Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um skyldur og verkefni innlendra tilvísunarrannsóknarstofa vegna rannsókna á salmonellusýnum.

1. gr.

Í viðauka við reglugerð þessa er mælt er fyrir um skyldur og verkefni innlendra tilvísunarrannsóknarstofa vegna rannsókna á salmonellusýnum.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerð þessi er sett með hliðsjón af ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2004/564. Reglugerðin öðlast gildi 1. nóvember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. október 2011.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

I. Viðauki

Skyldur og verkefni tilvísunarrannsóknarstofa fyrir salmonellu í hverju landi fyrir sig (NRL) samkvæmt tilskipun 2003/99/EB og reglugerð (EB) nr. 2160/2003.[1]

  1. Almennar skyldur:

    1. Að starfa með tilvísunarrannsóknarstofu Evrópusambandsins (CRL) á verksviði sínu.[2]
    2. Að samræma, eftir því sem við á, starfsemi rannsóknarstofa sem bera ábyrgð á greiningu á sýnum, einkum í samræmi við 4., 5. og 7. gr. tilskipunar 2003/99/EB.
    3. Að samræma starfsemi rannsóknarstofa sem bera ábyrgð á greiningu á sýnum í samræmi við
      1. mgr. 12. gr. reglugerðar (EB) nr. 2160/2003.
    4. Að skipuleggja, eftir því sem við á, samanburðarprófanir á milli rannsóknarstofa, sem um getur í b- og c-lið og tryggja viðeigandi eftirfylgni slíkra samanburðarprófana.
    5. Að tryggja miðlun þeirra upplýsinga, sem tilvísunarrannsóknarstofa Evrópusambandsins (CRL) lætur í té, til Matvælastofnunar og rannsóknarstofanna sem um getur í b- og c-lið.
    6. Að veita Matvælastofnun vísinda- og tækniaðstoð á verksviði sínu.
  2. Sértæk hlutverk og skyldur:

    1. Að taka þátt, eftir því sem við á, í áætlunum um vöktun á salmonellu og næmi hennar fyrir sýklalyfjum samkvæmt tilskipun 2003/99/EB og í greiningu og prófunum m.t.t. salmonellu samkvæmt reglugerð (EB) nr. 2160/2003.
    2. Að halda, eftir því sem við á, þjálfunarnámskeið fyrir starfsfólk viðkomandi rannsóknar-stofa.
    3. Að tilkynna tilvísunarrannsóknarstofu Evrópusambandsins (CRL), eftir því sem við á, um atriði sem varða bóluefnisstofna gegn salmonellu og aðrar sértækar varnaraðferðir.
    4. Að safna gögnum og upplýsingum um starfsemi sem hefur verið þróuð og aðferðir sem eru notaðar hjá viðkomandi rannsóknarstofum og tilkynna framkvæmdastjórninni um það.
    5. Að fylgjast grannt með þróun á sviði faraldsfræði salmonellu.

[1] Með tilvísunarrannsóknarstofu í hverju landi fyrir sig er átt við enska heitið „National reference laboratories“ skammstafað NRL.

[2] Með tilvísunarrannsóknarstofu Evrópusambandsins er átt við enska heitið ,,Community reference laboratories“ skammstafað CRL.