegar hafa komið að Shellskálanum kl. 13.19 eða 5 mínútum síðar. Fullt samræmi virðist hins vegar vera á tímasetningu eftirlitsmyndavélar og greiðslukerfis, en á mynd á skjali II-1 má sjá ákærða framvísa greiðslukorti sínu í versluninni kl. 13.14, en það er sami tími og viðskipti fyrir 2.110 krónum voru færð á greiðslukort Henryks Stanislaw Szelag samkvæmt upplýsingum, sem lögregla hefur frá viðkomandi greiðslukortafyrirtæki.

Engin gögn hafa verið lögð fram í málinu frá greiðslukortafyrirtækinu um viðskipti ákærða við Shellskálann umræddan dag. Þá hafa engin gögn eða útprentanir úr bókhaldskerfi Skeljungs verið lagðar fram til staðfestingar á því að umræddu magni af bensíni hafi verið dælt af dælu nr. 2 umræddan dag og þá klukkan hvað. Sá mismunur, sem er á tímasetningu framlagðrar bensínnótu og tímasetningu á upptöku úr eftirlitsmyndavél, hefur ekki verið skýrður.

Engin vitni hafa verið leidd fyrir dóminn, sem hafa geta borið um það að hafa séð ákærða dæla eldsneyti á bifreið sína umræddan dag og hverfa síðan af vettvangi án þess að greiða fyrir það.

Með vísan til alls framangreinds þykir slíkur vafi leika á um sekt ákærða að sýkna beri hann af refsikröfu ákæruvalds. Af því leiðir að bótakröfu Kolls ehf., rekstraraðila Shellskálans, er vísað frá dómi.

Sakarkostnaður að fjárhæð 167.779 krónur, þar af málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Evu Dísar Pálmadóttur hdl., sem þykja hæfilega ákveðin að fjárhæð 125.496 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og útlagður kostnaður hennar að fjárhæð 13.603 krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Dóm þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri.

Dómsorð:

Ákærði, Pawel Janas, er sýkn af kröfum ákæruvalds.

Bótakröfu Kolls ehf. er vísað frá dómi.

Sakarkostnaður að fjárhæð 167.779 krónur, þar af málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Evu Dísar Pálmadóttur hdl., að fjárhæð 125.496 krónur og útlagður kostnaður hennar að fjárhæð 13.603 krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Ragnheiður Bragadóttir