Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um regluramma fyrir U-rýmis loftrými.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að mæla fyrir um reglur og verklag fyrir örugga starfrækslu ómannaðra loftfarskerfa (UA-kerfa) í U-rýmis loftrými (einnig kallað U-rými), fyrir örugga samþættingu UA-kerfa við aðra starfsemi í loftrýminu og fyrir veitingu U-rýmis þjónustu.

2. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/664 frá 22. apríl 2021 um regluramma fyrir U-rými, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 943-965.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 188. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 21. nóvember 2024.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.