Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um innheimtu sekta og sakarkostnaðar.

1. gr.

Innheimta sekta og sakarkostnaðar á landsvísu skal vera á hendi sýslumannsins á Norðurlandi vestra.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 70. gr. laga um fullnustu refsinga, nr. 49 17. maí 2005, öðlast þegar gildi.