Reglugerð um raf- og rafeindatækjaúrgang.
1. gr. Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að því að komið sé í veg fyrir myndun raf- og rafeindatækjaúrgangs sem og að stuðla að endurnotkun, endurvinnslu eða annars konar endurnýtingu hans. Jafnframt að auka umhverfisvitund allra aðila sem framleiða, selja og nota raf- og rafeindatæki og þeirra sem meðhöndla raf- og rafeindatækjaúrgang.
2. gr. Gildissvið.
Reglugerðin tekur til raf- og rafeindatækjaúrgangs, sbr. I. viðauka A og B.
Reglugerðin gildir um móttöku, geymslu, söfnun, endurvinnslu og aðra meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs.
Reglugerð þessi gildir ekki um:
- tæki sem eru nauðsynleg til verndar öryggis ríkisins, þ.m.t. skotfæri og vopn,
- tæki sem eru hönnuð og sett upp sem hluti af annars konar tæki, sem er undanskilið gildissviði þessarar reglugerðar, og gegnir aðeins hlutverki sínu ef það er hluti þess tækis,
- glóþráðarperur,
- tæki sem eru ætluð til sendingar út í geim,
- stór, föst iðnaðartæki,
- stór, föst tæki, nema útbúnaður sem er ekki sérstaklega hannaður og settur upp sem hluti af því tæki,
- farartæki til farþega- eða vöruflutninga, að undanskildum rafknúnum ökutækjum á tveimur hjólum sem eru ekki gerðarviðurkennd,
- færanlegan vélbúnað til nota utan vega, sem eingöngu er notaður í atvinnuskyni,
- tæki sem eru sérstaklega hönnuð fyrir rannsóknir og þróunarstarfsemi eingöngu og eru aðeins fáanleg í viðskiptum á milli fyrirtækja,
- lækningatæki og lækningabúnað til sjúkdómsgreiningar í glasi, þegar gert er ráð fyrir að þau séu smitberar áður en þau eru úr sér gengin, og virk, ígræðanleg lækningatæki.
3. gr. Skilgreiningar.
Merking orða og orðasambanda í reglugerð þessari er sem hér segir:
Að bjóða fram á markaði: Öll afhending vöru til dreifingar, neyslu eða notkunar hér á landi á meðan á viðskiptastarfsemi stendur, hvort sem það er gegn greiðslu eða án endurgjalds.
Brottnám: Handvirk, vélræn, efnafræðileg eða málmtæknileg meðhöndlun sem veldur því að hættuleg efni, blöndur eða efnisþættir eru í auðgreinanlegu flæði eða eru auðgreinanlegur hluti flæðis innan meðhöndlunarferlisins. Efni, blanda eða efnisþáttur er auðgreinanlegur ef hægt er að fylgjast með honum til að staðfesta umhverfisvæna meðhöndlun.
Dreifingaraðili: Einstaklingur eða lögaðili sem býður raf- og rafeindatæki fram á markaði. Jafnframt getur dreifingaraðili talist vera framleiðandi samkvæmt skilgreiningu á framleiðanda og innflytjanda raf- og rafeindatækja.
Endurnotkun: Hvers kyns aðgerð þar sem raf- og rafeindatæki eða íhlutir þeirra, sem ekki eru úrgangur, eru notuð í sama tilgangi og þau voru ætluð í upphafi.
Endurnýting: Aðgerð þar sem aðalútkoman er sú að raf- og rafeindatækjaúrgangur verður til gagns þar eð hann kemur í stað annars efniviðar sem hefði annars verið notaður í tilteknum tilgangi, eða hann er útbúinn til þeirrar notkunar, í stöðinni eða úti í hagkerfinu.
Endurvinnsla: Hvers kyns endurnýtingaraðgerð sem felst í því að endurvinna raf- og rafeindatækjaúrgang í vörur, efnivið eða efni, hvort sem er til notkunar í upphaflegum tilgangi eða öðrum tilgangi. Undir þetta fellur þó ekki orkuvinnsla og uppvinnsla sem skilar efni sem á að nota sem eldsneyti eða til fyllingar.
Fjármögnunarsamningur: Samningur eða fyrirkomulag um lán, eignarleigu, leigu eða sölu með afborgunum á hvers konar tækjum, hvort sem skilmálar þess samnings eða fyrirkomulags gerir ráð fyrir því að eignarréttur á þeim tækjum hafi verið eða verði framseldur.
Framleiðandi og innflytjandi raf- og rafeindatækja: Aðili sem, óháð þeirri sölutækni sem er notuð:
- framleiðir raf- og rafeindatæki undir eigin heiti eða vörumerki eða lætur hanna eða framleiða raf- og rafeindatæki og markaðssetur undir eigin heiti eða vörumerki, í því ríki þar sem hann hefur starfsstöð,
- endurselur raf- og rafeindatæki undir eigin heiti eða vörumerki, sem aðrir birgjar framleiða í því ríki þar sem hann hefur starfsstöð; endursöluaðili telst þó ekki vera framleiðandi ef vörumerki framleiðandans er á tækjabúnaðinum eins og kveðið er á um í i. lið,
- setur raf- og rafeindatæki frá öðru ríki á markað í atvinnuskyni í því ríki þar sem hann hefur starfsstöð,
- selur raf- og rafeindatæki með fjarsamskiptamiðlum beint til notenda yfir landamæri, eða
- flytur raf- og rafeindatæki inn eða út úr landinu í atvinnuskyni.
Sá sem eingöngu leggur til fjármagn samkvæmt einhvers konar samningi um fjármögnun telst ekki framleiðandi.
Förgun: Hvers kyns aðgerð sem er ekki endurnýting, jafnvel þótt aðgerðin hafi að auki í för með sér endurheimt efna eða orku.
Færanlegur vélbúnaður til nota utan vega: Vélbúnaður með innbyggðan aflgjafa, sem útheimtir annaðhvort hreyfanleika eða samfelldan, eða því sem næst samfelldan, flutning milli nokkurra fastra vinnustöðva við vinnslu.
Hreinsun: Að fjarlægja spilliefni úr raf- og rafeindatækjaúrgangi.
Meðhöndlun úrgangs: Söfnun, geymsla, böggun, flokkun, flutningur, endurnotkun, endurnýting, pökkun og förgun úrgangs, þ.m.t. eftirlit með slíkri starfsemi og umsjón með förgunarstöðvum eftir að þeim hefur verið lokað.
Móttökustöð: Staður og aðstaða þar sem tekið er við úrgangi til geymslu til lengri eða skemmri tíma, til umhleðslu, flokkunar eða annarrar meðhöndlunar. Þaðan fer úrgangurinn til förgunar eða nýtingar, eða honum er fargað á staðnum. Undir móttökustöð falla förgunarstaðir.
Raf- og rafeindatæki: Búnaður sem þarf rafstraum eða rafsegulsvið til að geta starfað á réttan hátt og búnaður til að framleiða, flytja og mæla slíkan rafstraum og rafsegulsvið og er hannaður til notkunar við rafspennu sem fer ekki yfir 1000 volt þegar um er að ræða riðstraum og ekki yfir 1500 volt þegar um er að ræða jafnstraum, þ.m.t. allir íhlutir, undireiningar og aukahlutir sem eru hluti af búnaðinum.
Raf- og rafeindatækjaúrgangur: Raf- og rafeindatæki sem fleygt er, í heild eða að hluta, þar á meðal íhlutir, undireiningar og aukahlutir.
Setja á markað: Það að bjóða fram vöru í fyrsta sinn á markaði hér á land í atvinnuskyni.
Stór, föst tæki: Stór samsetning margs konar tækja og, eftir atvikum, annars búnaðar sem:
- er settur saman, settur upp og tekinn niður af fagmönnum,
- er ætlaður til varanlegrar notkunar, sem hluti byggingar eða mannvirkis, á fyrirframákveðnum og sérstökum stað og
- er aðeins hægt að skipta út með sama sérhannaða búnaði.
Stór, föst iðnaðartæki: Stór samstæða véla, búnaðar og/eða hluta, sem vinna saman til ákveðinna nota, sem sett er upp varanlega og tekin niður af fagmönnum á tilteknum stað og sem er notuð og haldið við af fagmönnum í starfsstöð í framleiðsluiðnaði, rannsóknum eða þróunarstarfsemi.
Söfnunarstöð (gámastöð): Staður og aðstaða þar sem tekið er við úrgangi frá almenningi og/eða smærri fyrirtækjum. Þaðan fer hann til endurnotkunar og endurnýtingar eða er fluttur til móttökustöðva.
4. gr. Upplýsingaskylda til kaupenda um skil.
Raf- og rafeindatækjaúrgangi skal skila til söfnunarstöðva eða móttökustöðva sem hafa starfsleyfi til að meðhöndla slíkan úrgang.
Framleiðandi og innflytjandi skulu í upplýsingum sem ætlaðar eru til dreifingar til kaupanda upplýsa um hvar sé heimilt að skila raf- og rafeindatækjaúrgangi, að hægt sé að skila raf- og rafeindatækjaúrgangi án greiðslu og að ábyrgst sé að hann verði meðhöndlaður í samræmi við gildandi reglur. Einnig skal kaupandi upplýstur um hlutverk sitt varðandi endurnotkun, endurvinnslu og aðrar leiðir til endurnýtingar raf- og rafeindatækjaúrgangs. Enn fremur skal kaupandi upplýstur um hugsanleg áhrif hættulegra efna í raf- og rafeindatækjaúrgangi á umhverfið og heilsu manna og dýra.
Framleiðandi og innflytjandi skulu merkja raf- og rafeindatæki með merki skv. IV. viðauka. Einnig skulu koma fram leiðbeiningar um þýðingu merkisins, þ.e. að raf- og rafeindatækjaúrgangi skuli safna sérstaklega.
5. gr. Skyldur sveitarfélaga.
Söfnunarstöðvar sem sveitarstjórnir sjá um að starfræktar séu í sveitarfélagi, sbr. 8. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, skulu hafa aðstöðu fyrir móttöku á raf- og rafeindatækjaúrgangi. Ber söfnunarstöðvum að taka við slíkum úrgangi gjaldfrjálst.
Sveitarfélög skulu veita leiðbeiningar um hvernig beri að flokka raf- og rafeindatækjaúrgang og skila honum til söfnunarstöðva sveitarfélaga og upplýsa um að raf- og rafeindatækjaúrgangur megi ekki fara með öðrum úrgangi.
Hægt er að synja um móttöku á raf- og rafeindatækjaúrgangi sem getur stofnað heilsu og öryggi starfsmanna í hættu vegna mengunar, enda sé tryggt að umræddum úrgangi sé skilað í móttökustöð fyrir spilliefni og honum fargað eða hann endurnýttur í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs og reglugerðir settar samkvæmt þeim.
6. gr. Ábyrgð framleiðenda og innflytjenda.
Framleiðandi og innflytjandi raf- og rafeindatækja bera ábyrgð á þeim raf- og rafeindatækjum sem framleidd eru hér á landi eða flutt inn. Í ábyrgð framleiðanda og innflytjanda felst að þeir skulu fjármagna og tryggja meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs að frátalinni söfnun til söfnunarstöðvar sveitarfélaga og fjármagna upplýsingagjöf samkvæmt ákvæðum 46. gr. laga um meðhöndlun úrgangs sem og rekstur skráningarkerfis skv. 50. gr. sömu laga. Seljandi raf- og rafeindatækja sem seld eru í tollfrjálsri verslun hér á landi og ætluð til innlendra nota ber ábyrgð framleiðanda og innflytjanda samkvæmt reglugerð þessari.
Óheimilt er að setja á markað, selja hér á landi eða taka til eigin nota í atvinnuskyni, raf- og rafeindatæki sem falla undir þessa reglugerð, nema framleiðandi og innflytjandi þeirra greiði úrvinnslugjald, sbr. lög 162/2002, um úrvinnslugjald, með síðari breytingum.
7. gr. Hlutverk framleiðenda og innflytjenda raf- og rafeindatækja.
Framleiðendur og innflytjendur raf- og rafeindatækja skulu:
- kosta geymslu raf- og rafeindatækjaúrgangs á söfnunarstöðvum sveitarfélaga,
- tryggja söfnun og móttöku raf- og rafeindatækjaúrgangs alls staðar á landinu svo sem frá söfnunarstöðvum sveitarfélaga,
- tryggja að raf- og rafeindatækjaúrgangur sé meðhöndlaður af atvinnurekstri sem hefur gilt starfsleyfi og
- upplýsa Umhverfisstofnun fyrir 1. apríl ár hvert um heildarmagn raf- og rafeindatækja í kílóum sem þeir hafa sett á markað eða tekið til eigin nota fyrir undangengið ár óski stofnunin eftir því.
8. gr. Greiðsla úrvinnslugjalds.
Til að tryggja viðeigandi endurnotkun, endurvinnslu eða annars konar endurnýtingu skulu framleiðendur og innflytjendur raf- og rafeindatækja uppfylla skyldur sínar með greiðslu úrvinnslugjalds.
Úrvinnslugjald skal standa undir kostnaði við geymslu raf- og rafeindatækjaúrgangs á söfnunarstöðvum sveitarfélaga, söfnun og móttöku hans alls staðar á landinu og að hann sé meðhöndlaður af atvinnurekstri sem hefur gilt starfsleyfi.
9. gr. Meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs.
Allur raf- og rafeindatækjaúrgangur sem er safnað skal meðhöndlaður á viðeigandi hátt í samræmi við gildandi reglur.
Fylgja skal að lágmarki þeim kröfum um meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs sem getið er um í II. viðauka áður en raf- eða rafeindatækið er endurunnið eða sent úr landi til endurvinnslu. Fjarlægja skal lausa hluti með þeim hætti að tryggt sé að hægt sé að endurnota eða endurnýta þá og skulu allir vökvar fjarlægðir. Hreinsun raf- og rafeindatækjaúrgangs skal framkvæma eins fljótt og mögulegt er. Óheimilt er að farga söfnuðum raf- og rafeindatækjaúrgangi án viðeigandi meðhöndlunar.
Staðir fyrir geymslu og meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs skulu vera í samræmi við kröfur, sem settar eru fram í III. viðauka og ákvæði starfsleyfis.
Meðhöndlunin getur einnig átt sér stað erlendis, að því tilskildu að flutningur raf- og rafeindatækjaúrgangsins sé í samræmi við reglugerð um flutning úrgangs milli landa.
Raf- og rafeindatækjaúrgangur sem er fluttur út til annarra landa skal einungis teljast uppfylla skyldur og markmið 1. og 2. mgr. 10. gr. ef útflytjandinn getur sannað að endurnýtingin, endurnotkunin og/eða endurvinnslan hafi farið fram við aðstæður sem eru sambærilegar þeim sem krafist er í þessari reglugerð.
Fylgja skal að lágmarki kröfum V. viðauka við flutning notaðra raf- og rafeindatækja úr landi.
10. gr. Móttaka lítilla raf- og rafeindatækja í verslunum.
Í verslunum þar sem sölusvæði raf- og rafeindatækja er a.m.k. 400 m² skal tekið á móti litlum raf- og rafeindatækjum, með ekkert ytra mál yfir 25 sm, án endurgjalds og skilyrða.
11. gr. Söfnunarmarkmið.
Lágmarkssöfnunarhlutfall raf- og rafeindatækja skal vera 45% af meðalþyngd raf- og rafeindatækja sem sett eru á markað 1. janúar 2014 - 31. desember 2016.
Frá 1. janúar 2019 skal árlegt lágmarkssöfnunarhlutfall vera 65% af meðalþyngd raf- og rafeindatækja sem sett eru á markað 1. janúar 2016 - 31. desember 2018 eða öðrum kosti 85% af raf- og rafeindatækjaúrgangi sem fellur til hér á landi.
Úrvinnslusjóður skal sjá til þess að markmiðum 1. og 2. mgr. sé náð, sbr. einnig b. lið 13. gr.
12. gr. Endurnýtingarmarkmið.
Lágmarksmarkmið sem gilda fyrir hvern flokk I. viðauka:
- fyrir raf- og rafeindatækjaúrgang í 1. eða 4. flokki skal endurnýta 85% og undirbúa 80% fyrir endurnotkun og endurvinna.
- fyrir raf- og rafeindatækjaúrgang í 2. flokki skal endurnýta 80% og undirbúa 70% fyrir endurnotkun og endurvinna.
- fyrir raf- og rafeindatækjaúrgang í 5. eða 6. flokki skal endurnýta 75% og undirbúa 55% fyrir endurnotkun og endurvinna.
- fyrir raf- og rafeindatækjaúrgang í 3. flokki skal endurvinna 80%.
13. gr. Hlutverk Úrvinnslusjóðs.
Úrvinnslusjóður skal:
- safna upplýsingum um magn raf- og rafeindatækja sem sett eru á markað, um magn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem safnað er og ráðstöfun hans og skila þeim til Umhverfisstofnunar fyrir 1. apríl ár hvert fyrir undangengið ár og
- ná tölulegum markmiðum um undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu, endurnýtingu, söfnun og förgun raf- og rafeindatækjaúrgangs.
14. gr. Skráningarkerfi framleiðenda og innflytjenda.
Framleiðanda og innflytjanda raf- og rafeindatækja ber að skrá sig hjá Umhverfisstofnun a.m.k. 15 dögum áður en vara, sem fellur undir lög um úrvinnslugjald, er sett á markað, seld eða tekin til eigin nota hér á landi. Umhverfisstofnun er heimilt að notast við upplýsingar frá toll- og skattayfirvöldum um greiðendur úrvinnslugjalds samkvæmt lögum um úrvinnslugjald við skráningu framleiðenda og innflytjenda raf- og rafeindatækja í skráningarkerfi framleiðenda og innflytjenda.
Umhverfisstofnun ber ábyrgð á og heldur skrá með upplýsingum um alla framleiðendur og innflytjendur raf- og rafeindatækja. Við skráningu skal framleiðandi og/eða innflytjandi veita eftirfarandi upplýsingar, eftir því sem við á:
- Nafn framleiðanda, innflytjanda eða viðurkennds fulltrúa (og hvern hann er í fyrirsvari fyrir), aðsetur, kennitölu, símanúmer, tölvupóstfang og upplýsingar um tengilið.
- Flokk raf- og rafeindatækja.
- Tegundarheiti raf- og rafeindatækja.
- Söluaðferð sem notuð er.
- Yfirlýsingu um að veittar upplýsingar séu réttar.
Úrvinnslusjóður skal skila inn til Umhverfisstofnunar eftirfarandi gögnum til skráningarkerfis framleiðenda og innflytjenda fyrir 1. apríl ár hvert fyrir árið á undan:
- Upplýsingum um magn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem er safnað, skipt upp eftir flokkum. Einnig upplýsingum um magn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem er meðhöndlað hér á landi eða erlendis, skipt upp eftir flokkum.
- Upplýsingum um magn í hverjum flokki sem er endurnýtt annars vegar og magn íhluta, efniviðar og efna sem er endurnotað eða endurunnið hins vegar.
- Upplýsingum um magn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem er endurnotað í heilu lagi flokkað eftir tegund.
15. gr. Viðurkenndur fulltrúi.
Erlendum framleiðanda raf- og rafeindatækja, sbr. i.-iii. lið skilgreiningar á framleiðanda og innflytjanda raf- og rafeindatækja í 3. gr., er heimilt að tilnefna viðurkenndan fulltrúa sinn hér á landi með skriflegu umboði og skal hann vera ábyrgur fyrir því að uppfylla skyldur framleiðandans samkvæmt lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
Framleiðandi raf- og rafeindatækja sem selur raf- og rafeindatæki með fjarsamskiptamiðlum beint til notenda í öðru EES-ríki skal tilnefna viðurkenndan fulltrúa í því ríki með skriflegu umboði og skal hann vera ábyrgur fyrir því að uppfylla skyldur framleiðandans samkvæmt tilskipun 2012/19/ESB.
16. gr. Eftirlit með framleiðendum og innflytjendum.
Umhverfisstofnun hefur eftirlit með framleiðendum og innflytjendum raf- og rafeindatækja. Eftirlit Umhverfisstofnunar felst meðal annars í að sjá til þess að framleiðendur og innflytjendur raf- og rafeindatækja séu skráðir í skráningarkerfi framleiðenda og innflytjenda.
Umhverfisstofnun er heimilt að óska eftir upplýsingum frá tolla- og skattayfirvöldum um heildarmagn, magn í einstökum flokkum, sbr. 51. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, og magn frá einstökum framleiðendum og innflytjendum vegna framleiðslu og innflutnings á raf- og rafeindatækjum sem falla undir lög um meðhöndlun úrgangs. Ákvæði 188. gr. tollalaga nr. 88/2005, og 117. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum, skulu ekki vera því til fyrirstöðu að starfsmenn tolla- og skattayfirvalda veiti Umhverfisstofnun upplýsingar samkvæmt þessari grein.
Til að sannreyna framleiðslu-, innflutning- og sölumagn raf- og rafeindatækja er Umhverfisstofnun heimilt að óska eftir gögnum um sölu raf- og rafeindatækja úr bókhaldi framleiðanda og innflytjanda. Löggiltur endurskoðandi skal staðfesta með undirskrift sinni að gögn og upplýsingar skv. 1. málsl. séu réttar. Skylt er að veita aðgang að umbeðnum gögnum innan 14 daga frá því að þeirra er óskað.
Umhverfisstofnun er bundin þagnarskyldu um atriði er varða framleiðslu- og verslunarleynd. Sama gildir um atriði sem hún fær vitneskju um og leynt skulu fara samkvæmt lögum og eðli máls.
17. gr. Upplýsingar til þeirra er meðhöndla úrgang.
Framleiðendur og innflytjendur skulu veita upplýsingar um rétta meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs til þeirra sem hafa starfsleyfi til að meðhöndla raf- og rafeindatækjaúrgang. Slíkar upplýsingar skulu veittar eigi síðar en ári frá því að raf- og rafeindatæki var markaðssett.
Framleiðendur og innflytjendur raf- og rafeindatækja skulu koma á framfæri upplýsingum varðandi sundurhlutun tækjanna, t.d. með handbókum eða rafrænum miðlum, til þeirra sem hafa starfsleyfi til að meðhöndla raf- og rafeindatækjaúrgang. Þessar upplýsingar skulu vera tiltækar í síðasta lagi einu ári eftir að raf- og rafeindatæki, eða íhlutir þeirra, eru sett á markað til að tryggja rétta úrvinnslu raf- og rafeindatækjaúrgangs, þ.e. sem ekki skaðar umhverfið. Þessar upplýsingar skulu vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku. Í upplýsingunum skal tilgreina öll þau atriði sem eru nauðsynleg til að geta uppfyllt ákvæði reglugerðar þessarar, upplýsingar um mismunandi íhluti og efnivið raf- og rafeindatækja og einnig staðsetningu hættulegra efna og efnablandna í slíkum búnaði.
18. gr. Upplýsingagjöf.
Þeir sem taka á móti eða sjá um meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs og íhluta hans skulu halda skrá yfir magn úrgangsins, í samræmi við flokkun í I. viðauka A, og það hvernig honum er ráðstafað. Halda skal skrá yfir gerð og magn spilliefna og ráðstöfun þeirra. Skrárnar skulu vera aðgengilegar eftirlitsaðila.
19. gr. Þvingunarúrræði.
Til að knýja á um framkvæmd ráðstöfunar samkvæmt reglugerð þessari er Umhverfisstofnun heimilt að veita viðkomandi aðila áminningu. Jafnframt skal veita hæfilegan frest til úrbóta ef þess er þörf.
Ef aðili verður ekki við tilmælum um úrbætur innan tiltekins frests er heimilt að ákveða aðila dagsektir þar til úr er bætt. Dagsektir renna til ríkissjóðs og skal hámark þeirra vera 500.000 kr. á dag.
Heimilt er að láta vinna verk á kostnað hins vinnuskylda ef tilmæli um framkvæmd eru vanrækt og skal sá kostnaður þá greiddur til bráðabirgða af Umhverfisstofnun eða hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd þar sem hún fer með eftirlit en innheimtast síðar hjá hinum vinnuskylda. Kostnað við verkið sem og dagsektir skv. 2. mgr. má innheimta með fjárnámi.
Leita skal aðstoðar lögreglu ef með þarf við framkvæmd þvingunarúrræða.
Að öðru leyti gildir 66. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, um þvingunarúrræði.
20. gr. Viðurlög.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða varða brot á reglugerð þessari fangelsi allt að fjórum árum. Tilraun til brota gegn reglugerðinni varðar refsingu sem fullframið brot, sbr. III. kafla almennra hegningarlaga. Sama gildir um hlutdeild í brotum.
Sektir má ákvarða lögaðila þó að sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Einnig má, með sama skilorði, gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa gerast sekir um brot.
21. gr. Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.
Eftirfarandi gerð öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/699 frá 18. apríl 2017 um að fastsetja sameiginlega aðferðafræði fyrir útreikning á þyngd raf- og rafeindatækja sem eru sett á markað í hverju aðildarríki og sameiginlega aðferðafræði fyrir útreikning á magni raf- og rafeindatækjaúrgangs sem fellur til, miðað við þyngd, í hverju aðildarríki, sem vísað er til í lið 32faa í XX. kafla viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2022, þann 10. júní 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 47 frá 14. júlí 2022, bls. 73-77.
22. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. mgr. 50. gr. og 53. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2012/19/ESB frá 4. júlí 2012 um raf- og rafeindabúnaðarúrgang, sem vísað er til í tölulið 32fa í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2015 frá 10. júlí 2015. Jafnframt er reglugerðin sett að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök atvinnulífsins, sbr. 1. mgr. 53. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Reglugerð nr. 442/2015, um raf- og rafeindatækjaúrgang fellur úr gildi frá sama tíma.
I. Viðauki A
Flokkar raf- og rafeindatækja sem falla undir gildissvið reglugerðar þessarar.
- Varmaskiptatæki.
- Skjáir og tæki með skjám með yfirborð sem er stærra en 100 sm².
- Ljósaperur.
- Stór tæki (með eitthvert ytra mál sem er yfir 50 sm), þ.m.t. en þó ekki eingöngu: Heimilistæki, upplýsingatækni- og fjarskiptabúnaður, neytendabúnaður, lampar, búnaður sem er notaður til hljóð- eða myndupptöku eða -flutnings, hljóðfæri, raf- og rafeindatæki, leikföng, frístunda- og íþróttabúnaður, lækningatæki, vöktunar- og eftirlitstæki, sjálfsalar, búnaður fyrir framleiðslu rafstraums. Til þessa flokks telst ekki búnaður sem er í flokkum 1 til 3.
- Lítil tæki (ekkert ytra mál er yfir 50 sm), þ.m.t. en þó ekki eingöngu: Heimilistæki, neytendabúnaður, lampar, búnaður sem er notaður til hljóð- eða myndupptöku eða -flutnings, hljóðfæri, raf- og rafeindatæki, leikföng, frístunda- og íþróttabúnaður, lækningatæki, vöktunar- og eftirlitstæki, sjálfsalar, búnaður fyrir framleiðslu rafstraums. Til þessa flokks telst ekki búnaður sem er í flokkum 1 til 3 og 6.
- Lítil upplýsingatækni- og fjarskiptatæki (ekkert ytra mál er yfir 50 sm).
I. Viðauki B
Raf- og rafeindatæki sem falla undir gildissvið reglugerðar þessarar.
- Varmaskiptatæki.
Kæliskápar, frystitæki, sjálfsalar með kælibúnaði, loftræstingarbúnaður, rakaeyðingartæki, varmadælur, hitagjafar sem innihalda olíu og varmaskiptar sem nota aðra vökva en vatn fyrir varmaskiptin. - Skjáir og tæki með skjám með yfirborð sem er stærra en 100 sm².
Skjáir, sjónvörp, vökvakristalsmyndarammar, fartölvur, fistölvur, spjaldtölvur. - Ljósaperur.
Beinar flúrperur, sambyggðar flúrperur, flúrperur, háþrýstar úrhleðsluperur, þ.m.t. háþrýstar natríumperur og málmhalógenperur, lágþrýstar natríumperur, ljósdíóður. - Stór tæki.
Þvottavélar, tauþurrkarar, uppþvottavélar, eldavélar, rafmagnsofnar, rafmagnshitaplötur, lampar, búnaður sem er notaður til hljóð- eða myndflutnings, hljóðfæri (að undanskildum pípuorgelum sem sett eru upp í kirkjum), tæki sem eru notuð til að sauma og vefa, stórar stórtölvur, stórar prentvélar, afritunarbúnaður, stórir spilakassar, stór lækningatæki, stór vöktunar- og eftirlitstæki, stórir sjálfsalar, ljósspennuplötur. - Lítil tæki.
Ryksugur, teppahreinsarar, tæki sem notuð eru til að sauma, lampar, örbylgjuofnar, loftræstingarbúnaður, straujárn, brauðristar, rafmagnshnífar, hraðsuðukatlar, klukkur og úr, rafmagnsrakvélar, vogir, tæki fyrir hár- og líkamssnyrtingu, reiknivélar, útvörp, myndbandsupptökuvélar, myndbandsupptökutæki, hljómflutningstæki, hljóðfæri, búnaður sem er notaður til hljóð- eða myndflutnings, rafmagns- og rafeindaleikföng, tölvur fyrir hjólreiðar, köfun, róður o.þ.h., reykskynjarar, hitastillar, lítil raf- og rafeindatæki, lítil lækningatæki, lítil vöktunar- og eftirlitstæki, litlir sjálfsalar, lítill búnaður með innbyggðar ljósspennuplötur. - Lítil upplýsingatækni- og fjarskiptatæki (ekkert ytra mál er yfir 50 sm).
Farsímar, GPS tæki, vasareiknar, beinar, einkatölvur, prentarar, símar.
II. Viðauki
Sérmeðhöndlun efniviðar og íhluta raf- og rafeindatækja í samræmi við 9. gr.
-
Að lágmarki skal fjarlægja eftirfarandi efni, efnablöndur og íhluti úr öllum raf- og rafeindatækjaúrgangi sem safnað er sérstaklega:
- fjölklóruð býfenýl (PCB) sem innihalda þétta í samræmi við reglugerð um innflutning, notkun og förgun PCB, PCT og umhverfisskaðlegra staðgengilsefna þeirra,
- íhluti sem innihalda kvikasilfur, s.s. rofa eða lampa til baklýsingar,
- rafhlöður,
- prentplötur, yfirleitt úr farsímum en einnig úr öðrum tækjum ef yfirborð prentplötunnar er stærra en 10 fersentimetrar,
- blekhylki, fljótandi eða krem, einnig litahylki,
- plast sem inniheldur brómað logavarnarefni,
- asbestúrgangur og íhlutir sem innihalda asbest,
- bakskautslampar,
- klórflúrkolefni (CFC), vetnisklórflúrkolefni (HCFC) eða vetnisflúrkolefni (HFC) og vetniskolefni (HC),
- gasúrhleðslulampar,
- vökvakristalskjáir (ásamt umgerð ef við á) með stærra yfirborð en 100 fersentimetra og allir slíkir skjáir sem eru baklýstir með gasúrhleðslulömpum,
- utanáliggjandi rafleiðslur,
- íhlutir sem innihalda eldfastar keramiktrefjar sbr. reglugerð um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna, hættulegra efna og vörutegunda sem innihalda slík efni.
- íhlutir sem innihalda geislavirk efni, að frátöldum íhlutum sem eru undir undantekningarmörkunum sem eru sett í 3. gr. og I. viðauka tilskipunar ráðsins 96/29/EBE frá 13. maí 1996 um grundvallaröryggisstaðla um verndun heilbrigðis starfsmanna og almennings gegn hættu af völdum jónandi geislunar,
- rafvökvaþétta sem innihalda skaðleg efni (hæð > 25 mm, þvermál > 25 mm eða hlutfallslega svipað magn).
Farga skal framangreindum efnum, efnablöndum og íhlutum eða endurnýta þau í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs og reglugerðir settar samkvæmt þeim.
-
Eftirfarandi íhlutir raf- og rafeindatækjaúrgangs, sem er safnað sérstaklega, skulu meðhöndlaðir á eftirfarandi hátt:
- bakskautslampar: fjarlægja skal flúrhúðun,
- búnaður sem inniheldur lofttegundir sem eru ósoneyðandi eða hafa hnattrænan hlýnunarstuðul (GWP) sem fer yfir 15, t.d. í froðu og kælirásum: draga verður lofttegundirnar út og meðhöndla þær á réttan hátt. Framangreindar lofttegundir skal meðhöndla í samræmi við reglugerð um efni sem valda rýrnun ósonlagsins og reglugerð um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir.
- gasúrhleðslulampar: fjarlægja skal kvikasilfur.
- Að teknu tilliti til umhverfissjónarmiða og þess hve undirbúningur endurnotkunar og endurvinnsla er æskileg skal beita 1. og 2. lið á þann hátt að umhverfisvænn undirbúningur endurnotkunar og endurvinnsla íhluta eða heilla tækja sé ekki hindruð.
III. Viðauki
Tæknilegar kröfur í samræmi við 9. gr. reglugerðar þessarar.
-
Geymslustaðir (þ.m.t. bráðabirgðageymsla) raf- og rafeindatækjaúrgangs áður en meðhöndlun hefst (með fyrirvara um kröfurnar í reglugerð um urðun úrgangs):
- viðeigandi svæði með ógagndræpu yfirborði þar sem fyrir hendi er aðstaða til lekasöfnunar og, ef við á, fellingar- og fituhreinsunarbúnaður,
- verja skal geymslustaði vatni og vindum.
-
Staðir fyrir meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs:
- vogir til að vigta meðhöndlaðan úrgang,
- viðeigandi svæði með ógagndræpu yfirborði og vatnsþéttri yfirbyggingu þar sem fyrirhendi er aðstaða til lekasöfnunar og, ef við á, fellingar- og fituhreinsunarbúnaður,
- viðeigandi geymsla fyrir varahluti úr búnaði sem tekinn hefur verið í sundur,
- viðeigandi ílát til að geyma í rafhlöður, þétta sem innihalda PCB eða PCT og annan hættu-legan úrgang, s.s. geislavirkan úrgang,
- búnaður til að hreinsa vatn, í samræmi við heilbrigðis- og umhverfisreglugerðir.
IV. Viðauki
Tákn til merkingar á raf- og rafeindatækjum.
Táknið, sem gefur til kynna að raf- og rafeindatækjum sé safnað sérstaklega, er mynd af yfirstrikaðri sorptunnu á hjólum eins og sýnt er hér á eftir. Merkið skal prentað þannig að það sé sýnilegt, læsilegt og óafmáanlegt.
V. Viðauki
Lágmarkskröfur varðandi sendingar.
-
Til að greina raf- og rafeindatæki frá raf- og rafeindatækjaúrgangi þegar sá sem hefur hlutinn undir höndum lýsir því yfir að ætlunin sé að senda eða verið sé að senda notað raf- og rafeindatæki en ekki raf- og rafeindatækjaúrgang, er Umhverfisstofnun heimilt að krefjast þess að fyrrgreindur aðili sé með eftirfarandi því til sönnunar:
- afrit af reikningi og samningi varðandi sölu og/eða yfirfærslu eignarréttar á raf- og rafeindatæki þar sem kemur fram að búnaðurinn fari beint til endurnotkunar og sé fullkomlega starfhæfur,
- sönnun á mati eða prófun, þ.e. afrit af færslunum (prófunarvottorð, staðfesting á virkni), fyrir hvern lið vörusendingarinnar og bókun með öllum upplýsingum skýrslu skv. 3. lið,
- yfirlýsingu þess aðila sem sér um flutning raf- og rafeindatækisins um að engin efni eða búnaður í vörusendingunni sé úrgangur í skilningi laga um meðhöndlun úrgangs og
- viðeigandi vörn gegn skemmdum við flutning, fermingu og affermingu, einkum með fullnægjandi umbúðum og viðeigandi stöflun farmsins.
-
Þrátt fyrir það gilda a- og b-liður 1. liðar og 3. liður ekki ef það er skjalfest með ótvíræðum sönnunum að sendingin eigi sér stað innan ramma samkomulags um flutninga vegna viðskipta á milli fyrirtækja og að:
- raf- og rafeindatækið sé sent aftur til framleiðandans, eða þriðja aðila fyrir hans hönd, sem gallaður til viðgerðar samkvæmt ábyrgð, í þeim tilgangi að hann verði notaður aftur eða
- notað raf- og rafeindatæki, sem er til nota í atvinnuskyni, sé sent til framleiðandans eða þriðja aðila fyrir hans hönd eða starfsstöðvar þriðja aðila í landi sem ákvörðun ráðs Efnahags- og framfarastofnunarinnar C(2001) 107/lokagerð um endurskoðun ákvörðunar C(92) 39/lokagerð um eftirlit með flutningi úrgangs sem ætlaður er til endurnýtingar gildir um, til endurnýtingar eða viðgerðar samkvæmt gildandi samningi, í þeim tilgangi að hann verði notaður aftur eða
- gallað raf- og rafeindatæki, sem er til nota í atvinnuskyni, t.d. lækningatæki eða hlutar þeirra, sé sent til framleiðandans eða þriðja aðila fyrir hans hönd vegna greiningar á frumorsök samkvæmt gildandi samningi, í tilvikum þar sem einungis framleiðandinn eða þriðji aðili fyrir hans hönd geta gert slíka greiningu.
-
Til að sýna fram á að hlutirnir sem verið er að flytja séu notuð raf- og rafeindatæki frekar en raf- og rafeindatækjaúrgangur skulu eftirfarandi prófun og skráning hafa farið fram:
Þrep 1: Prófun.
- Prófa skal virkni og leggja mat á það hvort hættuleg efni séu til staðar. Prófanir sem gera skal ráðast af tegund raf- og rafeindatækis. Að því er varðar flest notuð raf- og rafeindatæki er nægilegt að prófa virkni lykilþátta.
- Skrásetja skal niðurstöðu mats og prófunar.
Þrep 2: Skýrsla.
- Skýrsluna skal festa tryggilega en þó ekki varanlega á annaðhvort raf- og rafeindatækið sjálft (ef það er ekki í umbúðum) eða á umbúðirnar svo hægt sé að lesa hana án þess að taka umbúðirnar af tækinu.
- Í skýrslunni skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
– heiti hlutar (heiti tækis ef það er skráð í viðauka I B eða VI B, eins og við á og flokkur, sem settur er fram í viðauka I A eða VI B, eins og við á),
– auðkennisnúmer hlutarins (tegundarnúmer) þar sem við á,
– framleiðsluár (ef það liggur fyrir),
– heiti og heimilisfang fyrirtækisins sem ber ábyrgð á sannprófun á virkni,
– niðurstöður prófunar eins og lýst er í 1. þrepi (þ.m.t. dagsetning prófunar á virkni),
– tegundir prófana sem gerðar eru.
4. Til viðbótar við þau skjöl sem krafist er skv. 1., 2. og 3. lið skal hverjum farmi af notuðum raf- og rafeindatækjum (t.d. gámi, vöruflutningabifreið) fylgja:
- viðeigandi flutningsskjal, t.d. CMR-farmbréf,
- ábyrgðaryfirlýsing ábyrga aðilans.
Liggi ekki fyrir sönnun um að hlutur sé notað raf- og rafeindatæki en ekki raf- og rafeindatækjaúrgangur, með viðeigandi skjölum sem gerð er krafa um í 1., 2., 3. og 4. lið, og um viðeigandi varnir gegn skemmdum við flutning, fermingu og affermingu, einkum með fullnægjandi umbúðum og viðeigandi stöflun farmsins, sem er skylda þess aðila sem sér um flutninginn, skulu yfirvöld aðildarríkis líta svo á að um raf- og rafeindatækjaúrgang sé að ræða og gera ráð fyrir að farmurinn sé ólögleg sending. Í þeim tilvikum verður farið með farminn í samræmi við reglugerð nr. 822/2002, um flutning úrgangs á milli landa.