Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um sýnatöku- og greiningaraðferðir við greiningu og staðfestingu á tilvist lindýrasjúkdómanna bónamíósis (Bonamia ostreae) og marteilíósis (Marteilia refringens).

1. gr. Sýnatöku- og greiningaraðferðir.

Í viðauka við reglugerð þessa er mælt fyrir um sýnatöku- og greiningaraðferðir við greiningu og staðfestingu á bónamíósis (Bonamia ostreae) og marteilíósis (Marteilia refringens) í lindýrum þegar dánartíðni er afbrigðileg og til viðurkenningar á því að svæði og eldisstöðvar séu laus við sjúkdóma.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 55/1998 um sjávarafurðir. Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2002/878/EB frá 6. nóvember 2002. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. febrúar 2013.

F. h. r.

Halldór Runólfsson.

Baldur P. Erlingsson.

Viðauki

Sýnatöku- og greiningaraðferðir við greiningu og staðfestingu á bónamíósis (Bonamia ostreae) og marteilíósis (Marteilia refringens).

Sýnatöku- og greiningaraðferðir til staðfestingar á bónamíósis (Bonamia ostreae) og marteilíósis (Marteilia refringens) í lindýrum þegar dánartíðni er afbrigðileg og til viðurkenningar á því að svæði og eldisstöðvar séu laus við sjúkdóma, skulu vera í samræmi við aðferðir sem eru tilgreindar í greiningarhandbók Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar (International Office of Epizootics (OIE)) um sjúkdóma í lagardýrum. Nánar tiltekið þriðju útgáfu framangreindrar greiningarhandbókar frá árinu 2000, 3. hluta um lindýrasjúkdóma: Kafla I.2 (Almennar upplýsingar), kafla 3.1.1 (bónamíósis) og kafla 3.1.3 (marteilíósis). Ákvæði þetta tekur til sýnatöku- og greiningaraðferða, sem á að nota, þ.m.t. tæknibeiting, rannsóknaraðferðir og æti, stöðlun þeirra og túlkun niðurstaðna.