Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 790/2006"
2 dómar fundust
Bílaleigan A krafðist þess að úrskurði yfirskattanefndar og úrskurði skattstjórans í Reykjavík um hækkun virðisaukaskattsskyldrar veltu A yrði hnekkt og að Í yrði dæmt til að endurgreiða sér 30.407.185 krónur. Ágreiningur málsins laut að því hvort A hefði verði heimilt að halda utan skattverðs sölu á viðbótartryggingum, sem viðskiptavinum hans var boðið að kaupa er þeir leigðu af honum bifreið til afnota, og um leið hvort bílaleigur hefðu heimild til að selja tryggingar án þess að innheimta virðisaukaskatt af þeirri þjónustu. A hélt því fram að kostnaður við viðbótartrygginguna ætti ekki að teljast til skattverðs hins leigða, þar sem um sérstaka þjónustu væri að ræða, ótengda starfsemi hans. Talið var að sala hinna valkvæðu trygginga hefði verið í slíkum tengslum við starfsemi A að telja bæri kostnað vegna þeirra til heildarandvirðis hins selda, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga nr. 50/1988, og skipti í því sambandi ekki máli þótt viðskiptavinurinn hefði sjálfur óskað eftir þjónustu A við kaup slíkra trygginga. Samkvæmt 9. tl. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988 væri vátryggingastarfsemi undanþegin virðisaukaskatti. Talið var að túlka ætti ofangreinda undanþágu þröngt frá þeirri meginreglu laganna að öll almenn sala á vöru og þjónustu skyldi skattskyld. Þar sem A rak ekki vátryggingastarfsemi og hafði ekki leyfi til að selja tryggingar samkvæmt lögum um vátryggingasamninga nr. 60/1994 var ekki fallist á að A hefði verið heimilt að undanþiggja virðisaukaskatt í þjónustu sinni við viðskiptavini við kaup á tryggingum. Samkvæmt þessu var Í sýkn af kröfum A.
...Bílarnir séu tryggðir samkvæmt reglugerð nr. 790/2006, áður reglugerð nr. 398/2000, sbr. reglugerð nr. 733/2001, en þessar reglugerðir haggi hvorki skattframkvæmd né hafi áhrif á hana, enda...
Íslenska ríkið sýknað af kröfu stefnanda um að fella úr gildi úrskurð yfirskattanefndar um virðisaukaskattskylda veltu stefnanda.
...Bílarnir séu tryggðir samkvæmt reglugerð nr. 790/2006, áður reglugerð nr. 398/2000, sbr. reglugerð nr. 733/2001, en þessar reglugerðir haggi hvorki skattframkvæmd né hafi áhrif á hana, enda...