Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um niðurfellingu reglugerðar um rétt manna til að kalla sig húsameistara nr. 94/1994.

1. gr.

Reglugerð um rétt manna til að kalla sig húsameistara (arkitekt), nr. 94/1994, sem sett var með stoð í lögum um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum, nr. 83/1993 fellur úr gildi.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með vísan til heimildar í 7. gr. laga um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum, nr. 8/1996, og öðlast þegar gildi.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. september 2024.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Ásdís Halla Bragadóttir.