Reglugerð um greiðslu Suðurlandsskóga af kostnaði við skógrækt og skjólbeltarækt á lögbýlum.
1. gr. Fjölnytjaskógrækt.
Hlutfallsleg greiðsla Suðurlandsskóga af samþykktum kostnaði við fjölnytjaskógrækt á lögbýlum er 97 af hundraði.
2. gr. Skjólbeltarækt.
Suðurlandsskógar greiða að fullu samþykktan kostnað vegna skjólbeltaræktunar af eftirtöldum þáttum:
- Kaup á plöntum og stiklingum.
- Kaup á plastdúkum og vélarvinna við lagningu þeirra.
- Umsjón og verkstjórn við framkvæmd.
- Illgresiseyðing með lyfjum í allt að 5 ár frá því að gróðursetningu lýkur.
Annar kostnaður af skjólbeltaræktun greiðist að fullu af forsvarsmanni lögbýlis.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. gr. laga nr. 97/1997 um Suðurlandsskóga, öðlast gildi við birtingu, sbr. 7. gr. laga nr. 64/1943 um birtingu laga og stjórnvaldserinda.
Landbúnaðarráðuneytinu, 21. júlí 1998.
F. h. r.
Guðmundur Sigþórsson.
Hjördís Halldórsdóttir.