Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um lista yfir störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar í skilningi laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér landi og falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lista yfir störf í viðauka.

2. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að afmarka þau störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi og falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga í samræmi við stefnu stjórnvalda og þarfir atvinnulífsins hverju sinni.

3. gr. Listi yfir störf.

Með störfum sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi er ekki átt við önnur störf en þau sem eru sérstaklega tilgreind í viðauka og falla jafnframt undir starfaflokkun ÍSTARF21.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 8. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, öðlast þegar gildi.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 3. júlí 2023.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Bjarnheiður Gautadóttir.

Viðauki

Listi yfir störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi og falla undir starfaflokkun ÍSTARF21.

Númer starfaflokks Heiti starfaflokks
1223 Störf stjórnenda í rannsóknum og þróun.
1330 Störf stjórnenda í upplýsinga- og fjarskiptatækni.
1411 Störf stjórnenda í hótelrekstri.
2166 Sérfræðistörf í grafískri hönnun og margmiðlunarhönnun.
2433 Sérfræðistörf við sölu á lyfjum, tækjum og tæknibúnaði.
2434 Sérfræðistörf við sölu á upplýsinga- og fjarskiptatæknibúnaði.
2511 Sérfræðistörf við greiningar á tölvukerfum.
2512 Sérfræðistörf við hugbúnaðarþróun.
2513 Sérfræðistörf við vef- og margmiðlun.
2514 Sérfræðistörf við forritun.
2519 Sérfræðistörf við þróun og greiningu á hugbúnaði ót.a.s.
2521 Sérfræðistörf við hönnun og umsjón gagnagrunna.
2522 Sérfræðistörf við kerfisstjórn.
2523 Sérfræðistörf við netkerfi.
Númer starfaflokks Heiti starfaflokks
2529 Sérfræðistörf við gagnagrunna og netkerfi ót.a.s.
3111 Tæknistörf í efna- og eðlisfræði.
3119 Tæknistörf í eðlisfræði, efnafræði og verkfræði.
3211 Tæknistörf við sjúkdómsgreininga- og lækningatæki.
3212 Tækni- og rannsóknarstörf í lífeindafræði.
3213 Störf við lyfjatækni.
3142 Tæknistörf í landbúnaði.
3511 Tæknistörf við kerfisstjórn.
3512 Tæknistörf við notendaþjónustu í upplýsinga- og fjarskiptatækni.
3513 Tæknistörf við netkerfi.
3514 Störf við veftækni.
3521 Tæknistörf við upptökur og útsendingar.