Reglugerð um rafrænar skeytasendingar, upplýsingagjöf og rafræn afladagbókaskil erlendra fiskiskipa í efnahagslögsögu Íslands.
1. gr.
Reglugerð þessi nær til erlendra fiskiskipa sem hafa leyfi íslenskra stjórnvalda til fiskveiða innan íslenskrar efnahagslögsögu skv. viðauka 1.
2. gr.
Erlend fiskiskip sem hafa leyfi íslenskra stjórnvalda til fiskveiða innan íslenskrar efnahagslögsögu skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til eftirlitsstöðvar fánaríkis skipsins. Eftirlitsstöð fánaríkisins fylgist með skýrslugjöf eigin skipa sem eru á veiðum í íslenskri efnahagslögsögu og framsendir upplýsingar til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Fiskistofu og Landhelgisgæslu Íslands, hér eftir nefnd eftirlitsstöð Íslands, samkvæmt ákvæðum í fjareftirlitssamningi milli Íslands og viðkomandi fánaríkis.
Tilkynningarnar skulu vera á stöðluðu formi samkvæmt viðauka 2.
3. gr.
Skipstjórar erlendra fiskiskipa sem reglugerð þessi nær til skulu tryggja að fjarskiptabúnaður skipsins (VMS-kerfið (Vessel Monitoring System)) virki með eðlilegum hætti áður en haldið er til veiða í íslenskri efnahagslögsögu. Að öðrum kosti er skipstjóra óheimilt að hefja veiðar innan íslenskrar efnahagslögsögu.
4. gr. Tilkynning um komu á svæði (COE1).
Erlend fiskiskip sem hafa tilskilin leyfi og hyggjast veiða í íslenskri efnahagslögsögu skulu tilkynna eftirlitsstöð Íslands um siglingu skipsins inn í íslenska lögsögu með minnst 2ja klukkustunda og mest 12 klukkustunda fyrirvara áður en komið er inn í íslenska efnahagslögsögu.
Í tilkynningu um komu á svæði (COE) skulu koma fram þær upplýsingar sem tilgreinir í viðaukum 2.1 og 2.2, í þeirri röð sem þar er tilgreind og skal tilkynning innihalda nákvæmar upplýsingar um þann afla sem er um borð í skipinu þegar skipið fer yfir í íslenska efnahagslögsögu.
Heimilt er að afturkalla tilkynningu um komu á svæði (COE) áður en siglt er inn fyrir mörk íslenskrar efnahagslögsögu. Heimilt er að leiðrétta upplýsingar um afla um borð áður en siglt er inn fyrir mörk íslenskrar efnahagslögsögu.
__________
1 Catch on Entry report.
5. gr. Tilkynning um afla og athafnir (DCA2).
Tilkynning um afla og athafnir (DCA) tiltekur nákvæmar upplýsingar um afla og athafnir erlendra fiskiskipa í íslenskri efnahagslögsögu.
Erlend fiskiskip sem hafa leyfi íslenskra stjórnvalda til fiskveiða innan íslenskrar efnahagslögsögu skulu daglega eða oftar, eftir að tilkynning um upphaf veiða eða tilkynning um brottför úr höfn berst, senda afla- og athafnatilkynningu (DCA). Tilkynningin skal send í síðasta lagi klukkan 23.59 UTC (Coordinated Universal Time). Tilkynningin skal innihalda upplýsingar um afla sem veiddur er á tímabilinu frá kl. 00.00 - 23.59 UTC. Hefjist ný fiskveiðiathöfn innan sama sólarhrings og fiskveiðiathöfn lauk sem þegar hefur verið send afla- og athafnatilkynning vegna, skal senda aðra afla- og athafnatilkynningu vegna þeirrar fiskveiðiathafnar fyrir klukkan 23.59 UTC. Tilkynningu um afla og athafnir skal senda einu sinni á sólarhring þótt engar fiskveiðiathafnir hafi átt sér stað frá síðustu tilkynningu um afla og athafnir (DCA).
Auk þess sem að framan greinir skal ávallt senda tilkynningu um afla og athafnir (DCA) áður en:
- Tilkynning um lok veiða er send (COX3).
- Tilkynning um komu í athugunarstað er send (CON4).
- Landhelgisgæslan framkvæmir skoðun um borð. Hafi fiskiskipi borist boð frá Landhelgisgæslunni um skoðun skal þessi tilkynning send áður en skoðun fer fram.
- Tilkynning um komu til hafnar er send (POR5).
Upplýsingar samkvæmt blokk B í tilkynningunni skulu gefnar fyrir hverja fiskveiðiathöfn og skulu skráðar jafnóðum og hverri fiskveiðiathöfn lýkur. Hægt er að skrá upplýsingar um fleiri en eina fiskveiðiathöfn á sama tíma. Fiskveiðiaathöfn hefst þegar veiðarfæri hefur verið lagt í sjó og lýkur þegar veiðarfæri hefur að öllu leyti verið tekið um borð í veiðiskip á ný. Skipum sem stunda línu- og netaveiðar er heimilt að skrá upplýsingar samkvæmt blokk B í skeytið daglega (24 klst.).
Tilkynning um afla og athafnir (DCA) skal innihalda upplýsingar sem kveðið er á um í viðaukum 2.1 og 2.3, í þeirri röð sem þar greinir.
Heimilt er að leiðrétta tilkynningu um afla og athafnir (DCA) til kl. 12.00 UTC daginn eftir að tilkynningin var send. Ekki er heimilt að leiðrétta tilkynningu um afla og athafnir (DCA) eftir að tilkynning um lok veiða (COX) eða tilkynning um komu til hafnar (POR) hefur verið send.
__________
2 Detailed catch and activity report.
3 Catch on Exit report.
4 Control point/area report.
5 Port report.
6. gr. Tilkynning um komu til hafnar (POR).
Tilkynning um komu til hafnar þýðir að skipið hefur hætt veiðum og heldur til hafnar strandríkis. Erlend fiskiskip sem hafa leyfi íslenskra stjórnvalda til fiskveiða innan íslenskrar efnahagslögsögu skulu tilkynna um komu til hafnar með minnst fjögurra klukkustunda fyrirvara. Þessa tilkynningu skal senda hvort sem landa á afla eða ekki.
Tilkynning um komu til hafnar (POR) skal innihalda upplýsingar sem kveðið er á um í viðaukum 2.1 og 2.4, í þeirri röð sem þar greinir.
Ef fiskiskip heldur úr höfn í þeim tilgangi að yfirgefa íslenska efnahagslögsögu án fyrirætlunar um fiskveiðar, er frekari tilkynninga ekki krafist.
Tilkynningu um komu til hafnar má ekki leiðrétta. Tilkynningu um komu til hafnar má afturkalla áður en komið er til hafnar.
7. gr. Tilkynning um brottför úr höfn (DEP6).
Við brottför úr íslenskri höfn með þá fyrirætlan að stunda veiðar í íslenskri efnahagslögsögu skulu erlend fiskiskip sem hafa leyfi íslenskra stjórnvalda til fiskveiða innan íslenskrar efnahagslögsögu tilkynna brottför úr höfn áður eða í síðasta lagi 2 klst. eftir brottför úr höfn og áður en veiðar hefjast.
Tilkynning um brottför úr höfn (DEP) skal innihalda upplýsingar sem kveðið er á um í viðaukum 2.1 og 2.5, í þeirri röð sem þar greinir.
Tilkynningu um brottför úr höfn má ekki leiðrétta. Tilkynningu um brottför úr höfn má afturkalla áður en fiskveiðathöfn hefst.
__________
6 Departure report.
8. gr. Tilkynning um lok veiða (COX).
Tilkynning um lok veiða (COX) þýðir að skip hefur hætt veiðum og hyggst yfirgefa íslenska efnahagslögsögu. Erlend fiskiskip sem hafa leyfi íslenskra stjórnvalda til fiskveiða innan íslenskrar efnahagslögsögu skulu tilkynna um lok veiða áður en siglt er út úr íslenskri efnahagslögsögu. Tilkynningu um lok veiða (COX) skal senda að hámarki 8 klst. og að lágmarki 2 klst. áður en siglt er úr íslenskri efnahagslögsögu. Tilkynningu um lok veiða (COX) skal ávallt senda áður en tilkynning um siglingu í gegnum athugunarstað (CON) er send.
Tilkynning um lok veiða (COX) skal innihalda upplýsingar sem kveðið er á um í viðaukum 2.1 og 2.6, í þeirri röð sem þar greinir.
Heimilt er að afturkalla tilkynningu um lok veiða (COX) áður en siglt er út fyrir mörk íslenskrar efnahagslögsögu. Óheimilt er að leiðrétta tilkynningu um lok veiða (COX).
9. gr. Tilkynning um siglingu í gegnum athugunarstað (CON).
Skip skulu, á leið til veiðisvæðis áður en veiðar í efnahagslögsögu Íslands hefjast og á leið af veiðisvæði út úr efnahagslögsögu Íslands, sigla um einn af ákvörðuðum athugunarstöðum.
Um athugunarstaði, sbr. 1. mgr., vísast til reglugerðar nr. 1133/2013, um eftirlitsstaði erlendra skipa vegna veiða og siglinga í íslenskri fiskveiðilögsögu, þar sem fram kemur staðsetning (hnit) athugunarstaðanna og tímafrestir tilkynninga.
Tilkynning um siglingu í gegnum athugunarstað (CON) skal innihalda upplýsingar sem kveðið er á um í viðaukum 2.1 og 2.7, í þeirri röð sem þar greinir.
Tilkynning um siglingu í gegnum athugunarstað (CON) skal send með minnst 2 klst. og mest 6 klst. fyrirvara áður en komið er að athugunarstað. Landhelgisgæsla Íslands getur krafið skip um að bíða allt að 6 klst. í athugunarstað ef framkvæma á skoðun.
Heimilt er að afturkalla tilkynningu um siglingu í gegnum athugunarstað (CON) áður en komið er í athugunarstað. Óheimilt er að leiðrétta tilkynningu um siglingu í gegnum athugunarstað (CON).
10. gr. Umskipun á afla (TRA7).
Óheimilt er að umskipa afla, hvort sem er ferskum, frosnum eða frekar unnum í íslenskri efnahagslögsögu. Þó er heimilt að umskipa afla á skilgreindum svæðum innan tilgreindra hafna í samræmi við reglur NEAFC.
__________
7 Transhipment report.
11. gr. Staðfesting á móttöku tilkynninga.
Móttaka rafrænna tilkynninga sem sendar eru skv. ákvæðum þessarar reglugerðar til eftirlitsstöðvar Íslands verða sjálfvirkt staðfestar með staðfestingarskeyti (RET8). Ef tilkynning hefur borist eftirlitsstöð Íslands án vandkvæða mun staðfestingarskeytið sem sent er til fiskskipsins hafa stöðuna "samþykkt" (ACK9). Ef sending tilkynningarinnar er ekki staðfest með staðfestingarskeyti eða staðfestingarskeytið er með stöðuna "ekki samþykkt" (NAK10) ber fiskiskipi að senda tilkynninguna aftur í gegnum eftirlitsstöð fánaríkis. Rafrænar tilkynningar sendar skv. þessari reglugerð teljast ekki mótteknar fyrr en fiskiskipi hefur borist staðfestingarskeyti frá eftirlitsstöð Íslands með stöðuna "samþykkt" (ACK).
Staðfestingarskeyti skal innihalda þær upplýsingar sem kveðið er á um í viðauka 3, í þeirri röð sem þar greinir.
__________
8 Return.
9 Acknowledgment.
10 Not Acknowledged.
12. gr. Leiðréttingar og afturkallanir á tilkynningum.
Aðeins er hægt að leiðrétta eða afturkalla tilkynningar sem hafa verið samþykktar og hafa stöðuna ACK.
Gerð er krafa um nákvæmni skráninga og skulu tilkynningar skipstjóra ávallt vera í samræmi við afladagbók skipsins.
13. gr. Bilun í búnaði til sjálfvirkra sendinga.
Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga skv. 2. gr. bilar meðan á veiðiferð stendur þannig að ekki reynist unnt að uppfylla ákvæði þessarar reglugerðar skal eftirlitsstöð Íslands gerð grein fyrir vandanum og þeim ráðstöfunum sem gripið verður til vegna hans. Eftirlitsstöð fánaríkis fiskiskips skal sjá um að senda tilkynningar skipsins til eftirlitsstöðvar Íslands með öðrum tiltækum leiðum.
14. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.
15. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. desember 2013.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Ásta Einarsdóttir.
Viðauki 1
Reglugerð þessi nær til eftirfarandi erlendra fiskiskipa:
- Norskra fiskiskipa samkvæmt samningi milli Íslands og Noregs frá 10. júní 2013 um rafrænar skeytasendingar, upplýsingagjöf og rafræn afladagbókaskil (Agreed Record of Conclusions of Fisheries consultations between Norway and Iceland on Electronic Exchange of catch and activity data).
- Færeyskra fiskiskipa samkvæmt samningi milli Íslands og Færeyja frá 1. júní 2016 um rafrænar skeytasendingar, upplýsingagjöf og rafræn afladagbókaskil (Agreed record of Conclusions of Fisheries Consultations between Iceland and the Faroe Islands on electronic Exchange of catch and activity data).
Viðauki 2
Yfirlit yfir tilkynningaskyldar athafnir.
| Tilkynningaskyldar athafnir | Kóði | Skýringar |
| Koma á svæði | COE | Sendist áður en komið er í íslenska efnahagslögsögu með þá fyrirætlun að hefja veiðar |
| Afli og athafnir | DCA | Tilkynning um afla og athafnir (DCA) tiltekur nákvæmar upplýsingar um afla og athafnir erlendra fiskiskipa í íslenskri efnahagslögsögu |
| Koma til hafnar | POR | Tilkynning um komu til hafnar þýðir að skipið hefur hætt veiðum og heldur til íslenskrar hafnar |
| Brottför úr höfn | DEP | Sendist við brottför úr íslenskri höfn með þá fyrirætlun að hefja veiðar í íslenskri efnahagslögsögu |
| Lok veiða | COX | Tilkynning um lok veiða (COX) þýðir að skip hefur hætt veiðum og hyggst yfirgefa íslenska efnahagslögsögu |
| Sigling í gegnum athugunarstað | CON | Skip skulu, á leið til veiðisvæðis áður en veiðar í efnahagslögsögu Íslands hefjast og á leið af veiðisvæði út úr efnahagslögsögu Íslands, sigla um einn af ákvörðuðum athugunarstöðum |
| Staðfesting á móttöku tilkynningar | RET | Rafrænar tilkynningar sendar skv. þessari reglugerð teljast ekki mótteknar fyrr en fiskiskipi hefur borist staðfestingarskeyti með stöðunni „samþykkt“ (ACK frá eftirlitsstöð Íslands) |
Viðauki 2.1
Upplýsingar sem senda skal og uppsetning þeirra í skeytum milli eftirlitsstöðva.
Upplýsingar sem setja skal í tilkynningu.
| Upplýsingar sem senda skal | Kóði | Krafa/ Valfrjálst | Skýringar |
| Upplýsingar sem eftirlitsstöð fánaríkis sendir með tilkynningunni | |||
| Sendandi | FR | K | Alpha-3 ISO landstákn viðkomandi sendanda |
| Númer tilkynningar | RN | K | Einkvæmt númer tilkynningar |
| Dagsetning útsendingar | RD | K | Dagsetning útsendingar frá eftirlitsstöð fánaríkis, ár, mánuður, dagur (YYYYMMDD) |
| Tímasetning sendingar | RT | K | Nákvæm tímasetning (UTC) útsendingar frá eftirlitsstöð fánaríkis, klukkustund, mánuður (HHMM) |
| Númer síðustu tilkynningar, sem send var | RX | K[1] | Ef um leiðréttingu eða ógildingu á tilkynningu er að ræða skal nota númer (RN)-tilkynningar sem verið er að breyta |
| Sérmerking eftirlitsstöðvar fánaríkis | FM | K[2] | Sérmerking eftirlitsstöðvar fánaríkis eins og henni er lýst í viðauka 6 |
| Upplýsingar sem skipstjóri sendir til eftirlitsstöðva | |||
| Móttakandi tilkynningar | AD | K | Tákn eftirlitsstöðvar sem á að fá tilkynningu, ISL |
| Kallmerki skips | RC | K | Alþjóðlegt kallmerki fyrir viðkomandi skip |
| Dagsetning sendingar | DA | K | Dagsetning (UTC) sendingar frá skipinu (YYYYMMDD) |
| Tímasetning sendingar (klst.) | TI | K | Nákvæm tímasetning (UTC) sendingar frá skipinu (HHMM) |
| Nafn skipstjóra | MA | K | Nafn skipstjóra |
| Raðnúmer tilkynningar | SQ | K[3] | Raðnúmer tilkynningar frá skipi á hverju almanaksári |
| Tegund tilkynningar | TM | K | Tegund tilkynningar með 3 stafa kóda |
[1] Aðeins krafist ef um leiðréttingu eða ógildingu á fyrra skeyti er að ræða. Takmarkanir á leiðréttingum og ógildingum koma fram í 10. gr. í samkomulagi Íslands og Færeyja og 12. gr. í samkomulagi Íslands og Noregs.
[2] Aðeins krafist ef skýrslan hefur verið send í pósti eða búin til af eftirlitsstöð fánaríkis.
[3] Aðeins krafist ef tilkynningin er send af skipstjóra skipsins.
Viðauki 2.2
Tilkynning um komu á svæði (COE).
Uppsetning á tilkynningum sem sendar eru milli eftirlitsstöðva.
| Upplýsingar sem senda skal | Kóði | Krafa/ Valfrjálst | Skýringar |
| Upplýsingar skv. viðauka 2.1 sem senda skal með tilkynningunni | |||
| Upplýsingar sem skipstjóri sendir til eftirlitsstöðva | |||
| Tegund tilkynningar | TM | K | Skilgreining á tilkynningu: „COE“ |
| Eftirfarandi atriði eru sértæk fyrir þessa tegund af tilkynningum og eru fyllt út af skipstjóra og send til eftirlitsstöðva | |||
| Breiddargráða | XT | K | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í breiddargráðum samkvæmt hnitakerfi (WGS84) |
| Lengdargráða | XG | K | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í lengdargráðum samkvæmt hnitakerfi (WGS84) |
| Aflamagn um borð eftir tegundum, lífþyngd (óslægt) | OB | K | Magn allra fisktegunda um borð flokkað niður í tegundir og þyngd Nota skal tegundakóða FAO (SN) Lífþyngd (afli upp úr sjó) í kílógrömmum (WT) |
| Áætluð breiddargráða þegar veiði hefst | LT | K | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í breiddargráðum samkvæmt hnitakerfi (WGS84) |
| Áætluð lengdargráða þegar veiði hefst | LG | K | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í lengdargráðum samkvæmt hnitakerfi (WGS84) |
| Áætluð dagsetning við upphaf veiði | PD | K | Áætluð dagsetning (UTC) þegar skipstjóri hyggst hefja veiði (YYYYMMDD) |
| Áætluð tímasetning við upphaf veiði (klst.) | PT | K | Áætluð tímasetning (UTC) þegar skipstjóri hyggst hefja veiði (HHMM) |
| Fisktegund sem veiða skal | DS | O | Tegund sem veiða skal samkvæmt tegundakóða FAO (tegund sem veiði beinist að) |
| Fyrirhugað veiðisvæði | RA | V | Svæði þar sem skipstjóri áætlar að hefja veiði samkvæmt flokkunarkerfi ICES |
Viðauki 2.3
Tilkynning um afla og athafnir (DCA).
Með möguleikum á því að skýra frá einstaka veiðiathöfnum.
Uppsetning á tilkynningum sem sendar eru milli eftirlitsstöðva.
| Upplýsingar sem senda skal: | Kóði | Krafa/ Valfrjálst | Skýringar |
| Upplýsingar skv. viðauka 2.1 sem senda skal með tilkynningunni | |||
| Upplýsingar sem skipstjóri sendir til eftirlitstöðva | |||
| Tegund tilkynningar | TM | K | Skilgreining á tilkynningu: „DCA“ |
| Eftirfarandi atriði eru sértæk fyrir þessa tegund af tilkynningum og eru fyllt út af skipstjóra og send til eftirlitsstöðva | |||
| Blokk A | Þessi hluti inniheldur aðeins upplýsingar fyrir starfsemi eins dags | ||
| Lýsing á athöfnum | AC | K | Athafnir fiskiskips í samræmi við kóða í viðauka 4. REL skal nota þegar fiski er dælt úr veiðarfæri annars skips. SET skal notað af skipum sem veiða í lagnet eða línu þegar þau eru að setja út veiðarfærin. Ekki þarf að fylla út B-hluta ef athöfnin er ANC, DRI, STE eða SET |
| Skip í samstarfi | PA | K[1] | Kallmerki skips sem stundar (tvíbura)veiðar með tilkynnanda |
| Blokk B | Þennan hluta skal fylla út fyrir hverja veiðiathöfn | ||
| Dagsetning athafnar | BD | K | Dagsetning þegar veiðiathöfn hefst (YYYYMMDD) í UTC |
| Tímasetning athafnar (klst.) | BT | K | Nákvæm tímasetning þegar veiði hefst (HHMM) í UTC |
| Breiddargráða við upphaf veiði | LT | K | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í breiddargráðum samkvæmt hnitakerfi (WGS84) |
| Lengdargráða við upphaf veiði | LG | K | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í lengdargráðum samkvæmt hnitakerfi (WGS84) |
| Upphafssvæði | ZO | K | Svæði skilgreint með breiddar- og lengdargráðum (LT/LG) (ISO-3 landskóði fyrir Ísland, Færeyjar og Noreg í samræmi við samkomulag þjóðanna) |
| Skilgreining á veiðarfæri | GS | K[2] | 1 = veitt með einni flot- eða botnvörpu 2 = veitt með tveimur flot- eða botnvörpum 3 = veitt með þremur eða fleiri flot- eða botnvörpum |
| Veiðarfæri | GE | K | FAO veiðarfærakóði |
| Veiðarfæri vandamál | GP | K[3] | 1 = engin veiði 2 = sprungið veiðarfæri 3 = rifið veiðarfæri 4 = rifinn poki 5 = týnd veiðarfæri 6 = önnur vandamál |
| Blokk B | Þennan hluta skal fylla út fyrir hverja veiðiathöfn | ||
| Breiddargráða við lok veiði | XT | K | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í breiddargráðum samkvæmt hnitakerfi (WGS84) |
| Lengdargráða við lok veiði | XG | K | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í lengdargráðum samkvæmt hnitakerfi(WGS84) |
| Lengd veiðiathafnar | DU | K | Lengd veiðiathafnar í mínútum |
| Dælt frá veiðarfæri skips | TF | K[4] | Kallmerki þess fiskiskips, sem dælt er frá |
| Umfang veiða | FO | K[5] | Heildarfjöldi öngla Heildarlengd lagneta |
| Undirflokkur | SS | K[6] | Kóði fiskstofns samkvæmt skilgreiningu í viðauka (Appendix) 3.0 (til dæmis NOR01 eða ISL01) |
| Aflamagn í veiðathöfn eftir tegundum, lífþyngd (óslægt) | CA | K[7] | Magn allra fisktegunda í veiðiathöfn flokkað niður í tegundir og þyngd. Nota skal FAO tegundakóda (SN) Lífþyngd (afli upp úr sjó) í kílógrömmum (WT) |
[1] Aðeins krafist ef veitt er með öðru skipi
[2] Aðeins krafist ef veitt er með vörpu
[3] Aðeins krafist ef um er að ræða veiðarfæravandamál.
[4] Aðeins krafist ef dælt er úr veiðarfæri annars fiskiskips.
[5] Aðeins krafist fyrir línuveiðar eða lagnet.
[6] Aðeins krafist ef skilgreind veiðistarfsemi AC er FIS og veiðin (CA) inniheldur stofna sem skráðir eru í viðauka 3.
[7] Aðeins krafist ef eitthvað hefur veiðst (skráð veiði).
Viðauki 2.4
Tilkynning um hafnkomu (POR).
Uppsetning á tilkynningum sem sendar eru milli eftirlitsstöðva.
| Upplýsingar sem senda skal | Kóði | Krafa/ Valfrjálst | Skýringar |
| Upplýsingar skv. viðauka 2.1 sem senda skal með tilkynningunni | |||
| Upplýsingar sem skipstjóri sendir til eftirlitsstöðva | |||
| Tegund tilkynningar | TM | K | Skilgreining á tilkynningu: „POR“ |
| Eftirfarandi atriði eru sértæk fyrir þessa tegund af tilkynningum og eru fyllt út af skipstjóra og send til eftirlitsstöðva | |||
| Aflamagn um borð eftir tegundum, lífþyngd (óslægt) | OB | K | Magn allra fisktegunda um borð flokkað niður í tegundir og þyngd. Nota skal tegundakóða FAO (SN) Lífþyngd (afli upp úr sjó) í kílógrömmum (WT) |
| Áætlað lestað magn að eða frá borði eftir tegundum, lífþyngd (óslægð) | KG | K | Áætlað magn sem landað verður, flokkað niður í tegundir og þyngd. Nota skal tegundakóða FAO (SN) Lífþyngd (afli upp úr sjó) í kílógrömmum (WT) |
| Höfn | PO | K | Tákn hafnar (ISO alpha-2 landskóði + 3ja stafa hafnarkóði) sem byggir á UN/LOCODE (Kóði Sameinuðu þjóðanna fyrir verslunar- og flutningahafnir) |
| Hafnarsvæði | LS | K[1] | Nafn kaupanda eða önnur lýsing sem lýsir nákvæmlega hvar löndun fer fram innan hafnarsvæðis. Skrifleg lýsing sem ekki skal vera lengri en 100 innslættir |
| Áætluð komudagsetning | PD | K | Áætluð komudagsetning til hafnar í UTC (YYYYMMDD) |
| Áætlaður komutími (klst.) | PT | K | Áætluð tímasetning til hafnar í UTC (HHMM) |
[1] Aðeins krafist ef um löndun er að ræða.
Viðauki 2.5
Tilkynning um brottför úr höfn (DEP).
Uppsetning á tilkynningum sem sendar eru milli eftirlitsstöðva
| Upplýsingar sem senda skal | Kóði | Krafa/ Valfrjálst | Skýringar |
| Upplýsingar skv. viðauka 2.1 sem senda skal með tilkynningunni | |||
| Upplýsingar sem skipstjóri sendir til eftirlitsstöðva | |||
| Tegund tilkynningar | TM | K | Skilgreining á tilkynningu: „DEP“ |
| Eftirfarandi atriði eru sértæk fyrir þessa tegund af tilkynningum og eru fyllt út af skipstjóra og send til eftirlitsstöðva | |||
| Höfn | PO | K | Tákn hafnar, (ISO alpha-2 landskóði + 3ja stafa hafnarkóði) sem byggir á UN/LOCODE (Kóði Sameinuðu þjóðanna fyrir verslunar- og flutningahafnir) |
| Brottfarardagur (dags.) | ZD | K | UTC brottfarardagsetning úr höfn (YYYYMMDD) |
| Brottfarartími (klst.) | ZT | K | UTC brottfarartími úr höfn (HHMM) |
| Aflamagn um borð eftir tegundum, lífþyngd (óslægt) | OB | K | Magn allra fisktegunda um borð flokkað niður í tegundir og þyngd. Nota skal tegundakóða FAO (SN) Lífþyngd (afli upp úr sjó) í kílógrömmum (WT) |
| Lýsing á athöfnum | AC | K | Athafnir fiskiskips í samræmi við kóða í viðauka 4 |
Viðauki 2.6
Tilkynning um lok veiða (COX).
Uppsetning á tilkynningum sem sendar eru milli eftirlitsstöðva.
| Upplýsingar sem senda skal | Kóði | Krafa/ Valfrjálst | Skýringar |
| Upplýsingar skv. viðauka 2.1 sem senda skal með tilkynningunni | |||
| Upplýsingar sem skipstjóri sendir til eftirlitsstöðva | |||
| Tegund tilkynningar | TM | K | Skilgreining á tilkynningu: „COX“ |
| Eftirfarandi atriði eru sértæk fyrir þessa tegund af tilkynningum og eru fyllt út af skipstjóra og send til eftirlitsstöðva | |||
| Aflamagn um borð eftir tegundum, lífþyngd (óslægt) | OB | K | Magn allra fisktegunda um borð flokkað eftir tegundum og þyngd. Nota skal tegundakóða FAO (SN) Lífþyngd (afli upp úr sjó) í kílógrömmum (WT) |
| Höfn | PO | K | Tákn hafnar (ISO alpha-2 landskóði + 3ja stafa hafnarkóði) sem byggir á UN/LOCODE (Kóði Sameinuðu þjóðanna fyrir verslunar- og flutningahafnir) |
Viðauki 2.7
tilkynning um siglingu í gegnum athugunarstað (CON).
Uppsetning á tilkynningum sem sendar eru milli eftirlitsstöðva
| Upplýsingar sem senda skal | Kóði | Krafa/ Valfrjálst | Skýringar |
| Upplýsingar skv. viðauka 2.1 sem senda skal með tilkynningunni | |||
| Upplýsingar sem skipstjóri sendir til eftirlitsstöðva | |||
| Tegund tilkynningar | TM | K | Skilgreining á tilkynningu: „CON“ |
| Eftirfarandi atriði eru sértæk fyrir þessa tegund af tilkynningum og eru fyllt út af skipstjóra og send til eftirlitsstöðva | |||
| Nafn á athugunarstað | CP | K | Sjá reglugerð um eftirlitsstaði erlendra skipa vegna veiða og siglinga í íslenskri fiskveiðilögsögu |
| Breiddargráða | LT | K[1] | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í breiddargráðum samkvæmt hnitakerfi (WGS84) |
| Lengdargráða | LG | K[2] | Staðsetning skips við sendingu tilkynningar í lengdargráðum samkvæmt hnitakerfi (WGS84) |
| Áætluð dagsetning | PD | K | Áætluð dagsetning sem skipstjóri gerir ráð fyrir að nálgast athugunarstað í UTC (YYYYMMDD) |
| Áætluð tímasetning (klst.) | PT | K | Áætluð tímasetning (klst.), sem skipstjóri gerir ráð fyrir að nálgast athugunarstað í UTC (HHMM) |
[1] Aðeins krafist ef liður CP er athugunarsvæði.
[2] Aðeins krafist ef liður CP er athugunarsvæði.
Viðauki 3
Staðfesting á móttöku tilkynningar (RET).
Uppsetning á staðfestingarskeyti milli eftirlitsstöðva.
| Upplýsingar sem senda skal | Kóði | Krafa/ Valfrjálst | Skýringar |
| Heimilisfang viðtakanda | AD | K | Alpha-3 ISO landstákn viðkomandi móttakanda |
| Sent frá | FR | K | Alpha-3 ISO landstákn viðkomandi sendanda |
| Kallmerki | RC | K | Alþjóðlegt kallmerki viðkomandi fiskiskips sem afritað er úr móttekinni tilkynningu |
| Raðnúmer tilkynningar | SQ | K[1] | Raðnúmer tilkynningar frá viðkomandi skipi á viðeigandi ári, sem afritað er úr móttekinni tilkynnningu |
| Tegund tilkynningar | TM | K | Tilkynning skilgreind sem „RET“ þ.e. staðfestingarskeyti |
| Staða gagnvart svari | RS | K | Kóði sem sýnir hvort skeyti hefur verið móttekið eða ekki (ACK eðar NAK) |
| Kóði fyrir villur í skeyti | RE | V | Númer sem sýnir hvaða villa kom fram (sjá viðauka 2.1) |
| Númer skeytis sem áður hefur borist | RX | K[2] | Númer fyrra skeytis afritað úr skeyti sem er að berast |
| Númer skeytis | RN | K | Skeytisnúmer afritað úr skeyti sem er að berast |
| Dagsetning | DA | K | Dagsetning þegar RET skeyti er sent í UTC (YYYYMMDD) |
| Tímasetning (klst.) | TI | K | Tímasetning (klst.) þegar RET skeyti er sent í UTC (HHMM) |
| Athugasemdir | MS | V | Valfrjáls texti með upplýsingum |
[1] Aðeins krafist ef SQ kemur fram í tilkynningu frá fiskiskipi.
[2] Aðeins krafist ef RX kemur fram í tilkynningu frá fiskiskipi.
Viðauki 4
Meginathafnir fiskiskips.
| Kóði | Lýsing á athöfn |
| ANC | Liggur við akkeri |
| DRI | Rekur með straumum |
| FIS | Við veiðar |
| GUD | Aðstoðarskip |
| HAU | Dregur inn veiðarfæri |
| PRO | Er að vinna úr afla |
| REL | Dæling á afla úr veiðarfæri annars skips |
| SCR | Unnið við rannsóknir |
| SET | Verið að leggja veiðarfæri |
| STE | Á siglingu |
| TRX | Umskipun í gangi |
| OTH | Önnur starfsemi |
| SEF | Leitar að fiski án notkunar veiðarfæra |
| INW | Heldur sjó vegna veðurs |