Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Lög um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi Lög nr. 61/1992
Þessi lög eru ekki lengur í gildi. Textinn er sóttur úr sögulegri útgáfu lagasafns.

Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2014.  Útgáfa 143b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi1)

Lög nr. 61/1992


    1)Lögunum var breytt með l. 60/2013, 95. gr. Breytingarnar taka gildi 1. júlí 2015 skv. 94. gr. s.l., sbr. l. 23/2014, 1. gr.
Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 22. júní 1992. Breytt með l. 73/1996 (tóku gildi 19. júní 1996), l. 44/1999 (tóku gildi 1. júlí 1999), l. 164/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003), l. 24/2007 (tóku gildi 29. mars 2007), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 60/2013 (taka gildi 1. júlí 2015).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis- og auðlindaráðherra eða umhverfis- og auðlindaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.



1. gr. Óheimilt er að brenna sinu nema á jörðum sem eru í ábúð eða nýttar af ábúendum lögbýla og þá samkvæmt leyfi sýslumanns, [að höfðu samráði við lögreglustjóra], 1) og að fylgt sé ákvæðum í reglugerð, sbr. 4. gr.
    1)L. 24/2007, 9. gr.
2. gr. Aldrei má brenna sinu þar sem almannahætta stafar af eða tjón getur hlotist af á náttúruminjum, fuglalífi, mosa, lyng- eða trjágróðri og mannvirkjum.
3. gr. Ábúendur jarða geta einir fengið leyfi til að brenna sinu á jörðum, sbr. 1. gr., enda sé það gert fyrir 1. maí ár hvert að uppfylltum skilyrðum í reglugerð, sbr. 4. gr. Eftir þann tíma er hvarvetna óheimilt að brenna sinu. Þó getur sýslumaður, að höfðu samráði við [ráðuneytið], 1) ákveðið aðra dagsetningu ef sérstakar veðurfarslegar ástæður gefa tilefni til.
    1)L. 126/2011, 168. gr.
4. gr. Í reglugerð, 1) sem [ráðherra] 2) setur að fenginni umsögn [Bændasamtaka Íslands] 3) og [Umhverfisstofnunar], 4) skal mælt fyrir um hver skilyrði ábúanda, sbr. 3. gr., skuli sett, m.a. um skyldu til að tilkynna hlutaðeigandi slökkviliðsstjóra, eftirlit með brennu og annað sem nauðsynlegt þykir.
    1)Rg. 157/1993, sbr. 273/1994. 2)L. 126/2011, 168. gr. 3)L. 73/1996, 27. gr. 4)L. 164/2002, 24. gr.
5. gr. Óheimilt er að kveikja eld á víðavangi þar sem almannahætta getur stafað af eða hætt er gróðri, dýralífi eða mannvirkjum.
Skylt er hverjum þeim sem ferðast um að gæta ýtrustu varkárni í meðferð elds.
Sá sem verður þess var að eldur er laus á víðavangi skal svo fljótt sem auðið er gera aðvart umráðamanni lands eða hlutaðeigandi yfirvaldi.
6. gr. Sá sem veldur tjóni með sinubrennu eða meðferð elds á víðavangi þannig að saknæmt sé ber fébótaábyrgð á því tjóni sem af hlýst.
7. gr.1)
    1)L. 88/2008, 233. gr.
8. gr.1 Brot gegn ákvæðum laga þessara varða sektum.
9. gr. Lög þessi öðlast gildi þegar í stað