Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um viðmiðun ISN2004, grunnstöðvanet og mælistöðvar til notkunar við landmælingar og kortagerð.

I. KAFLI Markmið.

1. gr.

Markmið reglugerðar þessarar er að viðhalda og staðfesta staðla landshnitakerfis fyrir landmælingar og kortagerð á Íslandi og tryggja þannig sameiginlega viðmiðun og hnitakerfi fyrir landið allt. Jafnframt er markmiðið að auðvelda öll samskipti og samvinnu um kort og landfræðileg gögn er tengjast m.a. verklegum framkvæmdum, skipulagi og landupplýsingakerfum.

2. gr.

Landmælingar Íslands annast innleiðingu viðmiðana og staðla um landmælingar og kortagerð og leiðbeiningar um notkun þeirra. Stofnunin leggur út hnitakerfi fyrir landið allt og sér um að tryggja viðhald og nákvæmni mælistöðva í grunnstöðvanetinu.

Stofnunin skal hafa tiltækar grunnupplýsingar um hnitakerfi og mælingar sem til eru af hinum ýmsu stöðum á landinu. Stofnunin skal einnig hafa upplýsingar um hver hafi framkvæmt mælingu, áreiðanleika þeirra og aðgengi.

II. KAFLI Viðmiðun ISN2004.

3. gr.

Viðmiðun ISN2004 ákvarðast af eftirfarandi:

1. Jarðmiðjukerfinu IGb00, tími 2004.6. Z-ás kerfisins fellur saman við snúningsás jarðar, en X- og Y-ásarnir spanna miðbaugsflötinn. X-ásinn liggur í fleti Greenwich hádegisbaugsins, en Y-ásinn hornrétt á X-ásinn til austurs.

2. Sporvölunni GRS-80 (sporvalan er hluti af alþjóðlegum staðli, Geodetic ReferenceSystem 1980). Kennistærðir sporvölunnar eru eftirfarandi:

  1. Hálfur langás, a = 6.378.137 m
  2. Þyngdarstuðull jarðar miðað við jarðarmiðju, GM = 3986005·108 ·m3 ·s-2
  3. Meðal hornhraði jarðar, ω = 7292115·10-11·rad·s-1
  4. Pólfletja sporvölunnar, f = 1/298,257222101.

3. Niðurstöðum GPS-mælinga árið 2004 á grunnstöðvaneti 147 mælistöðva (ISNET2004), 3. sbr. 5. gr.

4. gr.

Landshnitakerfið, sbr. 9. gr., hefur viðmiðunina ISN2004, sbr. 3. gr., og kemur hún í stað viðmiðunarinnar ÍSN93.

III. KAFLI Grunnstöðvanet.

5. gr.

Grunnstöðvanetið samanstendur af 147 mælistöðvum, sem mældar voru árið 2004 í landmælingaverkefninu ISNET2004, sbr. fylgiskjöl 1 og 2 með reglugerð þessari.

6. gr.

Landmælingar Íslands skulu sjá um viðhald og eftirlit með grunnstöðvanetinu. Skal stofnunin sjá um endurmælingu stöðva eftir því sem ástæða er til. Verði höggun á landi eða landshlutum skal sá hluti netsins sem höggunin tekur til mældur að nýju með viðeigandi mæliaðferðum og tækjabúnaði eins fljótt og aðstæður leyfa.

7. gr.

Endurmæla skal grunnstöðvanetið í heild sinni eigi sjaldnar en á 10 ára fresti.

8. gr.

Þurfi að færa til og endurmerkja mælistöð í grunnstöðvanetinu eða fjarlægja hana skal það gert undir stjórn Landmælinga Íslands.

9. gr.

Við kortagerð er almennt notað hnitakerfi á hornsannri keiluvörpun Lamberts, þar sem mælikvarðinn er einn á breiddarbaugunum 64°15' og 65°45' norður breiddar. Ásar hnita-kerfisins eru nefndir austurás og norðurás. Norðurásinn liggur til norðurs eftir lengdarbaug 19° vestur lengdar, en austurásinn hornrétt á norðurásinn til austurs við 65° norður breiddar. Skurðpunktur ásanna hefur hnitin austur = 1.700.000 metrar og norður = 300.000 metrar. Hnit skulu birt með austurhnitum á undan norðurhnitum. Stefna er mæld og reiknuð réttsælis frá norðri til austurs.

IV. KAFLI Mælistöðvar tengdar grunnstöðvaneti.

10. gr.

Mælistöðvar tengdar grunnstöðvanetinu skulu vera varanlegar, svo sem stöpull eða málmbolti úr ryðfríu efni. Skulu þær merktar greinilega með númeri, ártali og einkennis-stöfum stofnunar eða fyrirtækis sem framkvæmir verkið sbr. 14. gr.

11. gr.

Innmæling á nýjum og gömlum punktum út frá grunnstöðvanetinu skal eigi hafa meira staðalfrávik en tveir sentimetrar til eða frá (+/- 2 sm) í legu og þrír sentimetrar til eða frá (+/- 3 sm) í hæð.

12. gr.

Endurmerkja skal mælistöð þegar eldri merking hefur verið færð til, raskast eða glatast. Endurmerkingu má aðeins framkvæma með samþykki þeirrar stofnunar eða fyrirtækis, sem upphaflega merkti mælistöðina.

Landmælingum Íslands skal tilkynnt um endurmerkinguna og afhent öll gögn þar að lútandi til skráningar (mælingar, úrvinnsla og stöðvarlýsing).

13. gr.

Ef mælistöð er endurmerkt skal hún fá nýtt nafn sbr. 14. gr. í samræmdu númerakerfi Landmælinga Íslands.

14. gr.

Nafn mælistöðva má vera allt að átta stöfum. Skulu tveir einkennisstafir þess aðila sem setur upp stöðina vera fremst og síðan allt að sex stafa tala. Seinni hluti nafnsins má þó þegar sérstaklega stendur á vera allt að átta stafa. Hafa skal samráð við Landmælingar Íslands um notkun einkennisstafa.

15. gr.

Gera skal lýsingu á mælistöð þegar hún er sett upp. Skal hún vera glögg og greinargóð þannig að hægt sé á auðveldan hátt að finna stöðina og meta notkunarmöguleika hennar. Stöðvarlýsingu skal halda við og breyta jafnóðum ef ástæða er til, svo sem vegna breytinga á leið að mælistöð eða næsta nágrenni hennar.

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

16. gr.

Landmælingar Íslands skulu veita nánari upplýsingar og leiðbeiningar um eldri landskerfi, grunnstöðvanetið, viðmiðun ISN2004, stöðvarlýsingar, svo og um önnur atriði sem reglugerð þessi fjallar um.

17. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 9. gr. laga um landmælingar og grunnkortagerð nr. 103/2006, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur þá úr gildi reglugerð nr. 919/1999 um viðmiðun ÍSN93, grunnstöðvanet og mælistöðvar til notkunar við landmælingar og kortagerð.

Fylgiskjal 1.

Listi yfir mælistöðvar.

Staðarheiti Nafn Staðarheiti Nafn Staðarheiti
LM0082 Valhúsahæð LM348A Höfn VBLI-Stöð OS7220 Krókahraun
LM0301 Garðskagi LM0349 Fellsá SV OS7225 Langamýri
LM0302 Reykjanes LM0350 Kálfafell OS7227 Vörðuhóll N
LM0303 Krísuvík LM0351 Botnar OS7367 Hálshnúkur S
LM0304 Strandarhæð LM0352 Reynisfjall OS7371 Breiðavatn NA
LM0305 Kambar LM0353 Heimaey OS7373 Malarrif
LM0306 Laugarvatn V LM0354 Seljaland OS7375 Svínafell S
LM0307 Haukholt A LM0355 Bjarnalón OS7377 Reynisfjall II
LM0308 Tjaldafell S LM0356 Langahlíð OS7378 Bugavatn N
LM0309 Fossá V LM0357 Kjalvötn NV OS7379 Íshólsvatn S
LM0310 Akrar LM0358 Háumýrar NA OS7383 Jökulheimar
LM0311 Gullborgarhraun LM0365 Ölfusborgir OS7384 Norðmelur
LM0312 Kirkjuhóll LM0500 Grímsfjall OS7385 Einhyrningur
LM0313 Hellissandur-Rif LM0502 Belgsholt OS7416 Mælifell V
LM0314 Stykkishólmur LM0503 Reykjaskóli NA OS7441 Þeistareykir
LM0315 Knararhöfn LM0504 Borgarvirki S OS7442 Króksmelshellur
LM0316 Holtavörðuheiði LM0505 Laxárbrú V OS7461 Háiás
LM0317 Mjósund LM0506 Selvíkurtangi SA OS7469 Kiðagilsdrög
LM0318 Sandafell LM0508 Valagilsá OS7470 Gjallandi A
LM0319 Arnarnes LM0509 Straumnesviti S OS7472 Herðubreiðarlindir
LM0320 Mjólká LM0511 Vegahnúkur OS7482 Hvítárvatn
LM0321 Flókalundur LM0514 Þuríðarvatn SA OS7485 Galti
LM0322 Flatey LM0518 Hátunga A OS7487 Hamragarðar
LM0323 Reykhólar LM0521 Hundadalur OS7494 Ásbjarnarvötn
LM0324 Hrófberg LM0524 Eyrarfjall RH0402 Ljósalækur
LM0325 Gjögur LM0525 Selá RH8434 Kverkfjöll
LM0326 Blönduvirkjun V LM0527 Kjalhraun RH8437 Fjallsendi S
LM0327 Hegranes LM0528 Helgufell V RH8701 Flateyjardalur
LM0328 Samkomugerði LM0530 Núpatjörn V RH9602 Kvísker
LM0329 Hauganes LM0534 Fitjá austan VG4341 Skálafell S
LM0330 Ólafsfjörður LM0535 Meyjarsel AKUR Akureyri
LM0331 Grímsey LM0536 Hrolleifsvík ARHO Árholt
LM0332 Raufarhöfn LM0537 Straumnes HIAK Akranes
LM0333 Þórshöfn LM0538 Höfði HLID Hlíðardalsskóli
LM0334 Bakkafjörður LM1008 Skjálfandafljót HOFN Höfn
LM0335 Vopnafjörður LM1260 Ennishöfði HVER Hveragerði
LM0336 Geirstaðarklettur LM1420 Reykjahlíð HVOL Láguhvolar
LM0337 Bakkagerði LM2003 Strýta ISAK Ísakot
LM0338 Sörlastaðaá LM3359 Bjallavað S KIDJ Kiðjaberg
LM0339 Egilsstaðir LM3713 Keilisnes OLKE Ölkelduháls
LM0340 Hofteigur NE200201 Gömlu Ragnheiðarst. REYK Reykjavík
LM0341 Bessastaðaá S NE200204 Múlavegur RHOF Raufarhöfn
LM0342 Laugarfell SV NE84011 Dyngja SELF Selfoss
LM0343 Breiðdalsheiði NE9907 Snæbýli SKRO Skrokkalda
LM0344 Teigará OS2069 Langahlíð II SOHO Sólheimaheiði
LM0345 Kambanes OS5491 Hattur SV STOR Stórólfshvoll
LM0346 Djúpivogur A OS5861 Grænavatn THEY Þorvaldseyri
LM0347 Hraunkot NA OS7012 Grunnavatnsalda VMEY Vestmannaeyjar
LM0348 Höfn OS7031 Bakkahöfði VOGS Vogsósar

Fylgiskjal 2.

Yfirlitskort yfir mælistöðvar.

Kort