Reglugerð um heimildir einkaaðila til að birta gögn í stafrænu pósthólfi.
1. gr. Markmið.
Markmið þessarar reglugerðar er að kveða á um hvaða aðilum, öðrum en opinberum aðilum, er heimilt að birta gögn í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda og hvaða skilyrði þeir þurfa að uppfylla.
2. gr. Heimild til birtingar.
Ráðherra getur samþykkt umsókn einkaaðila um heimild til birtingar gagna í stafrænu pósthólfi, enda varði gögnin sértæka hagsmuni viðtakanda. Eftirfarandi einkaaðilar geta óskað eftir heimild til birtingar gagna í stafrænu pósthólfi:
- Lífeyrissjóðir samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
- Aðilar sem stunda löginnheimtu, að því er varðar gögn sem teljast hluti af innheimtumeðferð sem vísað er til í 24. gr. a laga um lögmenn.
Umsóknum skv. 1. mgr. skal skilað í gegnum þar til gert vefform á vefsvæðinu island.is.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett skv. 9. gr., sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, nr. 105/2021, og tekur þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 30. janúar 2023.
F. h. r.
Guðmundur Árnason.
Einar Gunnar Thoroddsen.