Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2025 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

1. gr.

Fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, nr. 40/2009. skulu vera sem hér segir fyrir árið 2025:

  1. Hámarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 1. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 1.007.951 kr. á mánuði.
  2. Lágmarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. skal nema 261.539 kr. á mánuði.
  3. Fjárhæð greiðslna til líffæragjafa í námi skv. 1. mgr. 15. gr. skal nema 261.539 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr., sbr. 8. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 15. gr., laga um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, nr. 40/2009, öðlast gildi 1. janúar 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1413/2023, um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2024 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 27. nóvember 2024.

Bjarni Benediktsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.