Reglugerð um meðhöndlun úrgangs.
I. KAFLI Markmið, gildissvið og skilgreiningar.
1. gr. Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis og að tryggja að úrgangsstjórnun og meðhöndlun úrgangs fari þannig fram að:
- ekki skapist hætta fyrir heilbrigði manna og dýra og umhverfið verði ekki fyrir skaða,
- ekki skapist óþægindi vegna hávaða eða ólyktar,
- ekki komi fram skaðleg áhrif á landslag eða staði sem hafa sérstakt gildi,
- úrgangsstjórnun sé markviss og hagkvæm og úrgangur sem til fellur fái viðeigandi meðhöndlun,
- stuðlað sé að sjálfbærri auðlindanotkun með aðgerðum og fræðslu til að draga úr myndun úrgangs,
- nýting hráefna úr úrgangi sem fellur til sé aukin, og
- handhafar úrgangs greiði kostnað við meðhöndlun úrgangs.
2. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um meðhöndlun úrgangs, í samræmi við ákvæði 2. gr. laga um meðhöndlun úrgangs.
Um tiltekna meðhöndlun úrgangs fer jafnframt, eftir því sem við á, samkvæmt reglugerð um urðun úrgangs, reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, reglugerð um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis og lögum um geislavarnir nr. 44/2002. Um meðhöndlun úrgangs á sjó gilda lög um varnir gegn mengun hafs og stranda.
3. gr. Skilgreiningar.
Atvinnurekstur: hvers konar starfsemi og framkvæmdir.
Böggun: þjöppun úrgangs í bagga til að minnka rúmmál hans.
Eftirlitsaðilar: viðkomandi heilbrigðisnefnd, Umhverfisstofnun eða faggiltir skoðunaraðilar sem starfa samkvæmt reglugerð þessari með takmarkaðar heimildir í samræmi við 58. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Grenndarstöð/grenndargámur: ómannaðurstaður í nærumhverfi íbúa þar sem eru ílát undir flokkaðan úrgang til endurnýtingar, svo sem pappa, pappír, plast, gler, málma, textíl og skilagjaldsskyldar umbúðir.
Heilbrigðisþjónusta og stofur sem stunda húðrof: stofnanir og starfsaðstaða sem læknar, tannlæknar, dýralæknar eða aðrir sem hafa sambærileg réttindi til að koma í veg fyrir og greina sjúkdóma í mönnum eða dýrum, gera að sárum og/eða hafa eftirlit með sjúkdómum. Hér er einnig átt við læknis- og líffræðilegar rannsóknastofur, hjúkrunar- og dvalarheimili og aðra umönnunarstaði fyrir fólk, fótaaðgerðarstofur og stofur sem stunda húðrof eins og nálarstungur, húðgatanir og húðflúr.
Heimajarðgerð: jarðgerð úr lífúrgangi sem er aðskilinn og endurunninn á upprunastað, framkvæmd af þeim sem framleiða hann. Undanskilin er jarðgerð úr lífúrgangi sem á sér ekki stað við heimili fólks, s.s. í atvinnustarfsemi.
Matarúrgangur: öll matvæli, sem heyra undir lög um matvæli, sem eru orðin að úrgangi.
Mengunarvarnaeftirlit: eftirlit með þeim þáttum sem eiga að fyrirbyggja eða draga úr mengun lofts, láðs eða lagar, eftirlit með eiturefnum og hættulegum efnum og fræðsla um þessi mál. Vöktun umhverfisins telst til mengunarvarnaeftirlits.
Nærumhverfi: nánasta umhverfi einhvers, t.d. hverfið sem hann býr í.
Pökkun: þegar úrgangur er settur í umbúðir til að gera hann flutningshæfan og/eða til að geyma í lengri eða skemmri tíma.
Rekstraraðili: einstaklingur eða lögaðili sem ber ábyrgð á viðkomandi atvinnurekstri.
Ruslabiður: ílát sem komið er fyrir á almannafæri í því skyni að auðvelda fólki að losa sig við úrgang.
Sérstakur úrgangur frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof: Úrgangur sem hefur í för með sér meiri sýkingarhættu og skaðlegri áhrif á fólk og umhverfi en annar úrgangur. Til þessa flokks heyrir smitandi úrgangur (sóttmengaður úrgangur), líkamshlutar og vefir, hvassir hlutir, lyfjaúrgangur, geislavirk efni og spilliefni.
Smitandi úrgangur (sóttmengaður úrgangur): úrgangur frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof sem inniheldur lífvænlegar örverur eða eiturhrif þeirra sem vitað er eða má ætla að geti valdið sjúkdómum í mönnum eða öðrum lífverum.
Sorpgeymsla: aðstaða í eða við fasteign, fyrirtæki eða stofnun þar sem úrgangi er safnað áður en hann er fluttur til söfnunarstöðva eða móttökustöðva.
Sorpílát: ílát til að safna heimilisúrgangi, s.s. tunnur og gámar af ýmsum stærðum.
Umhverfi: samheiti fyrir menn, dýr, plöntur og annað í lífríkinu, jarðveg, jarðmyndanir, vatn, loft, veðurfar og landslag, samfélag, heilbrigði, menningu og menningarminjar, atvinnu og efnisleg verðmæti.
Þýðingarmikil hráefni: hráefni sem eru á lista framkvæmdastjórnar ESB yfir þýðingarmikil hráefni.
Um aðrar skilgreiningar vísast til laga um meðhöndlun úrgangs.
II. KAFLI Almenn ákvæði.
4. gr. Fyrirkomulag við söfnun og meðhöndlun úrgangs.
Sveitarstjórn skal sjá um að starfræktar séu móttöku- og söfnunarstöðvar fyrir úrgang sem fellur til í sveitarfélaginu, eftir atvikum í samstarfi við aðrar sveitarstjórnir.
Sveitarstjórn ber að sjá til þess að tiltækur sé farvegur fyrir allan úrgang, sbr. 2. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, sem fellur til hjá einstaklingum og lögaðilum innan sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn skal ákveða fyrirkomulag söfnunar á heimilis- og rekstrarúrgangi í sveitarfélaginu. Fyrirkomulag söfnunarinnar skal stuðla að því að markmiðum laga um meðhöndlun úrgangs og reglugerðar þessarar verði náð í sveitarfélaginu, þ.m.t. töluleg markmið um endurvinnslu, endurnýtingu og samdrátt í urðun.
Sveitarstjórn er ábyrg fyrir reglulegri tæmingu sorpíláta og flutningi heimilisúrgangs frá öllum heimilum og lögaðilum á viðkomandi svæðum. Söfnun heimilisúrgangs í þéttbýli skal fara fram innan lóðar viðkomandi íbúðarhúss eða lögaðila nema aðliggjandi lóðir hafi sameinað söfnun úrgangs skv. heimild í 1. mgr. 10. gr. laga um meðhöndlun úrgangs. Í dreifbýli er sveitarstjórn heimilt í samráði við heilbrigðisnefnd að setja upp sorpílát í stað þess að sækja heimilisúrgang á hvert heimili og til lögaðila. Staðsetning sorpíláta skal vera þannig að aðgengi að þeim sé gott.
Þrátt fyrir ábyrgð sveitarstjórna, sbr. 4. mgr., takmarkar það ekki möguleika lögaðila til að gera beinan samning við þjónustuaðila um reglulega tæmingu sorpíláta og flutning heimilisúrgangs frá eigin starfsemi.
Sveitarstjórnir skulu sjá til þess að komið sé á kerfisbundinni tæmingu á seyru úr rotþróm og úrgangi úr öðrum hreinsivirkjum þar sem til fellur lífrænn, mengandi eða sóttmengaður úrgangur, sbr. þó 4. mgr. 16. gr. og ákvæði einstakra starfsleyfa.
Sveitarstjórn skal í samráði við heilbrigðisnefnd setja upp sorpílát í nánd við sumarhúsahverfi. Séu fleiri en 20 sumarhús í hverfinu skal staðsetning sorpíláts vera sem næst hverfinu og/eða þannig að hentugt sé að losa í það í leið frá hverfinu. Sorpílátin skulu vera til staðar á því tímabili sem almennt er dvalist í húsunum í hverfinu. Gæta skal að því að aðgangur sé greiður að sorpílátum, m.t.t. tegundar úrgangs.
5. gr. Svæðisáætlanir sveitarfélaga um meðhöndlun úrgangs.
Sveitarstjórn, ein eða fleiri í sameiningu, skal semja og staðfesta svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs, sbr. ákvæði laga um meðhöndlun úrgangs. Í áætluninni skulu m.a. koma fram upplýsingar um stöðu úrgangsmála á svæðinu, aðgerðir til að bæta undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu, aðra endurnýtingu, förgun og hvernig sveitarstjórn hyggst ná markmiðum stefnu um meðhöndlun úrgangs, stefnu um úrgangsforvarnir og settum tölulegum markmiðum varðandi heimilisúrgang og lífrænan úrgang.
Í áætluninni skal jafnframt fjalla um úrgangsforvarnir, s.s. um leiðir til að auka endurnotkun á svæðinu. Í svæðisáætlun skal sveitarstjórn setja sér markmið hvað varðar samdrátt í myndun úrgangs og meðhöndlun úrgangs sem fellur til, einkum heimilisúrgangs sem fer til förgunar eða er nýttur til orkuvinnslu.
Við gerð svæðisáætlana skal nota efnahagsleg stjórntæki og aðrar ráðstafanir til að hvetja til þeirrar forgangsröðunar við meðhöndlun úrgangs sem fram kemur í lögum um meðhöndlun úrgangs.
Eftir því sem við á og að teknu tilliti til landfræðilegra aðstæðna og umfangs svæðisins sem áætlunin tekur til skal a.m.k. eftirfarandi koma fram í svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs:
- yfirlit yfir tegund, magn og myndunarstaði alls þess úrgangs sem verður til innan svæðisins sem áætlunin tekur til, þ.m.t. úrgang frá lögaðilum, hvort sem hann fellur til með reglubundnum hætti eða sjaldnar, hvaða úrgangur er líklegt að verði fluttur frá svæðinu eða til þess og mat á þróun á straumum úrgangs í framtíðinni,
- umfjöllun um stöðvar til endurnýtingar eða förgunar sem eru til staðar, þ.m.t. ef við á sérstakt fyrirkomulag vegna olíuúrgangs, spilliefna, úrgangs sem inniheldur verulegt magn af þýðingarmiklum hráefnum eða aðrar tegundir úrgangs sem fjallað er sérstaklega um í lögum og reglugerðum,
- mat á gildandi kerfi fyrir söfnun úrgangs, umfjöllun um sérstaka söfnun úrgangs þ.m.t. hvaða úrgangsflokkum er safnað í sérstakri söfnun og hvar innan svæðisins, ráðstafanir til að bæta virkni þess, hvort sveitarstjórn hafi fengið undanþágu frá skyldu til sérstakrar söfnunar og mat á þörfinni fyrir endurbætur á kerfinu,
- mat á nauðsyn þess að loka starfandi móttöku- og söfnunarstöðvum sem og þörf á nýjum móttöku- og söfnunarstöðvum, auk mats á fjárfestingaþörf vegna þeirrar innviðauppbyggingar,
- upplýsingar um hagkvæmt staðarval fyrir stöðvar til endurnýtingar eða förgunar í framtíðinni, sé þörf á þeim,
- almenn stefna varðandi meðhöndlun úrgangs, þ.m.t. áætluð tækni og aðferðir til meðhöndlunar úrgangs, eða stefna vegna úrgangs sem skapar sérstök vandamál við stjórnun, og
- ráðstafanir til að koma í veg fyrir rusl á víðavangi og til að tryggja fullnægjandi hreinsun þess.
Í svæðisáætlunum sveitarfélaga skal gera grein fyrir því hvort tölulegum markmiðum sem sett eru um endurvinnslu heimilisúrgangs og samdrátt í urðun heimilisúrgangs, sbr. 7. gr., sé náð á þeirra svæði. Þá skal gera grein fyrir þeim ráðstöfunum sem sveitarfélagið greip til í þeim tilgangi. Ef markmiðum hefur ekki verið náð skal í svæðisáætlun gera grein fyrir þeim ráðstöfunum sem sveitarfélag hyggst grípa til svo þeim verði náð.
Með tilliti til landfræðilegra aðstæðna og umfangs skipulagssvæðisins geta svæðisáætlanir um meðhöndlun úrgangs tekið til eftirfarandi:
- skipulagsþátta, sem tengjast meðhöndlun úrgangs, þ.m.t. lýsingu á því hvernig ábyrgð dreifist á opinbera aðila og einkaaðila sem fara með meðhöndlun úrgangs,
- beitingar herferða til vitundarvakningar og upplýsingamiðlunar til almennings, lögaðila og annarra handhafa úrgangs, og
- aflagðra, mengaðra förgunarstaða og ráðstafana til að lagfæra þá.
6. gr. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs.
Sveitarstjórn setur sérstaka samþykkt um meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu, sbr, ákvæði laga um meðhöndlun úrgangs og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Í samþykkt um meðhöndlun úrgangs skal sveitarstjórn útfæra fyrirkomulag sérstakrar söfnunar, sbr. ákvæði laga um meðhöndlun úrgangs. Í slíkri samþykkt er heimilt að kveða á um fyrirkomulag sorphirðu að öðru leyti, skyldu einstaklinga og lögaðila til að flokka úrgang, heimildir sveitarfélaga til að hafna því að taka á móti úrgangi og hirða ílát, stærð, gerð, staðsetningu og merkingu sorpíláta og sambærileg atriði. Jafnframt er heimilt í slíkri samþykkt að útfæra fyrirkomulag heimajarðgerðar, sbr. ákvæði laga um meðhöndlun úrgangs.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs skal taka mið af svæðisáætlun sveitarfélags um meðhöndlun úrgangs.
7. gr. Töluleg markmið og viðmiðanir.
Endurvinnsla heimilisúrgangs skal að lágmarki vera 50%. Þá skal endurvinnsla heimilisúrgangs að lágmarki vera 55% miðað við þyngd árið 2025, að lágmarki 60% árið 2030 og að lágmarki 65% árið 2035. Við útreikning á hlutfalli endurvinnslu skal telja með úrgang sem fór til undirbúnings fyrir endurnotkun.
Árið 2035 er heimilt að urða að hámarki 10% af þeim heimilisúrgangi sem fellur til.
Lífrænn heimilisúrgangur sem berst til urðunarstaða má að hámarki vera 35% af heildarmagni þess lífræna heimilisúrgangs sem féll til árið 1995.
Lífrænn rekstrarúrgangur sem berst til urðunarstaða má að hámarki vera 35% af heildarmagni þess lífræna rekstrarúrgangs sem féll til árið 1995.
Undirbúningur fyrir endurnotkun, endurvinnsla og önnur efnisendurnýting úrgangs frá byggingar- og niðurrifsstarfsemi, þ.m.t. fylling, en að undanskildum náttúrulegum efniviði, skal að lágmarki vera 70% miðað við þyngd.
Umhverfisstofnun heldur utan um og miðlar upplýsingum um töluleg markmið og viðmiðanir.
Um markmið um undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu og aðra endurnýtingu umbúðaúrgangs, úr sér genginna ökutækja og söfnunarhlutfall færanlegra rafhlaðna og rafgeyma og söfnunarhlutfall raf- og rafeindatækja vísast til viðeigandi reglugerða þar um.
8. gr. Undanþága frá sérstakri söfnun úrgangs.
Ráðherra er heimilt, að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar, að veita undanþágu frá ákvæði laga um meðhöndlun úrgangs um sérstaka söfnun, að uppfylltum a.m.k. einum eftirfarandi stafliða:
-
Blönduð söfnun tiltekinna tegunda úrgangs hafi ekki áhrif á möguleika til endurnýtingar þeirra úrgangstegunda og slík söfnun tryggi sambærileg gæði úrgangsins og fæst með sérstakri söfnun.
A-lið telst því aðeins fullnægt að öll eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt (að öðrum kosti þarf að safna úrgangstegundum sérstaklega):- Blönduð söfnun hafi ekki neikvæð áhrif á gæði, verð og framboð vara, íhluta eða varahluta sem hægt er að undirbúa fyrir endurnotkun.
- Gæði og verð endurunninna hráefna sem hafa verið aðskilin og meðhöndluð í kjölfar blandaðrar söfnunar séu sambærileg eða meiri en þeirra sem koma úr sérstakri söfnun.
- Fyrirliggjandi séu staðfestingar, samningar eða áreiðanlegar beiðnir, fyrir kaupum og notum endurunninna hráefna.
- Blönduð söfnun rýri hvorki gæði úrgangsins sem hráefnis til endurnýtingar né leiði til aukinna affalla samanborið við sérstaka söfnun.
- Söfnunarhlutfall, endurvinnsluhlutfall og kostnaðarhagkvæmni blandaðrar söfnunar þarf að vera sambærileg eða betri, með hliðsjón af undirbúningi fyrir endurnotkun og endurvinnslu, en hjá sveitarfélögum þar sem aðstæður eru svipaðar.
-
Sérstök söfnun skili ekki bestri heildarniðurstöðu fyrir umhverfið, þegar tekið er tillit til heildarumhverfisáhrifa stjórnunar á viðkomandi úrgangsstraumum.
B-lið telst því aðeins fullnægt að öll eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt (að öðrum kosti þarf að safna úrgangstegundum sérstaklega):- Undanþágu er óskað á öðrum grundvelli en þeim einum að svæði sé afskekkt, fjalllent eða eyja.
- Greining sýni fram á að aðrar útfærslur sérstakrar söfnunar, s.s. grenndargámar eða söfnunarstöðvar, leiði ekki til umhverfisvænni lausnar en blönduð söfnun.
- Undanþágan nái eingöngu til afmarkaðs svæðis þar sem sérstök söfnun skilar ekki bestri heildarniðurstöðu fyrir umhverfið, en ekki til sveitarfélags í heild.
- Til grundvallar beiðni um undanþágu liggur viðurkennd lífsferilsgreining skv. staðlinum ISO 14040 eða annað staðlað mat á umhverfisáhrifum. Matsþættir þeir sem lagðir eru til grundvallar greiningunni skulu vera viðeigandi og fela í sér hugsanleg stefnuúrræði sem hvetja til breytinga á atferli fólks, s.s. kerfi sem felur í sér raunálagningu gjalda fyrir meðhöndlun úrgangs ("borgaðu þegar þú hendir"). Þá þarf greiningin að sýna fram á að umhverfislegur ávinningur þess að víkja frá sérstakri söfnun sé umtalsvert meiri en með sérstakri söfnun.
-
Sérstök söfnun sé ekki tæknilega möguleg.
C-lið telst því aðeins fullnægt að öll eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt (að öðrum kosti þarf að safna úrgangstegundum sérstaklega):- Umsækjandi sýni fram á að nákvæm greining á mögulegum útfærslum sérstakrar söfnunar, sem rúmast innan laga um meðhöndlun úrgangs, hafi leitt í ljós að þær væru ekki fýsilegar. Slík greining skal innihalda mat á hugsanlegri notkun tækninýjunga.
- Undanþágan nái eingöngu til afmarkaðs svæðis þar sem sérstök söfnun er ekki tæknilega möguleg vegna aðstæðna, sbr. lið i og ii, en ekki til sveitarfélags í heild.
-
Sérstök söfnun hafi í för með sér óhóflegan kostnað.
D-lið telst því aðeins fullnægt að öll eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt (að öðrum kosti þarf að safna úrgangstegundum sérstaklega):- Grundvöllur mats á óhóflegum kostnaði er annar en sá að miðað sé við lág gjöld fyrir urðun eða brennslu úrgangs.
-
Til grundvallar mati á því hvort sérstök söfnun hafi óhóflegan kostnað í för með sér skal liggja fyrir kostnaðar- og ábatagreining (CBA) sem tekur mið af öllum innri og ytri kostnaði og ábata þar sem m.a. er tekið tillit til allra eftirfarandi atriða:
- Rekstrarkostnaðar: s.s. vegna íláta, söfnunar, flutninga, vinnuafls, afskrifta o.fl.
- Tekna af endurnýttum úrgangi.
- Áhrifa á heilbrigði manna, dýra og umhverfið.
- Áhrifa á atvinnustig.
- Áhrifa á stjórnsýslu sveitarfélagsins.
- Áhrif á tækifæri til rannsókna og þróunar á svæðinu.
- Félagslegra áhrifa.
- Umsækjandi sýni fram á að nýttar eða kannaðar hafi verið til hlítar þær ráðstafanir sem kveðið er á um í lögum um meðhöndlun úrgangs og hafa áhrif á kostnað, a.m.k. fjármögnun framleiðenda og innflytjenda, innheimtu gjalds sem næst raunkostnaði við viðkomandi þjónustu, færslu gjalda á milli úrgangsflokka og heimajarðgerð úr lífúrgangi. Ekki er hægt að sækja um undanþáguna á grundvelli þess að undanþágan nái eingöngu til afmarkaðs svæðis þar sem sérstök söfnun hefði í för með sér óhóflegan kostnað vegna aðstæðna, en ekki til sveitarfélags í heild.
Undanþága frá sérstakri söfnun er veitt að hámarki til sex ára í senn. Sótt skal um undanþágu á rafrænu eyðublaði sem aðgengilegt er á vef Stjórnarráðsins.
III. KAFLI Meðhöndlun úrgangs.
9. gr. Meginreglur.
Draga skal eins og unnt er úr myndun úrgangs. Stefnt skal að endurnotkun og endurnýtingu hans svo sem kostur er. Beita skal bestu aðgengilegri tækni við meðhöndlun úrgangs.
Allur úrgangur skal færður til viðeigandi meðhöndlunar, annaðhvort beint til endurnýtingar eða á grenndar-, móttöku- eða söfnunarstöð, og þaðan til endurnýtingar eða förgunar eftir því sem nánar verður kveðið á um í reglugerð þessari, öðrum reglugerðum um úrgang eða samþykktum sveitarfélaga. Allur úrgangur skal meðhöndlaður á viðeigandi hátt áður en til förgunar kemur. Skyldur framleiðanda úrgangs eða handhafa úrgangs til að endurnýta eða farga úrgangi falla að jafnaði ekki niður þó að úrgangur hafi verið fluttur til opinberra aðila eða einkaaðila.
Meðhöndlun úrgangs skal vera með þeim hætti að óþrifnaður og óþægindi stafi ekki af. Við flutning og geymslu úrgangs skal handhafi úrgangs gæta þess að ekki hljótist af mengun eða annar skaði fyrir umhverfi. Hafi úrgangur dreifst eða sé meðhöndlun úrgangs ábótavant að öðru leyti getur heilbrigðisnefnd eða Umhverfisstofnun, eftir atvikum, krafist þess að viðkomandi aðili hreinsi upp og geri viðeigandi ráðstafanir.
Bannað er að skilja eftir, flytja, dreifa eða geyma úrgang á þann hátt að valdið geti skaða, mengun eða lýtum á umhverfinu. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti.
Óheimilt er að losa úrgang annars staðar en á grenndar-, móttöku- eða söfnunarstöð, eða í sorpílát. Þrátt fyrir ákvæði 3. málsl. er heimilt að losa lífúrgang í heimajarðgerð.
Opin brennsla úrgangs er óheimil. Þetta á þó ekki við um skipulagðar brennur, t.d. áramótabrennur o.þ.h., sem starfsleyfi hefur verið veitt fyrir, sbr. ákvæði reglugerðar um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
Úrgangshafa er óheimilt að þynna eða blanda úrgang í þeim eina tilgangi að hann fullnægi viðmiðunum um móttöku úrgangs.
10. gr. Samræmdar merkingar úrgangstegunda.
Við meðhöndlun úrgangs skal, a.m.k. fyrir eftirfarandi úrgangstegundir: pappír og pappa, málma, plast, gler, lífúrgang, textíl, spilliefni og blandaðan úrgang, nota íslenska útfærslu á samnorrænum merkingum, sbr. III. viðauka, þar sem hver úrgangstegund hefur sitt merki og sinn einkennislit. Merkingarnar skal nota við alla meðhöndlun úrgangs óháð staðsetningu og án tillits til fjölda íláta, stærðar þeirra eða gerðar að öðru leyti og skal notkunin vera án endurgjalds.
11. gr. Úrgangur frá hreinsun skólps.
Úrgang sem fellur til við hreinsun skólps, s.s. salernisúrgang, síu- eða ristarúrgang og seyru sem ekki verður nýtt, skal flytja til móttökustöðvar sem hefur starfsleyfi.
12. gr. Sérstakur úrgangur frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof.
Tryggja skal að allur sérstakur úrgangur sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu eða vegna húðrofa sé meðhöndlaður á viðunandi hátt og að hann blandist ekki við heimilisúrgang og annan úrgang. Til að koma í veg fyrir smit, eitranir, ofnæmi, óþol, eld, íkveikju- og sprengihættu jónandi geislun og mengun umhverfis skal gæta ítrustu varkárni og nákvæmni við meðhöndlun á sérstökum úrgangi frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof.
Þeir sem hafa undir höndum sérstakan úrgang frá heilbrigðisþjónustu eða stofum sem stunda húðrof eða sjá um geymslu hans, pökkun og undirbúning á flutningi skulu tryggja að meðhöndlun hans sé eins og kveðið er á um í I. viðauka. Stjórnendum heilbrigðisþjónustu og framangreindra stofa ber að tryggja að starfsfólk þeirra sem meðhöndlar sérstakan úrgang frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof og/eða efni og hluti sem verða að slíkum úrgangi fái fræðslu um meðhöndlun hans og upplýsingar um þá ábyrgð sem það ber varðandi hann. Skrá skal þjálfun og fræðslu starfsfólks.
13. gr. Smitandi úrgangur.
Meðhöndlun á úrgangi öðrum en aukaafurðum dýra sem fellur til við aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að útrýma eða hindra útbreiðslu dýrasjúkdóma og öðrum smitandi úrgangi en þeim sem fjallað er um í 12. gr., skal vera á viðunandi hátt og þess gætt að hann blandist ekki við annan úrgang og valdi ekki smiti. Við meðhöndlun á aukaafurðum dýra sem kunna að valda smithættu fer eftir reglugerð um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.
14. gr. Um almennan þrifnað utanhúss.
Umráðamönnum lóða er skylt að halda þeim hreinum og snyrtilegum.
Heilbrigðisnefnd hefur eftirlit með almennum þrifnaði og hreinlæti utanhúss og hlutast til um að fram fari eftir þörfum almenn hreinsun lóða og lendna í þrifnaðarskyni. Í því skyni er heilbrigðisnefnd heimilt að:
- krefjast lagfæringa og viðgerða á lóðum, girðingum og mannvirkjum, ef nauðsynlegt þykir til þrifnaðar eða ef ástand þeirra er til lýta fyrir umhverfið,
- fyrirskipa hreinsun lóða og lendna og ef sérstök ástæða er til niðurrif húsa og girðinga í niðurníðslu,
- láta fjarlægja númerslausar bifreiðar og bílflök og sambærilega hluti að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða með aðvörunarorðum, og
- hreinsa einkalóðir á kostnað eigenda telji nefndin þess þörf vegna mengunar og óhollustu.
Sveitarstjórn skal sjá um að hreinsun fari fram á opinberum stöðum, t.d. görðum og torgum.
15. gr. Sorpílát.
Fasteignareigandi skal sjá til þess að fasteign hans fylgi nægilega mörg sorpílát og að þau séu endurnýjuð eftir þörfum.
Sorpílát sem geymd eru utanhúss skulu standa á fastri undirstöðu og vera þannig staðsett að aðgangur að þeim sé greiður og af þeim geti ekki stafað óþægindi eða óþrifnaður fyrir umhverfið.
Ganga skal þannig frá sorpílátum og sorpgeymslum að þær valdi ekki óþrifum eða óþægindum. Halda skal þeim við eftir þörfum og þær hreinsaðar reglulega. Sorpgeymslur má eingöngu nota til geymslu heimilisúrgangs.
Heilbrigðisnefnd getur gefið fyrirmæli um fjölda, staðsetningu, gerð og þrif sorpíláta.
Um staðsetningu sorpíláta vísast til ákvæðis 6. gr. reglugerðar þessarar og að öðru leyti vísast til byggingarreglugerðar og skipulagsreglugerðar.
16. gr. Sértækar skyldur rekstraraðila.
Rekstrarúrgangi sem fellur til við atvinnurekstur skal safna saman og flytja brott þegar í stað eða geyma með þeim hætti að óhollusta eða óþrifnaður stafi ekki af. Rekstrarúrgang skal geyma í hentugum og heilum ílátum þannig gerðum að auðvelt sé að tæma þau. Rekstraraðili ber einnig ábyrgð á nauðsynlegri hreinsun nálægs umhverfis.
Rekstraraðili skal sjá til þess að rekstri hans fylgi nægilega mörg ílát og að þau séu lagfærð og endurnýjuð eftir þörfum. Óheimilt er að veita atvinnurekstri starfsleyfi eða staðfesta skráningu nema fullnægjandi aðstaða sé fyrir hendi til þess að geyma og flokka úrgang.
Rekstraraðilar sem rekstrarúrgangur fellur til hjá skulu sjá um flutning og bera kostnað vegna meðhöndlunar.
Rekstraraðilar húsnæðis eða svæða þar sem salernisúrgangur, ristarúrgangur eða seyra fellur til sjá um alla meðferð og flutning úrgangsins, svo fremi ekki sé í gildi sérstök heilbrigðissamþykkt sem kveður á um annað.
IV. KAFLI Starfsleyfi, skráning atvinnurekstrar, eftirlit og skoðanir.
17. gr. Starfsleyfi og skráning atvinnurekstrar.
Um útgáfu starfsleyfa og staðfesta skráningu fer samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í starfsleyfi skulu vera ákvæði sem miða að því að vernda umhverfi og heilsu manna. Jafnframt skulu ákvæði starfsleyfis taka mið af aðstæðum á viðkomandi stað.
Til að vernda heilsu fólks skal við staðsetningu söfnunar- og flokkunarmiðstöðva fyrir úrgang taka mið af því að ekki hljótist af óþægindi fyrir íbúa og taka tillit til nálægðar við íbúðarhús, skóla, matvælaframleiðslu- og sölustaði, heilbrigðisþjónustu og aðra dvalarstaði fólks. Leita skal umsagnar starfsleyfisútgefanda eða móttakanda skráningar atvinnureksturs við ákvörðun staðsetningar.
18. gr. Eftirlit.
Umhverfisstofnun fer með eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar að öðru leyti en skv. ákvæðum 14. gr.
V. KAFLI Ýmis ákvæði.
19. gr. Aðgangur að upplýsingum.
Um aðgang að upplýsingum fer samkvæmt upplýsingalögum nr. 140/2012 og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
20. gr. Þvingunarúrræði, málsmeðferð og viðurlög.
Um þvingunarúrræði, málsmeðferð og viðurlög fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
21. gr. Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2013/727/ESB frá 6. desember 2013 um að ákvarða snið til að tilkynna upplýsingar varðandi samþykki og umtalsverðar breytingar á úrgangsstjórnunaráætlunum og áætlunum um forvarnir gegn myndun úrgangs, sem vísað er til í tölulið 32ffe, XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2015 frá 11. júní 2015. Framkvæmdarákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, 2015/EES/63/75, bls. 356-360.
22. gr. Innleiðing tiltekinna gerða Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum Evrópusambandsins:
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/EB frá 19. nóvember 2008 um úrgang og um niðurfellingu tiltekinna tilskipana, sem vísað er til í tölulið 32ff í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2011 þann 1. júlí 2011.
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/851 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun 2008/98/EB um úrgang, sem vísað er til í tölulið 32ff í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 318/2021 þann 29. október 2021.
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2013/727/ESB frá 6. desember 2013 um að ákvarða snið til að tilkynna upplýsingar varðandi samþykki og umtalsverðar breytingar á úrgangsstjórnunaráætlunum og áætlunum um forvarnir gegn myndun úrgangs.
- D-lið 4. mgr. 1. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2018/850 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun 1999/31/EB um urðun úrgangs, sem vísað er til í tölulið 32d í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2022 þann 18. mars 2022.
- Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2019/1004 frá 7. júní 2019 um reglur, reiknireglur, sannprófun og skýrslugjöf um úrgang sem mælt er fyrir um í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/EB um úrgang og niðurfelling ákvörðunar C(2012) 2384.
23. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í a-, b-, c-, e-, g-, k-, l-, n-, bb- og cc-liðum 43. gr. laga um meðhöndlun úrgangs og 4. og 5. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, Umhverfisstofnun og aðra hlutaðeigandi haghafa. Reglugerðin tekur þegar gildi og fellur reglugerð um meðhöndlun úrgangs, nr. 737/2003, ásamt síðari breytingum, þar með úr gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 10. júlí 2023.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Halla Sigrún Sigurðardóttir.
I. Viðauki
Meðferð á sérstökum úrgangi frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof.
Meginflokkar úrgangs frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof eru heimilisúrgangur og sérstakur úrgangur. Meðhöndla þarf allan úrgang frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof með varkárni og nákvæmni þar sem hann getur haft beina hættu í för með sér fyrir fólk, dýr og umhverfi.
Flokka skal úrgang frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof á upprunastað. Sérstökum úrgangi skal tafarlaust pakkað í viðeigandi umbúðir eftir að hann hefur myndast, hann merktur og komið í geymslu í loftræstu og lokuðu rými þar til hann er fluttur til förgunar. Sá sem sér um flutning á sérstökum úrgangi frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof skal hafa starfsleyfi hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar. Koma skal í veg fyrir að úrgangurinn verði fyrir hnjaski við flutning til förgunar og tryggja ber að honum verði eytt á viðurkenndan hátt. Halda skal kvittunum um móttöku, hvort sem er á pappír eða tölvutæku formi, til haga fyrir eftirlitsaðila.
Flokkar sérstaks úrgangs.
Sérstakur úrgangur flokkast í eftirfarandi:
- Smitandi úrgang (sóttmengaðan úrgang):
- Úrgangur frá sjúklingum í einangrun, vegna ónæmra baktería eða smitsjúkdóma.
- Einnota áhöld menguð smitefni frá sýktum sjúklingi og umbúðir og sýni frá sýktum sárum.
- Blóðsmitaður úrgangur, blóð og blóðmenguð einnota áhöld og hlutir. Þó má flokka notuð tíðabindi og tíðatappa, minni sáraumbúðir eins og plástra og bómull með þurru blóði með almennum úrgangi (sambærilegum blóðsmituðum úrgangi sem fellur til sem heimilisúrgangur). - Líkamshluta og vefi:
- Líkamsvefir, ónotaðir skimaðir blóðhlutar eða líkamsleifar úr fólki og dýrum, t.d. frá skurðstofum, krufningastofum, rannsóknum eða starfsemi dýralækna. - Hvassa hluti:
- Nálar og sprautur.
- Skurðhnífablöð.
- Rakblöð.
- Mjög brothætt gler.
- Annað sem getur hugsanlega skorið eða stungið. - Lyf, þar með talið frumubreytandi efni sem geta haft stökkbreytingar í för með sér.
- Geislavirkan úrgang, þar á meðal úrgang frá skönnum, óm- og sneiðmyndatækjum og annað samkvæmt reglum Geislavarna ríkisins.
- Spilliefni, þar á meðal rotvarnarvökvi, rafhlöður, kvikasilfur og annað, sbr. reglugerð um skrá yfir úrgang og mat á hættulegum eiginleikum úrgangs.
Meðferð, pökkun úrgangs á upprunastað, flutningur og förgun.
Við frágang sérstaks úrgangs frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof skal gæta fyllsta öryggis við pökkun, geymslu og aðra meðferð hans.
- Almennar reglur:
- Meðhöndla skal öll ílát fyllt sérstökum úrgangi með varúð.
- Ílát undir sérstakan úrgang skulu vera greinilega merkt, þannig að ekki leiki vafi á að þau innihaldi slíkan úrgang.
- Nota skal tvöfalda poka þegar þess er þörf.Óheimilt er að hella fljótandi efnum beint ofan í poka. Koma skal vökvum fyrir í lekaheldum ílátum fyrir sérstakan úrgang áður en þeir eru settir í poka. Ílát skulu ekki fyllt nema að ¾ hlutum af rúmmáli þeirra og þeim lokað tryggilega, t.d. skal loka pokum með þar til gerðum böndum sem ekki er hægt að opna.
- Ekki má skilja þannig við ílát eða poka að þeir geti oltið út á hlið eða þannig að innihaldið geti lekið út. - Umbúðir úrgangs:
- Smitandi úrgang (sóttmengaðan úrgang) sem búið er að dauðhreinsa skal setja í viðeigandi ílát og hann merktur „dauðhreinsað“ – ekki smitandi.
- Smitandi úrgang (sóttmengaðan úrgang) sem ekki er búið að dauðhreinsa skal setja í gulan poka úr þykku plasti eða ílát með merkingu sem sýnir að innihald er smitandi.
- Líkamshluta og vefi skal setja í gulan poka eða ílát úr þykku plasti og geyma í kæli eða frysti fram að flutningi í förgun.
- Hvassa hluti skal setja í ílát, úr þykku plasti með þéttu loki, sem sérstaklega er ætlað undir slíka hluti.
- Spilliefni skal setja í traustar umbúðir.
- Lyf skal setja í ílát með þéttri lokun.
- Geislavarnir ríkisins veita leiðbeiningar um pökkun á geislavirkum úrgangi.
- Matvælastofnun veitir leiðbeiningar um meðhöndlun og merkingar úrgangs sem falla undir reglugerð um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis. - Meðhöndlun einstakra tegunda sérstaks úrgangs frá heilbrigðisþjónustu eða stofum sem stunda húðrof:
- Dauðhreinsa skal smitnæm og hættumerkt sýni áður en þau eru flutt frá viðkomandi starfsemi. Þó er heimilt, þegar aðstæður leyfa, að flytja smitandi úrgang (sóttmengaðan úrgang) án undangenginnar dauðhreinsunar þegar öruggt er að umbúnaður sé tryggur og að smitandi úrgangurinn (sóttmengaði úrgangurinn) er fluttur til förgunar í móttökustöð sem hefur starfsleyfi fyrir slíka förgun.
- Ganga skal frá öllu blóði og blóðmenguðum hlutum á sama hátt hvort sem þeir koma frá einstaklingum í áhættuhópi eða ekki. Þó má flokka notuð tíðabindi og tíðatappa, minni sáraumbúðir eins og plástra eða bómull með þurru blóði með almennum úrgangi (sambærilegum blóðsmituðum úrgangi sem fellur til sem heimilisúrgangur).
- Líkamshluta og vefi skal geyma í kældu rými. Þá má ekki geyma lengur við herbergishita en í fjóra tíma og ekki lengur en í þrjá sólarhringa í kæliskáp. Djúpfrysta skal það sem geyma þarf í lengri tíma.
- Ílát undir hvassa hluti skal ekki fylla meira en nemur ¾ af rúmmáli þess.
- Um önnur spilliefni fer samkvæmt reglugerð um spilliefni.
- Úrgangslyfjum ber að safna í tilskilin ílát og merkja sérstaklega, t.d. sem „lyf til eyðingar“ eða „sóttmengað – brennist“.
- Geislavarnir ríkisins veita leiðbeiningar um meðhöndlun á geislavirkum úrgangi.
- Matvælastofnun veitir leiðbeiningar um meðhöndlun úrgangs sem fellur undir reglugerð um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis. - Flutningur:
- Einungis aðilar sem hafa starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd til flutninga á spilliefnum mega annast flutning á sérstökum úrgangi frá heilbrigðisþjónustu og stofum sem stunda húðrof, sbr. reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Úrgangur skal undirbúinn og fluttur til förgunar í samræmi við eftirfarandi:
- Smitandi úrgangur (sóttmengaður úrgangur) skal dauðhreinsaður á viðkomandi stofnun eða fluttur af viðurkenndum aðila til móttökustöðvar. Að fengnu leyfi viðkomandi heilbrigðisnefndar má flytja smitandi úrgang til brennslu í brennslustöð án undangenginnar dauðhreinsunar. Óheimilt er að flytja smitandi úrgang án undangenginnar dauðhreinsunar til urðunar.
- Um flutning á geislavirkum úrgangi fer samkvæmt reglum Geislavarna ríkisins og reglugerðar um flutning á hættulegum farmi á landi.
- Matvælastofnun veitir leiðbeiningar um meðhöndlun úrgangs sem fellur undir reglugerð um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.
- Annar úrgangur skal fluttur til móttökustöðvar. - Förgun:
- Brennsla, samkvæmt ákvæðum reglugerðar um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
- Urðun, samkvæmt ákvæðum reglugerðar um urðun úrgangs.
Matvælastofnun veitir leiðbeiningar um förgun úrgangs sem fellur undir reglugerð um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.
II. Viðauki
Dæmi um ráðstafanir til að koma í veg fyrir myndun úrgangs.
Ráðstafanir sem geta haft áhrif á rammaskilyrðin sem tengjast myndun úrgangs:
- Ráðstafanir vegna áætlanagerðar eða önnur efnahagsleg stjórntæki sem stuðla að skilvirkri notkun á auðlindum.
- Efling rannsókna og þróunarstarfsemi sem stuðla að því að fá fram vörur sem eru hreinni og skapa minni úrgang og miðlun á niðurstöðum slíkra rannsókna og þróunarstarfsemi og hagnýting niðurstaðnanna.
- Þróun á skilvirkum og markvissum vísum fyrir álag á umhverfið, sem tengjast myndun úrgangs og sem ætlað er að stuðla að forvörnum gegn myndun hans á öllum stigum, allt frá samanburði á vörum á vegum Evrópusambandsins, að frumkvæði sveitarfélaga til ráðstafana á vegum ríkisins.
Ráðstafanir sem geta haft áhrif á hönnun og á framleiðslu- og dreifingarfasann:
- Efling visthönnunar (kerfisbundin samþætting umhverfisþátta inn í vöruhönnun í því skyni að bæta vistvænleika vöru á öllum vistferli hennar).
- Veiting upplýsinga um tækni til að koma í veg fyrir myndun úrgangs með það í huga að stuðla að notkun bestu, fáanlegu tækni í iðnaði.
- Skipulagning á þjálfun lögbærra yfirvalda að því er varðar innleiðingu krafna um forvarnir gegn myndun úrgangs í starfsleyfum samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs og reglugerðum settum samkvæmt þeim og reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
- Ráðstafanir til að koma í veg fyrir framleiðslu úrgangs á stöðvum sem falla ekki undir I. viðauka við reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Slíkar ráðstafanir gætu, eftir því sem við á, falist í mati á forvörnum gegn myndun úrgangs eða áætlunum þar að lútandi.
- Herferðir til vitundarvakningar eða það að veita fyrirtækjum fjárhagslegan stuðning, stuðning við ákvarðanatöku eða annan stuðning. Líklegt er að slíkar ráðstafanir verði sérlega skilvirkar ef þær beinast að og eru lagaðar að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og í gegnum viðskiptanet sem þegar eru fyrir hendi.
- Frjálsir samningar, umræðuhópar neytenda/framleiðenda eða samningaviðræður innan geiranna í því skyni að viðkomandi fyrirtæki eða iðnaðargeirar geri sínar eigin áætlanir eða setji markmið um forvarnir gegn myndun úrgangs eða geri úrbætur varðandi vörur eða umbúðir sem hafa í för með sér myndun mikils úrgangs.
- Það að stuðla að traustvekjandi umhverfisstjórnunarkerfi, þ.m.t. umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins og ISO 14001.
Ráðstafanir sem geta haft áhrif á neyslu- og notkunarfasann:
- Efnahagsleg stjórntæki, s.s. ívilnanir vegna umhverfisvænna innkaupa eða innleiðing á skyldugreiðslum neytenda fyrir tiltekinn hlut eða hluta af umbúðum sem annars fengist endurgjaldslaust.
- Herferðir til vitundarvakningar og upplýsingamiðlunar til almennings eða tiltekins hóps neytenda.
- Það að stuðla að traustvekjandi umhverfismerkjum.
- Samningar við iðngreinarnar, s.s. um að koma á umræðuhópum um vörur, t.d. þeirra sem fara fram innan rammans um samþætta vörustefnu, eða við smásala um aðgengi að upplýsingum um forvarnir gegn myndun úrgangs og um vörur sem hafa minni umhverfisáhrif.
- Samþætting umhverfisviðmiðana og viðmiðana um forvarnir gegn myndun úrgangs við útboð og samninga, bæði í tengslum við opinber innkaup og innkaup fyrirtækja, í samræmi við handbók framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um umhverfisvæn, opinber innkaup.
- Það að stuðla að endurnotkun og/eða viðgerðum á viðeigandi vörum, sem hefur verið fleygt, eða á efnisþáttum þeirra, sérstaklega með menntunartengdum eða efnahagslegum ráðstöfunum eða ráðstöfunum er varða aðdrætti eða öðrum ráðstöfunum á borð við stuðning við eða stofnun viðgerðar- og endurnotkunarmiðstöðva, einkum á þéttbýlum svæðum.
III. Viðauki
Samræmdar merkingar úrgangstegunda.
Hönnun merkingar:
Hönnun merkingar skal endurgerð án þess að bæta við öðrum áhrifaþáttum, aðlaga litina, lagfæra eða stækka bakgrunninn. Merkingin skal endurgerð í upplausn sem er að lágmarki 300 punktar á tommu þegar hún er prentuð í raunstærð.
Upplýsingatextinn skal vera í hástöfum og í leturgerðinni Helvetica Bold. Leturstærð skal vera að lágmarki 5 pt og að hámarki 14 pt.
- Fyrir pappír skal að lágmarki nota eftirfarandi merkingar, eftir því sem við á, og lit:


CMYK 95 35 5 0
PANTONE 2185 C
RGB 0 130 190
HEX #0082BE
RAL 5015 (SKY BLUE) - Fyrir pappa skal að lágmarki nota eftirfarandi merkingar, eftir því sem við á, og lit:


CMYK 25 35 65 5
PANTONE 7562 C
RGB 190 160 100
HEX #BEA064
RAL 1024 (OCHRE YELLOW) - Fyrir plast skal að lágmarki nota eftirfarandi merkingar, eftir því sem við á, og lit:



CMYK 50 95 0 0
PANTONE 7656 C
RGB 150 30 130
HEX #961E82
RAL 4008 (SIGNAL VIOLET) - Fyrir gler skal að lágmarki nota eftirfarandi merkingar, eftir því sem við á, og lit:



CMYK 75 0 55 0
PANTONE 2401 C
RGB 30 175 140
HEX #1DAF8E
RAL 6027 (LIGHT GREEN) - Fyrir lífúrgang skal að lágmarki nota eftirfarandi merkingar og liti:

CMYK 80 0 90 0
PANTONE 7428 C
RGB 0 160 75
HEX #00A04B
RAL 6037 (PURE GREEN)

CMYK 80 0 90 50
PANTONE 349 C
RGB 0 100 50
HEX #006432
RAL 6001 (EMERALD GREEN) - Fyrir málma skal að lágmarki nota eftirfarandi merkingar, eftir því sem við á, og lit:


CMYK 25 0 0 65
PANTONE 444 C
RGB 90 110 120
HEX #5A6E78
RAL 7031 (BLUE GREY) - Fyrir blandaðan úrgang skal að lágmarki nota eftirfarandi merkingu og lit:

CMYK 20 20 20 100
PANTONE BLACK 6 C
RGB 20 20 20
HEX #141414
RAL 9005 (JET BLACK) - Fyrir textíl skal að lágmarki nota eftirfarandi merkingu og lit:

CMYK 55 0 90 0
PANTONE 7488 C
RGB 135 200 75
HEX #87C84B
RAL 6018 (YELLOW GREEN) - Fyrir spilliefni skal að lágmarki nota eftirfarandi merkingu og lit:

CMYK 0 100 90 0
PANTONE 485 C
RGB 225 15 30
HEX #E10F1E
RAL 3020 (TRAFFIC RED)