Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um sektir og önnur viðurlög ákvörðuð af tollstjóra vegna brots á tollalögum nr. 88/2005.

1. gr.

Við ákvörðun sektar allt að 300.000 kr. vegna brota á 1. mgr. 170. gr. og 171. gr. tollalaga skal hafa hliðsjón af aðflutningsgjaldi hinnar innfluttu vöru að viðbættum 15% þeirrar fjárhæðar auk þess sem varan, að verðmæti allt að 300.000 kr., verði gerð upptæk samkvæmt 1. mgr. 181. gr. tollalaga.

Um sektir varðandi tiltekna vöruflokka gilda þó eftirfarandi sérreglur í viðauka við þessa reglugerð auk þess sem varan skal gerð upptæk. Heimilt er að víkja frá ákvæðum í viðaukanum ef veigamikil rök mæla með því.

2. gr.

Fullnaðargreiðsla sektar skal fara fram við undirritun sektargerðar og er heimilt að greiða sekt með greiðslukortum (debet- og kredit) auk greiðslu í reiðufé.

3. gr.

Tollstjóra er heimilt að fela tollvörðum að bjóða mönnum, sem uppvísir verða að brotum skv. 1. gr., að ljúka málum með greiðslu sektar á vettvangi, þ.á m. með greiðslukortum og upptöku varnings.

4. gr.

Nú stendur tollvörður mann að broti skv. 1. gr. sem hann gengst skýlaust við og tollvörður telur að hæfileg viðurlög við brotinu séu sekt sem fari ekki fram úr 100.000 kr. auk upptöku. Getur tollvörður þá ákveðið viðurlög við brotinu samkvæmt þessari reglugerð. Tollvörður gerir sakborningi ljós þau viðurlög sem við broti liggja og afleiðingar þess að sekt sé ekki greidd og afhendir honum skýrslu þar sem fram kemur stutt lýsing á broti, hvar og hvenær það var framið, þau refsiákvæði sem það varðar við og tilgreining á þeim varningi sem lagt var hald á. Sakborningur undirritar skýrsluna og skal tollvörður bjóða sakborningi að ljúka þegar málinu með greiðslu sektar á vettvangi.

5. gr.

Nú telur tollstjóri að saklaus maður hafi verið látinn gangast undir viðurlög skv. 3. gr. eða að málalok hafi verið fjarstæð að öðru leyti og getur hann þá innan mánaðar frá því að honum barst vitneskja um það fellt gerðina úr gildi, enda sé þá ekki liðið ár frá málalokum.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 185. gr. tollalaga nr. 88/2005, öðlast gildi þegar í stað.

Fjármálaráðuneytinu, 2. júní 2009.

F. h. r.

Guðmundur Árnason.

Ögmundur H. Magnússon.

Viðauki

Sérreglur vegna ólögmæts innflutnings á tilgreindum vöruflokkum.

Ólögmætur innflutningur og önnur ólögmæt meðferð eftirtalins varnings, sbr. 1. mgr. 170. gr.

og 171. gr. tollalaga, skal sæta sektum sem hér segir:

1. Áfengi og tóbak.

Við ákvörðun sektar skal hafa hliðsjón af útsöluverði sambærilegs áfengis/tóbaks hjá áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.

Um eftirgreindar vörur skal þó miða við tilgreindar fjárhæðir:

Áfengi yfir 71% (t.d. spíri) fyrir lítra 8.000 kr.
Áfengi; 51% - 70% fyrir lítra 7.000 kr.
Áfengi yfir 31-50% fyrir lítra 5.000 kr.
Áfengi 22-30% fyrir lítra 3.500 kr.
Áfengi undir 22% fyrir lítra 3.000 kr.
Vín, þ.m.t. freyðivín fyrir lítra 2.000 kr.
Bjór 33 cl. 24 stk. 1 kassi 4.000 kr.
Bjór 33 cl. 1 stk 170 kr.
Bjór 50 cl. 24 stk. 1 kassi 5.500 kr.
Bjór 50 cl. 1 stk 230 kr.
Vindlingar (200 stk) 1 karton 6.000 kr.
Vindlar, smáir (t.d. Bacatello) fyrir 10 stk. 400 kr.
Vindlar, meðalstórir (t.d. Fauna) fyrir 10 stk. 700 kr.
Vindlar, stórir (,,Kúbuvindlar") fyrir 25 stk. 7.000 kr.
Munntóbak („snus“) fyrir 50 g 400 kr.
Neftóbak („snuff “) t.d. mentól fyrir 50 g 900 kr.
Neftóbak („snuff ") t.d. mentól fyrir 1 g 20 kr.

2. Matvara.

Við ákvörðun sektar skal hafa til hliðsjónar aðflutningsgjald vöru að viðbættum 15% þeirrar fjárhæðar.

Um eftirgreindar vörur skal þó miða við tilgreindar fjárhæðir:

Fuglakjöt, beinlaust fyrir 1 kg 1.200 kr.
Fuglakjöt, með beini fyrir 1 kg 600 kr.
Svínakjöt fyrir 1 kg 900 kr.
Svínakjöt; lundir eða reykt fyrir 1 kg 1.750 kr.
Nautakjöt; lundir fyrir 1 kg 2.500 kr.
Nautakjöt fyrir 1 kg 1.250 kr.
Salami pylsa fyrir 1 kg 1.250 kr.
Skinka fyrir 1 kg 1.250 kr.
Ostur fyrir 1 kg 800 kr.

3. Fæðubótarefni.

Við ákvörðun sektar skal hafa hliðsjón af söluverði efnis, ef upplýsingar liggja fyrir um það. Um eftirgreindar vörur skal þó miða við tilgreindar fjárhæðir:

Ripped fuel:

Ripped fuel (60 pillur í glasi) fyrir 1 glas 1.750 kr.
Ripped fuel (120 pillur í glasi) fyrir 1 glas 3.500 kr.
Ripped fuel (200 pillur í glasi) fyrir 1 glas 5.500 kr.

Herbalife:

Við ákvörðun sektar vegna innflutnings eftirgreindra herbalifevara, sem Lyfjastofnun hefur ekki heimilað innflutning á, skal miða við lágmarksfjárhæð 1.500-6.000 kr. fyrir hver 60 stk. af töflum eða 60 g af dufti:

Töflur 60 stk. 1.500-6.000 kr.

Sleep Now

N-R-G

Cell-U-Loss

Aminogen

AM Replenishing

PM Cleansing Formula

Vita/Mineral/Herbs Formula 2

Formula 3/Cell-U-Loss Original Green

Thermojetics Beige

Thermojetics Formula 2

Thermojetics Green& Beige

Mega Ginseng Blend

Ultimate Prostate Formula

Woman´s Choice

Schizandra Plus

Duft 60 g 1.500-6.000 kr.

Thermojetics

Thermojetics Formula 1

Thermojetics Lemon

Thermojetics HRBL Peach

Performance Protein

Meginreglan um ákvörðun sektarfjárhæðar með hliðsjón af söluverði skal gilda um eftirgreindar herbalifevörur, sem Lyfjastofnun hefur hafnað: Herbal Calmative (úði), Raw Guarana (te), Thermojetics Protein Bar (kex).