Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um útdráttarleysa til notkunar við framleiðslu matvæla og innihaldsefna í matvælum.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um útdráttarleysa sem eru notaðir eða ætlaðir til notkunar við framleiðslu matvæla eða innihaldsefna matvæla. Hún gildir þó ekki um útdráttarleysa sem notaðir eru við framleiðslu aukefna í matvælum, vítamína og annarra viðbættra næringarefna, nema þau sem talin eru upp í I. viðauka.

Notkun aukefna, vítamína og annarra viðbættra næringarefna má þó ekki leiða til þess að matvæli innihaldi leifar útdráttarleysa í þeim mæli að heilbrigði manna stafi hætta af.

Hún gildir ekki um útdráttarleysa eða matvæli sem eru ætluð til útflutnings til landa utan Evrópska efnahagssvæðisins.

2. gr.

Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:

  1. Leysir: efni til að leysa upp matvæli eða einhvern efnisþátt þeirra, þar með talin aðskotaefni sem fyrirfinnast í eða á þeim matvælum.
  2. Útdráttarleysir: leysiefni sem notað er við útdrátt við vinnslu á matvælum eða efnisþáttum þeirra og er fjarlægt, en leifar efnisins kunna þó að fyrirfinnast í matvælunum eða efnisþáttum þeirra af tæknilegum ástæðum.

3. gr.

Matvælafyrirtæki, hvort heldur er innlendur framleiðandi eða innflytjandi, er ábyrgt fyrir því að útdráttarleysar til notkunar í matvælaiðnaði séu í samræmi við ákvæði þessarar reglugerðar.

4. gr.

Efni sem talin eru upp í I. viðauka má nota sem útdráttarleysa við framleiðslu á matvælum eða innihaldsefnum þeirra samkvæmt notkunarskilyrðum og, þar sem við á, innan þeirra marka sem eru tilgreind sem hámarksmagn leifa í þeim viðauka. Engin önnur efni skulu leyfð og tilgreint hámarksmagn skal ekki gilda um önnur efni en þar er kveðið á um.

Vatn, sem kann að innihalda efni til að jafna sýrustig, og önnur efni í matvælum sem hafa eiginleika leysa er heimilt að nota sem útdráttarleysa við framleiðslu á matvælum eða innihaldsefnum þeirra.

5. gr.

Tryggja skal að útdráttarleysir innihaldi ekki:

  1. Eiturefni í þeim mæli að hætta kunni að stafa af.
  2. Meira en 1 mg/kg af arseni eða meira en 1 mg/kg af blýi.

Útdráttarleysar skulu vera í samræmi við skilgreiningar á eiginleikum og hreinleika útdráttarleysa sem gilda á EES-svæðinu í þeim tilvikum sem þessir eiginleikar hafa verið skilgreindir.

6. gr.

Óheimilt er að setja á markað efnin sem talin eru upp í I. viðauka og eru ætluð til notkunar sem útdráttarleysar í matvælum, nema á umbúðum, ílátum og merkimiðum séu eftirfarandi upplýsingar og skulu þær vera vel sýnilegar, auðlæsar og óafmáanlegar:

  1. Vöruheiti eins og það er gefið upp í I. viðauka,
  2. skýr ábending um að efnið henti, hvað gæði og hreinleika varðar, við útdrátt á matvælum eða innihaldsefnum þeirra,
  3. auðkenni framleiðslulotu,
  4. heiti eða fyrirtækjaheiti og heimilisfang framleiðanda, pökkunaraðila eða seljanda með aðsetur á Evrópska efnahagssvæðinu,
  5. nettómagn í rúmmálseiningum,
  6. ef þörf krefur, geymslu- og notkunarskilyrði.

Heimilt er að upplýsingarnar sem getið er um í liðum c-f komi fram í viðskiptaskjölum viðkomandi vöru, sem látin skulu í té fyrir eða við afhendingu.

Upplýsingar þessar skulu vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli, öðru en finnsku, en þó er heimilt að upplýsingar séu gefnar á fleiri en einu tungumáli.

Skilyrði þessarar greinar gilda með fyrirvara um aðrar reglugerðir er gilda um flokkun, pökkun og merkingu hættulegra efna og efnablandna.

7. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir hafa undir yfirumsjón Matvælastofnunar, eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerð þessi fellir úr gildi reglugerð nr. 289/1994 um leysiefni til notkunar í matvælaiðnaði. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Höfð er hliðsjón af tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2009/32 og tilskipun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2010/59.

I. Viðauki

Heimilaðir útdráttarleysar við vinnslu á hráefnum, matvælum, efnisþáttum í matvælum eða innihaldsefnum þeirra.

I. HLUTI Útdráttarleysar til alhliða nota, notaðir í samræmi við góða framleiðsluhætti (1)

Efnaheiti:

Própan

Bútan

Etýlasetat

Etanól

Koltvísýringur

Aseton ([2]) Nituroxíð

II. HLUTI Útdráttarleysar notaðir samkvæmt sérstökum skilyrðum.

Efnaheiti Notkunarskilyrði (stutt lýsing á útdrættinum) Hámarksgildi leifa í matvælum, sem fengin eru með útdrætti, eða innihaldsefnum þeirra
Hexan ([3]) Framleiðsla og þætting á fitum og olíum og framleiðsla á kakósmjöri 1 mg/kg í fitunni, olíunni eða kakósmjörinu
Tilreiðsla á fitusneyddum prótínafurðum og fitusneyddu mjöli 10 mg/kg í matvælunum sem innihalda fitusneyddar prótínafurðir og fitusneytt mjöl
30 mg/kg í fitusneyddu sojaafurðunum eins og þær eru seldar til neytenda
Tilreiðsla á fitusneyddu kornkími 5 mg/kg í fitusneydda kornkíminu
2-metýloxólan Framleiðsla eða þætting fitu og olíu og framleiðsla á kakósmjöri 1 mg/kg í fitu eða olíu eða kakósmjöri
Tilreiðsla á fitusneyddum prótínafurðum og fitusneyddu mjöli 10 mg/kg í matvælum sem innihalda fitusneyddar prótínafurðir og fitusneytt mjöl
30 mg/kg í fitusneyddum sojaafurðum eins og þær eru seldar til lokaneytanda
Tilreiðsla á fitusneyddu kornkími 5 mg/kg í fitusneyddu kornkími
Metýlasetat Koffínsneyðing eða fjarlæging ertandi efna eða beiskjuefna úr kaffi og tei 20 mg/kg í kaffinu eða teinu
Framleiðsla sykurs úr melassa 1 mg/kg í sykrinum
Etýlmetýlketón ([4]) Þætting á fitum og olíum 5 mg/kg í fitunni eða olíunni
Koffínsneyðing eða fjarlæging ertandi efna eða beiskjuefna úr kaffi og tei 20 mg/kg í kaffinu eða teinu
Díklórmetan Koffínsneyðing eða fjarlæging ertandi efna eða beiskjuefna úr kaffi og tei 2 mg/kg í brennda kaffinu og 5 mg/kg í teinu
Dímetýleter Tilreiðsla á fitusneyddum prótínafurðum úr dýrum, þ.m.t. gelatíni (*) 0,009 mg/kg í fitusneyddum prótínafurðum úr dýrum, þ.m.t. gelatín
Tilreiðsla á kollageni (**) og kollagenafleiðum, að frátöldu gelatíni 3 mg/kg í kollageni og kollagenafleiðum, að frátöldu gelatíni
Metanól Til alhliða notkunar 10 mg/kg
Própan-2-ól Til alhliða notkunar 10 mg/kg

(*) "Gelatín": náttúrulegt, leysanlegt prótín, hvort sem það myndar hlaup eða ekki, sem fæst með vatnsrofi að hluta til á kollageni sem er framleitt úr beinum, húðum og skinnum og sinum dýra, í samræmi við viðeigandi kröfur í reglugerð (EB) nr. 853/2004.
(**) "Kollagen": afurð, að stofni til úr prótíni, sem er unnin úr beinum, húðum, skinnum og sinum dýra og framleidd í samræmi við viðeigandi kröfur í reglugerð (EB) nr. 853/2004.

III. HLUTI Útdráttarleysar notaðir samkvæmt sérstökum skilyrðum.

Efnaheiti Hámarksgildi leifa í matvælum vegna notkunar á útdráttarleysum við tilreiðslu á bragðefnum úr náttúrulegum bragðefnum
Díetýleter 2 mg/kg
Hexan ([5]) 1 mg/kg
2-metýloxólan 1 mg/kg
Sýklóhexan 1 mg/kg
Metýlasetat 1 mg/kg
Bútan-1-ól 1 mg/kg
Etýlmetýlketón (3) 1 mg/kg
Díklórmetan 0,02 mg/kg
Metanól 1,5 mg/kg
Própan-1-ól 1 mg/kg
Própan-2-ól 1 mg/kg
1,1,1,2-tetraflúoretan 0,02 mg/kg

[1] Útdráttarleysir telst notaður í samræmi við góða framleiðsluhætti ef eftir notkun fyrirfinnast einungis leifar eða afleiður sem tæknilega var óhjákvæmilegt að yrðu eftir og heilbrigði manna stafar engin hætta af.

[2] Óheimilt er að nota aseton við hreinsun ólífuhratolíu.

[3] Hexan merkir verslunarvöru sem samanstendur aðallega af keðjulaga mettuðum vetniskolefnum sem innihalda sex kolefnisatóm og eimast á milli 64°C og 70°C. Samþætt notkun hexans og etýlmetýlketóns er bönnuð.

[4] Innihald n-hexans í þessum leysi skal ekki fara yfir 50 mg/kg. Samþætt notkun hexans og etýlmetýlketóns er bönnuð.

[5] Samþætt notkun hexans og etýlmetýlketóns er bönnuð.

IV. HLUTI

Sértæk hreinleikaskilyrði fyrir útdráttarleysa sem eru tilgreindir í I. viðauka:

2-metýloxólan

CAS-númer 96-47-9
Magngreining Innihald minnst 99,9%, gefið upp miðað við þurrt efni
Hreinleiki
Fúran Ekki meira en 50 mg/kg (gefið upp miðað við þurrt efni)
2-metýlfúran Ekki meira en 500 mg/kg (gefið upp miðað við þurrt efni)
Etanól Ekki meira en 450 mg/kg (gefið upp miðað við þurrt efni)