Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um ákvarðanir varðandi kvaðabindingu arfs og niðurfellingu kvaðar.

1. gr.

Sýslumaðurinn á á Norðurlandi eystra tekur ákvarðanir um kvaðaarf skv. 1. og 2. mgr. 50. gr. erfðalaga nr. 8/1962.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. mgr. 50. gr. erfðalaga, nr. 8/1962, sbr. 23. gr. laga nr. 145/2013, öðlast gildi 1. febrúar 2014.