Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um gjöld og þóknanir sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að innleiða framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2153 frá 16. desember 2019 um þóknanir og gjöld sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 319/2014, sbr. 2. gr. reglugerðar þessarar.

2. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2153 frá 16. desember 2019 um þóknanir og gjöld sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 319/2014, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 764.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 20. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.

Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 394/2015 um sama efni.

Innviðaráðuneytinu, 19. nóvember 2024.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.