Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að draga úr losun úrgangs og farmleifa í sjó frá skipum með því að tryggja aðstöðu í höfnum til að taka við úrgangi frá skipum.

2. gr. Skilgreiningar.

Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi orða og hugtaka sem hér segir:

Aðstaða í höfnum fyrir úrgang frá skipum og farmleifar: Hvers konar aðstaða eða þjónusta, hvort sem hún er föst eða hreyfanleg, sem nota má til að taka á móti úrgangi frá skipum og farmleifum.

Farmleifar: leifar hvers konar farms um borð í skipum, í lestum eða tönkum, sem verða eftir að lokinni affermingu og hreinsun, þar með talið umframmagn og leki í tengslum við fermingu eða affermingu.

Fiskiskip: hvert það skip sem er útbúið eða notað til fiskveiða eða til að afla annarra lifandi auðlinda sjávar í atvinnuskyni.

Höfn: svæði á landi og sjó með mannvirkjum og tækjum til móttöku skipa, losunar og lestunar þeirra, geymslu vöru, móttöku og afgreiðslu þessarar vöru til áframhaldandi sjó- eða landflutninga og til móttöku og brottfarar farþega.

MARPOL-samningurinn: alþjóðasamningur um varnir gegn mengun frá skipum frá árinu 1973, ásamt bókun frá árinu 1978 (MARPOL 73/78).

Skemmtibátur: skip af hvaða gerð sem er ætlað til íþrótta eða tómstunda, óháð tegund búnaðar til að knýja skipið áfram.

Skip: sérhvert fljótandi far.

Úrgangur frá skipum: allur úrgangur, þar með talið skólp og leifar aðrar en farmleifar, sem verður til við störf um borð í skipi og fellur undir gildissvið I., IV. og V. viðauka við MARPOL-samninginn, svo og farmtengdur úrgangur eins og hann er skilgreindur í leiðbeiningum um framkvæmd V. viðauka við MARPOL-samninginn.

Meiri háttar breyting á rekstri hafnar: Breyting á notkun hafnar, tegund skipaumferðar eða afmörkun hafnarsvæðis skv. hafnarreglugerð. Einnig meiri háttar breytingar á móttökuaðstöðu í höfnum eða verulegar breytingar á öðru fyrirkomulagi innan hafnarsvæðis.

3. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um öll íslensk skip og um öll önnur skip sem koma til hafnar á Íslandi, að undanskildum erlendum herskipum, hjálparskipum í flota eða öðrum skipum í ríkiseign eða ríkisrekstri sem um stundarsakir eru nýtt í þágu hins opinbera til annars en viðskipta.

Reglugerðin gildir jafnframt um allar íslenskar hafnir.

Ákvæði 7. og 10. gr. eiga ekki við um fiskiskip eða skemmtibáta sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega.

4. gr. Móttaka úrgangs og farmleifa frá skipum í höfnum.

Hafnarstjórn skal koma upp viðunandi aðstöðu fyrir móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum í öllum höfnum. Aðstaðan skal miðast við þarfir skipa er jafnan koma í viðkomandi höfn og hafnarstjórn er heimilt að fela þjónustuaðila með samningi umsjón með móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum.

5. gr. Eftirlit.

Umhverfisstofnun hefur eftirlit með móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum í höfnum, tilkynningum um úrgang, áætlunum hafna og að til staðar sé aðstaða fyrir móttöku úrgangs. Um meðhöndlun úrgangs, útgáfu starfsleyfa fyrir meðhöndlun hans og eftirlit fer samkvæmt ákvæðum laga um meðhöndlun úrgangs.

Umhverfisstofnun útbýr eftirlitsáætlun til fimm ára í senn vegna eftirlits með aðstöðu fyrir móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum í höfnum. Í eftirlitsáætluninni skal vera yfirlit yfir eftirlitsferðir og skipulag eftirlits með móttökuaðstöðu í höfnum.

Reglubundið eftirlit með höfnum fer fram að lágmarki á fimm ára fresti. Umhverfisstofnun hefur heimild til að fara í aukaeftirlit með móttökuaðstöðu í höfnum ef fyrirliggjandi upplýsingar benda til þess að ákvæði reglugerðarinnar séu ekki uppfyllt. Í eftirliti skal farið yfir hvort starfsemi sé í samræmi við áætlanir hafna sbr. 6. grein, hvort meðhöndlun úrgangs í móttökuaðstöðu sé í samræmi við kröfur laga og reglugerða um meðhöndlun úrgangs og að samræmi sé á milli afhendingar úrgangs og tilkynninga sbr. 7. grein um úrgang og farmleifar.

Umhverfisstofnun skal fyrir 1. maí ár hvert gefa út skýrslu um niðurstöður eftirlits fyrir undangengið ár og birta á vefsetri sínu.

Við eftirlit með aðstöðu í höfnum fyrir móttöku úrgangs og farmleifar frá skipum skal Umhverfisstofnun hafa aðgang að nauðsynlegum gögnum s.s. tilkynningum um úrgang og farmleifar og kvittunum fyrir móttöku úrgangs til að meta hvort móttaka og meðhöndlun á úrgangi uppfylli settar kröfur.

Umhverfisstofnun innheimtir gjald hjá rekstraraðila hafna vegna eftirlits með móttökuaðstöðu í höfnum skv. gjaldskrá sem ráðherra setur.

6. gr. Áætlanir hafna.

Hafnaryfirvöld skulu gera áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar, sbr. og viðauka I. Við gerð áætlunar skal hafa samráð við hlutaðeigandi aðila, einkum notendur hafna eða fulltrúa þeirra.

Endurskoða skal áætlun hafna á þriggja ára fresti en einnig eftir meiri háttar breytingar á rekstri hafnarinnar.

Heimilt er að gera sameiginlega áætlun fyrir stærri svæði með viðeigandi þátttöku hverrar hafnar að því tilskildu að gerð sé sérstaklega grein fyrir hverri höfn í áætluninni.

Umhverfisstofnun staðfestir áætlun um meðhöndlun og móttöku úrgangs og farmleifa.

7. gr. Tilkynningar um úrgang og farmleifar.

Skipstjóri skips sem er á leið til hafnar ber ábyrgð á að tilkynning um úrgang og farmleifar í skipum, sbr. viðauka II, sé fyllt út með réttum upplýsingum og að koma henni til viðkomandi hafnaryfirvalda:

  1. með 24 klukkustunda fyrirvara við komu til hafnar ef viðkomuhöfn er þekkt; eða
  2. um leið og viðkomuhöfn er ákveðin ef 24 klukkustunda fyrirvari næst ekki; eða
  3. fyrir brottför frá fyrri höfn ef sjóferðin er skemmri en 24 klukkustundir.

Útfyllt tilkynning um úrgang og farmleifar í skipum skv. 1. mgr. skal geymd um borð í skipi þangað til komið er til næstu viðkomuhafnar.

Hafnaryfirvöld skulu yfirfara þær tilkynningar sem berast og athuga hvort þær séu rétt útfylltar og hvort allar nauðsynlegar upplýsingar komi þar fram. Hafnaryfirvöldum er heimilt að óska eftir viðbótarupplýsingum ef þörf er á. Ef viðbótarupplýsingar berast ekki eða ef rökstuddur grunur leikur á að upplýsingar á tilkynningu séu ekki réttar skulu hafnaryfirvöld gera Umhverfisstofnun og Samgöngustofu (hafnarríkiseftirliti) viðvart sem í framhaldi taka ákvörðun um þær aðgerðir sem grípa skal til.

Hafnaryfirvöld skulu fyrir 1. mars ár hvert senda Umhverfisstofnun og heilbrigðisnefndum viðkomandi sveitarfélaga samantekt á þeim tilkynningum um úrgang og farmleifar sem þeim hafa borist árið á undan og yfirlit yfir magn og tegund þess úrgangs sem skilað hefur verið.

8. gr. Afhending úrgangs frá skipum.

Skipstjóri ber ábyrgð á því að úrgangi frá skipi sé skilað til hafnar eða viðurkennds þjónustuaðila áður en látið er úr höfn.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er skipi heimilt að halda til næstu viðkomuhafnar án þess að afhenda úrgang ef ráða má af þeim upplýsingum sem gefnar eru í tilkynningu skv. 7. gr. og viðauka II að nægilegt sérhæft geymslurými sé um borð fyrir þann úrgang sem safnast hefur fyrir og mun safnast fyrir meðan á fyrirhugaðri ferð til afhendingarhafnar stendur.

Ef gildar ástæður eru til að ætla að fullnægjandi aðstaða sé ekki fyrir hendi í fyrirhugaðri afhendingarhöfn eða ef höfnin er óþekkt og því hætta á losun úrgangs í sjó getur Umhverfisstofnun í samráði við Samgöngustofu krafist afhendingar úrgangs frá skipi fyrir brottför. Hafnaryfirvöldum skulu afhentar kvittanir því til sönnunar. Láti skip úr höfn án afhendingar kvittana skal hafnarstjóri tilkynna það Umhverfisstofnun og Samgöngustofu (hafnarríkiseftirliti).

9. gr. Afhending farmleifa.

Skipstjóri skips sem hefur viðkomu í höfn skal tryggja að farmleifar séu afhentar í þar til gerðri aðstöðu hafnarinnar fyrir móttöku úrgangs og farmleifa í samræmi við tilkynningu samkvæmt 7. gr.

Notandi hafnaraðstöðu skal greiða gjald fyrir afhendingu farmleifa samkvæmt gjaldskrá viðkomandi hafnaryfirvalda. Eingöngu skal greiða gjald þegar farmleifar eru að sönnu afhentar og skal gjaldið standa undir kostnaði við móttöku, meðhöndlun og förgun farmleifa.

10. gr. Úrgangsgjald.

Öll skip, að undanskildum fiskiskipum, skemmtibátum sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega, herskipum, hjálparskipum í flota, skipum sem þjónusta fiskeldi og skipum í ríkiseign eða ríkisrekstri sem nýtt eru í þágu hins opinbera, sem koma til hafnar skulu greiða gjald fyrir móttöku og meðhöndlun á úrgangi frá skipum, sbr. f-lið 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga, nr. 61/2003.

Gjaldið skal standa undir kostnaði við aðstöðu fyrir móttöku úrgangs frá skipum, kostnaði við meðhöndlun og förgun úrgangs frá skipum sem og kostnaði við eftirlit Umhverfisstofnunar. Við ákvörðun fjárhæðar gjalds skal tekið mið af, eftir því sem við á, fjölda skipverja og farþega um borð, lengd sjóferðar og stærð skips.

Til að tryggja að gjöldin séu sanngjörn, gagnsæ og endurspegli kostnað vegna þess búnaðar og þjónustu sem veitt er skulu notendur hafnanna hafa aðgang að upplýsingum um þann grundvöll sem gjöldin eru byggð á.

11. gr. Undanþágur.

Umhverfisstofnun getur veitt skipum í áætlunarsiglingum sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í einhverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá afhendingu úrgangs skv. 8. gr. reglugerðar þessarar.

Umhverfisstofnun er heimilt að veita skipum í áætlunarsiglingum, sem hafa tíða og reglulega viðkomu í höfnum og geta sýnt fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í einhverri höfn á siglingaleiðinni, undanþágu frá skilum tilkynningar um úrgang og farmleifar skv. 7. gr. reglugerðar þessarar. Umsókn um undanþágu samkvæmt 1. og 2. mgr. skal berast Umhverfisstofnun á þar til gerðu eyðublaði og skulu eftirtalin gögn fylgja umsókn:

  1. Upplýsingar um geymslurými um borð.
  2. Gögn sem sýna fram á að viðkomandi skip sé í áætlunarsiglingum og hafi reglulega viðkomu í höfnum.
  3. Afrit af samningi/yfirlýsingu sem í gildi er við tiltekna höfn á siglingaleiðinni eða þjónustuaðila um móttöku á úrgangi.
  4. Kvittanir um móttöku á úrgangi sem sýna að samningur sé virkur.
  5. Listi yfir þær íslenskar hafnir sem undanþága varðar.

Áður en Umhverfisstofnun tekur ákvörðun um veitingu undanþágu getur stofnunin leitað umsagnar viðkomandi hafnarstjóra.

Ef Umhverfisstofnun telur ofangreind skilyrði vera fyrir hendi veitir stofnunin skriflega undanþágu frá skilum tilkynningar um úrgang og farmleifar og afhendingu úrgangs í viðkomandi höfnum. Undanþága gildir í fimm ár. Afrit af undanþágu skal geymt um borð í viðkomandi skipi.

Undanþága fellur úr gildi ef breytingar verða á áætlunarsiglingum þess skips sem undanþága tekur til eða fyrirkomulagi á móttöku úrgangs frá skipi.

12. gr. Umsjón með framkvæmd reglugerðar.

Umhverfisstofnun hefur umsjón með framkvæmd reglugerðar þessarar. Stofnunin skal útbúa leiðbeiningar um skil á upplýsingum skv. 3. mgr. 6. gr.

Umhverfisstofnun getur falið heilbrigðisnefndum sveitarfélaga eða faggiltum skoðunaraðilum eftirlit með framkvæmd reglugerðarinnar í samræmi við sérstakt samkomulag þar að lútandi, sbr. 2. og 3. málsl. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda, með síðari breytingum.

13. gr. Ágreiningur.

Ágreiningi um framkvæmd reglugerðarinnar er heimilt að vísa til úrskurðar ráðherra.

14. gr. Þvingunarúrræði og refsiviðurlög.

Um beitingu þvingunarúrræða og dagsekta, refsiviðurlög, sektir og farbann fer samkvæmt V. kafla laga nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda, með síðari breytingum.

15. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/59/EB, um aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi skipa og farmleifum, sem vísað er til í tölul. 56i í V. kafla, XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2001, þann 19. júní 2001, og með hliðsjón af tilskipun 2002/84/EB.

16. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í k- og l-lið 6. gr. laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda, með síðari breytingum.

Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 792/2004 um móttöku á úrgangi frá skipum.

Reglugerð þessi öðlast gildi 31. desember 2014.

Viðauki I

Áætlun hafnar um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa.

Áætlun skal taka til allra tegunda úrgangs og farmleifa frá skipum sem venjulega koma til viðkomandi hafnar og þær skulu taka mið af stærð hafnarinnar og gerð skipa sem hafa þar viðkomu.

Í áætlun skulu eftirtalin atriði koma fram:

- mat á þörf fyrir móttökuaðstöðu miðað við þarfir þeirra skipa sem venjulega koma til hafnarinnar;

- lýsing á gerð og geymslurými móttökuaðstöðu hafnarinnar;

- nákvæm lýsing á verklagsreglum við móttöku og söfnun úrgangs frá skipum og farmleifa;

- lýsing á gjaldtöku;

- málsmeðferð við skýrslugjöf um vanbúnað móttökuaðstöðu hafna;

- málsmeðferðarreglur um stöðugt samráð við notendur hafnar, verktaka sem meðhöndla úrgang, rekstraraðila hafnarinnar og aðra hagsmunaaðila; og

- tegund og magn úrgangs frá skipum og farmleifa sem tekið er á móti og meðhöndlað.

Að auki skal eftirfarandi koma fram í áætlun:

- samantekt um viðeigandi löggjöf og formsatriði við afhendingu;

- upplýsingar um hvaða einstaklingur eða einstaklingar bera ábyrgð á framkvæmd áætlunarinnar;

- lýsing á búnaði og ferlum við formeðferð úrgangs og farmleifa í höfninni ef um slíkt er að ræða;

- lýsing á aðferðum við skráningu raunverulegrar notkunar á móttökuaðstöðu hafnarinnar;

- lýsing á aðferðum við skráningu á magni úrgangs frá skipum og farmleifa sem tekið er á móti; og

- lýsing á aðferðum við losun úrgangs frá skipum og við losun farmleifa.

Verklagsreglur við móttöku, söfnun, geymslu, meðhöndlun og förgun eiga að öllu leyti að vera í samræmi við umhverfisstjórnunarkerfi sem hentar vel til þess að draga smám saman úr umhverfisáhrifum slíkra aðgerða. Gert er ráð fyrir slíku samræmi ef verklagsreglurnar eru í samræmi við ákvæði reglugerðar um frjálsa þátttöku iðnfyrirtækja í umhverfismálakerfi ESB.

Aðgengilegar upplýsingar fyrir notendur hafna:

- stutt tilvísun í grundvallarþýðingu réttrar afhendingar úrgangs frá skipum og farmleifa;

- staðsetning móttökuaðstöðu hvers skipalægis með teikningu/korti;

- skrá yfir helstu tegundir úrgangs frá skipum og farmleifa sem að jafnaði koma til afgreiðslu;

- skrá yfir tengiliði, rekstraraðila og þá þjónustu sem er í boði;

- lýsing á starfsaðferðum við afhendingu;

- lýsing á gjaldtöku; og

- málsmeðferð við skýrslugjöf um vanbúnað í móttökuaðstöðu hafna.

Viðauki II

Tilkynningar um úrgang og farmleifar í skipum.

(INFORMATION TO BE NOTIFIED BEFORE ENTRY INTO PORTS)

Viðtökuhöfn________________________________

(Port of destination)

1. Nafn og kallmerki skipsins og, ef við á, IMO-auðkenningarnúmer (Name, call sign and, where appropriate IMO identification number of the ship):

2. Fánaríki (Flag State):

3. Áætlaður komutími (Estimated time of arrival, ETA):

4. Áætlaður brottfarartími (Estimated time of departure, ETD):

5. Fyrri viðkomuhöfn (Previous port of call):

6. Næsta viðkomuhöfn (Next port of call):

7. Síðasta afhendingarhöfn og dagsetning afhendingar úrgangs frá skipinu (Last port and date when ship-generated waste was delivered):

8. Afhenda á í móttökuaðstöðu í höfn (merkið í viðeigandi reit): Are you delivering (tick appropriate box)

allan úrganginn [ ] hluta úrgangs [ ] engan úrgang [ ]

(all) (some) (none)

(of your waste into a port reception facilities?)

9. Tegund og magn úrgangs og farmleifa, sem á að afhenda og/eða verða eftir um borð, og hundraðshluti þess magns af hámarksgeymslurými (Type and amount of waste and residues to be delivered and/or remaining on board, and percentage of maximum storage capacity):

Ljúkið við annan dálkinn eins og við á ef afhenda á allan úrganginn. (If delivering all waste, complete second column as appropriate.)

Ljúkið við alla dálkana ef afhenda á hluta úrgangsins eða engan úrgang. (If delivering some or no waste, complete all the columns.)

Tegund (Type)

Úrgangur sem afhenda á

(Waste to be delivered) m3

Hámarks- geymslurýmd

(Maximum dedicated storage

capacity) m3

Magn úrgangs sem verður

eftir um borð

(Amount of waste

retained on board) m3

Höfnin þar sem afhenda á

afgangsúrgang

(Port at which remaining

waste will be delivered)

Áætlað magn úrgangs sem verður til frá

birtingu þessarar tilkynningar og þar til komið er til næstu hafnar

(Estimated amount of waste

to be generated between

notification and

next port of call) m3

Úrgangur sem afhentur var í síðustu

afhendingar-

höfn sbr. lið 7 hér að framan

(Waste that has been

delivered at

the last port of delivery identified

under point 7 above) m3

Úrgangsolía

(Waste oils)

Olíumengað kjölvatn

(Oily bilge water)

Olíuleifar (sori)

(Oily residues,

(sludge))

Annað (tilgreinið) (Other, specify)
Skólp1 (Sewage)

Sorp

(Garbage)

Plastefni (Plastics)
Matarúrgangur (Food wastes)

Úrgangur frá vistarverum (Domestic wastes,

e.g. paper products, rags, glass, metal, bottles, crockery, etc.)

Olía til matargerðar (Cooking oil)

Brennsluaska

(Incinerator ashes)

Óvinnsluhæfur rekstrarúrgangur (Operational wastes)

Dýrahræ

(Animal carcass(es))

Farmleifar2

(tilgreinið)3

(Cargo residues, specify)

(1) Heimilt er að losa skólp á hafi úti í samræmi við 11. reglu í IV. viðauka við MARPOL-samninginn. Ef heimiluð losun á hafi úti er fyrirhuguð þarf ekki að fylla út samsvarandi reiti. (Sewage may be discharged at sea in accordance with Regulation 11 of Marpol Annex IV. The corresponding boxes do not need to be completed if it is the intention to make an authorised discharge at sea.)

(2) Um mat getur verið að ræða. (May be estimates.)

(3) Farmleifar skal tilgreina og flokka samkvæmt viðeigandi viðaukum við MARPOL-samninginn, einkum viðaukum I, II og V. (Cargo residues shall be specified and categorised according to the relevant Annexes of Marpol, in particular Marpol Annexes I, II og V.)

Athugasemdir (Notes):

1. Heimilt er að nota þessar upplýsingar vegna hafnarríkiseftirlits og annars eftirlits (This information may be used for port State control and other inspection purposes).

2. Fylla ber út þetta eyðublað nema því aðeins að skipið falli undir undanþágu í samræmi við 9. gr. reglugerðar þessarar (This form is to be completed unless the ship is covered by an exemption in accordance with Article 9 of Directive 2000/59/EC).

Undirritaður staðfestir að (I confirm that):

framangreindar upplýsingar eru nákvæmar og réttar og (the above details are accurate and correct, and)

að nægilegt sérhæft geymslurými er um borð í skipinu fyrir allan þann úrgang sem kann að verða til frá birtingu þessarar tilkynningar og þar til komið er til næstu afhendingarhafnar (there is sufficient dedicated onboard capacity to store all waste generated between notification and the next port at which waste will be delivered).

Dags (Date): ..................................................................

Tími (Time): ..................................................................

Undirskrift skipstjóra (Signature): .................................