Reglugerð um ábyrgðargjald atvinnurekenda árið 2002.
1. gr.
Ábyrgðargjald atvinnurekenda vegna ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota skal árið 2002 vera 0,04% af gjaldstofni, sbr. 6. gr. laga um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingum.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett skv. 2. mgr. 3. gr. laga um ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota, nr. 53/1993, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 13. nóvember 2001.
Páll Pétursson.
Guðjón Bragason.