Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1392 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 12.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 354/2022, frá 9. desember 2022, um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn (Félagaréttur), skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1392 frá 11. ágúst 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 12.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2022/1392 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 8/2023, 26. janúar 2023, bls. 416-420.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 30. janúar 2023.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Harpa Theodórsdóttir.