Reglugerð um endurgreiðslu á virðisaukaskatti til aðila búsettra erlendis.
1. gr. Almennt.
Heimilt er að endurgreiða virðisaukaskatt til aðila búsettra erlendis af vörum sem þeir hafa fest kaup á hér á landi að uppfylltum skilyrðum reglugerðar þessarar.
2. gr. Skilyrði endurgreiðslu.
Skilyrði endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari eru eftirfarandi:
- Kaupandi vöru er með lögheimili utan Íslands samkvæmt skráningu í Þjóðskrá Íslands.
- Kaupandi vöru hafi hana með sér af landi brott innan þriggja mánaða frá því að kaup áttu sér stað og framvísi henni ásamt tilskildum endurgreiðslugögnum við brottför, sbr. 1. og. 2. mgr. 5. gr.
- Kaupverð vöru, einnar eða fleiri, samkvæmt sölureikningi, með virðisaukaskatti nemi minnst kr. 12.000.
- Seljandi vöru sé skráður á virðisaukaskattskrá á því tímamarki þegar viðskipti eiga sér stað.
3. gr. Heimild til að annast endurgreiðslur.
Umsókn um leyfi til að annast endurgreiðslur samkvæmt reglugerð þessari skal beint til tollyfirvalda. Einungis þeim sem hlotið hafa leyfi tollyfirvalda er heimilt að annast endurgreiðslur samkvæmt reglugerð þessari.
Endurgreiðsluaðilar skulu uppfylla eftirtalin skilyrði:
- Umsækjandi skal vera lögaðili og ekki vera í vanskilum við ríkissjóð með greiðslu opinberra gjalda eða skatta.
- Stjórnarmenn lögaðilans skulu vera a.m.k. tveir. Þeir skulu vera búsettir hér á landi, vera lögráða, hafa óflekkað mannorð, vera fjár síns ráðandi og mega ekki á síðustu fimm árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða öðrum lögum. Þá mega stjórnarmenn ekki hafa gengist undir sátt eða hlotið dóm vegna brota á tollalögum eða hlotið dóm fyrir fíkniefnabrot. Ríkisborgarar þeirra ríkja sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eða stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu sem og Færeyingar eru undanþegnir búsetuskilyrðinu enda séu viðkomandi ríkisborgarar búsettir í aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum. Tollyfirvöldum er heimilt að veita þeim sem eru búsettir í öðrum ríkjum sömu undanþágu.
- Daglegur stjórnandi endurgreiðsluaðila skal fullnægja skilyrðum b-liðar.
- Endurgreiðsluaðili skal sýna fram á að stjórnun, innra eftirlit, bókhald og varsla gagna vegna starfseminnar verði með traustum hætti.
Tollyfirvöld geta afturkallað starfsleyfi skv. 1. mgr. uppfylli leyfishafi ekki lengur skilyrði eða vanræki skyldur sínar samkvæmt reglugerð þessari.
4. gr. Fyrirkomulag endurgreiðslna.
Tollyfirvöld staðfesta fyrirkomulag endurgreiðslna, þ.m.t. form endurgreiðsluávísana ef um þær er að ræða.
Í þeim gögnum sem notuð eru við framkvæmd endurgreiðslna skal a.m.k. eftirtalið koma fram:
- Nafn, kennitala og skráningarnúmer seljanda.
- Dagsetning kaupa á vöru.
- Vörutegund og magn.
- Verð vörunnar með virðisaukaskatti.
- Nafn, vegabréfsnúmer, þjóðerni og heimilisfang kaupanda.
Endurgreiðsluávísun skal fylgja áreiðanleg og rekjanleg kvittun eða reikningur fyrir greiðslu. Orðin áreiðanleiki og rekjanleiki ber að skýra til samræmis við reglugerð nr. 505/2013, um rafræna reikninga, rafrænt bókhald, skeytamiðlun, skeytaþjónustu, geymslu rafrænna gagna og lágmarkskröfur til rafrænna reikninga- og bókhaldskerfa.
5. gr. Framkvæmd endurgreiðslna.
Við brottför úr landi um alþjóðaflugvöllinn í Keflavík skal kaupandi framvísa vörum ásamt endurgreiðslugögnum, sbr. 4. gr., til endurgreiðsluaðila, sem hefur leyfi skv. 3. gr., er framkvæmir endurgreiðsluna enda séu skilyrði reglugerðar þessarar að öðru leyti uppfyllt. Endurgreiðsluaðila er óheimilt að endurgreiða virðisaukaskatt nema kaupandi sanni með fullnægjandi hætti að hann hafi fasta búsetu erlendis, sbr. a. lið 2. gr. Tollyfirvöld staðfesta útflutninginn með þeim hætti sem þau ákveða og meta á hverjum tíma þá fjárhæð sem er sett til viðmiðunar þeirri framkvæmd. Ákvæði þessarar málsgreinar skulu jafnframt gilda við brottför ferðamanna frá öðrum stöðum, ef aðili sem hlotið hefur heimild skv. 3. gr. annast endurgreiðslu á virðisaukaskatti við brottför.
Við brottför annars staðar frá landinu skal vörum framvísað við tollyfirvöld sem ganga úr skugga um, og staðfesta, að skilyrði fyrir endurgreiðslu séu fyrir hendi.
Endurgreiðsla skv. 1. og 2. mgr. fer eingöngu fram við eða eftir brottför úr landi. Endurgreiðsla skal að lágmarki vera í samræmi við fjárhæðir og viðmið sem birt eru í fylgiskjali með reglugerð þessari. Sama gildir ef vörusala á sama sölureikningi ber bæði 24% og 11% virðisaukaskatt.
6. gr. Uppgjör endurgreiðsluaðila.
Endurgreiðsluaðili, sbr. 3. gr., skal fyrir 20. hvers mánaðar skila tollyfirvöldum skýrslu, á því formi sem tollyfirvöld ákveða, vegna endurgreiðslna á tímabilinu frá 1. til 15. þess mánaðar. Jafnframt skal hann fyrir 5. dag næsta mánaðar senda tollyfirvöldum skýrslu vegna endurgreiðslna á tímabilinu frá 16. degi til loka mánaðar. Endurgreiðsluaðili skal láta tollyfirvöldum í té staðfestingu á endurgreiðslu á virðisaukaskatti til aðila búsettra erlendis, sé eftir því kallað. Fallist tollyfirvöld á skýrsluna skal endurgreiðsluaðili fá endurgreidda heildarfjárhæð þess virðisaukaskatts sem aðilar búsettir erlendis hafa greitt af keyptri vöru samkvæmt uppgjörsskýrslu.
Hafi skýrslu verið skilað á tilskildum tíma skal endurgreiðslan greidd út innan tíu daga frá lokum skilafrests skv. 1. mgr. Berist skýrsla eftir lok skilafrests skal endurgreiðsla fara fram innan tíu daga frá því að tollyfirvöld samþykktu greiðslu. Geti tollyfirvöld, af ástæðum er varða endurgreiðsluaðila, ekki gert nauðsynlegar athuganir á uppgjörsskýrslu eða gögnum sem skýrslugjöf byggist á, framlengist framangreindur greiðslufrestur þar til úr þeim annmörkum hefur verið bætt.
Réttur til endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari fellur niður ef umsókn um endurgreiðslu berst tollyfirvöldum eftir að sex ár eru liðin frá því að réttur til endurgreiðslu stofnaðist.
7. gr. Ofgreiðsla til endurgreiðsluaðila.
Komi í ljós að greiðsla til endurgreiðsluaðila hafi verið of há skulu tollyfirvöld þegar tilkynna endurgreiðsluaðila þar um. Endurgreiðsluaðila ber að endurgreiða það sem ofgreitt var eigi síðar en sjö dögum eftir dagsetningu tilkynningar tollyfirvalda. Um dráttarvexti vegna of hárrar greiðslu fer eftir lögum nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.
8. gr. Varðveisla gagna.
Endurgreiðsluaðila ber að varðveita endurgreiðsluávísanir, uppgjör og önnur gögn er varða endurgreiðslu á virðisaukaskatti samkvæmt reglugerð þessari í sjö ár frá lokum viðkomandi árs. Heimilt er að varðveita gögn skv. 1. málsl. með rafrænum hætti.
9. gr. Eftirlit.
Tollyfirvöld hafa eftirlit með framkvæmd endurgreiðslna samkvæmt reglugerð þessari. Endurgreiðsluaðilum er skylt að láta tollyfirvöldum í té ókeypis og á því formi sem þau óska eftir allar nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem varða framkvæmd endurgreiðslna.
10. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 43. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. febrúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 294/1997, um endurgreiðslu á virðisaukaskatti til aðila búsettra erlendis, með síðari breytingum.
Þau endurgreiðsluform sem staðfest voru fyrir gildistöku reglugerðarinnar halda gildi sínu til 1. júlí 2015. Sama gildir um leyfi skv. 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 294/1997, sem veitt voru fyrir gildistöku reglugerðar þessarar.
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 5. gr. skal endurgreiðsluaðilum heimilt að afgreiða endurgreiðsluumsóknir á þeim afgreiðslustöðvum innanlands sem þegar eru starfræktir til 1. júlí 2015, enda sé um að ræða endurgreiðslufjárhæð sem er lægri en kr. 5.000.
Fylgiskjal
-
Tafla vegna endurgreiðslu á virðisaukaskatti af vörum sem bera 24% virðisaukaskatt.
12.000 - 13.500 1.650 55.501 - 57.000 7.550 13.501 - 15.000 1.850 57.001 - 58.500 7.800 15.001 - 16.500 2.050 58.501 - 60.000 8.000 16.501 - 18.000 2.250 60.001 - 61.500 8.200 18.001 - 19.500 2.450 61.501 - 63.000 8.400 19.501 - 21.000 2.600 63.001 - 64.500 8.650 21.001 - 22.500 2.800 64.501 - 66.000 8.850 22.501 - 24.000 3.000 66.001 - 67.500 9.100 24.001 - 25.500 3.200 67.501 - 69.000 9.300 25.501 - 27.000 3.400 69.001 - 70.500 9.500 27.001 - 28.500 3.600 70.501 - 72.000 9.750 28.501 - 30.000 3.850 72.001 - 73.500 9.950 30.001 - 31.500 4.050 73.501 - 75.000 10.150 31.501 - 33.000 4.250 75.001 - 76.500 10.400 33.001 - 34.500 4.450 76.501 - 78.000 10.600 34.501 - 36.000 4.650 78.001 - 79.500 10.850 36.001 - 37.500 4.850 79.501 - 81.000 11.050 37.501 - 39.000 5.050 81.001 - 82.500 11.300 39.001 - 40.500 5.250 82.501 - 84.000 11.500 40.501 - 42.000 5.450 84.001 - 85.500 11.750 42.001 - 43.500 5.650 85.501 - 87.000 11.950 43.501 - 45.000 5.900 87.001 - 88.500 12.200 45.001 - 46.500 6.100 88.501 - 90.000 12.400 46.501 - 48.000 6.300 90.001 - 91.500 12.650 48.001 - 49.500 6.500 91.501 - 93.000 12.850 49.501 - 51.000 6.700 93.001 - 94.500 13.100 51.001 - 52.500 6.950 94.501 - 96.000 13.300 52.501 - 54.000 7.150 96.001 - 97.500 13.550 54.001 - 55.500 7.350 97.501 - 99.000 13.800 Ef sölufjárhæð fer yfir 99.000 kr. skal endurgreiða 14% af sölufjárhæð. Ef aðeins hluti vara á sölureikningi ber 24% virðisaukaskatt og sölufjárhæð þess hluta nemur minna en kr. 12.000 skal endurgreiða 13% af þeirri fjárhæð. Endurgreiðslan skal ætíð ákvörðuð í heilum fimm tugum króna.
-
Tafla vegna endurgreiðslu á virðisaukaskatti af vörum sem bera 11% virðisaukaskatt.
12.000 - 13.500 800 31.501 - 33.000 2.150 13.501 - 15.000 900 33.001 - 34.500 2.250 15.001 - 16.500 1.000 34.501 - 36.000 2.350 16.501 - 18.000 1.100 36.001 - 37.500 2.500 18.001 - 19.500 1.200 37.501 - 39.000 2.600 19.501 - 21.000 1.300 39.001 - 40.500 2.700 21.001 - 22.500 1.400 40.501 - 42.000 2.800 22.501 - 24.000 1.500 42.001 - 43.500 2.900 24.001 - 25.500 1.600 43.501 - 45.000 3.050 25.501 - 27.000 1.700 45.001 - 46.500 3.150 27.001 - 28.500 1.850 46.501 - 48.000 3.250 28.501 - 30.000 1.950 48.001 - 49.500 3.400 30.001 - 31.500 2.050 Ef sölufjárhæð fer yfir 49.500 kr. skal endurgreiða 7% af sölufjárhæð. Ef aðeins hluti vara á sölureikningi ber 11% virðisaukaskatt og sölufjárhæð þess hluta nemur minna en kr. 12.000 skal endurgreiða 6% af þeirri fjárhæð. Endurgreiðslan skal ætíð ákvörðuð í heilum fimm tugum króna.