Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um innihald IS 50V landfræðilegs gagnasafns um Ísland.

1. gr. Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að skilgreina innihald, uppbyggingu og nákvæmni landfræðilegs gagnasafns um Ísland sem nefnist IS.

Allar þekjur IS 50V skulu vera landsþekjandi. Landmælingar Íslands skulu afla nýrra gagna vegna uppbyggingar IS 50V gagnasafnsins og sjá til þess að gögnin séu endurskoðuð reglulega. Landmælingum Íslands ber að hafa gagnasafnið aðgengilegt öllum sem á þurfa að halda. Um gjaldtöku fer skv. 2. mgr. 7. gr. laga um landmælingar og grunnkortagerð.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um IS 50V gagnasafnið sem Landmælingar Íslands veita aðgang að. Tilkynnt er um nýjar útgáfur á heimasíðu stofnunarinnar.

3. gr. Uppbygging.

Gagnasafnið er byggt upp af eftirfarandi þekjum:

  1. Vatnafar.
  2. Yfirborð.
  3. Vegir og samgöngur.
  4. Örnefni.
  5. Stjórnsýslumörk.
  6. Mannvirki.
  7. Hæðarlínur og hæðarpunktar.

Í viðauka þessarar reglugerðar skal fjallað um uppbyggingu og lágmarksupplýsingar í hverri þekju IS 50V landfræðilega gagnasafnsins. Fitjur, eigindir og þekjur skulu vera skráðar samkvæmt íslenskum staðli ÍST 120:2007 Skráning og flokkun landupplýsinga - Fitjuskrá.

4. gr. Skilgreiningar.

Merking eftirtalinna orða og hugtaka í reglugerð þessari er sem hér segir:

  1. Eigind: Eiginleiki eða einkenni viðfangsefnis t.d. nákvæmni, aldur eða uppruni.
  2. Fitja: Staðtengdur hlutur sem skráður er á kort eða í landfræðilegu gagnasafni.
  3. Landupplýsingar: Upplýsingar tengdar yfirborði jarðar hvort heldur með hnitum eða auðkenni, t.d. heimilisfangi eða póstnúmeri.
  4. Landfræðileg gagnasöfn: Söfn landupplýsinga sem yfirleitt eru geymd flokkuð á tölvutæku formi og hægt er að setja fram með margskonar hætti á korti. Gögn eða upplýsingar í landfræðilegum gagnasöfnum eru flokkaðar eftir gerð í mismunandi þekjur.
  5. Landshnitakerfi: Hnitakerfi með viðmiðun sem nær til alls landsins og samanstendur af mælistöðvum á yfirborði jarðar, t.d. málmboltum.
  6. Lýsigögn: Ágrip upplýsinga um gögn og/eða þjónustu eða lýsing einkenna gagnasafna, svo sem innihalds, eiginleika eða ástands.
  7. Viðmiðun: Kennistærðir sem lýsa legu, stefnu og kvarða landshnitakerfisins á jörðinni.
  8. Þekja: Ákveðin gerð eða flokkur landupplýsinga sem mynda eina heild í landfræðilegu gagnasafni t.d. vegaþekja eða vatnafarsþekja.

5. gr. Gæði gagna.

Staðsetningarnákvæmni IS 50V gagna er mismunandi eftir uppruna þeirra. Um staðsetningarnákvæmni og gæði einstakra þekja fer samkvæmt viðauka reglugerðarinnar.

6. gr. Viðmiðunarkerfi.

IS 50V gagnasafnið skal vera í gildandi viðmiðun og landshnitakerfi á Íslandi. Gögnin eru sett fram í hornsannri Lambert keiluvörpun og hæðargildi miðast við meðalsjávarhæð.

7. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. gr. laga nr. 103/2006 um landmælingar og grunnkortagerð og öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 29. október 2009.

Svandís Svavarsdóttir.

Magnús Jóhannesson.

Viðauki

Uppbygging og lágmarksupplýsingar hverrar þekju IS 50V landfræðilegs gagnasafns.

Vatnafar.

Skilgreining: Allt sem tengist vatni eða sjó ásamt fyrirbærum sem tengjast vatnafari með hlutverki sínu, t.d. skurður.

Nákvæmni: Nákvæmni í staðsetningu skal miðast við að vera innan við ±10 metra í plani.

Gagnaöflun: Fitjurnar eru unnar eftir fjarkönnunargögnum og eigindir eru fengnar úr eldri gagnagrunni og með landgreiningu. Ár sem eru minna en 15 m á breidd skulu sýndar sem miðlína en þær sem eru breiðari skulu vera með útlínum árbakkans.

Minnsta stærð fitju: Ár lengri en 50 m skulu sýndar í IS 50V. Vötn stærri en 625 m² skulu sýnd í IS 50V.

Fitjur:

Ár og lækir.

Skurðir og veitugöng.

Stöðuvötn.

Uppsprettur.

Fossar og flúðir.

Jöklar.

Eyjar og sker.

Yfirborð (gróður).

Skilgreining: Annars vegar strjálgróið land á fyrstu stigum gróðurframvindu eða þar sem fjallagróður er ráðandi og hins vegar gróið land þar sem heildargróðurþekja er að jafnaði yfir 25%.

Nákvæmni: Nákvæmni í staðsetningu skal miðast við að vera innan við ±50 metrar í plani.

Gagnaöflun: Fitjurnar eru unnar úr fjarkönnunargögnum.

Minnsta stærð fitju: Minnsta stærð svæðis í yfirborðslaginu er 5.000 m².

Fitjur:

Strjálgróið land.

Gróið land.

Vegir og samgöngur.

Skilgreining: Samgöngur og mannvirki tengd þeim hvort sem um er að ræða á landi, sjó eða í lofti. Akvegir flokkast eftir vegnúmerakerfi Vegagerðarinnar og eru einkum flokkaðir eftir þremur þáttum: vegflokki, gerð og yfirborði.

Nákvæmni: Nákvæmni í staðsetningu skal miðast við að vera innan við ±10 metrar í plani.

Gagnaöflun: Þekjan er aðallega mæld með GPS tækni með því að aka akvegi/slóða landsins. Einstaka fitjur eru teiknaðar upp úr fjarkönnunargögnum og eru þær aðgreinanlegar frá öðrum gögnum.

Minnsta stærð fitju: 5 metrar.

Fitjur:

Vegir með vegnúmerum.

Vegir án vegnúmera.

Vegir í þéttbýli.

Ferjuleiðir.

Flugbrautir.

Örnefni.

Skilgreining: Orð eða orðasamband, á landfræðilegum punkti, línu eða svæði sem hægt er að setja á landakort og vísar til eins ákveðins staðar innan ákveðins samfélags; lands, héraðs, sveitabæjar, þéttbýlisstaðar, húss, götu, torgs, vegar, fjalls, dals, stöðuvatns, fjarðar, hafsvæðis, skers, miðs o.s.frv.

Nákvæmni: Nákvæmni í staðsetningu skal miðast við að vera innan við ±50 metrar í plani og skulu örnefni aðlöguð öðrum gögnum þar sem það á við.

Gagnaöflun: Örnefni eru að mestu fengin af útgefnum kortum Landmælinga Íslands. Leitað er til sérfræðinga Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum varðandi staðsetningu örnefna og ritháttar þegar það á við.

Fitjur:

Örnefni – mörk og svæði.

Örnefni – mannvirki.

Örnefni – samgöngur.

Örnefni – fjarskipti og veitur.

Örnefni – gróður.

Örnefni – jarðmyndun og landmótun.

Örnefni – vatnafar.

Örnefni – mælingar og jafngildislínur.

Stjórnsýslumörk (mörk og svæði).

Skilgreining: Manngerð, huglæg mörk og svæði, sem skipta landi og sjó.

Nákvæmni: Nákvæmni í staðsetningu skal vera innan við ±50 metrar í plani og skulu gögn löguð að öðrum gögnum þar sem það á við.

Gagnaöflun: Upplýsingar um stjórnsýslumörk eru að mestu unnar samkvæmt skráðum heimildum eða upplýsingum frá viðkomandi ráðuneytum eða stofnunum.

Fitjur:

Stjórnsýslusvæði.

Verndarsvæði.

Skipulagt svæði (þéttbýli).

Mannvirki.

Skilgreining: Jarðföst mannvirki, s.s. hús og aðrar byggingar eða skýli.

Nákvæmni: Nákvæmni í staðsetningu skal vera innan við ±10 metrar í plani og skulu gögn löguð að öðrum gögnum þar sem það á við.

Gagnaöflun: Fitjur eru að mestu fengnar úr fjarkönnunargögnum en einnig úr útgefnum kortum.

Fitjur:

Íbúðar-, frístunda- og gistihús.

Atvinnumannvirki.

Samkomustaðir og/eða -aðstaða.

Stofnanir.

Samgöngumannvirki.

Veitumannvirki.

Landvarnarmannvirki.

Landbúnaðarmannvirki.

Hæðarlínur.

Skilgreining: Upplýsingar er varða mælingar (s.s. landmælingar og staðsetningu fyrirbæra í landi) og jafngildislínur þ.m.t. hæðarlínur.

Nákvæmni: Nákvæmni í hæð skal miðast við að vera innan við ±10 metrar í hæð. Bil á milli hæðarlína skal að jafnaði vera 20 metrar.

Gagnaöflun: Fitjur eru fengnar með hnitun á útgefnum kortum í eða eftir fjarkönnunargögnum. Fitjur:

100 metra línur.

20 metra línur.

Formlínur.

Hæðarlíkan.