Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um þorskígildisstuðla fyrir fiskveiðiárið 2023/2024 og almanaksárið 2024.

1. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2023 til 31. ágúst 2024 eru sem hér segir:

Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar
Beitukóngur 0,29 Hörpudiskur 0,19 Skata 0,23
Blágóma 0,14 Ígulker 0,33 Skrápflúra 0,08
Blálanga 0,42 Íslensk sumargotssíld 0,15 Skötuselur 1,44
Búrfiskur 1,13 Keila 0,30 Slétti langhali 0,14
Dílamjóri 0,03 Kúskel 0,24 Smokkfiskur 0,07
Djúpkarfi 0,66 Langa 0,64 Snarphali 0,10
Flundra/ósalúra 0,07 Langlúra 0,57 Spærlingur 0,07
Geirnefur 0,12 Litla brosma 0,06 Steinbítur 0,46
Geirnyt 0,02 Litli karfi 0,29 Stinglax 0,37
Gjölnir 0,09 Loðna 0,14 Stóra brosma 0,11
Grálúða 1,85 Lúða 1,50 Sæbjúga 0,19
Grásleppa 0,31 Lýr 0,12 Tindaskata 0,05
Grjótkrabbi/klettakrabbi 0,46 Lýsa 0,25 Túnfiskur 0,63
Gullkarfi 0,61 Lýsingur 0,26 Ufsi 0,67
Gulllax 0,31 Náskata 0,09 Urrari 0,01
Háfur 0,06 Rauðmagi 0,41 Úthafsrækja 0,79
Hákarl 0,21 Rækja á grunnslóð 0,63 Vogmær 0,03
Hámeri 0,12 Rækja við Snæfellsnes 0,80 Ýsa 0,93
Hlýri 0,64 Sandhverfa 2,90 Þorskur 1,00
Humar (slitinn) 6,04 Sandkoli 0,38 Öfugkjafta 0,50
Hvítskata 0,07 Skarkoli 0,98 Þykkvalúra/sólkoli 1,14

2. gr.

Þorskígildisstuðlar vegna aflaheimilda sem miðast við almanaksárið 2024 eru sem hér segir:

Tegund Stuðlar
Kolmunni 0,08
Makríll 0,16
Norður-Íshafsþorskur 1,00
Norsk-íslensk síld 0,15

3. gr.

Reglugerð þessi er sett, skv. 19. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast gildi 1. september 2023.

Matvælaráðuneytinu, 6. júlí 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Jón Þrándur Stefánsson.