Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Lög um breytingu á lögum nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd. Lög nr. 29/1989
Þessi lög eru ekki lengur í gildi. Textinn er sóttur úr sögulegri útgáfu lagasafns.
Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 958, 111. löggjafarþing 414. mál: náttúruvernd (landverðir).
Lög nr. 29 10. maí 1989.

Lög um breytingu á lögum nr. 47 16. apríl 1971, um náttúruvernd.


1. gr.

     Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein sem verði 3. mgr., svohljóðandi:
     Í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum, sem eru í umsjá Náttúruverndarráðs, starfa landverðir er annast þar eftirlit og fræðslu. Ráðherra setur reglugerð um hæfi, menntun og starfsheimildir landvarða.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 26. apríl 1989.