Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um sjómælingar og sjókortagerð Landhelgisgæslu Íslands og menntun sjókortagerðarfólks.

1. gr. Gildissvið.

Með reglugerð þessari er kveðið á um eftir hvaða reglum sjómælingasvið Landhelgisgæslu Íslands skal starfa og kveðið á um rit og kort sem stofnunin gefur út og hæfisskilyrði, menntun og starfsreynslu sjómælinga- og sjókortagerðarfólks. Einnig er kveðið á um starfsleyfi til starfsmanna sem uppfylla kröfur reglugerðarinnar og heimild þeirra til að halda réttindanámskeið í faginu.

2. gr. Verkefni.

Landhelgisgæsla Íslands, sjómælingasvið, skal stuðla að öruggum siglingum innan íslensku efnahagslögsögunnar með því að uppfylla skyldur íslenska ríkisins á sviði sjómælinga samkvæmt alþjóðasamningi um öryggi mannslífa á hafinu (SOLAS) og jafnframt uppfylla kröfur Alþjóðasjómælingastofnunarinnar (IHO) til sjómælinga og sjókortagerðar.

Landhelgisgæslan ber ábyrgð á útgáfu íslenskra sjókorta samkvæmt skuldbindingum íslenska ríkisins skv. alþjóðasamningnum um öryggi mannslífa á hafinu.1 Þá sér Landhelgisgæslan um milliríkjasamstarf fyrir Íslands hönd á sviði sjómælinga og sjókortagerðar. Íslensk sjókort eru gefin út undir heitinu "Sjómælingar Íslands".

Landhelgisgæslan skal:

  1. Sjá um sjómælingar (dýptarmælingar) meðfram strönd Íslands, utan hafna og innan íslenskrar efnahagslögsögu eftir því sem nauðsynlegt er talið á hverjum tíma.
  2. Annast gerð og útgáfu prentaðra og rafrænna sjókorta yfir hafsvæðið umhverfis Ísland, þ.e. aðsiglingakorta, strandsiglingakorta og yfirsiglingakorta. Jafnframt að uppfæra og endurnýja kortin eftir því sem þörf krefur.
  3. Gefa út tilkynningar til sjófarenda og önnur upplýsingarit og sjóferðagögn, s.s. sjávarfallatöflur, leiðsögubók (-bækur) fyrir sjómenn við Ísland, upplýsingarit um tákn og skammstafanir í sjókortum og kortaskrá.
  4. Safna gögnum sem tengjast sjómælingum og sjókortagerð og varðveita þau.
  5. Vera dómsmálaráðuneyti til ráðuneytis á fagsviðum sem stofnunin starfar á samkvæmt reglugerð þessari varðandi stefnumótun á sviði sjómælinga og opinberrar sjókortagerðar.

1 Sjá fylgiskjal.

3. gr. Skipulag.

Sjómælingasvið Landhelgisgæslunnar skiptist í tvær deildir; mælingadeild og kortadeild. Mælingadeild annast sjómælingar, athuganir á sjávarföllum, yfirborðsstraumum og landmælingar ef þörf krefur ásamt úrvinnslu gagna.

Kortadeild sér um gerð og útgáfu sjókorta auk útgáfu annarra sjóferðagagna.

4. gr. Hæfisskilyrði, menntun og starfsreynsla starfsmanna sjómælingasviðs.

Sjómælingasvið skal hafa í þjónustu sinni sérþjálfað starfslið, tæki og búnað sem nauðsynleg eru fyrir framkvæmd þeirra verkefna sem getið er í 2. gr. II. kafla.

Starfsréttindi starfsmanna sjómælingasviðs skulu taka mið af kröfum Alþjóðasjómælingastofnunarinnar (IHO), Alþjóðasamtökum mælingamanna (FIG) og Alþjóðakortagerðarsambandsins (ICA) sem settar eru fram í eftirtöldum ritum Alþjóðasjómælingastofnunarinnar:

Útg. M-5: "Standards of Competence for Hydrographic Surveyors".

Útg. M-8: "Standards of Competence for Nautical Cartographers".

Útg. S-47: "Courses in Hydrography and Nautical Cartography".

Sjómælingamaður skal hafa lokið 3. stigi skipstjórnarmenntunar. Byrjandi skal starfa undir stjórn fullgilds sjómælingamanns að lágmarki í eitt ár. Til að hljóta starfsréttindi sem sjómælingamaður skal viðkomandi ljúka námi hjá viðurkenndum aðila í sjómælingum (Hydrographic Surveying).

Byrjandi í sjókortagerð skal vinna undir stjórn fullgilds sjókortagerðarmanns að lágmarki í eitt ár. Til að hljóta réttindi skal viðkomandi ljúka námi hjá viðurkenndum aðila í sjókortagerð (Nautical Cartography). Eftir nám skal viðkomandi starfa undir eftirliti fullgilds sjókortagerðarmanns í eitt ár.

5. gr. Starfsleyfi.

Landhelgisgæsla Íslands gefur út starfsleyfi til starfsmanna sem uppfylla kröfur reglugerðar þessarar um menntun og starfsreynslu sjómælinga- og sjókortagerðarmanna og veitir þeim heimild til að halda réttindanámskeið í faginu þegar tilefni gefst til.

6. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 17. gr. laga um Landhelgisgæslu Íslands nr. 52/2006, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 10. desember 2008.

Björn Bjarnason.

Skúli Þór Gunnsteinsson.

Fylgiskjal.

Skyldur ríkisstjórna samkvæmt SOLAS.

SOLAS (alþjóðasamningur um öryggi mannslífa á hafinu) kafli V, með áorðnum breytingum 2000, reglur sem gilda um sjómælingastofnanir einstakra landa.

SOLAS V

Reglugerð númer

Efni
2.2

„Siglingakort“ eða „siglingarit“ er sértækt kort eða bók, eða sérsniðinn gagnagrunnur sem slíkt kort eða bók byggist á, sem er gefin út á vegum stjórnvalda eða með leyfi stjórnvalda, Sjómælingastofnunar eða

samsvarandi ríkisstofnunar og er ætlað að uppfylla kröfur um siglingar. *1

9 Sjókortaþjónusta.
9.1 Samningsríkisstjórnir taka að sér skipulag á söfnun og skráningu sjókortaupplýsinga og birtingu þeirra, dreifingu og uppfærslu siglingaupplýsinga sem eru nauðsynlegar fyrir öruggar siglingar.
9.2 Einkum skuldbinda samningsríkisstjórnir sig til samvinnu eins og kostur er, við eftirfarandi siglinga- og sjókortaþjónustu, með þeim hætti sem hentar best til stuðnings siglinga:
9.2.1 til að tryggja að sjómælingar fari fram, eins og auðið er, til að uppfylla kröfur um öruggar siglingar;
9.2.2 útbúa og gefa út sjókort, siglingaleiðbeiningar, vitaskrá, flóðtöflur og önnur siglingarit, þar sem það á við, og uppfylla þarfir fyrir öruggar siglingar;
9.2.3 að koma á framfæri tilkynningum til sæfarenda svo sjókort og rit séu eftir fremsta megni uppfærð; og
9.2.4 að veita gagnaþjónustufyrirkomulag til stuðnings þessari þjónustu.
9.3 Samningsríkisstjórnir skuldbinda sig til að tryggja eftir fremsta megni samræmi í kortum og sjóritum og taka mið af viðkomandi alþjóðlegum ályktunum og meðmælum, þar sem þess er kostur. *2
9.4 Samningsríkisstjórnir skuldbinda sig til að samræma starfsemi sína eftir fremsta megni til að tryggja að sjókort og siglingaupplýsingar séu gerðar tiltækar á heimsvísu með eins tímanlegum, traustum og ótvíræðum hætti og mögulegt er.
27 Sjókort og sjórit, svo sem siglingaleiðbeiningar, vitalistar, tilkynningar til sæfarenda, flóðtöflur og öll önnur sjórit sem þarf fyrir ætlaða sæferð, skulu vera fullnægjandi og byggð á nýjustu upplýsingum.
*1 Sjá viðeigandi ályktanir og tilmæli Alþjóðasjómælingastofnunarinnar um vald og ábyrgð strandríkja um gerð sjókorta í samræmi við reglugerð 9.
*2 Sjá viðeigandi ályktun og tilmæli sem Alþjóðasjómælingastofnunin hefur samþykkt.