Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um löggildingu rafiðnfræðinga.

1. gr.

Mannvirkjastofnun veitir rafiðnfræðingum löggildingu til að hanna séruppdrætti á sínu sviði. Löggildingin takmarkast við hönnun raflagna í hús með heimtaugar til og með 315 A (230/400 V).

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1. mgr. 25. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 730/2000 um löggildingu rafiðnfræðinga.