Reglugerð um sóttvarnavottorð og sóttvarnaundanþágu fyrir skip.
1. gr.
Heilbrigðisnefnd, í samráði við Samgöngustofu, hefur heilbrigðiseftirlit með skipum og gefur út sóttvarnavottorð og vottorð um sóttvarnaundanþágu fyrir skip samkvæmt ákvæðum alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar, sem birt var í C-deild Stjórnartíðinda sbr. auglýsing nr. 3/2020. Um eftirlitið fer samkvæmt ákvæðum XIV. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Vottorð skulu vera á ensku og í samræmi við fyrirmynd í fylgiskjali 1 og gilda í sex mánuði hið mesta. Framlengja má gildistíma vottorðs um sóttvarnaundanþágu um einn mánuð annars vegar ef ekki er unnt að framkvæma skoðun og engar vísbendingar eru um sýkingu eða mengun eða hins vegar ef ekki er unnt að beita tilskildum sóttvarnaráðstöfunum í viðkomandi höfn.
Heimilt er að veita vottorð um sóttvarnaundanþágu fyrir skip í þeim höfnum sem tilgreindar eru í töflu 1 í fylgiskjali 2. Eingöngu er heimilt að veita sóttvarnavottorð fyrir skip í þeim höfnum sem tilgreindar eru í töflu 2 í fylgiskjali 2.
Við framkvæmd reglugerðarinnar skal fylgja ákvæðum alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar.
2. gr.
Vakni grunur um hættu fyrir heilsu manna um borð og ekki eru til staðar gild vottorð um sóttvarnaundanþágu eða sóttvarnavottorð fyrir skip er heilbrigðisnefnd, að höfðu samráði við Samgöngustofu, heimilt að skoða skipið og getur í kjölfarið gripið til eftirfarandi aðgerða:
- Ef engar vísbendingar eru um hættu fyrir heilsu manna getur heilbrigðisnefnd gefið út vottorð um sóttvarnaundanþágu fyrir skipið.
- Ef vart verður við hættu fyrir heilsu manna skal heilbrigðisnefnd tilkynna sóttvarnalækni um hana og með fullnægjandi hætti grípa til sóttvarnaráðstafana eða sjá til þess að til þeirra verði gripið svo hún geti gefið út sóttvarnavottorð fyrir skipið. Ef aðstæður eru þess eðlis að ekki er unnt að ná fullnægjandi árangri við sóttvarnaráðstafanir, að mati heilbrigðisnefndar, skal gera athugasemd um það í sóttvarnavottorði skipsins. Nauðsynlegt er að ljúka sóttvarnaráðstöfunum áður en nýtt sóttvarnaundanþáguvottorð er veitt.
Útgerð eða umboðsmaður skips greiðir kostnað vegna eftirlits og útgáfu vottorðs um sóttvarnaundanþágu eða útgáfu sóttvarnavottorðs.
3. gr.
Heilbrigðisnefnd skal senda Samgöngustofu upplýsingar um útgáfu á vottorði um sóttvarnaundanþágu og sóttvarnavottorð en upplýsingar um sóttvarnavottorð skal einnig senda sóttvarnalækni, ásamt upplýsingum um gildistíma þeirra.
4. gr.
Reglugerð þessi gildir um skip, stærri en 200 brúttótonn, sem sigla milli landa. Reglugerð þessi gildir ekki um skip eða báta undir 200 brúttótonnum s.s. fiskiskip, lystisnekkjur, björgunarbáta, hafnsögubáta, vitaskip, varðskip, dráttarskip og dýpkunarskip.
5. gr.
Um valdsvið, beitingu þvingunarúrræða og viðurlaga samkvæmt reglugerð þessari fer samkvæmt ákvæðum XVII. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 4. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir til innleiðingar á ákvæðum alþjóða heilbrigðisreglugerðarinnar (IHR 2005) varðandi vottorð um sóttvarnaundanþágu fyrir skip og sóttvarnavottorð fyrir skip, að höfðu samráði við innviðaráðuneyti, hvað hlutverk Samgöngustofu varðar, og heilbrigðisráðuneyti, hvað hlutverk sóttvarnalæknis varðar. Jafnframt er reglugerðin sett að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga er varðar hlutverk heilbrigðisnefnda samkvæmt reglugerð þessari. Reglugerðin tekur þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi 55. gr. a., fylgiskjal 4 og fylgiskjal 5 reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 18. desember 2023.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Guðmundsson.
Fylgiskjal 1
Sóttvarnaundanþága fyrir skip/sóttvarnavottorð fyrir skip
Höfn:………. Dagsetning: …………..
Vottorðið greinir frá skoðun og 1) undanþágu frá sóttvörn eða 2) sóttvarnaráðstöfunum sem gerðar hafa verið
Heiti hafskips eða skips á skipgengum vatnaleiðum …......................Fáni…....................... Skráningarnúmer/IMO-númer ……….......
Við skoðun voru lestar óhlaðnar/hlaðnar með ...... tonnum af .......................... farmi
Nafn og heimilisfang skoðunarmanns…………………..
Vottorð um sóttvarnaundanþágu fyrir skip
| Skoðuð svæði [kerfi og þjónusta] | Vísbendingar sem fundust(1) | Niðurstöður sýna (2) | Yfirfarin skjöl |
| Eldhús | Sjúkradagbók | ||
| Býtibúr | Skipsdagbók | ||
| Geymslur | Annað | ||
| Lestar/farmur | |||
| Vistarverur: | |||
| - áhafnar | |||
| - yfirmanna | |||
| - farþega | |||
| - þilfarsfarþega | |||
| Drykkjarhæft vatn | |||
| Skólp | |||
| Kjölfestutankar | |||
| Fastur og sóttnæmur úrgangur | |||
| Staðið vatn | |||
| Vélarúm | |||
| Læknisaðstaða | |||
| Önnur tilgreind svæði – sjá viðhengi | |||
| Merkið við svæði sem ekki eiga við með „N/A“ |
Sóttvarnavottorð fyrir skip
| Sóttvarnaráðstafanir sem gripið hefur verið til | Dagsetning endurtekinnar skoðunar | Athugasemdir við aðstæður um borð |
Engar vísbendingar fundust. Skip/bátur er undanþegið frá sóttvarnaráðstöfunum. Gripið var til nauðsynlegra sóttvarnaráðstafana neðangreindan dag.
Nafn og titill heilbrigðisfulltrúa sem gefur út þetta vottorð …………….............…...................... Undirskrift og stimpill …………………………… Dagsetning ………….........
(1) a) Vísbendingar um sýkingu eða mengun, þ.m.t.: smitferjur á öllum þroskastigum; dýr sem eru smitgeymar fyrir smitferjur; nagdýr eða aðrar dýrategundir sem geta borið með sér sjúkdóma sem leggjast á menn eða örverufræðilega eða eiturefnafræðilega áhættuþætti eða aðra áhættuþætti fyrir heilsu manna; merki um ófullnægjandi heilbrigðisráðstafanir. b) Upplýsingar varðandi sjúkdómstilfelli (yfirlýsing um heilbrigði sæfarenda).
(2) Niðurstöður úr sýnum sem voru tekin um borð. Greiningu skal skilað til skipstjóra eins fljótt og auðið er og, ef endurtekin skoðun reynist nauðsynleg, til næstu viðeigandi hafnar sem kemur heim og saman við dagsetningu endurtekinnar skoðunar samkvæmt þessu vottorði.
Vottorð um sóttvarnaundanþágu fyrir skip og sóttvarnavottorð fyrir skip gilda að hámarki í sex mánuði en framlengja má gildistímann í mánuð ef ekki er unnt að framkvæma skoðun í höfninni og engar vísbendingar eru um sýkingu eða mengun.
Viðhengi við sóttvarnaundanþágu fyrir skip/sóttvarnavottorð fyrir skip
| Skoðuð svæði/aðstaða/kerfi | Vísbendingar sem fundust | Niðurstöður sýna | Yfirfarin skjöl | Sóttvarnaráðstafanir sem gripið hefur verið til | Dagsetning endurtekinnar skoðunar | Athugasemdir við aðstæður um borð |
| Matur | ||||||
| Uppruni | ||||||
| Geymsla | ||||||
| Matargerð | ||||||
| Þjónusta | ||||||
| Vatn | ||||||
| Uppruni | ||||||
| Geymsla | ||||||
| Dreifing | ||||||
| Sorp | ||||||
| Gámar | ||||||
| Meðferð | ||||||
| Förgun | ||||||
| Sundlaugar/heilsulindir | ||||||
| Tæki | ||||||
| Rekstur | ||||||
| Læknisaðstaða | ||||||
| Tæki og lækningatæki | ||||||
| Rekstur | ||||||
| Lyf | ||||||
| Önnur skoðuð svæði |
Merkið „N/A“ við svæði sem ekki eiga við.
SHIP SANITATION CONTROL EXEMPTION CERTIFICATE/SHIP SANITATION CONTROL CERTIFICATE
| Port of………………………………………………. Date: ………….. |
| This Certificate records the inspection and 1) exemption from control or 2) control measures applied |
| Name of ship or inland navigation vessel…............................................................Flag…………….…………....................... Registration/IMO No. ………....... |
| At the time of inspection the holds were unladen/laden with ................tonnes of ……............................ cargo |
| Name and address of inspecting officer |
| Ship Sanitation Control Exemption Certificate | |||
| Areas, [systems, and services] inspected | Evidence found (1) | Sample results (2) | Documents reviewed |
| Galley | |||
| Pantry | |||
| Stores | |||
| Hold(s)/cargo | |||
| Quarters: | |||
| - crew | |||
| - officers | |||
| - passengers | |||
| - deck | |||
| Potable water | |||
| Sewage | |||
| Ballast tanks | |||
| Solid and medical waste | |||
| Standing water | |||
| Engine room | |||
| Medical facilities | |||
| Other areas specified - see attached | |||
| Note areas not applicable, by marking - N/A. | |||
| No evidence found. Ship/vessel is exempted from control measures. | |||
| Ship Sanitation Control Certificate | ||
| Control measures applied | Re-inspection date | Comments regarding conditions found |
| Control measures indicated were applied on the date below | ||
| Name and designation of issuing officer ……………………………….............… Signature and seal ………………………………Date …………......... |
| (1) (a) Evidence of infection or contamination, including: vectors in all stages of growth; animal reservoirs for vectors; rodents or other species that could carry human disease, microbiological, chemical and other risks to human health; signs of inadequate sanitary measures. (b) Information concerning any human cases (to be included in the Maritime Declaration of Health). |
| (2) Results from samples taken on board. Analysis to be provided to ship’s master by most expedient means and, if re-inspection is required, to the next appropriate port of call coinciding with the re-inspection date specified in this certificate. |
| Sanitation Control Exemption Certificates and Sanitation Control Certificates are valid for a maximum of six months, but the validity period may be extended by one month if inspection cannot be carried out at the port and there is no evidence of infection or contamination. |
ATTACHMENT TO MODEL SHIP SANITATION CONTROL EXEMPTION CERTIFICATE/SHIP SANITATION CONTROL CERTIFICATE
| Areas/facilities/systems inspected | Evidence found | Sample results | Documents reviewed | Control measures applied | Re-inspection date | Comments regarding conditions found |
| Food | ||||||
| Source | ||||||
| Storage | ||||||
| Preparation | ||||||
| Service | ||||||
| Water | ||||||
| Source | ||||||
| Storage | ||||||
| Distribution | ||||||
| Waste | ||||||
| Holding | ||||||
| Treatment | ||||||
| Disposal | ||||||
| Swimming pools/spas | ||||||
| Equipment | ||||||
| Operation | ||||||
| Medical facilities | ||||||
| Equipment and medical devices | ||||||
| Operation | ||||||
| Medicines | ||||||
| Other areas inspected | ||||||
| Indicate when the areas listed are not applicable by marking N/A. | ||||||
Fylgiskjal 2
Listi yfir hafnir þar sem heimilt er að gefa út sóttvarnaundanþágu / sóttvarnavottorð fyrir skip.
Tafla 1 (sóttvarnaundanþága):
| Höfn Harbour | SÞ-kóði hafnar UN location code | Breiddargráða N Latitude N | Lengdargráða V Longitude V | Símanúmer Contact points |
| Akraneshöfn | ISAKR | 64°18.8 | 22°04.9 A | 660-8930 |
| Akureyrarhöfn | ISAKU | 65°41.5 | 18°04.8 | 460-4200 |
| Eskifjarðarhöfn | ISESK | 65°04.5 | 14°01.6 | 476-1199 |
| Fáskrúðsfjarðarhöfn | ISFAS | 64°55.5 | 13°59.9 | 474-1305 |
| Grindavíkurhöfn | ISGRI | 63°50.4 | 22°25.2 | 660-7305 |
| Grundarfjarðarhöfn | ISGRF | 64°55.6 | 23°15.1 | 863-1033 |
| Grundartangahöfn | ISGRT | 64°21.4 | 21°46.6 | 660-8930 |
| Hafnarfjarðarhöfn | ISHAF | 64°03.9 | 21°58.1 | 414-2300 |
| Hafnarfjarðarhöfn | ISSTR | 64°02.7 | 22°02.3 | 414-2300 |
| Hornafjarðarhöfn | ISHFN | 64°14.9 | 15°12.0 | 895 2042 |
| Húsavíkurhöfn | ISHUS | 66°02.7 | 17°21.3 | 893-9175 |
| Ísafjarðarhöfn | ISISA | 66°04.0 | 23°07.1 | 862-1877 |
| Miðsandur | ISHVR | 64°23.6 | 21°28.0 | 550-9943 |
| Neskaupstaðarhöfn | ISNES | 65°08.3 | 13°44.3 | 477-1333 |
| Reyðarfjarðarhöfn | ISRFJ | 65°01.8 | 14°13.2 | 474-1305 |
| Reykjaneshöfn | ISRYK | 63°59.2 | 22°32.0 | 420-3220 |
| Reykjavíkurhöfn | ISREY | 64°08.0 | 21°49.7 | 660-8930 |
| Sauðárkrókshöfn | ISSAU | 65°45.373 | 19°38.625 | 543-5169 |
| Seyðisfjarðarhöfn | ISSEY | 65°15.8 | 14°00.4 | 470-2360 |
| Siglufjarðarhöfn | ISSIG | 66°09.1 | 18°54.0 | 852-2177 |
| Vestmannaeyjahöfn | ISVES | 63°26.7 | 20°16.1 | 893-0027 |
| Vopnafjarðarhöfn | ISVPN | 65°45.2 | 14°49.4 | 473-1299 |
| Þorlákshöfn | ISTHH | 63°51.6 | 21°21.9 | 893-3659 |
| Þórshafnarhöfn | ISTHO | 66°11.7 | 15°20.4 | 862-5198 |
Tafla 2 (Sóttvarnavottorð):
| Höfn Harbour | SÞ-kóði hafnar UN location code | Breiddargráða N Latitude N | Lengdargráða V Longitude V | Símanúmer Contact points |
| Akureyrarhöfn | ISAKU | 65°41.5 | 18°04.8 | 460-4200 |
| Grundartangahöfn | ISGRT | 64°21.4 | 21°46.6 | 660-8930 |
| Ísafjarðarhöfn | ISISA | 66°04.0 | 23°07.1 | 862-1877 |
| Reykjavíkurhöfn | ISREY | 64°08.0 | 21°49.7 | 660-8930 |
| Seyðisfjarðarhöfn | ISSEY | 65°15.8 | 14°00.4 | 470-2360 |