Reglugerð um innleiðingu viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2006/2004 frá 27. október 2004 um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd (reglugerð um samvinnu um neytendavernd)
1. gr.
Ákvæði viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2006/2004 frá 27. október 2004 um samvinnu milli innlendra yfirvalda sem bera ábyrgð á framkvæmd laga um neytendavernd (reglugerð um samvinnu um neytendavernd) skal hafa reglugerðargildi hér á landi. Viðaukinn er prentaður sem fylgiskjal reglugerðar þessarar.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 1. gr. laga nr. 56/2007 um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Fylgiskjal
VIÐAUKI
Tilskipanir og reglugerðir sem falla undir a-lið 3. gr. EB reglugerðar nr. 2006/2004.[1]
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/114/EB frá 12. desember 2006 um villandi auglýsingar og samanburðarauglýsingar (Stjtíð. ESB L 376, 27. desember 2006, bls. 21): 1. gr., 2. gr. (c-liður) og 4.-8. gr.
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/83/ESB frá 25. október 2011 um réttindi neytenda, um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 1999/44/EB og um niðurfellingu tilskipunar ráðsins 85/577/EBE og tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 97/7/EB (Stjtíð. ESB L 304, 22. nóvember 2011, bls. 64).
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/48/EB frá 23. apríl 2008 um lánssamninga fyrir neytendur og um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 87/102/EBE (Stjtíð. ESB L 133, 22. maí 2008, bls. 66).
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/13/ESB frá 10. mars 2010 um samræmingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu (tilskipun um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu) (Stjtíð. ESB L 95, 15. apríl 2010, bls. 1): 9., 10., og 11. gr. og 19.-26. gr.
- Tilskipun ráðsins 90/314/EBE frá 13. júní 1990 um ferðapakka, orlofspakka og skoðunarferðapakka (Stjtíð. EB L 158, 23. júní 1990, bls. 59).
- Tilskipun ráðsins 93/13/EBE frá 5. apríl 1993 um óréttmæta skilmála í neytendasamningum (Stjtíð. EB L 95, 21. apríl 1993, bls. 29).
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/122/EB frá 14. janúar 2009 um neytendavernd að því er varðar tiltekna þætti skiptileigusamninga, langtímasamninga um orlofstilboð, endursölu- og skipasamninga (Stjtíð. ESB L 33, 3. febrúar 2009, bls. 10).
- [Hér á að vera eyða, sbr. 1. mgr. 31. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2011/83/ESB frá 25. október 2011 um réttindi neytenda.]
- [Hér á að vera eyða, sbr. 5. tölul. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 954/2011 frá 14. september 2011.]
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB frá 16. febrúar 1998 um neytendavernd að því er varðar upplýsingar um verð á vöru sem er boðin neytendum (Stjtíð. EB L 80, 18. mars 1998, bls. 27).
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 1999/44/EB frá 25. maí 1999 um tiltekna þætti í sölu neysluvara og ábyrgð þar að lútandi (Stjtíð. EB L 171, 7. júlí 1999, bls. 12).
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/31/EB frá 8. júní 2000 um tiltekna lagalega þætti þjónustu, einkum rafrænna viðskipta, í tengslum við upplýsingasamfélagið á innri markaðnum (tilskipun um rafræn viðskipti) (Stjtíð. EB L 178, 17. júlí 2000, bls. 1).
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/83/EB frá 6. nóvember 2001 um Bandalagsreglur um lyf sem ætluð eru mönnum: 86.-100. gr. (Stjtíð. EB L 311, 28. nóvember 2001, bls. 67). Tilskipuninni var síðast breytt með tilskipun 2004/27/EB (Stjtíð. ESB L 136, 30. apríl 2004, bls. 34).
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/65/EB frá 23. september 2002 varðandi fjarsölu á fjármálaþjónustu fyrir neytendur (Stjtíð. EB L 271, 9. október 2003, bls. 16).
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 261/2004 frá 11. febrúar 2004 um sameiginlegar reglur um skaðabætur og aðstoð til handa farþegum sem er neitað um far og þegar flugi er aflýst eða mikil seinkun verður (Stjtíð. ESB L 46, 17. febrúar 2004, bls. 1).
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/29/EB frá 11. maí 2005 um óréttmæta viðskiptahætti gagnvart neytendum á innri markaðnum (Stjtíð. ESB L 149, 11. júní 2005, bls. 22).
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/58/EB frá 12. júlí 2002 um vinnslu persónuupplýsinga og um verndun einkalífs á sviði rafrænna fjarskipta (tilskipun um friðhelgi einkalífsins og rafræn fjarskipti) (Stjtíð. EB L 201, 31. júlí 2002, bls. 37): 13. gr.
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1177/2010 frá 24. nóvember 2010 um rétt farþega sem ferðast á sjó og á vatnaleiðum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2006/2004 (Stjtíð. ESB L 334, 17. desember 2010, bls. 1).
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 181/2011 frá 16. febrúar 2011 um réttindi farþega í hópbifreiðum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2006/2004 (Stjtíð. ESB L 55, 28. febrúar 2011, bls. 1).
[1] Í tilskipunum nr. 6, 8 og 13 er að finna sértæk ákvæði.