Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Austurlands

Mál nr. S-65/2007:

S-65/2007:

Ákæruvaldið

(Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi)

gegn

Kristnýju Láru Rósinkarsdóttur

(Kristján Stefánsson hrl)

Skilorðsrof. Þjófnaður.

Ung stúlka sakfelld fyrir þjófnað. Dómur frá 2006, þar sem ákvörðun refsingar ákærðu vegna tilraunar til nytjastuldar var frestað skilorðsbundið, var tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin. Refsing ákveðin 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár. Bótakröfu var vísað frá dómi.

Mál þetta, sem dómtekið var 7. september sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Eskifirði, útgefinni 21. mars 2007, á hendur Kristnýju Láru Rósinkarsdóttur, kt. 000000-0000, Rauðumýri 1, Mosfellsbæ og Guðlaugi Helga Valssyni, kt. 000000-0000, Hrafnhólum 6, Reykjavík “fyrir þjófnað, með því að hafa, aðfaranótt föstudagsins 27. janúar 2007, í félagi, brotist inn í sumarbústaðinn Lynghól í Stafafellsfjöllum í Lóni, með því að brjóta rúðu í útidyrum og stolið þaðan geisladiskaveski með 10 geisladiskum, 5 álgrillbökkum, tjaldlukt, 6 kertum, Yatsy spili, tannkremstúpu, samtals að verðmæti ca. kr. 5.439-.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar.

Af hálfu Ingjalds Ásgeirssonar kt. 000000-0000, er krafist skaðabóta vegna brotinnar rúðu að fjárhæð kr. 10.153-, auk vaxta skv. 8. og 9. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 27. janúar 2007, en síðan dráttarvaxta skv. III kafla sömu laga til greiðsludags.”

Mál þetta var sameinað máli nr. S-63/2007 ásamt máli nr. S-74/2007 í þinghaldi 4. maí sl., en síðastgreindu málin voru bæði á hendur ákærða Guðlaugi Helga Valssyni. Ákærði Guðlaugur Helgi sótti þing og játaði sakargiftir. Var þá ákveðið að skilja þátt ákærðu, Kristnýjar Láru, skilinn frá máli nr. S-63/2007 og hlaut mál hennar númerið S-65/2007 á ný.

Um málavaxtalýsingu er skírskotað til ákæru.

Ákærða játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum eins og því er lýst í ákærðu. Þykir með játningu ákærðu sem á sér stoð í gögnum málsins sannað að ákærða hafi gerst sek um þá háttsemi sem ákært er fyrir og er brot hennar rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni.

Með dómi 27. september 2006 var ákvörðun refsingar ákærðu frestað skilorðsbundið í eitt ár vegna brots hennar gegn 1. mgr. 259. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga.

Með broti sínu nú hefur ákærða rofið skilorð dómsins frá 27. september 2006. Ber því samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga að taka upp þann dóm og ákvarða ákærðu refsingu í einu lagi fyrir bæði málin í samræmi við reglur 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Við ákvörðun refsingar ákærðu er höfð hliðsjón af því ákærða er ung að árum, en hún var á 17. ári er hún gerðist brotleg í fyrri skiptið og 18. aldursári í síðara skiptið. Þá horfir og til refsimildunar að ákærða hefur játað brot sín og að um litla hagsmuni var að ræða í síðara málinu. Á hinn bóginn verður að líta til þess að í báðum tilvikum var um samverknað ákærðu og annarra að ræða.

Með hliðsjón af öllu framangreindu og reglum 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Með hliðsjón af ungum aldri ákærðu þykir rétt að skilorðsbinda refsinguna og ákveða að hún falli niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærða er 17 ára gömul og er því ekki fjárráða. Bótakröfunni er beint að ákærðu en ekki þeim sem fara með forsjá hennar og fjárhald, sbr. 2. mgr. 51. gr. lögræðislaga nr. 71/1997. Forsjáraðili ákærðu sótti ekki þing við fyrirtöku málsins og samkvæmt gögnum málsins hefur hann ekki samþykkt bótakröfuna fyrir hönd ákærðu. Með vísan til framangreinds verður því ekki komist hjá því að vísa bótakröfunni frá dómi.

Ákærða greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Kristjáns Stefánssonar hrl., sem þykja hæfilega ákveðin 56.025 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Dóm þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri.

Dómsorð:

Ákærða, Kristný Lára Rósinkarsdóttir, sæti fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og skal hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærða greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Kristjáns Stefánssonar hrl., að fjárhæð 56.025 krónur.

Bótakröfu tjónþola, Ingjalds Ásgeirssonar, er vísað frá dómi.

Ragnheiður Bragadóttir