Lög um fjarskiptasjóð
Lög nr. 132/2005
Lagasafn. Íslensk lög 13. september 2022. Útgáfa 152c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um fjarskiptasjóð1)
Lög nr. 132/2005
1)Lögin falla úr gildi í árslok árið 2022 skv. 9. gr., sbr. l. 96/2017, 47. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 30. desember 2005.
Breytt með: L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 179/2011 (tóku gildi 30. des. 2011). L. 126/2016 (tóku gildi 1. jan. 2017 nema 1., 2., c-liður 8., 9., 18., r-liður 19., 20., 22.–24., 28., 29., 41., 58., 60. og 61. gr. sem tóku gildi 31. des. 2016, s-liður 19. gr. sem tók gildi 1. apríl 2017 og 10. gr. sem tók gildi 1. sept. 2017; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 62. gr.). L. 96/2017 (tóku gildi 31. des. 2017 nema 1., 11., 13., 14., 17.–27., 31.–35. og 38.–46. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2018; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 49. gr.). L. 53/2018 (tóku gildi 22. júní 2018).Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eða háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
■ 1. gr. Fjarskiptasjóður.
□ Stofna skal sérstakan sjóð, fjarskiptasjóð, sem hefur það hlutverk að stuðla að uppbyggingu á sviði fjarskiptamála á grundvelli fjarskiptaáætlunar. Sjóðurinn er eign ríkisins. Varsla hans og dagleg umsýsla heyrir undir [ráðuneytið]. 1)
1)L. 126/2011, 411. gr.
■ 2. gr.1 Hlutverk.
□ Hlutverk sjóðsins er að úthluta fjármagni til verkefna sem miða að uppbyggingu stofnkerfa fjarskipta, verkefna sem stuðla að öryggi og samkeppnishæfni þjóðfélagsins á sviði fjarskipta og annarra verkefna, enda sé kveðið á um þau í fjarskiptaáætlun, og ætla má að ekki verði í þau ráðist á markaðsforsendum.
■ 3. gr. Stjórn.
□ [Ráðherra skipar þrjá menn í stjórn fjarskiptasjóðs, þar af formann og varaformann, auk varamanna. Skipunin gildir til þriggja ára í senn.] 1)
□ Stjórn sjóðsins skal hafa yfirumsjón með fjármálum fjarskiptasjóðs í samræmi við hlutverk sjóðsins. Stjórn sjóðsins [skal] 2) skila skýrslu um starfsemi sjóðsins til [ráðherra] 3) sem leggur hana fyrir Alþingi til upplýsingar.
1)L. 179/2011, 1. gr. 2)L. 53/2018, 12. gr. 3)L. 162/2010, 245. gr.
■ 4. gr. Fjármögnun verkefna.
□ Stjórnin ákveður framlög úr sjóðnum í samræmi við hlutverk sitt og fjarskiptaáætlun og semur greiðsluáætlun þar um innan heimilda fjárlaga. Stjórnin getur sett nánari reglur um framkvæmd einstakra verkefna, þar á meðal um faglegt eftirlit með verkefnum og framvindu þeirra. Stjórnin getur ákveðið tilfærslu fjármuna milli ára og/eða einstakra verkefna ef nauðsyn krefur.
■ 5. gr. Umsýsla og eftirlit.
□ Þeir sem fá úthlutað fé úr fjarskiptasjóði skulu gera grein fyrir framvindu verkefna og ráðstöfun fjár samkvæmt nánari reglum sjóðstjórnar.
□ [Ríkisendurskoðun annast árlega endurskoðun reikninga sjóðsins.] 1)
1)L. 179/2011, 2. gr.
■ 6. gr. Tekjur.
□ Tekjur fjarskiptasjóðs eru framlag úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun Alþingis og tekjur af ávöxtun fjármuna sjóðsins.
□ [Tekjur ríkissjóðs sem til eru komnar vegna gjalda fyrir afnot af tíðnum, sem lögð eru á samkvæmt heimild í lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, skulu renna í fjarskiptasjóð.] 1)
1)L. 179/2011, 3. gr.
■ 7. gr. Kostnaður af rekstri.
□ Fjarskiptasjóður ber allan kostnað af starfsemi sinni … 1)
1)L. 179/2011, 4. gr.
■ 8. gr. Reglugerðarheimild.
□ [Ráðherra] 1) er heimilt að kveða nánar á um skipulag sjóðsins og framkvæmd laga þessara með reglugerð. 2)
1)L. 162/2010, 245. gr. 2)Rg. 870/2014.
■ 9. gr. Gildistaka.
□ Lög þessi öðlast þegar gildi. [Lög þessi falla úr gildi í árslok árið [2022], 1) inneign sjóðsins eftir uppgjör verkefna við þau tímamót rennur í ríkissjóð.] 2)
1)L. 96/2017, 47. gr. 2)L. 179/2011, 5. gr.