Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 575/2017"
1 dómar fundust
X var ákærð fyrir tollalagabrot á árunum 2016 til 2018 í tengslum við innflutning A ehf. og B ehf. á nautakjötsafurðum. Landsréttur taldi sannað að X hefði komið því til leiðar að tollmiðlari tilgreindi afurðir ranglega í aðflutningsskýrslum fyrir tollafgreiðslu undir tollskrárnúmeri 0202.2009 sem kjöt með beini í stað réttrar tilgreiningar undir tollskrárnúmeri 0202.3009 sem beinlaust kjöt. Í því hafi falist að veittar voru rangar upplýsingar um tegund vöru, sbr. 1. mgr. 172. gr. tollalaga nr. 88/2005. Þá var talið sannað að X hefði gert sér grein fyrir því að þær upplýsingar sem hún gaf kynnu að vera rangar en látið sér það í léttu rúmi liggja og veitt upplýsingarnar eigi að síður. Skilyrði um ásetning væru þar með uppfyllt. Var X því sakfelld samkvæmt ákæru og dæmd til greiðslu sektar að fjárhæð 39.179.512 krónur en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.
...ágúst 2017 tölvupóst sem innihélt reglugerð nr. 575/2017 um úthlutun á opnum tollkvótum á nautakjöti í viðhengi, en reglugerðin tók til tollskrárnúmers 0202.3009. Í tölvupóstinum sagði: „Það var...