Reglugerð um samræmda afhendingu og miðlun upplýsinga um flutninga á sjó.
1. gr. Markmið.
Markmið reglugerðarinnar er að greiða fyrir flutningum á sjó og draga úr stjórnsýslubyrði skipafélaga með því að gera rafræna afhendingu og miðlun upplýsinga að reglu og með því að einfalda upplýsingagjöf um flutninga á sjó.
2. gr. Gildissvið.
Ákvæði reglugerðarinnar gilda um afhendingarhátt og miðlun upplýsinga um flutninga á sjó að því er varðar skip sem koma til hafnar eða láta úr höfn á Íslandi.
3. gr. Afhendingarháttur upplýsinga.
Skipstjóra, rekstraraðila eða umboðsmanni útgerðar er skylt að afhenda vaktstöð siglinga upplýsingar sem veita ber vegna komu og brottfarar skipa samkvæmt ákvæðum laga og stjórnvaldsfyrirmæla þar að lútandi eins og kveðið er á um í viðauka við reglugerðina.
Upplýsingarnar skulu veittar í gegnum sameiginlega gagnagátt vaktstöðvar siglinga.
Upplýsingarnar skulu veittar eigi síðar en:
- Tuttugu og fjórum klukkustundum áður en skip leggst að höfn,
- þegar skipið leggur frá höfn ef siglingatíminn er undir tuttugu og fjórum klukkustundum, eða
- eins fljótt og upplýsingarnar liggja fyrir ef ekki er vitað hver viðkomuhöfnin er eða ef viðkomuhöfn er breytt á meðan á siglingu stendur.
4. gr. Innleiðing á EES-gerð.
Með reglugerð þessari eru innleidd ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2010/65/ESB frá 20. október 2010 um formsatriði við skýrslugjöf að því er varðar skip sem koma í og/eða láta úr höfn í aðildarríkjum og um niðurfellingu á tilskipun 2002/6/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 89/2013 frá 3. maí 2013, sem birt var í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, 31. október 2013, bls. 62. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, 16. maí 2013, bls. 336-345.
Þann 15. ágúst 2025 öðlast gildi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1239 frá 20. júní 2019 um að koma á sameiginlegri gátt fyrir siglingar í Evrópu og um niðurfellingu á tilskipun 2010/65/ESB. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2022 frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 658-681.
5. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. og 3. mgr. 16. gr. c og 1. mgr. 17. gr. laga nr. 41/2003, um vaktstöð siglinga, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 869/2004, um formsatriði við skýrslugjöf að því er varðar skip sem koma í og/eða láta úr höfn í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins.
Viðauki
Skrá yfir upplýsingar sem skylt er að veita skv. 3. gr. reglugerðarinnar.
A. hluti.
- Tilkynningar um komu skipa skv. 7. gr. laga nr. 41/2003, um vaktstöð siglinga, og 4. gr. reglugerðar nr. 80/2013, um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa.
- Upplýsingar sem heimilt er að skrá í Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi sbr. 5.-8. gr. laga nr. 16/2000, um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi.
- Tilkynningar vegna hættulegs eða mengandi varnings skv. 8. gr. laga nr. 41/2003, um vaktstöð siglinga, og 13. gr. reglugerðar nr. 80/2013, um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa.
- Tilkynningar um úrgang og farmleifar skv. 3.-6. mgr. 12. gr. laga nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 1200/2014, um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum.
- Upplýsingar um siglingavernd skv. 4. gr. reglugerðar nr. 474/2007, um vernd skipa og hafnaraðstöðu, sbr. 6. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 725/2004, frá 31. mars 2004, um að efla vernd skipa og hafnaraðstöðu.
[Þar til samræmd eyðublöð hafa verið samþykkt á alþjóðavettvangi skal nota eyðublaðið, sem sett er fram í viðbætinum við þennan viðauka, til að senda upplýsingarnar sem krafist er skv. 4. gr. reglugerðar nr. 474/2007 sbr. 6. gr. reglugerðar (EB) nr. 725/2004. Eyðublaðið má senda rafrænt.] -
Upplýsingar sem eru tíundaðar í FAL-eyðublöðum, þ.e. stöðluðum eyðublöðum sem kveðið er á um í FAL-samningnum (IMO-alþjóðasamningurinn um einföldun flutninga á sjó, samþykktur 9. apríl 1965, með áorðnum breytingum). Eyðublöðin eru eftirfarandi:
- FAL-eyðublað nr. 1: Almenn yfirlýsing.
- FAL-eyðublað nr. 3: Yfirlýsing um skipsvistir.
- FAL-eyðublað nr. 4: Yfirlýsing um persónulega muni áhafnar.
- FAL-eyðublað nr. 5: Áhafnarskrá.
- FAL-eyðublað nr. 6: Farþegaskrá.
- FAL-eyðublað nr. 7: Hættulegur farmur.
B. hluti.
- Yfirlýsing um heilbrigði sæfarenda skv. 55. gr. a. reglugerðar nr. 941/2002, um hollustuhætti, með síðari breytingum.