Héraðsdómur Austurlands
Dómur 9. júlí 2007.
Mál nr. S-95/2007:
Ákæruvaldið
(Lárus Bjarnason sýslumaður)
gegn
Þráni Skarphéðinssyni
(Adolf Guðmundsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar vegna brota á vopnalögum og lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs. Gerður var upptækur riffill í eigu ákærða.
Mál þetta, sem dómtekið var þriðjudaginn 26. júní 2007 er höfðað með ákæru sýslumannsins á Seyðisfirði, útgefinni 16. júní 2007, á hendur Þráni Skarphéðinssyni, kt. 000000-0000, Tjarnarbraut 21, Egilsstöðum “fyrir vopnalagabrot og brot gegn lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs, með því að hafa í heimildarleysi vorið 2006, skotið af riffli, út um opnanlegt fag á glugga í svefnherbergi á annarri hæð, að heimili sínu að Tjarnarbraut 21, í þéttbýlinu á Egilsstöðum, einu skoti í átt að ketti sem var þar í garðinum og hafa með því valdið hættu að nauðsynjalausu.
Telst þetta varða við 4. mgr., 21. gr., sbr. 36. gr. Vopnalaga nr. 16/1998, og 1. mgr. 7. gr., sbr. 51. gr. lögreglusamþykktar fyrir Fljótsdalshérað nr. 450, 1995, sbr. lög nr. 36, 1998 um lögreglusamþykktir.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Þá er þess krafist að ákærða verði gert að sæta upptöku á riffli þeim sem notaður var við verknaðinn, af tegundinni Winchester 22 calíber, eintaksnúmer 238956, skv. 37. gr. Vopnalaga nr. 16, 1998, og 1. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þá krefst Kristinn A. Kristmundsson, kt. 000000-0000, þess að ákærði verði dæmdur til að greiða sér skaðabætur að fjárhæð 578.435-, auk vaxta skv. 16. gr. skaðabótalaga frá tjónsdegi 6. maí 2006, en dráttarvaxta frá 10. desember 2006 til greiðsludags, skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. laga nr. 38, 2001.”
Við þingfestingu málsins féll bótakrefjandi frá bótakröfu sinni í málinu.
Um málavaxtalýsingu er skírskotað til ákæru.
Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum eins og því er lýst í ákæru. Hann mótmælti hins vegar upptökukröfu ákæruvaldsins. Farið var með málið að hætti 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs var staðfest af ráðherra 4. ágúst 1995, sbr. 4. gr. laga nr. 36/1988 um lögreglusamþykktir og birt í stjórnartíðindum sama dag.
Með játningu ákærða sem á sér stoð í gögnum málsins þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi, sem greinir í ákæru og er brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni. Misritast hefur í ákærunni að lög um lögreglusamþykktir séu nr. 36/1998 en hið rétta er að þau eru nr. 36/1988.
Mál vegna sama atviks var áður höfðað á hendur ákærða með ákæru útgefinni 26. febrúar 2006 og framhaldsákæru útgefinni 19. apríl sama ár, en því máli var vísað frá dómi vegna annmarka á ákæru og þess að ekki þóttu skilyrði til útgáfu framahaldsákæru. Í því máli var ákærði einnig ákærður fyrir minni háttar eignaspjöll og brot gegn dýraverndarlögum. Í ákæru þessa máls er ákærða hins vegar eingöngu gefið að sök brot gegn vopnalögum og lögreglusamþykk Fljótsdalshéraðs.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu.
Fram kom hjá ákærða við þingfestingu málsins að umræddur riffill væri gamall minja- og erfðagripur. Einnig að erfitt væri að miða og skjóta úr rifflinum. Við ákvörðun refsingar ákærða er litið til þess að veruleg hætta gat stafað af háttsemi ákærða, sérstaklega gagnvart börnum og dýrum sem oft stytta sér leið um garða fólks. Þá er litið til þess að ráða má af framburði ákærða að umræddur riffill hafi ekki verið öruggur. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 100.000 króna sekt, sem greiðist til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, ella sæti ákærði fangelsi í 8 daga.
Ákærði hefur viðurkennt að hafa í greint sinn skotið af riffli þeim sem greinir í ákæru. Þykir rétt með vísan til 1. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 3. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998 að fallast á kröfu ákæruvalds um að umræddur riffill verði gerður upptækur.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Adolfs Guðmundssonar hdl., sem þykja hæfilega ákveðin 49.800 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Þráinn Skarphéðinsson, greiði 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæti ella fangelsi í 8 daga.
Upptækur er riffill af tegundinni Winchester 22 calíber, eintaksnúmer 238956.
Ákærða greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Adolfs Guðmundssonar hdl., að fjárhæð 49.800 krónur.
Ragnheiður Bragadóttir