Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um starfrækslu og lofthæfi loftfars í opinberum rekstri.

1. gr. Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að tryggja örugga starfrækslu og áframhaldandi lofthæfi loftfara sem skráð eru hér á landi en falla ekki undir reglur Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) með því að kveða á um sambærilegar kröfur og gerðar eru til annarra loftfara hér landi.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til starfrækslu loftfars sem skráð er hér á landi, en fellur ekki undir reglur Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA), á meðan það sinnir lög- og tollgæslu, leit og björgun, slökkvistarfi, landhelgisgæslu eða sambærilegu verkefni.

Reglugerð þessi tekur ekki til annarra loftfara sem falla undir II. viðauka fylgiskjals I við reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA).

3. gr. Lofthæfi og starfræksla.

Flugmálastjórn Íslands gefur út sérstakt lofthæfiskírteini fyrir loftfar sem fellur undir reglugerðina og sem uppfyllir að öðru leyti kröfur laga um loftferðir.

Rekstraraðili loftfars sem fellur undir reglugerðina skal hafa útgefið sérstakt flugrekendaskírteini frá Flugmálastjórn að uppfylltum skilyrðum þar um.

Rekstraraðili loftfars skal hafa viðhaldsstjórn sem samþykkt er af Flugmálastjórn.

Um eftirlit með loftfari og starfsemi sem fellur undir reglugerðina fer skv. ákvæðum laga um loftferðir og laga um Flugmálastjórn Íslands.

4. gr. Kröfur.

Um lofthæfi og starfrækslu loftfars skv. reglugerð þessari skulu gilda sömu kröfur og gerðar eru til reksturs annarra loftfara skv. lögum um loftferðir og reglugerðum settum skv. þeim að því marki sem slíkt er heimilt sbr. þó frávik eða kröfur sem leiða af viðaukum við reglugerð þessa.

Um flugrekstur og útgáfu flugrekandaskírteinis skv. reglugerð þessari skulu gilda sömu kröfur og gerðar eru til flugrekstrar og skírteinis skv. ákvæðum laga um loftferðir og reglugerða settra samkvæmt þeim að því marki sem heimilt er sbr. þó frávik eða kröfur sem leiða af viðaukum við reglugerð þessa.

Um skírteini einstaklinga, flugliða og flugvéltækna skv. reglugerð þessari skulu gilda sömu kröfur og gerðar eru skv. lögum um loftferðir og reglugerðum settum skv. þeim að því marki sem slíkt er heimilt sbr. þó frávik eða kröfur sem leiða af viðauka við reglugerð þessa.

Þar sem í texta reglugerða skv. 1.-3. mgr. er í innleiddum reglum tilvísun í "flutningaflug" skal lesa hana sem tilvísun í "loftfar í opinberum rekstri". Ef tilvísun er til "aðildarríkis" getur verið að hún eigi ekki við eða eigi við um Flugmálastjórn Íslands. Ef vafi leikur á skal ráðfæra sig við Flugmálastjórn Íslands. Ef tilvísun er til "lögbærs yfirvalds" er átt við Flugmálastjórn Íslands.

Almennt skal styðjast við skýringarefni (AMC/GM) ákvarðana Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) við skýringu og túlkun ákvæða innleiddra gerða sem leiða af 1.-3. mgr. eins og við á. Þar sem í texta skýringarefnis er vísað til ,,Agency" eða "Competent Authority" skal það lesast sem Flugmálastjórn Íslands.

5. gr. Viðauki.

Viðaukar við reglugerð þessa eru hluti hennar. Í viðaukunum er kveðið á um þau ákvæði sem ekki taka til starfsemi skv. reglugerðinni og tilgreint hvað koma skuli í stað þeirra ákvæða.

6. gr. Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum í samræmi við 141. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir.

7. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 6. gr., 7. mgr. 28. gr., 73. gr., 85. gr. a, og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 21. desember 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Viðauki 1

Frávik frá reglugerð um flutningaflug nr. 1263/2008 með síðari breytingum.

Ákvæði Efni Frávik frá ákvæðum Ný krafa
OPS 1/3.001 Gildissvið Gildissvið OPS hluta 1 á ekki við.
OPS 1.003(b) Tilgangur reglugerðar Ákvæðið vísar í reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EC) nr. 2042/2003 og á ekki við um loftfar skv. reglugerð þessari.
OPS 1.005 Almennt Öll ákvæði EU-OPS sem fjalla um flutningaflug flugvéla skulu meðhöndluð sem starfsemi loftfara sem falla undir reglugerð þessa.
OPS 3.005 Almennt Öll ákvæði JAR-OPS 3 sem fjalla um flutningaflug þyrlna skulu meðhöndluð sem starfsemi loftfara skv. reglugerð þessari. Sjúkraflug þyrlna skal starfrækt eins og kostur er í samræmi við ákvæði JAR-OPS 3. Rekstraraðili skal setja fram verklagsreglur fyrir sjúkraflug þyrlna sem skulu samþykktar af Flugmálastjórn Íslands.
OPS 1/3.065 Flutningur vopna og skotfæra til hernaðar Ákvæðið á ekki við. Rekstraraðili skal fylgja verkferlum sem skulu skilgreindir í flugrekstrarhandbók.
OPS 1/3.070 Flutningur sportvopna og skotfæra Ákvæðið á ekki við. Rekstraraðili skal fylgja verkferlum sem skulu skilgreindir í flugrekstrarhandbók.
OPS 1/3.165 Leiga Ákvæðið á ekki við. Þurrleiga og blautleiga loftfars skulu háðar samþykki Flugmálastjórnar og meðhöndluð sérstaklega.

OPS

1/3.175(o)

Tæknikröfur Ákvæðið vísar í M-hluta viðhaldskrafna. Rekstraraðili skal fara að kröfum um viðhald í samræmi við reglugerð þessa sem gildir um öll loftför sem starfrækt eru skv. skilmálum flugrekendaskírteinis.
O-hluti OPS Þjónustuliðar Ákvæðið á ekki við. Rekstraraðili skal setja fram verklagsreglur og þjálfunarkröfur fyrir aðra áhafnarmeðlimi en flugmenn í flugrekstrarhandbók. Þjálfunin skal vera í meginatriðum byggð upp í samræmi við EU-OPS kafla O en aðlöguð að starfsemi rekstraraðila. Þjálfunaráætlun og námsskrá skal samþykkt af Flugmálastjórn.
E-hluti OPS Starfræksla í skertu skyggni Ákvæðið á við öll flug nema þau sem flokkast sem neyðarflug / leitar- og björgunarflug. Rekstraraðili skal setja fram verklagsreglur í flugrekstrarhandbók um starfrækslu loftfara í skertu skyggni í tengslum við neyðarflug og leit og björgun.
R-hluti OPS Hættulegur varningur Rekstraraðili skal starfa eins og kostur er í samræmi við ákvæði R-kafla. Rekstraraðili skal setja fram verklagsreglur og þjálfunarkröfur varðandi flutning á hættulegum varningi. Verklagsreglurnar skulu fjalla sérstaklega um flutning á hættulegum varningi í neyðarflugum og/eða leit og björgun.
S-hluti OPS Flugvernd Ákvæðið á ekki við. Um flugvernd skal fara í samræmi við flugverndaráætlun Íslands.

Viðauki 2

Frávik frá reglugerð um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, nr. 206/2007 með síðari breytingum.

Ákvæði Efni Frávik frá ákvæðum Ný krafa
M.A.201 (f) Ábyrgðaskylda Flugmálastjórn Íslands gefur út þjóðar samþykki samkvæmt G-kafla M.A. (rg. 206/2007) sambærilegt og EASA-eyðublað nr. 14.

Rekstraraðili skal vera með samþykki til að gefa út

lofthæfistaðfestingarvottorð eða óska eftir því við Flugmálastjórn Íslands að hún gefi út slíkt vottorð fyrir þau loftför sem fyrirhugað er að taka í rekstur eftir því sem við á.

M.A.201 (g) Ábyrgðaskylda Flugmálastjórn getur viðurkennt annað fyrirkomulag heldur en að viðhald íhluta sé framkvæmt af tilhlýðilegum viðhaldsfyrirtækjum með samþykki skv. 145. hluta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2042/2003, í þeim tilfellum þar sem viðhald er framkvæmt af framleiðanda sérhæfðra íhluta þar sem fyrir liggur að ekki er hægt að fá viðhald skv. 145. hluta. Fyrirkomulagi skal lýst í starfsemislýsingarhandbók sem tilgreint er í G-kafla M.A. (rg. 206/2007) og skal það hljóta samþykki Flugmálastjórnar Íslands.
M.A.304 Gögn í tengslum við breytingar og viðgerðir Flugmálastjórn getur viðurkennt önnur gögn en þau sem Flugöryggisstofnunin eða hönnunarfyrirtæki með samþykki skv. 21. hluta samþykkir, sem samþykkt hafa verið fyrir hlutaðeigandi tegund loftfara af flugmálastjórnum eða hönnunarfyrirtækjum annarra ríkja.

Fyrirkomulagi skal lýst í starf-

semislýsingarhandbók sem tilgreint er í G-kafla M.A. (rg. 206/2007 með síðari breytingum) og skal það samþykkt af Flugmálastjórn Íslands.

Önnur gögn geta t.d. verið viðbótartegundarskírteini (STC) samþykkt af FAA í Bandaríkjunum eða Transport Canada og hönnunargögn sem samþykkt hönnunarfyrirtæki (DOA) í ríkjum sem Flugmálastjórn viðurkennir hefur samþykkt.

M.A.501 (a) Íhlutir – ísetning Setja má íhlut í sem ekki er með EASA-eyðublaði nr. 1 eða sambærilegu eyðublaði í þeim tilfellum þar sem viðhald hefur farið fram hjá framleiðanda íhlutarins og fyrir liggur að ekki er hægt að fá viðhald skv. 145. hluta. Íhluturinn skal hafa viðunandi viðhaldsvottorð og vera að öðru leyti í samræmi við aðrar viðeigandi viðhalds- og rekstrarkröfur. Rekstraraðili skal tryggja að viðhaldsfyrirtæki með samþykki skv. 145. hluta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2042/2003 sem setur íhlutinn í, geti sérstaklega í viðhaldsvottuninni um frávik frá 145. hluta og skal rekstraraðili samþykkja fyrir sitt leyti á afhendingarvottorðinu.
M.A.711 Réttindi fyrirtækisins

Réttindi rekstraraðila snýr eingöngu að loftförum er falla undir reglugerð þessa.

Útgáfa á flugleyfi á ekki við.

Rekstraraðili skal vera með samþykki til að gefa út

lofthæfistaðfestingarvottorð eða óska eftir því við Flugmálastjórn Íslands að hún gefi út vottorð fyrir þau loftför sem fyrirhugað er að taka í rekstur eftir því sem við á.

M.A.801 (a)

Afhendingarvottorð (viðhaldsvottorð) fyrir

loftför

Þegar fyrirtæki skv. 145 hluta gefur út viðhaldsvottorð fyrir loftför er falla undir reglugerð þessa eftir leiðarviðhald eða aðalviðhald er það viðhaldsvottorð ekki með gagnkvæma viðurkenningu EASA aðildarríkja.

Viðhaldsfyrirtæki með samþykki skv. 145. hluta skal setja eftirfarandi yfirlýsingu í neðanmálsgrein viðhaldsvottunar:

“The above certificate of release to service is issued in accordance with the Icelandic regulation 1185/2012 and is not subject to mutual recognition between EASA MS (States Party to the EEA

Agreement).”

M.A.901 (a) Lofthæfistaðfestingarvottorð Í stað EASA-eyðublaðs 15a eða 15b, skal gefa út sambærilegt þjóðar lofthæfistaðfestingarvottorð eftir því sem við á.
M.A.903(b)

Yfirfærsla á

skráningu loftfara

Við yfirfærslu á skráningu loftfars innan ESB með gilt EASA loft-

hæfistaðfestingarvottorð 15a eða 15b má Flugmálastjórn Íslands gefa út sambærilegt þjóðarvottorð með sama gildistíma ef þess er óskað.

AMC/GM Skýringarefni

Almennt skal viðeigandi skýringarefni (AMC/GM) ákvarðana Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) eiga við um skýringar eða túlkun á reglum.

EASA-eyðublað nr. 2 og 4 má nota óbreytt.

Viðauki 3

Aðrar reglugerðir sem gilda ekki um flugrekstur eða starfrækslu loftfars skv. reglugerð þessari.

Reglugerð nr. 48/2012 um sameiginlegar reglur um flugrekstur og flugþjónustu innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Reglugerð nr. 78/2006 um skylduvátryggingar vegna loftferða með síðari breytingum.