Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1256/2012 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 7 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS-staðal 32.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2013, frá 15. júlí 2013, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1256/2012 frá 13. desember 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal IFRS-staðal 7 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS-staðal 32.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1256/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 46/2013, 15. ágúst 2013 bls. 214.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2013 er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. ágúst 2013.
F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Valgerður Rún Benediktsdóttir.
Harpa Theodórsdóttir.
Fylgiskjal
ÁKVÖRÐUN SAMEIGINLEGU EES-NEFNDARINNAR
nr. 152/2013
frá 15. júlí 2013
um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn
SAMEIGINLEGA EES-NEFNDIN HEFUR TEKIÐ NEÐANGREINDA ÁKVÖRÐUN
með vísan til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, er nefnist „EES-samningurinn“ í því sem hér fer á eftir, einkum ákvæða 98. gr.,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
- Fella ber inn í EES-samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1254/2012 frá 11. desember 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 10, alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 11, alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 12, alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 27 (2011) og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 28 (2011) (1).
- Fella ber inn í EES-samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1255/2012 frá 11. desember 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 12, alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-staðla) 1 og 13, og 20. túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun 20) (2).
- Fella ber inn í EES-samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1256/2012 frá 13. desember 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 7 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 32 (3).
- XXII. viðauki við EES-samninginn breytist því í samræmi við það.
ÁKVÖRÐUNIN ER SVOHLJÓÐANDI:
1. gr.
Eftirfarandi undirliðir bætist við í lið 10ba (reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1126/2008) í XXII. viðauka við EES-samninginn:
„– 32012 R 1254: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1254/2012 frá 11. desember 2012 (Stjtíð. ESB L 360, 29.12.2012, bls. 1),
– 32012 R 1255: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1255/2012 frá 11. desember 2012 (Stjtíð. ESB L 360, 29.12.2012, bls. 78),
– 32012 R 1256: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1256/2012 frá 13. desember 2012 (Stjtíð. ESB L 360, 29.12.2012, bls. 145).“
2. gr.
Íslenskur og norskur texti reglugerða (ESB) nr. 1254/2012, (ESB) nr. 1255/2012 og (ESB) nr. 1256/2012, sem verður birtur í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, telst fullgiltur.
3. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi 16. júlí 2013, að því tilskildu að allar tilkynningar samkvæmt 1. mgr. 103. gr. EES-samningsins hafi borist sameiginlegu EES-nefndinni (*).
4. gr.
Ákvörðun þessi skal birt í EES-deild Stjórnartíðinda Evrópusambandsins og EES-viðbæti við þau.
Gjört í Brussel 15. júlí 2013.
Fyrir hönd sameiginlegu EES-nefndarinnar
Þórir Ibsen
formaður.
(1) Stjtíð. ESB L 360, 29.12.2012, bls. 1.
(2) Stjtíð. ESB L 360, 29.12.2012, bls. 78.
(3) Stjtíð. ESB L 360, 29.12.2012, bls. 145.
(*) Engin stjórnskipuleg skilyrði gefin til kynna.