Reglugerð um heimild til flutnings á allt að 25% af aflamarki í keilu, langlúru, gulllaxi og ufsa frá fiskveiðiárinu 2023/2024 yfir á fiskveiðiárið 2024/2025.
1. gr.
Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki í keilu, langlúru, gulllaxi og ufsa frá fiskveiðiárinu 2023/2024 yfir á fiskveiðiárið 2024/2025.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 16. gr., sbr. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 30. ágúst 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.