Reglugerð um hlífðarbúnað slökkviliðsmanna.
1. gr. Markmið.
Markmið með reglugerð þessari er að tryggja öryggi slökkviliðsmanna og þeirra sem skipaðir eru í slökkvilið skv. 1. og 2. mgr. 19. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.
2. gr. Skilgreiningar.
| Hlífðarbúnaður: | Allur búnaður sem ver slökkviliðsmann við störf sín, s.s. hjálmar, hlífðarhettur, hlífðarfatnaður, hanskar og skór. |
| Endingartími búnaðar: | Sá tími sem framleiðandi ætlar að búnaðurinn endist og haldi fullu öryggi. |
3. gr. Kröfur til gæða búnaðar.
Allur hlífðarbúnaður skal að lágmarki uppfylla ákvæði þeirra ÍST EN staðla sem taldir eru upp í viðauka við reglugerð þessa. Sé keyptur hlífðarbúnaður sem framleiddur er eftir öðrum stöðlum skal búnaðurinn einnig uppfylla ÍST EN staðlana. Ætíð skal miða við nýjustu útgáfu staðalsins.
Hafi verið gefinn út samhæfður staðall fyrir hlífðarbúnað skal sá búnaður vera CE-merktur og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 728/2018 um gerð persónuhlífa.
4. gr. Annar fatnaður.
Allur fatnaður sem slökkviliðsmaður klæðist undir hlífðarbúnaði skal vera úr efnum sem ekki bráðna við hita s.s. bómull eða ull.
5. gr. Kröfur til seljanda hlífðarbúnaðar.
Seljandi hlífðarbúnaðar fyrir slökkviliðsmenn skal ábyrgjast að hlífðarbúnaðurinn fullnægi öryggiskröfum á Evrópska efnahagssvæðinu í samræmi við fyrirsjáanlega og eðlilega notkun búnaðarins.
Hafi hlífðarbúnaður ekki fullgilda viðurkenningu á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. 2. mgr. 3. gr., skal sá sem framleiðir, flytur inn eða selur hlífðarbúnaðinn leita viðurkenningar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun áður en búnaðurinn er settur á markað hér á landi. Kostnaður vegna beiðni um viðurkenningu skal borinn af þeim sem óskar viðurkenningar.
Telji Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að búnaðurinn fullnægi ekki kröfum skv. 1. mgr. er stofnuninni heimilt að banna sölu hans.
6. gr. Upplýsingar um hlífðarbúnað.
Með öllum hlífðarbúnaði sem seldur er skulu fylgja greinargóðar upplýsingar á íslensku um notkunarsvið hans, viðhald, þrif á búnaðinum og um ætlaðan endingartíma.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skal gefa út leiðbeiningar um hvernig meta skuli skemmdir á hlífðarbúnaði.
7. gr. Breytingar á hlífðarbúnaði.
Óheimilt er að gera þær breytingar á hlífðarbúnaði sem skert geta notagildi eða öryggi hans.
8. gr. Hlífðarbúnaður tekinn úr notkun.
Hlífðarbúnaður sem ekki uppfyllir grunnkröfur reglugerðar nr. 728/2018 um gerð persónuhlífa skal tekinn úr notkun.
Hlífðarbúnaður sem hefur orðið fyrir skemmdum sem geta haft áhrif á öryggi slökkviliðsmanns skal tafarlaust tekinn úr umferð.
Taka skal úr umferð hlífðarbúnað sem kominn er fram yfir ætlaðan endingartíma.
9. gr. Viðurlög.
Brot gegn ákvæðum þessarar reglugerðar varða refsingum samkvæmt 34. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.
10. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 39. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 186/1984 um hlífðarbúnað slökkviliðsmanna, með síðari breytingum.
Ákvæði til bráðabirgða.
Hlífðarbúnaður sem er í notkun við gildistöku reglugerðar þessarar og uppfyllir ekki ákvæði hennar skal tekinn úr notkun eigi síðar en 1. september 2010. Þetta gildir þó ekki ef 2. mgr. 8. gr. á við um búnaðinn.
Viðauki
Listi yfir nöfn staðla sem hlífðarbúnaður skal uppfylla.
- ÍST EN 443 – Hjálmar fyrir slökkviliðsmenn (Helmets for firefighters).
- ÍST EN 469 – Hlífðarfatnaður fyrir sökkviliðsmenn - Kröfur og prófunaraðferðir fyrir hlífðarfatnað fyrir slökkvistarf (Protective clothing for firefighters - Requirements and test methods for protective clothing for firefighting).
- ÍST EN 659 – Hlífðarhanskar fyrir slökkviliðsmenn (Protective gloves for firefighters).
- ÍST EN 943-1 – Hlífðarfatnaður til nota gegn fljótandi og loftkenndum efnum, að úðaefnum og ögnum úr föstum efnum meðtöldum - 1. hluti: Nothæfiskröfur vegna óloftræstra hlífðarflíka með loftþétt samskeyti (gerð 1) og ekki loftþétt (gerð 2) hlífðarföt (Protective clothing against liquid and gaseous chemicals, including liquid aerosols and solid particles - Part 1: Performance requirements for ventilated and non-ventilated „gas-tight“ (Type 1) and „nongas-tight“ (Type 2) chemical protective suits).
- ÍST EN 943-2 – Hlífðarfatnaður til nota gegn fljótandi og loftkenndum efnum, að úðaefnum og ögnum úr föstum efnum meðtöldum - 2. hluti: Nothæfiskröfur vegna „loftþéttra“ (gerð 1) hlífðarbúninga gegn kemískum efnum fyrir neyðarlið (ET) (Protective clothing against liquid and gaseous chemicals, including liquid aerosols and solid particles - Part 2: Performance requirements for „gas-tight“ (Type 1) chemical protective suits for emergency teams (ET)).
- ÍST EN 1486 – Hlífðarfatnaður fyrir slökkviliðsmenn - Prófunaraðferðir og kröfur vegna endurkastsfatnaðar fyrir sérhæft slökkvistarf (Protective clothing for firefighters - Test methods and requirements for reflective clothing for specialized fire fighting).
- ÍST EN 13911 – Hlífðarfatnaður fyrir sökkviliðsmenn - Kröfur og prófunaraðferðir fyrir hlífðarhettur slökkviliðsmanna (Protective clothing for firefighters - Requirements and test methods for fire hoods for firefighters).
- ÍST EN 14458 – Augnhlífar – Andlitshlífar og skyggni til nota með hjálmum slökkviliðsmanna, sjúkraflutningamanna og manna sem starfa við neyðaraðstoð (Personal eye-equipment - Faceshields and visors for use with firefighters, ambulance and emergency service helmets).
- ÍST EN 14605 – Hlífðarfatnaður til nota gegn fljótandi efnum - Nothæfiskröfur vegna fatnaðar með vökvaþéttum (gerð 3) eða úðaþéttum (gerð 4) samskeytum, þ.m.t. fatnaðar sem verndar aðeins hluta líkamans (gerð PB [3] og PB [4]) (Protective clothing against liquid chemicals - Performance requirements for clothing with liquid-tight (Type 3) or spray-tight (Type 4) connections, including items providing protection to parts of the body only (Type PB [3] and PB [4])).
- ÍST EN 15090 – Fótabúnaður fyrir slökkviliðsmenn (Footwear for firefighters).
- ÍST EN 15614 – Hlífðarfatnaður fyrir slökkviliðsmenn – Prófunaraðferðir í tilraunastofu og nothæfiskröfur varðandi hlífðarbúnað til nota við slökkvistarf á óbyggðasvæðum (Protective clothing for firefighters – Laboratory test methods and performance requirements for wildland clothing).
Miða skal við að fatnaður sem klæðst er undir hlífðarfatnaði uppfylli staðalinn ÍST EN 531 Hlífðarfatnaður fyrir iðnverkafólk sem vinnur í hita (að undanskildum fatnaði fyrir slökkviliðsmenn og málmsuðumenn) (Protective clothing for industrial workers exposed to heat (excluding firefighters’ and welders’ clothing)).