Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 916/2012"
1 dómar fundust
Í málinu greindi aðila á um innihald munnlegs samkomulags um kaup Á ehf. á nautgripum af H ehf. Laut ágreiningurinn að fjölda nautgripa sem keyptir voru og hvort með í kaupunum hefðu fylgt vélar og tæki í eigu H ehf. samkvæmt nánar tilgreindum tækjalista. Landsréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að Á ehf. hefði ekki tekist sönnun þess að kauptilboðið hefði einnig tekið til véla og tækja og að gripalisti Bændasamtaka Íslands hefði verið ákvarðandi um fjölda þeirra nautgripa sem kaupsamningur aðila tók til. Fallist var á að til lækkunar á kaupverði kæmi verðmæti fjögurra nautgripa sem vantaði á fjölda þeirra sem tilgreindir voru á gripalista.
...Var þar um að ræða lista yfir merkingar og skráningar nautgripa í samræmi við reglugerð nr. 916/2012 um merkingu búfjár, sbr. 13. gr. laga nr. 38/2013 um búfjárhald...