Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Reglugerð um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda.

I. KAFLI Markmið, gildissvið o.fl. Markmið.

1. gr.

Markmið þessarar reglugerðar er að koma í veg fyrir að útlendar plöntutegundir valdi óæskilegum breytingum á líffræðilegri fjölbreytniííslenskum vistkerfum.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerðin gildir um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda hér á landi.

Reglugerðin gildir ekki um ræktun útlendra plöntutegunda í ylrækt.

3. gr. Skilgreiningar.

Innlend tegund: Tegundir blómplantna og byrkninga sem tilgreindar eru í viðauka við reglugerð þessa og taldar eru til hinnar íslensku flóru.

Útlend tegund: Allar aðrar plöntutegundir en innlendar tegundir.

Ylrækt: Ræktun í lokuðu rými þar sem hiti er vel yfir meðalhita viðkomandi svæðis á hverjum tíma með aðstoð orkugjafa.

4. gr. Sérfræðinganefnd um innflutning og ræktun útlendra plöntutegunda.

Sérfræðinganefnd er umhverfisráðherra til ráðgjafar um innflutning, ræktun og dreifingu útlendra plöntutegunda, sbr. 41. gr. laga um náttúruvernd. Nefndin skal gera tillögur til ráðherra um hvaða útlendar plöntur skuli óheimilt að flytja til landsins, sbr. 5. gr., og hvaða útlendar plöntur heimilað verður að rækta hér á landi, sbr. 7. gr., og semja leiðbeinandi reglur um notkun einstakra plöntutegunda.

Í starfi sínu skal nefndin hafa eftirfarandi að leiðarljósi:
Samninginn um líffræðilega fjölbreytni, samninginn um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu, samninginn um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun, og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar.

Að leyfa ræktun útlendrar tegundar ef hún hefur fyrirsjáanlega kostifyrir afkomu mannsins eða náttúruleg samfélög og ógnar ekki líffræðilegri fjölbreytni, náttúrulegum vistkerfum og samfélögum.

II. KAFLI Innflutningur og skráning. Innflutningur.

5. gr.

Umhverfisráðherra gefur út lista A yfir útlendar plöntutegundir sem óheimilt er að flytja til landsins að fengnum tillögum sérfræðinganefndarinnar. Birta skal listann í B-deild Stjórnartíðinda.

6. gr. Skráning.

Öllum, sem flytja inn útlendar plöntutegundir, ber að tilkynna það til Náttúrufræðistofnunar Íslands. Stofnunin ber ábyrgð á að allar útlendar plöntutegundir, sem fluttar eru inn til landsins, séu skrásettar.

Í tilkynningunni skal greina frá latnesku tegundarheiti, landfræðilegum uppruna, erlendum afgreiðsluaðila og tilgangi innflutnings.

III. KAFLI Ræktun útlendra plöntutegunda. Plöntulistar.

7. gr.

Umhverfisráðherra gefur út lista B yfir útlendar tegundir sem heimilt er að rækta hér á landi að fenginni umsögn sérfræðinganefndarinnar og Umhverfisstofnunar. Í listanum skulu vera leiðbeinandi reglur um ræktun og dreifingu hverrar tegundar og upplýsingar um þau skilyrði sem ræktuninni eru sett. Birta skal listann í B-deild Stjórnartíðinda.

Heimilt er að nota útlendar plöntutegundir sem skráðar eru á B-lista til ræktunar hér á landi með þeim skilyrðumog í samræmi við leiðbeinandi reglur um ræktun og dreifingu þeirra, nema á þeim svæðum sem getið er um í 10. gr.

Þegar tekin hefur verið ný útlend plöntutegundá B-lista skal gefa út leiðbeinandi reglur um ræktun hennar og upplýsingar um þau skilyrði sem ræktuninni eru sett.

Óheimilt er að nota tegundir á A-lista til ræktunar hér á landi.

8. gr. Ræktun annarra plantna.

Heimilt er að taka tegund af B-lista ef í ljós kemur að tegundin gerist of ágeng í íslenskri náttúru að mati sérfræðinganefndarinnar.

Sé ætlunin að taka aðrar tegundir til ræktunar en þær sem eru á B-lista ber að senda sérfræðinganefndbeiðni um að tegundin verði tekin inn á B-lista.

Með beiðni samkvæmt 2. mgr. skulu fylgja upplýsingar um:

1. Nafn og heimilisfang umsækjanda.
2. Latneskt tegundarheiti.
3. Afgreiðsluaðila.
4. Mat á ávinningi og áhættu af ræktun tegundarinnar.

9. gr. Mat á ávinningi og áhættu.

Umsækjandi skal leggja fram mat á ávinningi og áhættu vegna fyrirhugaðrar ræktunar. Veita skal upplýsingar um eftirfarandi atriði: uppruna, náttúrulega útbreiðslu, almenna líffræði tegundarinnar, þ.m.t. dreifingarmáta, náttúrulega óvini, stöðu tegundarinnar í upprunalegum vistkerfum, reynslu af ræktun tegundarinnar erlendis.

Við mat á ávinningi skal taka mið af því hver sé vistfræðilegur og efnahagslegur ávinningur af notkun tegundarinnar.

Í áhættumati skulu eftirfarandi þættir tilgreindir: líklegar afleiðingar af fyrirhugaðri ræktun tegundarinnar, í hverju áhætta af ræktun er fólgin, leiðir til að draga úr áhættu. Í þessu felst skilgreining á þeim búsvæðum þar sem ætlunin er að rækta tegundina, mat á áhrifum hennar ef hún kemst í önnur búsvæði og tillögur um hvernig draga megi úr hugsanlegum neikvæðum áhrifum af ræktun. Sérstaka áherslu skal leggja á dreifingarmáta tegundarinnar, hvort hún geti víxlast við innlendar tegundir og hvort hún geti valdið tjóni á lífríki, uppskeru, húsdýrum mannsins eða á manninum sjálfum. Loks skal meta hversu mikið tegundin muni breyta gróðri og dýralífi viðkomandi svæðis.

10. gr. Ræktunarsvæði.

Öll ræktun útlendra tegunda hér á landi er óheimil á friðlýstum svæðum, á landslagsgerðum er njóta sérstakrar verndar og alls staðar ofan 400 metra hæðar yfir sjó. Umhverfisstofnun getur veitt undanþágu frá þessu ákvæði að fenginni umsögn sérfræðinganefndarinnar.

11. gr. Ræktun í tilraunaskyni.

Sérfræðinganefndinni er heimilt að leyfa skipulegar rannsóknir með ræktun útlendra tegunda sem ekki eru á B-lista, enda ábyrgist rannsóknaraðili að tegundirnar dreifist ekki frá rannsóknarsvæðinu. Rannsóknaraðila ber að gera nefndinni grein fyrir staðsetningu, umfangi og tímasetningu allra rannsókna með slíkar tegundir. Rannsóknirnar eru á ábyrgð rannsóknaraðila.

Rannsóknaraðila ber að tryggja að tegundir séu ræktaðar á vel afmörkuðum svæðum sem eiga að vera sérstaklega merkt sem tilraunasvæði. Þegar tilraunum er lokið skal rannsóknaraðili sjá til þess að tegundum sem fara á A-lista sé eytt.

Rannsóknaraðila er óheimilt að afhenda einstaklingum eða ræktendum tilraunaefnivið til eigin ræktunar.

IV. KAFLI Ýmis ákvæði. Eftirlit.

12. gr.

Umhverfisstofnun hefur eftirlit með því að ákvæði þessarar reglugerðar séu virt.

13. gr. Refsiábyrgð.

Hver sá sem brýtur gegn ákvæðum þessarar reglugerðar skal sæta sektum. Með mál samkvæmt grein þessari skal farið að hætti opinberra mála, sbr. lög um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991.

14. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 41. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd og öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Sérfræðinganefndin skal gera tillögu um hvaða tegundir skuli skilgreina í reglugerð þessari sem innlendar tegundir. Skal sérfræðinganefndin hafa þar til viðmiðunar tölusettar tegundir í Flóru Íslands, 3. útgáfu frá 1948. Einnig skal sérfræðinganefndin gera tillögu um hvaða útlendar tegundir, sem nú eru ræktaðar í landinu, séu teknar inn á A- eða B-lista. Hún skal auk þess gera tillögu að skilyrðum fyrir ræktun tegunda á B-lista og vinna leiðbeinandi reglur um notkun þeirra. Umhverfisráðherra birtir lista samkvæmt grein þessari í viðauka við reglugerð þessa.

Viðauki I

VIÐAUKI 1

Listi yfir innlendar tegundir sem teljast til íslensku flórunnar,
sbr. 1. málsl. 3. gr.

  • Ophioglossum azoricum C.Presl. - Naðurtunga.
  • Botrychium lunaria (L.) Sw. - Tungljurt.
  • Botrychium lanceolatum (S.G.Gmel.) Ångstr. - Lensutungljurt.
  • Botrychium boreale Milde - Mánajurt.
  • Cystopteris fragilis (L.) Bernh. - Tófugras.
  • Woodsia ilvensis (L.) R.Br. - Liðfætla.
  • Woodsia alpina (Bolton) Gray - Fjallaliðfætla.
  • Dryopteris filix-mas (L.) Schott - Stóriburkni.
  • Dryopteris expansa (C.Presl) Fraser-Jenk. & Jermy - Dílaburkni.
  • Gymnocarpium dryopteris (L.) Newman - Þrílaufungur.
  • Phegopteris connectilis (Michx.) Watt - Þríhyrnuburkni.
  • Polystichum lonchitis (L.) Roth - Skjaldburkni.
  • Athyrium filix-femina (L.) Roth - Fjöllaufungur.
  • Juncus balticus Willd. - Fitjanál.
  • Athyrium distentifolium Tausch ex Opiz - Þúsundblaðarós.
  • Asplenium viride Huds. - Klettaburkni.
  • Blechnum spicant (L.) Roth - Skollakambur.
  • Epilobium palustre L. - Mýradúnurt.
  • Cryptogramma crispa (L.) R.Br. ex Hook. - Hlíðaburkni.
  • Polypodium vulgare L. - Köldugras.
  • Equisetum arvense L. - Klóelfting.
  • Equisetum sylvaticum L. - Skógelfting.
  • Equisetum pratense Ehrh. - Vallelfting.
  • Equisetum palustre L. - Mýrelfting.
  • Equisetum fluviatile L. - Fergin.
  • Equisetum variegatum Schleich. ex Weber & Mohr - Beitieski.
  • Equisetum hyemale L. - Eski.
  • Huperzia selago (L.) Bernh. ex Schrank & Mart. - Skollafingur.
  • Lycopodium annotinum L. - Lyngjafni.
  • Diphasiastrum alpinum (L.) Holub - Litunarjafni.
  • Lycopodium clavatum L. - Burstajafni.
  • Selaginella selaginoides (L.) P.Beauv. ex Schrank. - Mosajafni.
  • Isoetes lacustris L. - Vatnalaukur.
  • Isoetes echinospora Durieu - Álftalaukur.
  • Juniperus communis L. subsp. nana (Willd.) Syme - Einir.
  • Triglochin palustris L. - Mýrasauðlaukur.
  • Triglochin maritima L. - Strandsauðlaukur.
  • Stuckenia filiformis (Pers.) Börner - Þráðnykra.
  • Potamogeton berchtoldii Fieber - Smánykra.
  • Potamogeton natans L. - Blöðkunykra.
  • Galium verum L. - Gulmaðra.
  • Potamogeton alpinus Balbis - Fjallnykra.
  • Potamogeton gramineus L. - Grasnykra.
  • Potamogeton perfoliatus L. - Hjartanykra.
  • Potamogeton praelongus Wulfen - Langnykra.
  • Ruppia maritima L. - Lónajurt.
  • Zannichellia palustris L. - Hnotsörvi.
  • Zostera angustifolia (Hornem.) Rchb. - Marhálmur.
  • Nardus stricta L. - Finnungur.
  • Elytrigia repens (L.) Desv. ex Nevski - Húsapuntur.
  • Elymus kronokensis (Kom.) Tzvelev subsp. borealis - Bláhveiti.
  • Elymus alopex B. Salomon - Kjarrhveiti.
  • Leymus arenarius (L.) Hochst. - Melgresi.
  • Anthoxanthum odoratum L. - Ilmreyr.
  • Alopecurus geniculatus L. - Knjáliðagras.
  • Alopecurus aequalis Sobol. - Vatnsliðagras.
  • Phleum alpinum L. - Fjallafoxgras.
  • Hierochloe odorata (L.) Beauv. - Reyrgresi.
  • Milium effusum L. - Skrautpuntur.
  • Agrostis vinealis Schreber - Týtulíngresi.
  • Agrostis capillaris L. - Hálíngresi.
  • Agrostis stolonifera L. - Skriðlíngresi.
  • Calamagrostis neglecta (Ehrh.) P.Gaertn. - Hálmgresi.
  • Holcus lanatus L. - Loðgresi.
  • Deschampsia cespitosa (L.) P. Beauv. - Snarrótarpuntur.
  • Deschampsia alpina (L.) Roemer & Schultes - Fjallapuntur.
  • Avenella flexuosa (L.) Drejer - Bugðupuntur.
  • Trisetum spicatum (L.) K.Richter - Fjallalógresi.
  • Arrhenatherum elatius (L.) P.Beauv. ex J. & C.Presl - Ginhafri.
  • Danthonia decumbens (L.) DC. - Knjápuntur.
  • Sesleria albicans Kit. ex Schultes - Blátoppa.
  • Catabrosa aquatica (L.) P.Beauv. - Vatnsnarfagras.
  • Poa annua L. - Varpasveifgras.
  • Poa nemoralis L. - Kjarrsveifgras.
  • Poa glauca Vahl - Blásveifgras.
  • Poa flexuosa Sm. - Lotsveifgras.
  • Poa alpina L. - Fjallasveifgras.
  • Poa pratensis L. - Vallarsveifgras.
  • Poa trivialis L. - Hásveifgras.
  • Phippsia algida (Solander) R.Br. - Snænarfagras.
  • Puccinellia capillaris (Lilj.) Jansen - Varpafitjungur.
  • Puccinellia coarctata Fernald & Weath. - Sjávarfitjungur.
  • Glyceria fluitans (L.) R.Br. - Flóðapuntur.
  • Festuca rubra L. subsp. richardsonii (Hook.) Hultén - Túnvingull.
  • Festuca vivipara (L.) Sm. - Blávingull.
  • Schedonorus pratensis (Hudson) P. Beauv. - Hávingull.
  • Eriophorum scheuchzeri Hoppe - Hrafnafífa.
  • Eriophorum angustifolium Honckeny - Klófífa.
  • Eleocharis palustris (L.) Roemer & Schultes - Vatnsnál.
  • Eleocharis uniglumis (Link) Schultes - Vætuskúfur.
  • Trichophorum cespitosum (L.) Hartm. - Mýrafinnungur.
  • Eleocharis quinqueflora (Hartmann) O. Schwarz - Fitjaskúfur.
  • Eleocharis acicularis (L.) Roemer & Schultes - Efjuskúfur.
  • Kobresia myosuroides (Vill.) Fiori - Þursaskegg.
  • Carex dioica L. - Sérbýlisstör.
  • Carex capitata L. - Hnappstör.
  • Carex diandra Schrank - Safastör.
  • Carex nardina Fries - Finnungsstör.
  • Carex microglochin Wahlenb. - Broddastör.
  • Carex rupestris All. - Móastör.
  • Carex chordorrhiza Ehrh. ex L. fil. - Vetrarkvíðastör.
  • Carex maritima Gunnerus - Bjúgstör.
  • C arex echinata Murray - Ígulstör.
  • Carex macloviana d'Urv. - Kollstör.
  • Carex brunnescens (Pers.) Poiret - Línstör.
  • Carex canescens L. - Blátoppastör.
  • Carex lachenalii Schkuhr - Rjúpustör.
  • Carex glareosa Wahlenb. - Heigulstör.
  • Carex mackenziei V.I.Krecz. - Skriðstör.
  • Carex norvegica Retz. - Fjallastör.
  • Carex atrata L. - Sótstör.
  • Carex flacca Schreber - Grástör.
  • Carex pilulifera L. - Dúnhulstrastör.
  • Carex glacialis Mackenzie - Dvergstör.
  • Carex capillaris L. - Hárleggjastör.
  • Carex panicea L. - Belgjastör.
  • Carex livida (Wahlenb.) Willd. - Fölvastör.
  • Carex vaginata Tausch - Slíðrastör.
  • Carex limosa L. - Flóastör.
  • Carex paupercula Michx. - Keldustör.
  • Carex rariflora (Wahlenb.) Sm. - Hengistör.
  • Carex serotina Mérat - Gullstör.
  • Carex flava L. - Trjónustör.
  • Carex rostrata Stokes - Tjarnastör.
  • Carex saxatilis L. - Hrafnastör.
  • Carex nigra (L.) Reichard - Mýrastör.
  • Carex subspathacea Wormsk. - Flæðastör.
  • Carex lyngbyei Hornem. - Gulstör.
  • Carex bicolor All. - Hvítstör.
  • Carex rufina Drejer - Rauðstör.
  • Juncus filiformis L. - Þráðsef.
  • Juncus arcticus Willd. subsp. intermedius Hyl. - Hrossanál.
  • Juncus trifidus L. - Móasef.
  • Juncus castaneus Sm. - Dökkasef.
  • Juncus triglumis L. - Blómsef.
  • Juncus biglumis L. - Flagasef.
  • Juncus alpinoarticulatus Chaix subsp. alpestris (Hartm.) Hämet-Ahti - Mýrasef.
  • Juncus articulatus L. - Laugasef.
  • Juncus bulbosus L. - Hnúðsef.
  • Juncus squarrosus L. - Stinnasef.
  • Juncus bufonius L. - Lækjasef.
  • Juncus ranarius Nees ex Song. & Perr. - Lindasef.
  • Luzula spicata (L.) DC. - Axhæra.
  • Luzula arcuata (Wahlenb.) Swartz - Boghæra.
  • Luzula confusa Lindeb. - Fjallhæra.
  • Luzula multiflora (Ehrh.) Lej. - Vallhæra.
  • Luzula pallescens Sw. - Ljóshæra.
  • Luzula sudetica (Willd.) DC. - Dökkhæra.
  • Sparganium natans L. - Tjarnabrúsi.
  • Sparganium hyperboreum Laest. ex Beurl. - Mógrafabrúsi.
  • Sparganium angustifolium Michx. - Trjónubrúsi.
  • Tofieldia pusilla (Michx.) Pers. - Sýkigras.
  • Allium oleraceum L. - Villilaukur.
  • Paris quadrifolia L. - Ferlaufungur.
  • Coeloglossum viride (L.) Hartman - Barnarót.
  • Listera cordata (L.) R.Br. - Hjartatvíblaðka.
  • Listera ovata (L.) R.Br. - Eggtvíblaðka.
  • Corallorhiza trifida Châtel. - Kræklurót.
  • Salix arctica Pall. - Fjallavíðir.
  • Salix lanata L. - Loðvíðir.
  • Salix herbacea L. - Grasvíðir.
  • Salix phylicifolia L. - Gulvíðir.
  • Populus tremula L. - Blæösp.
  • Betula nana L. - Fjalldrapi.
  • Betula pubescens Ehrh. - Birki.
  • Urtica urens L. - Smánetla.
  • Rumex longifolius DC. - Njóli.
  • Rumex acetosa L. subsp. acetosa - Túnsúra.
  • Rumex acetosella L. - Hundasúra.
  • Oxyria digyna (L.) Hill - Ólafssúra.
  • Koenigia islandica L. - Naflagras.
  • Persicaria amphibia (L.) Gray - Tjarnablaðka.
  • Polygonum aviculare L. - Blóðarfi.
  • Atriplex glabriuscula Edmonston - Hrímblaðka.
  • Stellaria media (L.) Vill. - Haugarfi.
  • Stellaria crassifolia Ehrh. - Stjörnuarfi.
  • Stellaria humifusa Rottb. - Lágarfi.
  • Stellaria borealis Bigelow - Línarfi.
  • Cerastium cerastoides (L.) Britton - Lækjafræhyrna.
  • Cerastium nigrescens (H.C.Watson) Edmondston var. laxum (Lindblad) Brysting & Elven - Fjallafræhyrna.
  • Cerastium alpinum L. - Músareyra.
  • Minuartia biflora (L.) Schinz & Thell. - Fjallanóra.
  • Cerastium fontanum Baumg. - Vegarfi.
  • Cerastium glomeratum Thuill. - Hnoðafræhyrna.
  • Sagina nodosa (L.) Fenzl subsp. borealis G.E. Crow - Hnúskakrækill.
  • Sagina subulata (Swartz) C. Presl - Broddkrækill.
  • Sagina nivalis (Lindblad) Fries - Snækrækill.
  • Sagina caespitosa (J.Vahl) Lange - Fjallkrækil.
  • Sagina saginoides (L.) H.Karsten - Langkrækill.
  • Sagina procumbens L. - Skammkrækill.
  • Honkenya peploides (L.) Ehrh. subsp. diffusa (Hornem.) Hultén - Fjöruarfi.
  • Minuartia rubella (Wahlenb.) Hiern - Melanóra.
  • Minuartia stricta (Swartz) Hiern - Móanóra.
  • Arenaria norvegica Gunn. - Skeggsandi.
  • Spergula arvensis L. subsp. sativa (Mert. & W.D.J.Koch) Čelak - Skurfa.
  • Spergularia salina J. & C.Presl - Flæðaskurfa.
  • Viscaria alpina L. - Ljósberi.
  • Lychnis flos-cuculi L. - Munkahetta.
  • Silene uniflora Roth - Holurt.
  • Silene acaulis (L.) Jacq. - Lambagras.
  • Ranunculus acris L. - Brennisóley.
  • Ranunculus repens L. - Skriðsóley.
  • Ranunculus auricomus L. - Sifjarsóley.
  • Ranunculus pygmaeus Wahlenb. - Dvergsóley.
  • Ranunculus hyperboreus Rottb. - Trefjasóley.
  • Ranunculus reptans L. - Flagasóley.
  • Caltha palustris L. - Hófsóley.
  • Thalictrum alpinum L. - Brjóstagras.
  • Papaver radicatum Rottb. - Melasól.
  • Cakile maritima Scop. subsp. islandica (Goud.) Hyl. ex Elven - Fjörukál.
  • Capsella bursa-pastoris (L.) Medik. - Hjartarfi.
  • Cochlearia officinalis L. - Skarfakál.
  • Subularia aquatica L. - Alurt.
  • Draba incana L. - Grávorblóm.
  • Draba norvegica Gunn. - Hagavorblóm.
  • Draba nivalis Liljeblad - Héluvorblóm.
  • Draba oxycarpa Sommerf. - Fjallavorblóm.
  • Draba verna L. - Vorperla.
  • Cardamine pratensis L. subsp. angustifolia (Hook.) O.E. Schulz - Hrafnaklukka.
  • Cardamine hirsuta L. - Lambaklukka.
  • Cardamine bellidifolia L. - Jöklaklukka.
  • Arabis alpina L. - Skriðnablóm.
  • Arabidopsis petraea (L.) - Melablóm.
  • Rorippa islandica (Oeder & Murray) Borbas - Kattarjurt.
  • Erysimum strictum P.Gaertn., B. Mey. & Scherb. - Aronsvöndur.
  • Sedum acre L. - Helluhnoðri.
  • Sedum annuum L. - Skriðuhnoðri.
  • Sedum villosum L. - Flagahnoðri.
  • Rhodiola rosea L. - Burnirót.
  • Tillaea aquatica L. - Vatnsögn.
  • Saxifraga cespitosa L. - Þúfusteinbrjótur.
  • Saxifraga rosacea Moench - Toppasteinbrjótur.
  • Saxifraga hypnoides L. - Mosasteinbrjótur.
  • Saxifraga cernua L. - Laukasteinbrjótur.
  • Saxifraga rivularis L. - Lækjasteinbrjótur.
  • Saxifraga oppositifolia L. - Vetrarblóm.
  • Saxifraga hirculus L. - Gullbrá.
  • Saxifraga aizoides L. - Gullsteinbrjótur.
  • Saxifraga nivalis L. - Snæsteinbrjótur.
  • Saxifraga tenuis (Wahlenb.) H.Smith ex Lindm. - Dvergsteinbrjótur.
  • Saxifraga stellaris L. - Stjörnusteinbrjótur.
  • Saxifraga foliolosa R.Br. - Hreistursteinbrjótur.
  • Saxifraga cotyledon L. - Klettafrú.
  • Saxifraga paniculata Miller - Bergsteinbrjótur.
  • Parnassia palustris L. - Mýrasóley.
  • Filipendula ulmaria (L.) Maxim. - Mjaðjurt.
  • Fragaria vesca L. - Jarðarber.
  • Sibbaldia procumbens L. - Fjallasmári.
  • Comarum palustre L. - Engjarós.
  • Argentina anserina (L.) Rydb. - Tágamura.
  • Argentina egedii (Wormskj.) Rydb. - Skeljamura.
  • Potentilla crantzii (Crantz) G.Beck ex Fritsch - Gullmura.
  • Geum rivale L. - Fjalldalafífill.
  • Dryas octopetala L. - Holtasóley.
  • Rubus saxatilis L. - Hrútaber.
  • Rosa pimpinellifolia L. - Þyrnirós.
  • Rosa dumalis Bechst. - Glitrós.
  • Sanguisorba officinalis L. - Blóðkollur.
  • Alchemilla alpina L. - Ljónslappi.
  • Alchemilla faeroensis (Lange) Buser - Maríuvöttur.
  • Alchemilla filicaulis Buser - Maríustakkur.
  • Alchemilla glabra Neygenf. - Brekkumaríustakkur.
  • Alchemilla wichurae (Buser) Stefánsson - Silfurmaríustakkur.
  • Alchemilla glomerulans Buser - Hnoðamaríustakkur.
  • Sorbus aucuparia L. - Reynir.
  • Anthyllis vulneraria L. subsp. borealis (Rouy) Jalas - Gullkollur.
  • Vicia cracca L. - Umfeðmingur.
  • Vicia sepium L. - Giljaflækja.
  • Lathyrus japonicus Willd. subsp. maritimus (L.) P.W.Ball - Baunagras.
  • Lathyrus palustris L. - Mýraertur.
  • Lathyrus pratensis L. - Fuglaertur.
  • Trifolium repens L. - Hvítsmári.
  • Oxalis acetosella L. - Súrsmæra.
  • Geranium sylvaticum L. - Blágresi.
  • Linum catharticum L. - Villilín.
  • Callitriche stagnalis Scop. - Laugabrúða.
  • Callitriche brutia Petagna - Lækjabrúða.
  • Callitriche hamulata Kütz. ex Koch - Síkjabrúða.
  • Callitriche palustris L. - Vorbrúða.
  • Callitriche hermaphroditica L. - Haustbrúða.
  • Drosera rotundifolia L. - Sóldögg.
  • Viola palustris L. - Mýrfjóla.
  • Epilobium anagallidifolium Lam. - Fjalladúnurt.
  • Viola epipsila Ledeb. - Birkifjóla.
  • Viola canina L. - Týsfjóla.
  • Viola riviniana Reichenb. - Skógfjóla.
  • Viola tricolor L. - Þrenningarfjóla.
  • Chamerion latifolium (L.) Holub. - Eyrarrós.
  • Chamerion angustifolium (L.) Holub. - Sigurskúfur.
  • Epilobium collinum C.C.Gmelin - Klappadúnurt.
  • Epilobium alsinifolium Vill. - Lindadúnurt.
  • Epilobium lactiflorum Hausskn. - Ljósadúnurt.
  • Epilobium hornemannii Reichenb. - Heiðadúnurt.
  • Myriophyllum alterniflorum DC. - Síkjamari.
  • Myriophyllum sibiricum Kom. - Vatnamari.
  • Hippuris tetraphylla L. fil. - Flæðalófótur.
  • Hippuris vulgaris L. - Lófótur.
  • Cornus suecica L. - Skollaber.
  • Hydrocotyle vulgaris L. - Vatnsnafli.
  • Angelica sylvestris L. - Geithvönn.
  • Angelica archangelica L. - Ætihvönn.
  • Carum carvi L. - Kúmen.
  • Ligusticum scoticum L. - Sæhvönn.
  • Pyrola minor L. - Klukkublóm.
  • Pyrola grandiflora Radius - Bjöllulilja.
  • Loiseleuria procumbens (L.) Desv. - Sauðamergur.
  • Arctostaphylos uva-ursi (L.) Sprengel - Sortulyng.
  • Calluna vulgaris (L.) Hull - Beitilyng.
  • Vaccinium myrtillus L. - Aðalbláberjalyng.
  • Vaccinium uliginosum L. - Bláberjalyng.
  • Vaccinium vitis-idaea L. - Rauðberjalyng.
  • Oxycoccus microcarpus Turcz. ex Rupr. - Mýraberjalyng.
  • Empetrum nigrum L. - Krækilyng.
  • Diapensia lapponica L. - Fjallabrúða.
  • Primula stricta Hornem. - Maríulykill.
  • Glaux maritima L. - Sandlæðingur.
  • Trientalis europaea L. - Sjöstjarna.
  • Armeria maritima (Miller) Willd. - Geldingahnappur.
  • Gentianella campestris (L.) Börner subsp. islandica (Murb.) Á.Löve & D.Löve - Maríuvöndur.
  • Gentianella amarella (L.) Börner subsp. septentrionalis (Druce) N.M.Pritchard - Grænvöndur.
  • Gentiana nivalis L. - Dýragras.
  • Gentianopsis detonsa (Rottb.) Ma - Engjavöndur.
  • Gentianella aurea (L.) H.Smith - Gullvöndur.
  • Lomatogonium rotatum (L.) Fries ex Fern. - Blástjarna.
  • Menyanthes trifoliata L. - Horblaðka.
  • Myosotis arvensis (L.) Hill - Gleym-mér-ei.
  • Myosotis stricta Link ex Roemer & Schultes - Sandmunablóm.
  • Myosotis discolor Pers. - Kisugras.
  • Mertensia maritima (L.) S.F.Gray - Blálilja.
  • Ajuga pyramidalis L. - Lyngbúi.
  • Prunella vulgaris L. - Blákolla.
  • Thymus praecox Opiz subsp. arcticus (E. Durand) Jalas - Blóðberg.
  • Rhinanthus minor L. - Lokasjóður.
  • Melampyrum sylvaticum L. - Krossjurt.
  • Bartsia alpina L. - Smjörgras.
  • Euphrasia frigida Pugsl. - Augnfró.
  • Euphrasia stricta D.Wolff ex J.F. Lehm. var. tenuis - Kirtilaugnfró.
  • Limosella aquatica L. - Efjugras.
  • Pedicularis flammea L. - Tröllastakkur.
  • Veronica serpyllifolia L. - Lækjadepla.
  • Veronica fruticans Jacq. - Steindepla.
  • Veronica alpina L. - Fjalladepla.
  • Veronica officinalis L. - Hárdepla.
  • Veronica scutellata L. - Skriðdepla.
  • Veronica anagallis-aquatica L. - Laugadepla.
  • Pinguicula vulgaris L. - Lyfjagras.
  • Utricularia minor L. - Blöðrujurt.
  • Plantago maritima L. - Kattartunga.
  • Plantago major L. - Græðisúra.
  • Plantago lanceolata L. - Selgresi.
  • Littorella uniflora (L.) Ascherson - Tjarnalaukur.
  • Galium boreale L. - Krossmaðra.
  • Galium trifidum L. - Þrenningarmaðra.
  • Galium normanii O.C.Dahl - Hvítmaðra.
  • Galium uliginosum L. - Laugamaðra.
  • Valeriana sambucifolia J.C.Mikan ex Pohl subsp. procurrens (Wallr.) Á.Löve. - Hagabrúða.
  • Succisa pratensis Moench - Stúfa.
  • Knautia arvensis (L.) Coulter - Rauðkollur.
  • Campanula rotundifolia L. - Bláklukka.
  • Campanula uniflora L. - Fjallabláklukka.
  • Cirsium arvense (L.) Scop. - Þistill.
  • Erigeron borealis (Vierh.) Simmons - Jakobsfífill.
  • Erigeron uniflorus L. - Fjallakobbi.
  • Erigeron humilis R.C.Graham - Snækobbi.
  • Antennaria alpina (L.) Gaertner - Fjallalójurt.
  • Gnaphalium uliginosum L. - Grámygla.
  • Achillea millefolium L. - Vallhumall.
  • Achillea ptarmica L. - Silfurhnappur.
  • Senecio vulgaris L. - Krossfífill.
  • Leontodon autumnalis L. - Skarifífill.
  • Crepis paludosa (L.) Moench - Hjartafífill.
  • Botrychium minganense Victorin, Proc. & Trans. - Keilutungljurt.
  • Botrychium simplex E.Hitchc. - Dvergtungljurt.
  • Hymenophyllum wilsonii Hook. - Mosaburkni.
  • Asplenium septentrionale (L.) Hoffm. - Skeggburkni.
  • Asplenium trichomanes L. - Svartburkni.
  • Bistorta vivipara (L.) Delarbre - Kornsúra.
  • Atriplex longipes Drejer subsp. praecox (Hülph.) Turesson - Hélublaðka.
  • Montia fontana L. - Lækjagrýta.
  • Beckwithia glacialis (L.) Á. & D.Löve - Jöklasóley.
  • Batrachium eradicatum (Laest.) Fr. - Lónasóley.
  • Draba arctogena (E.Ekman) E.Ekman - Heiðavorblóm.
  • Draba glabella Pursh. - Túnvorblóm.
  • Draba lactea Adams - Snoðvorblóm.
  • Cochlearia groenlandica L. - Fjallaskarfakál.
  • Alchemilla subcrenata Buser - Engjamaríustakkur.
  • Harrimanella hypnoides (L.) Coville - Mosalyng.
  • Andromeda polifolia L. - Ljósalyng.
  • Primula egaliksensis Wormsk. - Davíðslykill.
  • Comastoma tenellum (Rottb.) Toyok. - Maríuvendlingur.
  • Galium palustre L. - Mýramaðra.
  • Euphrasia calida Yeo - Hveraaugnfró.
  • Taraxacum spp. - Túnfífill.
  • Pilosella islandica (Lange) Á.Löve - Íslandsfífill.
  • Hieracium acidotoides (Dahlst.) Dahlst. - Merkurfífill.
  • Hieracium alpinum L. - Fellafífill.
  • Hieracium anglicum Fries - Klausturfífill.
  • Hieracium aquiliforme (Dahlst.) Dahlst. - Arinfífill.
  • Hieracium arctocerinthe Dahlst. - Tígulfífill.
  • Hieracium arrostocephalum Omang - Ingimarsfífill.
  • Hieracium cretatum Dahlst. - Vallafífill.
  • Hieracium demissum (Stroemf.) Dahlst. - Skallafífill.
  • Hieracium elegantiforme Dahlst. - Glæsifífill.
  • Hieracium holopleurum Dahlst. - Runnafífill.
  • Hieracium leucodetum Omang - Hærufífill.
  • Hieracium lygistodon Dahlst. - Vargsfífill.
  • Hieracium macrocomum Dahlst. - Brekkufífill.
  • Hieracium magnidens Dahlst. - Kvíslfífill.
  • Hieracium microdon (Dahlst.) Omang - Holtafífill.
  • Hieracium phrixoclonum (Omang) Omang - Kögurfífill.
  • Hieracium pullicalicitum Omang - Skeggfífill.
  • Hieracium stictophyllum Dahlst. ex W.R. Linton - Blettafífill.
  • Hieracium stoedvarense Omang - Stöðvarfífill.
  • Hieracium stroemfeltii Dahlst. - Vinafífill.
  • Hieracium thaectolepium Dahlst. - Hlíðafífill.
  • Hieracium thulense Dahlst. - Skrautfífill.
  • Dactylorhiza maculata (L.) Soó - Brönugrös.
  • Juncus gerardii Loisel. - Fitjasef.
  • Carex adelostoma W.I.Krecz. - Hrísastör.
  • Carex bigelowii Torrey ex Schweinitz subsp. rigida W. Schulze-Motel - Stinnastör.
  • Carex caryophyllea Latourr. - Vorstör.
  • Carex demissa Hornem. - Grænstör.
  • Carex heleonastes Ehrh. ex L. fil. - Heiðastör.
  • Carex krausei Boeck. - Toppastör.
  • Carex pallescens L. - Gljástör.
  • Carex pulicaris L. - Hagastör.
  • Carex salina Wahlenb. - Marstör.
  • Trisetum triflorum (Bigel.) Á.Löve & D.Löve - Móalógresi.
  • Poa x jemtlandica (Almq.) K.Richter - Hjallasveifgras.
  • Persicaria maculosa Gray - Flóajurt.
  • Orthilia secunda (L.) House - Grænlilja.
  • Phyllodoce caerulea (L.) Bab. - Bláklukkulyng.
  • Omalotheca norvegica (Gunnerus) Schultz Bip. & F.W.Schmidt - Fjandafæla.
  • Omalotheca supina (L.) DC. - Grámulla.
  • Omalotheca sylvatica (L.) Schultz Bip. & F.W.Schmidt - Grájurt.
  • Tripleurospermum maritimum (L.) W.D.J. Koch subsp. phaeocephalum (Rupr.) Hämet- Ahti - Baldursbrá.
  • Platanthera hyperborea (L.) Lindley - Friggjargras.
  • Pseudorchis straminea (Fernald) Soó subsp. straminea - Hjónagras.

Viðauki II

Listi A yfir útlendar plöntutegundir sem óheimilt er að flytja til landsins.

  1. Azolla filiculoides.
  2. Bunias orientalis - Rússakál.
  3. Elodea canadensis - Vatnapest.
  4. Fallopia japonica.
  5. Fallopia sachalinensis.
  6. Galinsoga quadriradiata.
  7. Heracleum persicum - Húnakló.
  8. Heracleum mantegazzianum - Bjarnarkló.
  9. Heracleum sp.
  10. Impatiens parviflora - Snuddulísa.
  11. Petasites hybridus - Hrossafífill.
  12. Senecio inaequidens.
  13. Solidago canadensis - Kanadagullhrís.
  14. Solidago gigantea.
  15. Spartina anglica.