Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 175/2016"
1 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfum varnaraðila og Z um að erindi frá skrifstofu fjármálagerninga lögreglu (SFL) 4. desember 2018 til sóknaraðila yrði lagt fram af hálfu sóknaraðila sem og sú tilkynning sem erindið byggði á. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að hvorki í gögnum málsins né undirliggjandi lagaákvæðum liggi nokkuð fyrir um að sóknaraðili hafi fengið eða átt að fá sent afrit af þeirri tilkynningu sem erindi SFL til sóknaraðila byggði á. Þá hefðu varnaraðilar ekki bent á ákveðin atriði sem þeir telja vera í erindi SFL til sóknaraðila eða útskýrt hvernig það geti haft áhrif á úrlausn málsins. Ekkert lægi fyrir um að erindið hafi að geyma sönnun um atvik máls sem sóknaraðila sé skylt að leggja fram. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
...64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem og reglugerð nr. 175/2016 sem sett var á grundvelli 2. mgr. 19. gr. laganna, sbr. nú 20. gr. laga...