Reglugerð um velferð dýra í flutningi.
I. KAFLI Markmið, gildissvið og skilgreiningar.
1. gr. Markmið.
Reglugerð þessi hefur það markmið að tryggja velferð og aðbúnað dýra við flutninga og koma í veg fyrir útbreiðslu dýrasjúkdóma við flutninga á dýrum.
2. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um alla flutninga á dýrum. Um flutning umráðamanns á dýrum sínum á eigin flutningatæki, sé um að ræða hefðbundna árlega flutninga til eða frá beitilandi, í sláturhús og flutning á 15 dýrum eða færri skulu gilda ákvæði I. og II. kafla og skilyrði í II. kafla I. viðauka og II. viðauka reglugerðarinnar.
3. gr. Orðskýringar.
Merking orða í reglugerð þessari er sem hér segir:
- Áfangastaður: Staður þar sem dýr er tekið úr flutningatæki.
- Dýr: Öll hryggdýr önnur en eldisfiskur og gæludýr.
- Brottfararstaður: Staður þar sem dýr er fyrst sett á flutningatæki.
- Flutningur: Ferli dýraflutninga frá brottfararstað til áfangastaðar, þ.m.t. hleðsla, umferming og afferming, hvort sem um er að ræða flutninga í lofti, á láði eða legi.
- Flutningatæki: Tæki til dýraflutninga, t.d. flutningatæki á hjólum sem annaðhvort gengur fyrir eigin vélarafli eða er dregið, skip og flugvélar.
- Stjórnandi flutningatækis: Einstaklingur sem stýrir flutningatæki.
- Flutningabúr: Búr sem notað er við flutning á dýrum.
- Flutningsaðili: Sá aðili, fyrirtæki eða einstaklingur, sem hefur flutning á dýrum sem atvinnustarfsemi að öllu leyti eða að hluta til, óháð því hvort flutningur er á eigin vegum eða að flutningatæki sé leigt eða lánað öðrum.
- Flutningstími: Heildarflutningstími frá hleðslu á fyrsta dýri, tíma milli staða, hlés á akstri, umfermingar og til affermingar síðasta dýrs.
- Gámur: Vistarvera sem notuð er við flutninga dýra en er ekki flutningatæki eða flutningabúr.
- Skipuleggjandi ferðar: Einstaklingur eða lögaðili sem skipuleggur flutninga á dýrum og lætur flytja, eða flytur sjálfur, dýr á eigin kostnað eða á kostnað þriðja aðila.
- Umráðamaður dýrs í flutningi: Eigandi dýrs eða annar aðili sem er ábyrgur fyrir umsjá dýrs meðan á flutningi stendur.
4. gr. Yfirstjórn.
Ráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt þessari reglugerð. Matvælastofnun fer með framkvæmd þessarar reglugerðar og hefur eftirlit með að ákvæðum hennar sé fylgt.
II. KAFLI Skilyrði fyrir flutningi á dýrum.
5. gr. Almenn skilyrði.
Við flutninga dýra skal þess gætt að valda dýrunum ekki ónauðsynlegum ótta, meiðslum eða þjáningu. Flutningatækiog útbúnaður þeirra skal vera hannaður, smíðaður, honum viðhaldið og stjórnað með það í huga.
Eftirfarandi skilyrðum skal ávallt fylgt við flutninga á dýrum:
- Óheimilt er að flytja dýr lengur en 8 klukkustundir í landflutningum. Að ferð lokinni skulu dýrin tekin af flutningatæki. Þeim skal gefið fóður og brynnt og tryggt skjól og hvíld í minnst 12 klukkustundir áður en ferð er framhaldið. Þó er heimilt að flytja alifugla í landflutningum í að hámarki 12 klukkustundir að meðtalinni tínslu. Einnig er heimilt að flutningur gripa í sláturhúsrétt taki allt að 10 klukkustundir. Landflutningur á hrossum má að hámarki taka 12 klukkustundir. Hrossum skal tryggð fóðrun og brynning á 8 klukkustunda fresti í eina klukkustund í senn. Mjólkandi hryssum skal boðið vatn og fóður á tveggja tíma fresti. Loðdýrum skal brynnt á minnst á 4 klukkustunda fresti meðan á flutningi stendur.
- Tryggja skal að dýr séu nægilega vel á sig komin til að þola áætlaða ferð. Fyrirfram skulu allar nauðsynlegar ráðstafanir hafa verið gerðar til að stytta ferðina sem mest og fullnægja þörfum dýra meðan á ferð stendur og til að mæta hugsanlegum ytri óhagstæðum aðstæðum, s.s. veðri og færð er geta haft áhrif á líðan dýra.
- Tryggja skal aðskilnað dýra miðað við stærð eftir því sem nauðsynlegt er til að gæta að velferð dýra.
- Tryggja skal að flutningatæki séu gripaheld og ekki sé hætta á að dýrin geti fallið af þeim við flutning, lestun eða affermingu.
- Flutningatæki skulu vera hönnuð, smíðuð, viðhaldið og þeim stjórnað þannig að ekki sé hætta á að dýr meiðist eða þjáist, að öryggi þeirra sé tryggt og auðvelt sé að hreinsa og sótthreinsa tækin. Tryggja skal að unnt sé að viðhalda hreinu umhverfi og nægri loftræstingu sem hentar dýrum. Tryggt skal aðgengi eða eftirlit með myndavél með dýrunum, þannig að unnt sé að fylgjast með líðan þeirra og sinna þeim.
- Búnaður til umfermingar og affermingar skal vera hindrunarlaus til að tryggja auðveldan rekstur á dýrum með tilliti til eðlishvata þeirra, nema við flutning dýra í flutningabúrum.
- Dýr skulu flutt á áfangastað án óeðlilegra tafa og fylgjast skal reglubundið með líðan þeirra.
- Tryggja þarf að dýr séu varin gegn veðrum og að hitastig í flutningsrými hæfi tegundinni.
- Tryggja skal dýrum nægilegt gólfrými og lofthæð í samræmi við stærð þeirra. Tryggja skal að dýr, önnur en alifuglar, geti staðið, lagst, legið og reist sig eða rétt úr sér með eðlilegum hætti, eftir því sem við á. Um rými fyrir alifugla gilda skilyrði E-liðar II. viðauka.
- Tryggja skal að yfirborð gólfs sé óskreipt. Lýsing við flutning skal hæfa hverri tegund. Tryggja skal góða lýsingu þegar þörf krefur svo að auðvelt sé að hafa eftirlit með og sinna dýrum meðan á flutningi stendur.
- Fyrir flutning skal umráðamaður huga að hæfilegri fóðrun og brynningu ef dýrin þurfa að bíða lengi fram að flutningi. Fóðri skal haldið frá dýrum síðustu tvær klukkustundirnar fyrir flutning en þess gætt að þau hafi ætíð aðgengi að vatni. Að jafnaði skal halda fóðri frá sláturgripum 6 klukkustundum fyrir flutning. Ef sauðfé er slátrað innan tólf klukkustunda frá flutningi frá brottfararstað skal fóðri haldið frá þeim í að minnsta kosti 8 klukkustundir fyrir flutning.
- Ekki má teyma dýr fastbundið við vélknúið ökutæki eða aftanívagna.
- Ekki má lyfta kvendýrum sem gengin eru meira en 2/3 meðgöngunnar með böndum eða öðrum útbúnaði undir kvið.
- Við flutning á hestum á hestakerru skal vera slá á milli hesta sem veitir þeim stuðning, ef þeir standa þversum eða á ská. Folöldum er heimilt að standa með mæðrum sínum í stíu. Ef stefna hestanna er í akstursstefnu eða stefna þeirra er minna en 30 gráður frá akstursstefnu skal vera brjóstslá fyrir framan hestana.
6. gr. Dýrasjúkdómar.
Við flutning dýra skal tryggja að lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum, og stjórnsýslufyrirmæli sett samkvæmt þeim séu virt. Flutningatæki sem fara á milli búa og svæða skulu vera þrifin og sótthreinsuð skipulega til að fyrirbyggja dreifingu smits milli þeirra.
Í tilviki sláturflutninga á sauðfé er skylt að þrífa og sótthreinsa flutningatæki þegar farið er á milli svæða með misjafna sjúkdómastöðu. Flutningatæki sem flytja sauðfé skulu að lágmarki vera þrifin og sótthreinsuð í lok dags en oftar ef tilefni er til. Sauðfjárflutningar skulu einnig skipulagðir með tilliti til svæða og varnarlína þannig að farið sé á hreinum og þurrum tækjum á þau svæði sem hafa betri sjúkdómastöðu en önnur svæði.
Í tilviki sláturflutninga alifugla er skylt að þrífa og sótthreinsa flutningatækið fyrir hvern flutning. Sömu skilyrði gilda um annan útbúnað sem notaður er við flutning svo sem gáma.
7. gr. Undanþáguákvæði.
Matvælastofnun er heimilt að veita undanþágu frá einstökum ákvæðum þessarar reglugerðar til stakra flutninga telji stofnunin að meginmarkmiðum reglugerðarinnar sé náð við flutninginn. Beiðni um undanþágu skal beint til Matvælastofnunar að minnsta kosti viku áður en fyrirhugaður flutningur er framkvæmdur. Í neyðartilvikum skal Matvælastofnun afgreiða beiðnir um undanþágu eins fljótt og auðið er.
Matvælastofnun skal halda skrá yfir veittar undanþágur samkvæmt 1. mgr.
III. KAFLI Flutningar.
8. gr.
Stjórnandi flutningatækis í landflutningum og umráðamaður dýra
í flutningum með skipum og loftförum.
Stjórnandi flutningatækis í landflutningum og umráðamaður dýra í flutningum með skipum og loftförum skal hafa leyfi frá Matvælastofnun til að starfa við flutning á dýrum enda hafi hann staðist námskeið, skv. 12. gr. þessarar reglugerðar. Stjórnandi flutningatækis í landflutningum og umráðamaður dýra í flutningum með skipum eða loftförum skal á hverjum tíma getað framvísað gildu leyfi til flutninga á dýrum.
Stjórnandi flutningatækis í landflutningum og umráðamaður dýra í flutningum með skipum og loftförum er ábyrgur fyrir því að þau dýr sem hann flytur séu flutt í samræmi við ákvæði þessarar reglugerðar. Stjórnandi flutningatækis í landflutningum og umráðamanni dýra í flutningum með skipum og loftförum er óheimilt að taka dýr til flutnings ef skilyrði reglugerðar þessarar eru ekki uppfyllt.
Stjórnandi flutningatækis í landflutningum og umráðamaður dýra í flutningi með skipum og loftförum skal hafa hlotið nægilega þjálfun og hæfni til þess að vinna störf sín á ábyrgan hátt án þess að beita aðferðum sem geta valdið dýrum meiðslum, þjáningum eða óþarfa ótta eða streitu.
Skipuleggjendur eru ábyrgir fyrir skipulagningu flutninga. Fyrir hverja ferð skulu skipuleggjendur tryggja að líðan dýranna sé ekki stefnt í hættu í áföngum ferða og að tillit sé tekið til færðar og veðurskilyrða.
9. gr. Flutningsaðilar og sláturhús.
Flutningsaðilar eru ábyrgir fyrir flutningnum og skulu sjá til þess að ævinlega sé unnt að nálgast upplýsingar um áætlun, framkvæmd og lok ferðar sem þeir bera ábyrgð á. Sé um að ræða flutninga á dýrum til slátrunar ber að veita sláturhúsi fyrrgreindar upplýsingar nema flutningsaðili sé starfsmaður sláturhússins.
Við flutning á dýrum til slátrunar skal sláturhús sjá til þess að ávallt sé unnt að nálgast upplýsingar um flutningsaðila og áætlaða flutninga þeirra.
10. gr. Dagbók um flutninga.
Flutningsaðili skal tryggja að í hverju farartæki sem notað er til að flytja dýr sé haldin dagbók þar sem skráð er:
- Tegund, fjöldi og eignarhald dýra.
- Brottfararstaður.
- Dagsetning og tími brottfarar.
- Viðkomustaðir.
- Áætluð tímalengd væntanlegrar ferðar.
- Áfangastaður.
- Tímasetning þegar affermingu er lokið.
- Dagsetning og staður sótthreinsunar, þegar við á.
Eyðublað fyrir dagbók um flutninga skal vera aðgengilegt á vef Matvælastofnunar.
Gögn þau sem getið er um í 1. mgr. skal flutningsaðili geyma í tvö ár og afhenda Matvælastofnun þegar þess er óskað.
11. gr. Forskoðun og samþykkt á flutningatækjum.
Flutningatæki á landi, gámar eða annað rými í loftförum og skipum sem ætluð eru til að flytja dýr skulu skoðuð og samþykkt af Matvælastofnun sem gefur út leyfi fyrir notkun á viðkomandi tæki fyrir ákveðnar búfjártegundir sem gildir til 5 ára í senn. Fyrir skoðun og eftirlit með flutningatækjum og gámum skal greiða gjald sem nemur kostnaði samkvæmt gjaldskrá Matvælastofnunar.
12. gr. Námskeið og hæfisskírteini.
Stjórnandi flutningatækis í landflutningi, skipuleggjendur ferða og umráðamenn dýra í flutningum með skipum og loftförum, skulu hafa sótt námskeið um flutninga dýra, sem haldið er af aðila sem Matvælastofnun viðurkennir.
Námskeiðið skal halda að minnsta kosti einu sinni á ári. Á námskeiðinu skal fjalla um lög og reglur á viðkomandi sviði svo sem atferli dýra, neyðarlógun, velferð dýra, dýrasjúkdóma, sóttvarnir og þrif. Námskeiðinu skal ljúka með prófi. Einkunnir skal gefa í heilum tölum 1-10 og lágmarkseinkunn til að standast próf er 7.
Matvælastofnun gefur út leyfi/hæfisskírteini til þeirra einstaklinga sem standast námskeið um flutninga á dýrum.
Matvælastofnun er heimilt að veita einstaklingum undanþágu til flutnings dýra þar til næsta námskeið um flutning á dýrum hefur verið haldið.
13. gr. Önnur skilyrði við flutning.
Um flutning á dýrum gildir eftirfarandi:
- Um flutningatæki og meðhöndlun við flutning skal fara eftir ákvæðum viðauka I.
- Um stærð flutningsrýma skal fara eftir ákvæðum viðauka II.
- Við flutning dýra í dýraflutningaskipum, gámaskipum og ferjum skal fara eftir ákvæðum viðauka III.
IV. KAFLI Þvingunarúrræði og viðurlög.
14. gr. Þvingunarúrræði.
Fái Matvælastofnun vitneskju um brot á reglugerð þessari skal stofnunin grípa til, eða krefjast þess að umráðamaður dýra í flutningi grípi til nauðsynlegra aðgerða til að gæta velferðar dýranna samkvæmt X. kafla laga nr. 55/2013 um velferð dýra.
Slíkar aðgerðir skulu ekki valda dýrunum ónauðsynlegum eða frekari þjáningum.
Séu ekki fyrir hendi aðstæður til að tryggja viðunandi velferð dýra skal aflífa þau í samræmi við reglugerð um vernd dýra við aflífun.
Matvælastofnun skal þegar í stað undirbúa nauðsynlegar aðgerðir ef ekki er unnt að ná sambandi við umráðamann dýrs eða ef hann hlítir ekki fyrirmælum.
Tilkynna skal aðila máls svo fljótt sem auðið er um þær ákvarðanir sem teknar eru og ástæður fyrir þeim.
Matvælastofnun er heimilt að svipta flutningabílstjóra eða skipuleggjanda leyfi til flutninga gerist þeir brotlegir við reglugerð þessa, lög nr. 55/2013 um velferð dýra eða lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
15. gr. Viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt X. kafla laga nr. 55/2013 um velferð dýra og 30. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.
16. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu. Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 127/1958 um meðferð búfjár við rekstur og flutning með vögnum, skipum og flugvélum, með síðari breytingum.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir 11. gr. er Matvælastofnun heimilt til 31. desember 2020 að veita leyfi til notkunar flutningatækis sem áður hefur verið notað til flutninga dýra, þó að viðkomandi tæki uppfylli ekki skilyrði reglugerðar þessarar, enda sé gætt að velferð og aðbúnaði dýra í hvívetna og kostnaðarsamt væri að breyta viðkomandi flutningatæki. Öll endurnýjun slíkra flutningatækja skal þó standast skilyrði reglugerðar þessarar.
Þrátt fyrir 12. gr. skulu þeir sem starfa við flutning á dýrum við gildistöku reglugerðarinnar hafa lokið við námskeið innan fjögurra ára frá gildistöku reglugerðar þessarar.
Viðauki I
I. KAFLI Flutningatæki.
1. Um flutningatæki.
1.1. Flutningatæki og meðfylgjandi búnaður skal hannaður, uppbyggður og viðhaldið til að tryggja eftirfarandi:
- Komið sé í veg fyrir meiðsli og þjáningar og til að tryggja öryggi dýra.
- Verja dýr gegn slæmu veðri, miklum hita og veðrabrigðum.
- Auðvelt sé að þrífa og sótthreinsa flutningatækið og meðfylgjandi búnað.
- Dýr geti ekki sloppið né dottið af flutningatækinu og eigi auðvelt með að þola hreyfingar tækisins.
- Loftskipti í flutningatækinu séu fullnægjandi miðað við þarfir viðkomandi dýra.
- Aðgengi að dýrunum sé þannig að hægt sé að hafa umsjón og eftirlit með þeim.
- Yfirborð gólfs sé stamt og söfnunarkassi sé til staðar sem tekur við þvagi og saur.
- Lýsing sé fullnægjandi til að hafa umsjón og eftirlit með dýrum.
- Flutningatækið skal útbúið skilveggjum þannig að unnt sé að koma upp hólfum, nema um sé að ræða flutning í gámum eða flutningabúrum.
- Skilveggir skulu vera nægilega sterkir til að þola þyngd dýranna. Skilveggir skulu vera þannig hannaðir að fljótlegt og auðvelt sé að færa þá til.
- Tryggja skal nægilegt rými í hverju hólfi sem dýr, önnur en alifuglar, eru í og á öllum hæðum til þess að tryggja nægileg loftskipti ofan við dýrin þegar þau eru í eðlilegri, uppréttri stöðu, án þess að eðlilegar hreyfingar þeirra miðað við aðstæður séu hindraðar.
- Ef flutningur er áætlaður til að vara meira en 3 klst. skal búnaður til neyðaraflífunar vera aðgengilegur í flutningatæki, þó ekki við flutning alifugla.
1.2. Flutningatæki sem flytja dýr skulu vera merkt: dýraflutningatæki, fjárflutningabíll, hestakerra eða með öðrum sambærilegum upplýsandi texta og mynd. Textinn skal skrifaður með stórum bókstöfum í letri ekki minna en 10 cm og skal merkingin vera sýnileg annarri umferð bæði að framan og aftan á flutningatæki.
1.3. Flutningatæki skulu vera búin hentugum útbúnaði til umfermingar og affermingar. Þegar um er að ræða flutninga til slátrunar á sauðfé og svínum þá skal tryggt að fleiri útgönguleiðir en ein sé á flutningatæki.
2. Umferming og afferming.
2.1. Aðstöðu til umfermingar og affermingar, þ. á m. gólfgerð, skal hanna, byggja, viðhalda og nota með það í huga að:
- Koma í veg fyrir meiðsli og þjáningar dýra og draga eftir mætti úr æsingi og of miklu álagi á dýrin þegar þau eru á hreyfingu og tryggja öryggi þeirra. Ef dýr eru ekki flutt í gámum skal þess gætt að yfirborðsfletir séu ekki hálir og hliðarvarnir þannig að dýrin geti ekki sloppið út.
- Auðvelt sé að hreinsa og sótthreinsa.
- Skábrautir skulu ekki vera brattari en 20° þ.e. 36,4% frá láréttu fyrir svín, kálfa og hesta, og 26° þ.e. um það bil 50% halli, fyrir sauðfé og nautgripi, aðra en kálfa. Sé halli meiri en 10° þ.e. 17,6% frá láréttu, skal útbúa skábrettin með sérstökum hætti, t.d. með þverrimum til að tryggja að dýr geti farið upp eða niður skábrettið án áhættu og erfiðleika.
- Á lyftarapöllum og á efri gólfum skulu vera dýrheldar öryggishindranir, nema dýr séu flutt í gámum.
- Góð lýsing þarf að vera fyrir hendi við umfermingu og affermingu.
3. Ákvæði vegna flutnings með loftfari.
3.1. Dýr skal flytja í gámum, stíum eða básum, eftir því hvaða tegund um er að ræða, í samræmi við reglugerð Alþjóðasambands flugfélaga (IATA) um flutning á lifandi dýrum.
4. Ákvæði vegna flutninga á sjó.
4.1. Styrkur grinda í stíum og þilfars skal miðast við þau dýr sem flutt eru hverju sinni.
4.2. Frárennsliskerfi skal vera nægilega öflugt til að fjarlægja vökva úr stíum og af þilförum við allar aðstæður.
4.3. Eldvarnarkerfi skal vera í fullu samræmi við gildandi staðal alþjóðlegs samnings um öryggi á sjó (SOLAS).
4.4. Flutningsaðilar skulu flytja með sér nægilegan undirburð, fóður og vatn til að fullnægja lágmarkskröfum um fóður og vatn fyrir viðkomandi tegundir.
4.5. Óheimilt er að flytja dýr yfir úthaf frá 1. október til 15. maí.
4.6. Ákvæði í viðauka II skulu uppfyllt.
5. Ákvæði vegna flutnings í lokuðu en lausu flutningsrými.
5.1. Dýraflutningagámar skulu vera vel og greinilega merktir og á þann hátt sem sýnir að í þeim séu lifandi dýr og með merki sem sýnir hvað sé efri hluti gámsins, nema hægt sé að sjá inn í flutningabúr á öllum hliðum.
5.2. Þegar verið er að flytja og meðhöndla gáma skulu þeir ávallt standa láréttir og eftir því sem unnt er skal dregið úr rykkjum eða hristingi. Festa skal gáma tryggilega til þess að koma í veg fyrir að þeir færist til vegna hreyfingar flutningatækis.
5.3. Gámar sem vega meira en 50 kg skulu vera útbúnir með nægilega mörgum rétt hönnuðum og vel staðsettum öryggisfestingum sem er vel við haldið, svo að unnt sé að festa þá tryggilega við flutningatækið sem á að flytja þá. Gáma skal festa við flutningatækið áður en ferð er hafin til þess að koma í veg fyrir að þeir færist til við hreyfingar flutningatækis.
II. KAFLI Meðferð dýra við flutning.
1. Ástand dýra fyrir flutning.
1.1. Óheimilt er að flytja dýr nema það sé nógu vel á sig komið til að þola fyrirhugaða ferð og öll dýr skal flytja við aðstæður sem tryggja að þau verði ekki fyrir meiðslum eða þjáist að óþörfu.
1.2. Særð dýr og dýr sem eru veikburða eða bera sjúkdómseinkenni, eru ekki fær til flutnings og sérstaklega ekki ef:
- Þau geta ekki hreyft sig af eigin rammleik án sársauka og geta ekki gengið óstudd.
- Þau eru með djúp opin sár.
- Um er að ræða þunguð kvendýr og 90% eða meira af áætluðum meðgöngutíma er liðinn, eða kvendýr sem hafa eignast afkvæmi innan 5 daga.
- Um er að ræða nýfætt spendýr þar sem naflastrengur er ógróinn.
- Um er að ræða grísi yngri en þriggja vikna, lömb yngri en 7 daga og kálfa og folöld yngri en 10 daga, nema dýrin séu flutt skemmra en 100 km vegalengd eða tryggt sé að þau geti lagst og hafi viðeigandi undirburð sem hæfi tegundinni.
1.3. Þrátt fyrir lið 1.2 má flytja sjúk eða meidd dýr séu þau flutt með samþykki dýralæknis vegna, eða í kjölfar, meðferðar eða greiningar dýralæknis. Slíka flutninga skal hins vegar aðeins leyfa þegar þeir valda, dýrum sem í hlut eiga, ekki ónauðsynlegum þjáningum. Dýr sem eru að koma úr aðgerð, svo sem geldingu, má flytja að því tilskildu að sár séu gróin eða lokuð.
1.4. Mjólkandi kýr og huðnur skal mjólka rétt áður en þær eru færðar á flutningatæki.
2. Ferming, afferming og flutningar.
2.1. Reka skal dýr með nærgætni og þannig að hjarðeðli þeirra nýtist sem best. Óheimilt er að hræða þau, æsa upp eða fara illa að þeim og með þau, svo sem að sparka í eða slá þau. Við rekstur skal gæta þess að þau séu ekki felld. Óheimilt er að lyfta dýri upp á höfði, eyrum, hala eða hári. Þegar þörf krefur skal teyma hvert dýr fyrir sig. Óheimilt er að nota tæki sem gefa rafstuð eða oddhvöss áhöld við rekstur.
2.2. Óheimilt er að tjóðra dýr á hornum, nasahring eða með því að binda saman fætur þeirra. Kálfa skal ekki múlbinda né óbandvön hross. Sé nauðsynlegt að binda dýr skulu reipi, tjóður eða annað sem notað er vera:
- Svo sterkt að það slitni ekki við eðlilegar flutningsaðstæður.
- Hönnuð þannig að það skapi ekki hættu á meiðslum eða hengingu og þannig að auðvelt og fljótlegt sé að leysa dýrin.
2.3. Við eftirfarandi aðstæður skal meðhöndla og flytja dýr aðgreind:
- Dýr ólíkra tegunda.
- Dýr af mjög ólíkri stærð eða aldri.
- Fullorðna undaneldisgelti og stóðhesta.
- Kynþroska karldýr frá kvendýrum.
- Hyrnda nautgripi frá óhyrndum.
- Dýr sem eru óvinveitt hvert öðru.
- Tjóðruð dýr frá ótjóðruðum.
- Leitast skal við að dýr úr sömu stíu eða eldisrými fylgist að við flutning.
Töluliðir a., b. og e. eiga ekki við þegar dýrin hafa verið alin upp saman, eru vön hvert öðru, aðskilnaður myndi valda dýrunum óþarfa þjáningum og/eða streitu eða þegar um er að ræða kvendýr sem ferðast með ungviði.
2.4. Veikist dýr eða meiðist meðan á ferð stendur skal aðskilja þau frá öðrum dýrum og veita þeim bráðahjálp eins fljótt og unnt er. Þau skulu hljóta viðeigandi meðferð dýralæknis og ef nauðsyn krefur, vera aflífuð í samræmi við reglugerð um vernd dýra við aflífun.
2.5. Deyfilyf skal ekki gefa dýrum í flutningi nema það sé nauðsynlegt vegna velferðar dýranna og þá samkvæmt ráðleggingum dýralæknis. Upplýsingar um tegund lyfs, magn og tímasetningu inngjafar skulu fylgja dýrunum í flutningi.
2.6. Rými skal, með tilliti til dýra og flutningsaðferðar, vera í samræmi við viðauka II og a.m.k. ekki vera minna en tölur í viðauka II sýna.
2.7. Í tilviki hesta er lágmarkslofthæð flutningsklefa minnst 75 cm hærri en herðakambur hestsins.
2.8. Óheimilt er að flytja dýr fyrir ofan hross á marghæða flutningatækjum.
2.9. Góð loftskipti skulu vera fyrir hendi til að tryggja að þörfum dýra um loft sé fullnægt, og tekið skal tillit til fjölda og tegundar dýra sem flytja á. Staðsetja skal gáma þannig að ekkert hindri loftskipti í þeim.
Viðauki II
Lágmarksrými fyrir dýr skal a.m.k. vera í samræmi við eftirfarandi tölur:
A: Hross.
Landflutningar.
| Fullorðin hross og trippi | 1,1 m² (0,6 x 1,8 m) |
| Folöld (0-6 mánaða) | 0,7 m² (1 x 0,7 m) |
Á lengri ferðum verða folöld að geta legið og hafa viðeigandi undirburð.
Loftflutningar.
Rýmiskröfur miðað við þunga
| 0 – 100 kg | 0,42 m² |
| 100 – 200 kg | 0,66 m² |
| 200 – 300 kg | 0,87 m² |
| 300 – 400 kg | 1,04 m² |
| 400 – 500 kg | 1,19 m² |
| 500 – 600 kg | 1,34 m² |
| 600 – 700 kg | 1,51 m² |
| 700 – 800 kg | 1,73 m² |
Sjóflutningar.
| Þungi (kg) | m² / dýr |
| 200 – 300 kg | 0,90 – 1,175 |
| 300 – 400 kg | 1,175 – 1,45 |
| 400 – 500 kg | 1,45 – 1,725 |
| 500 – 600 kg | 1,725 – 2 |
| 600 – 700 kg | 2 – 2,25 |
B: Nautgripir.
Landflutningar.
| Flokkar | Áætluð þyngd, allt að (kg) | m² / dýr |
| Smákálfar | 50 | 0,30 – 0,40 |
| Millistórir kálfar | 110 | 0,40 – 0,70 |
| Þungir kálfar | 200 | 0,70 – 0,95 |
| Meðalstórir nautgripir | 325 | 0,95 – 1,30 |
| Þungir nautgripir | 550 | 1,30 – 1,60 |
| Mjög þungir nautgripir | > 700 | > 1,60 |
Loftflutningar.
| Flokkur | Áætluð þyngd, allt að (kg) | m² / dýr |
| Kálfar | 50 | 0,23 |
| 70 | 0,28 | |
| Nautgripir | 300 | 0,84 |
| 500 | 1,27 |
Sjóflutningar.
| Þungi (kg) | m² / dýr |
| 200 – 300 kg | 0,81 – 1, 0575 |
| 300 – 400 kg | 1,0575 – 1,305 |
| 400 – 500 kg | 1,305 – 1,5525 |
| 500 – 600 kg | 1,5525 – 1,8 |
| 600 – 700 kg | 1,8 – 2,025 |
Dýr með fangi skulu fá 10% aukið rými.
C: Sauðfé og geitfé.
Landflutningar.
| Flokkur | Þungi (kg) | m² / dýr |
| Rúið fé og lömb sem eru 26 kg eða þyngri | < 55 | 0,2 – 0,3 |
| > 55 | > 0,3 | |
| Órúið fé | < 55 | 0,3 – 0,4 |
| > 55 | > 0,4 | |
| Lambfullar ær á síðari stigum meðgöngu | < 55 | 0,4 – 0,5 |
| > 55 | > 0,5 | |
| Geitur | < 35 | 0,2 – 0,3 |
| 35 – 55 | 0,3 – 0,4 | |
| > 55 | 0,4 – 0,75 | |
| Kiðfullar huðnur á síðari stigum meðgöngu | < 55 | 0,4 – 0,5 |
| > 55 | > 0,5 |
Loftflutningar.
Rýmiskröfur miðað við þunga sauðfjár/geitfjár.
| Meðalþungi (kg) | m² / dýr |
| 25 | 0,2 |
| 50 | 0,3 |
| 75 | 0,4 |
Sjóflutningar.
| Meðalþungi (kg) | m² / dýr |
| 20 – 30 | 0,24 – 0,265 |
| 30 – 40 | 0,265 – 0,290 |
| 40 – 50 | 0,290 – 0,315 |
| 50 – 60 | 0,315 – 0,34 |
| 60 – 70 | 0,34 – 0,39 |
D: Svín.
Landflutningar.
Öll svín verða að geta legið samtímis og staðið upprétt í náttúrulegri stöðu.
Til að uppfylla þessi lágmarksskilyrði skal þéttleiki svína vera að hámarki 235 kg/m².
Loftflutningar.
| Meðalþungi (kg) | m² / dýr |
| 15 | 0,13 |
| 25 | 0,15 |
| 50 | 0,35 |
| 100 | 0,51 |
Sjóflutningar
| Þungi (kg) | m² / dýr |
| < 10 | 0,2 |
| 20 | 0,28 |
| 45 | 0,37 |
| 70 | 0,60 |
| 100 | 0,85 |
| 140 | 0,95 |
| 180 | 1,1 |
| 270 | 1,5 |
E: Alifuglar.
Lágmarksgólfflötur
| Flokkur | Flatarmál í cm² |
| Dagsgamlir ungar | 21 – 25 pr. unga |
| Aðrir alifuglar en dagsgamlir ungar (kg) | Flatarmál í cm² / kg |
| < 1,6 | 180 – 200 |
| 1,6 - < 3 | 160 |
| 3 - < 5 | 115 |
| 5 - > 5 | 105 |
- Hleðsla og afferming alifugla skal fara fram við lágmarkslýsingu en heimilt er að hafa ljós við flutning kalkúna.
- Tryggja skal alifuglum nægjanlega loftræstingu meðan á tínslu, hleðslu, flutningi og affermingu stendur.
- Þegar flutningabúrum er staflað skulu nauðsynlegar ráðstafanir gerðar til að minnka leka af saur á dýrin fyrir neðan. Tryggja skal að búrin séu stöðug.
- Nýklaktir ungar skulu hafa aðgang að fóðri og vatni, nema ef flutningur varir innan við 24 klukkustundir og flutningi er lokið innan 48 klukkustunda.
Viðauki III
Ákvæði fyrir dýraflutningaskip, gámaskip og ferjur.
1. Kröfur um gerð og útbúnað dýraflutningaskipa.
1.1. Styrkur grinda í stíum og þilfari skal miðast við þau dýr sem flutt eru hverju sinni og skulu slíkir útreikningar vera sannprófaðir.
1.2. Hólf sem dýr eru flutt í skulu útbúin loftræstikerfi sem gerir kleift að skipta algerlega um loft eins og hér segir:
- Loftskipti 40 sinnum á klukkustund ef hólfið er alveg lokað og lofthæð er 2,30 m eða minni.
- Loftskipti 30 sinnum á klukkustund ef hólfið er alveg lokað og lofthæð er meiri en 2,30 m.
- 75% af framangreindum loftskiptum ef hólfið er að hluta til lokað.
1.3. Geymslurými fyrir eða framleiðslugeta á ferskvatni skal vera nægilega mikil til að fullnægja vatnsþörf dýra, með tilliti til hámarksfjölda og tegundar dýra sem flytja skal, svo og hámarkslengdar fyrirhugaðra ferða.
1.4. Afkastageta ferskvatnskerfisins á að vera slík að það geti stöðugt séð fyrir nægu ferskvatni í öllum rýmum og nægilegur fjöldi íláta þarf að vera þar fyrir hendi til þess að tryggja að dýrin hafi stöðugt aðgang að ferskvatni. Fyrir hendi skal vera varadælukerfi til þess að tryggja vatn ef bilun verður í aðalkerfinu.
1.5. Frárennsliskerfi skal vera nægilega öflugt til að fjarlægja vökva úr stíum og af þilförum við allar aðstæður. Frárennslisrör og rennur skulu flytja vökva til brunna eða tanka, og þaðan á að vera hægt að fjarlægja frárennslisvökvann með dælum eða þeyturum. Fyrir hendi skal vera aukadælukerfi til að tryggja frárennsli ef bilun verður í aðalkerfinu.
1.6. Nægileg birta skal vera á svæðum þar sem dýrin eru, á göngum og skábrautum til svæðanna. Varaljósakerfi er nauðsynlegt vegna hugsanlegra bilana í aðalrafkerfinu. Fyrir hendi skulu vera nægilega mörg handljós til að auðvelda umsjónarmönnum eftirlit og umönnun dýranna.
1.7. Eldvarnarkerfi skal vera í fullu samræmi við gildandi staðal alþjóðlegs samnings um öryggi á sjó (SOLAS).
1.8. Í stýrishúsi skipsins skulu eftirtalin kerfi fyrir dýr útbúin eftirlits-, stjórnunar- og aðvörunarkerfum:
- Loftræstikerfi.
- Ferskvatns- og frárennsliskerfi.
- Ljósakerfi.
- Ferskvatnsframleiðsla, þar sem það á við.
1.9. Aðalrafkerfi skal nægja til að veita þeim kerfum fyrir dýr, sem vísað er til í liðum 1.2, 1.4, 1.5 og 1.6 stöðuga orku við eðlilega starfsemi í dýraflutningaskipinu. Vararafkerfi á að geta komið í stað aðalkerfisins samfellt í þrjá sólarhringa.
2. Kröfur um flutning á hrossum með ferjum.
2.1. Heimilt er að flytja hross með ferjum innanlands. Einnig til Færeyja, en þá aðeins í samræmi við lög og reglugerðir um útflutning hrossa.
2.2. Hross skulu flutt með sérútbúnum hestakerrum sem auðvelt er að sótthreinsa. Þeim skal skipt niður í einstaklingsstíur með traustum búnaði milli hrossa og fyrir aftan og framan hvert hross.
2.3. Tryggja þarf góða loftræstingu og gott aðgengi að hrossum um borð í ferju. Hestakerra skal vera fest tryggilega við gólf ferjunnar.
2.4. Eftirlit með hrossum meðan á flutningi stendur, fóðrun þeirra og brynningu sem og flutningi þeirra í hestakerru til og frá skipi og frágangi um borð er á ábyrgð umráðamanns dýrs í flutningi.
2.5. Vegna útflutnings hrossa til Færeyja, skulu hestakerrur vera vandlega þrifnar og sótthreinsaðar áður en þær koma til Íslands. Framvísa skal opinberu vottorði þar að lútandi í hverri ferð. Hestakerrur frá Færeyjum skulu aldrei fara lengra í land, en inn á afmarkað tollsvæði á Íslandi. Samráð skal haft við fulltrúa Matvælastofnunar á útflutningshöfn um fyrirhugaða staðsetningu og frágang um borð í ferjunni.
3. Fóður- og vatnsbirgðir á dýraflutningaskipum, gámaskipum og ferjum.
Dýraflutningaskip, gámaskip og ferjur sem flytja dýr í ferðum sem taka meira en 24 klukkustundir skulu allt frá brottför flytja með sér nægilegan undirburð, fóður og vatn til að fullnægja lágmarkskröfum viðkomandi dýrategundar og að auki 25% eða þriggja daga varabirgðir af undirburði, fóðri og vatni, hvort sem meira er að magni. Um borð skal vera tiltækt skotvopn til aflífunar dýra ef nauðsyn krefur og skal það gert í samræmi við reglugerð um vernd dýra við aflífun.