Héraðsdómur Austurlands
Dómur 15. janúar 2008.
Mál nr. S-10/2008:
S-10/2008:
Ákæruvaldið
(Lárus Bjarnason sýslumaður)
gegn
Sigfús Valgeir Ómarssyni
(enginn)
Lykilorð
Útdráttur
Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna. Sekt.
Mál þetta, sem dómtekið var fyrr í dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Seyðisfirði, útgefinni 10. janúar 2008 á hendur Sigfúsi Valgeiri Ómarssyni, kt. 000000-0000, Ekkjufelli, Fljótsdalshéraði “fyrir fíkniefnalagabrot á Fljótsdalshéraði, með því að hafa laugardaginn 15. desember 2007 á heimili sínu haft í vörslu sinni 9,99 g. af hassi sem lögreglan fann við húsleit á heimili ákærða umrætt sinn.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. breytingalög, og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að sæta upptöku á ofngreindu fíkniefni sem lögreglan lagði hald á, sbr. 6. mgr. 5.gr. laga nr. 65/1974, og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001.”
Ákærða var birt fyrirkall 11. janúar sl. þar sem þess var getið að sækti hann ekki þing mætti hann búast við að fjarvist hans yrði metin til jafns við að hann viðurkenndi að hafa framið brot það, sem hann er ákærður fyrir. Ákærði hefur ekki komið fyrir dóm. Með vísan til framanritaðs og samkvæmt heimild í 126. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð opinberra mála metur dómurinn fjarvist ákærða sem viðurkenningu hans á því að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og er réttilega heimfært til refsiákvæða í ákærunni. Gögn málsins styðja og þessa niðurstöðu.
Ákærði á að baki sakarferil frá árinu 1998 og er þar aðallega um að ræða brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf, umferðarlagabrot og nytjastuld. Hlé varð á sakarferli ákærða frá september 2000 til ársins 2006, en í apríl það ár gekkst ákærði undir greiðslu sektar vegna sviptingaraksturs og brots gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf. Í júlí og september sama ár var ákærða gert að greiða sekt vegna brots gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf og í nóvember 2007 gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar vegna ölvunar- og sviptingaraksturs.
Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin 55.000 króna sekt, sem greiðist til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins, ella sæti ákærði fangelsi í 4 daga.
Upptæk eru gerð 9,99 g af hassi.
Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Sigfús Valgeir Ómarsson, greiði 55.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins en sæti ella fangelsi í 4 daga.
Upptæk eru 9,99 g af hassi.
Ragnheiður Bragadóttir