Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (IV).

1. gr. Gildistaka reglugerðar framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1224/2012.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1224/2012 frá 18. desember 2012 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004 skal öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2013 frá 3. maí 2013 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) og bókun 37 við EES-samninginn, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum, og bókun 1 við EES-samninginn.

Reglugerðin skal gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

2. gr. Efni.

Í reglugerð þessari er mælt fyrir um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og velferðarráðuneytið fer með.

Í reglugerð nr. 1099/2013 er kveðið á um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 443/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (réttindi úr lífeyrissjóðum og til barnabóta (I)) og fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með.

3. gr. Fylgiskjöl.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2013 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 61 frá 31. október 2013, bls. 48 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1224/2013, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 28, frá 16. maí 2013, bls. 369, eru birtar sem fylgiskjöl með reglugerð þessari.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, og 55. gr., sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 25. nóvember 2013.

Eygló Harðardóttir Kristján Þór Júlíusson
félags- og húsnæðismálaráðherra. heilbrigðisráðherra.

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.

Fylgiskjal 1

ÁKVÖRÐUN SAMEIGINLEGU EES-NEFNDARINNAR

nr. 81/2013 frá 3. maí 2013

um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn

SAMEIGINLEGA EES-NEFNDIN HEFUR TEKIÐ NEÐANGREINDA ÁKVÖRÐUN

með vísan til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, er nefnist „EES-samningurinn“ í því sem hér fer á eftir, einkum ákvæða 98. gr., og að teknu tilliti til eftirfarandi:

  1. Fella ber inn í EES-samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1224/2012 frá 18. desember 2012 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004 (1).
  2. VI. viðauki við EES-samninginn breytist því í samræmi við það.

ÁKVÖRÐUNIN ER SVOHLJÓÐANDI:

1. gr.

Eftirfarandi undirliður bætist við í 1. lið (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004) og 2. lið (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009) í VI. viðauka við EES-samninginn:

„– 32012 R 1224: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1224/2012 frá 18. desember 2012 (Stjtíð. ESB L 349, 19.12.2012, bls. 45).“

2. gr.

Íslenskur og norskur texti reglugerðar (ESB) nr. 1224/2012, sem verður birtur í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, telst fullgiltur.

3. gr.

Ákvörðun þessi öðlast gildi 4. maí 2013, að því tilskildu að allar tilkynningar samkvæmt 1. mgr. 103. gr. EES-samningsins hafi borist sameiginlegu EES-nefndinni (*).

4. gr.

Ákvörðun þessi skal birt í EES-deild Stjórnartíðinda Evrópusambandsins og EES-viðbæti við þau.

Gjört í Brussel 3. maí 2013.

Fyrir hönd sameiginlegu EES-nefndarinnar

Gianluca Grippa formaður.

(1) Stjtíð. ESB L 349, 19.12.2012, bls. 45.

(*) Engin stjórnskipuleg skilyrði gefin til kynna.

Fylgiskjal 2

REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (ESB) nr. 1224/2012

frá 18. desember 2012

um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa og á

reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004

(Texti sem varðar EES og Sviss)

FRAMKVÆMDASTJÓRN EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,

með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins,

með hliðsjón af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 frá 29. apríl 2004 um samræmingu almannatryggingakerfa (1),

með hliðsjón af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 frá 16. september 2009 sem kveður á um framkvæmd

reglugerðar (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almanna-tryggingakerfa (2), einkum 92. gr., og að teknu tilliti til eftirfarandi:

  1. Í því skyni að taka tillit til tiltekinna breytinga á löggjöf sumra aðildarríkja, eða óskar þeirra um að einfalda beitingu samræmingarkerfisins sem um getur í reglugerð (EB) nr. 883/2004 og reglugerð (EB) nr. 987/2009 lögðu aðildarríkin fram beiðnir til framkvæmdaráðs um samræmingu almannatryggingakerfa um breytingar á tilteknum viðaukum við reglugerð (EB) nr. 883/2004 og við reglugerð (EB) nr. 987/2009.
  2. Framkvæmdaráð um samræmingu almannatryggingakerfa hefur samþykkt umbeðnar breytingar og komið viðeigandi tillögum um tæknilega aðlögun viðaukanna til framkvæmdastjórnarinnar.
  3. Framkvæmdastjórnin getur fallist á viðeigandi tillögur.
  4. Því ber að breyta reglugerð (EB) nr. 883/2004 og reglugerð (EB) nr. 987/2009 til samræmis við það.

SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:

1. gr.

Reglugerð (EB) nr. 883/2004 er breytt sem hér segir:

  1. Ákvæðum VI. viðauka er breytt sem hér segir:

    1. Eftirfarandi nýir þættir bætist við á eftir þættinum „LETTLAND“:

      „UNGVERJALAND

      Frá og með 1. janúar 2012, samkvæmt lögum CXCI frá 2011 um bætur til einstaklinga með breytta vinnufærni og breytingar á tilteknum öðrum gerðum:

      1. endurhæfingarbætur,
      2. örorkubætur.

        SLÓVAKÍA

        Örorkulífeyrir fyrir einstakling, sem varð fatlaður sem barn eða meðan á fullu doktorsnámi stóð áður en viðkomandi einstaklingur náði 26 ára aldri, og sem er ávallt talinn hafa lokið því tryggingatímabili sem krafist er (70. gr. (2. mgr.) 72. gr. (3. mgr.) og 73. gr. (3. og 4. mgr.) laga nr. 461/2003 um félagslegar tryggingar, með áorðnum breytingum).“

    2. Í þættinum „SVÍÞJÓГ komi orðin „(34. kafli laga um almannatryggingar (2010:110))“ í stað orðanna „(lög 1962:381 eins og þeim var breytt með lögum 2001:489)“.
    3. Eftirfarandi komi í stað þáttarins „BRESKA KONUNGSRÍKIГ:

      „BRESKA KONUNGSRÍKIÐ

      Atvinnuleysis- og stuðningsgreiðsla

      1. Stóra-Bretland
        1. hluti velferðarlaga (Welfare Reform Act) 2007.
      2. Norður-Írland 1. hluti velferðarlaga (Welfare Reform Act) (Norður-Írland) 2007.“
  2. Ákvæðum VIII. viðauka er breytt sem hér segir:

    1. Í 1. hluta er þættinum „AUSTURRÍKI“ breytt sem hér segir:

      1. Í stað „c-liðar“ komi eftirfarandi: „c) Allar umsóknir um eftirlifendalífeyri á grundvelli lífeyrisreiknings samkvæmt lögum um almennan lífeyri (Allgemeines Pensionsgesetz (APG)) frá 18. nóvember 2004, nema þegar um er að ræða tilvik sem falla undir 2. hluta.“
      2. Eftirfarandi g-liður bætist við: „g) Allar umsóknir um bætur skv. tryggingalögum lögbókenda (Notarversicherungsgesetz) frá 3. febrúar 1972 - NVG 1972.“
    2. Í stað þáttarins „SVÍÞJÓГ í 1. hluta komi eftirfarandi:

      „SVÍÞJÓÐ

      1. Umsóknir um lágmarkslífeyri í formi ellilífeyris (66. og 67. kafli laga um almannatryggingar (2010:110).
      2. Umsóknir um lágmarkslífeyri í formi eftirlifandaífeyris (81. kafli laga um almannatryggingar

        (2010:110).“

    3. Í 2. hluta bætist eftirfarandi nýr þáttur við á eftir þættinum „BÚLGARÍA“:

      „DANMÖRK

      1. Séreignalífeyrir.
      2. Bætur vegna andláts (á grundvelli framlaga til Arbejdsmarkedets Tillægspension varðandi tímabilið fyrir 1. janúar 2002).
      3. Bætur vegna andláts (á grundvelli framlaga til Arbejdsmarkedets Tillægspension varðandi tímabilið fyrir 1. janúar 2002), sem um getur í samsteyptum lögum um viðbótarlífeyri vinnumarkaðarins (Arbejdsmarkedets Tillægspension) 942:2009.“
    4. Í stað þáttarins „SVÍÞJÓГ í 2. hluta komi eftirfarandi:

      „SVÍÞJÓÐ

      Tekjutengdur lífeyrir og séreignarlífeyrir (62. og64. kafli laga um almannatryggingar (2010:110)).“

  3. Ákvæðum IX. viðauka er breytt sem hér segir:

    1. Í I. hluta, í þættinum „SVÍÞJÓГ, komi orðin „(34. kafli laga um almannatryggingar (2010:110))“ í stað orðanna „(lög 1962:381)“.
    2. Í þættinum „SLÓVAKÍA“ í II. hluta falli b-liður niður.
    3. Í stað þáttarins „SVÍÞJÓГ í II. hluta komi eftirfarandi: „SVÍÞJÓÐ Sjúkrabætur og ástundunargreiðsla í formi lágmarksbóta (35. kafli laga um almannatryggingar (2010:110)). Ekkjulífeyrir, sem reiknaður er á grundvelli tryggingatímabila sem færð hafa verið til tekna (84. kafli laga um almannatryggingar (2010:110)).“

2. gr.

Reglugerð (EB) nr. 987/2009 er breytt sem hér segir:

  1. Í I. viðauka falli brott a-liður þáttarins „SPÁNN - PORTÚGAL“.
  2. Ákvæðum 3. viðauka er breytt sem hér segir:

    1. Þættirnir „ÍTALÍA“ og „MALTA“ falli brott.
    2. Nýr þáttur „KÝPUR“ bætist við á eftir þættinum „SPÁNN“.
  3. Í 5. viðauka bætist við nýr þáttur „DANMÖRK“ á eftir þættinum „TÉKKLAND“.

3. gr.

Reglugerð þessi öðlast gildi á tuttugasta degi eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.

Gjört í Brussel 18. desember 2012.

Fyrir hönd framkvæmdastjórnarinnar,

forseti.

José Manuel Barroso

(1) Stjtíð. ESB L 166, 30.4.2004, bls. 1.

(2) Stjtíð. ESB L 284, 30.10.2009, bls. 1.